Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1996, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1996, Side 6
LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 1996 JL>"V Qtlön d Díana hálfhrelld eftir að samið var endanlega um skilnað hennar og Karls: Fær 1,7 milljarða en missir sæmdarheiti Samningum vegna skilnaðar Díönu prinsessu og Karls Breta- prins lauk loks í gær eftir margra mánaöa vangaveltur og lítt vinaleg- ar yfirlýsingar á báða bóga. Þar meö er 15 ára hjónaband, sem hófst með brúðkaupi aldarinnar, á enda. Lögfræöingar parsins sögðu að málarekstur vegna skilnaðarins gæti hafist strax á mánudag og hjónabandið yrði endanlega úr sög- unni 28. ágúst. Lífeyririnn sem Díana fær er trúnaðarmál en almennt er talið að skilnaðarsamningurinn færi henni 1,7 milljarða króna. Þar með verður hún ein af ríkustu konum Bret- lands. Þótt um verulega upphæð sé að ræða er samt talið að hún verði að halda vel um peningana eigi hún að geta lifað kounglegu lífi það sem eftir er ævinnar. í yfirlýsingu frá Buckingham-höll kom fram að Díana yrði áfram tengd konungsfjölskyldunni en hún yrði aö sjá á bak sæmdarheitinu „yðar konunglega hátign“. Fram- vegis verður hún einungis Diana, prinsessa af Wales. Það var verulegt áfall fyrir Díönu að sjá á bak sæmdarheiti sínu og var hún heldur döpur á svip þegar hún yflrgaf Buckingham-höll seinnipartinn í gær. Þetta þýðir að hún stendur jafnfætis fyrrum svil- konu sinni, Söru Ferguson, hertoga- ynjunni af York, sem gift var Andr- ési prinsi. Str.ða hennar nú getur þýtt, tæknilega séð, að hún verði að hneigja sig fyrir sonum sínum, Vil- hjálmi, væntanlegum ríkisarfa, og Harry. Þótt skilnaðurinn þýði að Díana verði ekki lengur konunglegur fjöl- skyldumeðlimur segir í yfirlýsing- unni að konungsíjölskyldan muni áfram líta á hana sem slíka. Díana heldur húsnæði sínu í Kensington- höll en áhersla var lögð á að hún gæti búið sonum sínum öruggt heimili. Díana og Karl munu þó taka ábyrgð á uppeldi sona sinna í sameiningu. Díönu verður leyft að vera við- stödd ýmsar konunglegar athafnir og nota flugvélar og lestarvagna krúnunnar. Opinberar heimsóknir til annarra landa verða þó einungis með leyfí Elísabetar drottningar. Ekki var sagt annað um framtíð- arhlutverk Díönu en að hún yrði að ákveða það sjálf. Hana hefur dreymt um að verða eins konar góðgerðar- drottning en ekki er að vænta ákvörðunar í þeim efnum fyrir haustið. Viðbrögð við skilnaðinum voru yfirleitt á þann veg að fólk var því fegið að stríð þeirra væri á enda og þau gætu nú einbeitt sér að framtíð- inni. Um leið og skilnaðurinn hefur létti í för með sér undirstrikar hann þó að öll börn Elísabetar utan eitt hafa skilið. Reuter stuttar fréttir Vara Clinton við Sýrlendingar vöruðu Bill Clint- on Bandaríkjaforseta við því að láta komandi forsetakosningar hafa letjandi áhrif á friðarferlið í Miðausturlöndum. Banni ekki aflétt Evrópudómstóllinn hafnaði kröfu Breta um að banni við út- flutningi nautakjöts yrði £dlétt. Hjálp til Noröur-Kóreu Kínverjar senda 100 þúsund tonn af matvælum til Norður- Kóreu til að forðast hung- ursneyð. Sleppt eftir gíslingu Tveimur starfsmönnum Reuters-fréttastofunnar var sleppt ómeiddum úr tveggja tíma gíslingu Tyrkja sem kröfðust lausnar pólitískra fanga í heima- landinu. Fundur meö Assad Benjamin Netanyahu, forsætis- ráðherra ísraels, útlokaði ekki að hann mundi funda með Assád Sýrlandsforseta ef sá hefði áhuga. Pastastríö ítölsk dagblöð hafa lýst yfir pastastríði við Bandaríkjamenn og hvetja til að neytendur hundsi bandariskar vörur. Gerist það í kjölfar úrskurðar þess efnis vestra að innflutningur frá Ítalíu og Tyrklandi skaði bandaríska pastaframleiðslu. Karl Bertaprins og Nelson Mandela, forseti Suður-Afríku, ræðast hér við í heimsókn þess síðarnefnda í Brixtonhverf- ið í London. Meðan Mandela fagnaði endalokum á afar velheppnaðri heimsókn til Bretlands, þar sem hann fékk kon- unglegar móttökur, fagnaði Karl því að óvissan í skilnaðarmálum hans og Díönu var á enda. Símamynd Reuter Veikar friðarvonir eftir óeirðir Óttast er að ófriðurinn á Norður- írlandi hafi endanlega gert út um vonir manna um að friðarsamning- ar milli mótmælenda og kaþólikka takist. Sérfræðingar segja að núver- andi ástand, sem hafi skapast þegar lögreglan kúventi í afstöðunni til göngu Orange-reglumanna um hverfi kaþólikka, hafi kallað fram eins konar umsáturspólitík sem grafi undan samningaumleitunum. Samningaumleitanir