Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1996, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1996, Page 7
IE3 LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 1996 íréttir Loks hafnar framkvæmdir á Fljótsheiði: Togstreita í S-Þingeyjarsýslu um röð vegaframkvæmda - 3ja km klæðningu bætt á Kísilveg utan vegaáætlunar DV, Akureyri: Mikil togstreita hefur verið með- al S-þingeyinga vegna vegafram- kvæmda í sýslunni. Með Húsvík- inga í fararbroddi hefur hópur manna barist fyrir því að Kísilveg- urinn til Mývatns frá Laxamýri hafi forgang og verði lagður bundnu slit- lagi sem fyrst; á sama tíma og Reyk- dælingar hafa lagt höfúðáherslu á að veginum yfir Fljótsheiði, frá Goðafossi í Reykjadal, verði komið í ökufært ástand en þessi kafli er hluti hringvegarins. Sigurður Oddsson hjá Vegagerð ríkisins á Akureyri segist ekki hafa heyrt mikið um þessa óánægju. Hann segir að bundið slitlag sé lagt í sumar á kaflann frá Þverá að Blá- hvammi á Kísilvegi, alls 3,8 km leið samkvæmt vegaáætlun, en síðan hafi verið ákveðið að klæða einnig kaflann frá Bláhvammi að Klambraseli sem er 3,8 km langur og var ekki á vegaáætlun. Þessi ákvörðun fór fyrir brjóstið á Reyk- dælingum. „Þrítugir Reykdælingar muna ekki annað en sífelldar mælingar fyrir vegarstæði yfir Fljótsheiðina svo að vegagerðarmenn ættu að vita hvað þeir eru að gera þegar þeir hefja loksins framkvæmdir þar,“ segir Benóný Árnason, odd- viti í Reykjadal. Hann segist ekki kannast við óánægju með fyrirhug- að vegarstæði yfir heiðina; óánægj- an sé fyrst og fremst til komin vegna þess hversu verkið hafi dreg- ist úr hömlu. Vegurinn yfir Fljótsheiði er um 10 km langur og orðinn „forngrip- ur“ á hringveginum. Samið hefur verið við Háfell ehf. um framkvæmd vegarlagningarinnar sem á að hefj- ast innan skamms og ljúka 1. ágúst 1988. Að þeim framkvæmdum lokn- ÓlafsQörður: Bílskúr en enginn sjúkrabíll DV, Ólafsfirði: Sjúkraflutningaráð landlæknis hefur farið aö tilmælum heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis um að gera breytingar á sjúkraflutninga- þjónustu á landsbyggðinni. Fram eru komnar tillögur um að ekki verði endurnýjaður sá sjúkra- bíll sem notaður er í Ólafsfirði. Farnar eru þar um 50 sjúkraflutn- ingsferðir á ári eða ein á viku sem þykir of lítið. Sami fjöldi er farinn á Dalvík en þar er talin forsenda fyr- ir áframhaldandi rekstri. Stjórn Hornbrekku, heilsugæsl- unnar og dvalarheimilisins í bæn- um, hefur mótmælt þessum tillög- um. Jónína Óskarsdóttir, stjórnar- formaður Hornbrekku, segir að grannt verði fylgst með málinu en ekkert svar hefur enn borist vegna mótmælanna. í hittiðfyrra var reistur tvöfaldur bílskúr undir sjúkrabílinn sem kostaði fjórar milljónir króna. -HJ um verður Fljótsheiðin væntanlega ekki verið meira en sumarvegur til opin allt árið en vegurinn þar hefur þessa. -gk Steinullarbíllinn auglýsir Einangrum öll hús, ný sem gömul, með steinull frá Sauðárkróki. Ullinni er blásið á sinn stað hvort sem er í holrúm, útveggi, þök, innveggi (hljóðeinangrun) eða ofan á loftplötur. Getum komist að stöðum sem erfitt er að komast að. Ókeypis skoðun - Gerum tilboð JÓN ÞÓRÐARSON Sími 587-9194, bílas. 853-3892, fax 587-9164 Eiturgufurnar fyrir vestan: Afleiðingar geta verið alvarlegar - segir landlæknir „Ef fólk er með ofnæmi eða veikt fyrir geta afleiðingarnar orðið al- varlegar," segir Ólafur Ólafsson landlæknir um áhrif eiturgufna sem mynduðust frá sjóðara í vinnslusal Vestflrks skelflsks hf..á Flateyri. „Ég var að fá þær upplýsingar að fyrirtækið hefði nú gengið í það að láta laga þetta en það hefur ekki tekist almennilega fyrr. Annars er ég að bíða eftir skýrslu frá Páli Þor- steinssyni, heilsugæslulækni á Flat- eyri, þannig að ég get ekki meira sagt um málið á þessari stundu en þetta er auðvitaö slæmt mál sem þarf að koma í lag strax,“ sagði landlæknir. -gdt Uðalakk Hraðþomandi lakká úðabrúsa án ósoneyðandi efna. Fyrir húsgögn, bíla, vélar, reiðhjól, áklæði, heimilistæki, töskur miðstöðvarofna og ótal margt fleira. Fæst í öllum helstu kaupfélögum og byggingavöruverslunum