voru þegar í hættu vegna fjarveru Sinn Fein, stjórnmálaarms irska lýðveldishers- ins, frá viðræðunum en þeim verð- ur ekki hleypt að samningaborðinu fyrr en lýst hefur verið yfir vopna- hléi i stríðinu gegn breskum yfir- ráðum á Norður-írlandi. Ekki bætur úr skák að samningaviðræðurnar hafa strandað á andstöðu sambands- sinna sem telja að formaður samn- inganefndarinnarmuni draga taum kaþólikka og aðhyllast hugmyndina um eitt sameinað írland. John Major, forsætisráðherra Breta, ver ákvörðun lögreglu um að leyfa göngu Orange-reglunnar og er ákveðinn í að halda friðarumleitun- um áfram. Reuter Olíumarkaðurinn: Verðið óstööugt Olíu- og bensínverð er óstöðugt og seig heldur upp á við í vikunni. Lokaverðið á hráolíu varð í fyrra- dag 20,18 dalir tunnan eftir að hafa veriö það sem af er mánuðinum u.þ.b. 19 dalir. Verð á hlutabréfamarkaði í London steig verulega í kjölfar hækkana á hlutabréfum i hátækni- fyrirtækjum á Wall Street markaði á þriöjudag í kjölfar þess að Motorola birti ársreikninga sína sem sýndu góðan hagnað og Hewlett Packard tilkynnti um batnandi afkomu. Svip- aða sögu var að segja af öðrum evr- ópskum hlutabréfamörkuðum. { Tokyo hafði þetta hins vegar ekki sömu áhrif, fyrst og fremst vegna óvissu um vaxtastig í Banda- rikjumnn og Japan. í Zúrich steig verð á hlutabréfum í lyfjafyrirtækj- um skyndilega, eftir að stórfyrirtæk- in Sandoz og Ciba birtu afkomutöl- ur. Þessi fyrirtæki eru að renna sam- an í eitt undir nafninu Novartis.-SÁ ITaugaveiklun vegna tilræða MikiT taugaveiklun hefur gripið xnn sig meðal yfirmanna öryggismála í Moskvu í kjölfar sprengjutilræða í sporvögnum borgarinnar tvo daga í röð og hafa þeir fyrirskipað aukinn liðsafla lögreglu á götum borg- arinnar. En sérfræðingar hafa uppi efasemdir um aö aukinn ; mannafli muni hafa nokkuð að i segja fyrir öryggi borgaranna. Þeir bæta við aö allar ráðstaf- j anir verði til skamms tíma og 1 muni ekki leiða til neins árang- ;; urs. Árangurs sé ekki að vænta \ nema allt samfélagið í heild Iverði fært til betri vegar. Getgátur eru um að tsjetsjenskir aðskilnaðai-sinnar standi að baki tilræðunum. Annars geta menn sér þess til að rússneska mafian sé að sýna hvað í henni býr eftir að Alex- ander Lebed, yfirmaður örygg- ismála í Rússlandi, fékk það verkefni að ráðast gegn glæp- Ium í höfuðborginni. Sendi Rosemary ástarbréf Fjöldamorðinginn Fred West, sem hengdi sig meðan hann beið dóms fyrir að hafa myrt tólf konur, þar á meðal fyrrum eiginkonu og tvær dætur, sendi | eiginkonu sinni, Rosemarý, ást- arbréf meðan hann dvaldi 1 fangelsinu. 1 bréfunum sagðist I hann vilja láta grafa sig hjá : þeim ættingjum sínum sem hann hafði myrt. Bréfin voru lesin við réttarhöld sem nú fara fram vegna sjálfsmorðs Wests. I Er talið að Fred hafi haldið að Rosemary yrði sleppt lausri ef hann fremdi sjáifsmorð. Rosemary var dæmd í lífstíð- arfangelsi fyrir aðild sína að tíu morðanna en þau voru yfirleitt j endapunkturinn á langvinnum pyntingum. Líkir Karadzic við Himmler Christian Schwarz-Schiling, sáttasemjari í Bosníu, likir serbneska leiðtoganum Radov- an Karadzic við Heinrich Himmler, yfirmann SS-sveita nasista, og hvetur friðargæslu- sveitir NATO til að handtaka hann sem fyrst svo að dæma megi hann fyrir stríðsglæpi. Schwarz- Schiller sagði afar mikilvægt að handtaka Kara- dzic fyrir kosningarnar í sept- ember, ekki sé hægt að efna til lýðræðislegra kosninga þar sem stríðsglæpamaður sé í framboöi. Það væri jafn fárán- legt og hefði Himmler verið í framboði í fyrstu þingkosning- unum í Þýskalandi eftir seinni heimsstyrjöldina. Mandela sætt- ist við That- cher * Nelson Mandela, forseti Suð- ur-Afríku, kórónaði vel heppn- aða heimsókn sína til Bretlands meö þvi að dansa með íbúum Brixton- hverfisins þar sem Iinnflytjendur eru i meirihluta. En áður hafði hann komið mörgum á óvart með því að bjóða Margréti Thatcher, fyrr- um forsætisráðherra Breta, út- rétta sáttahönd. Bauð hann Thatcher til sín í Buckingham- höll þar sem hann gisti meðan | á heimsókninni stóð. Vakti fundur þeirra athygli fyrir þær sakir að Thatcher gagnrýndi Mandela og samtök hans harð- !lega á sínum tíma, sagði hann forsprakka dæmigerðra hryðju- verkasamtaka og neitaði að f beita efnahagslegum refsiað- gerðum gegn aðskilnaðarstjóm- inni í Suður- Afriku. Ræddust Mandela og Thatcher við í um 20 mínútur en engar fréttir bár- ; ust af efni fundarins. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.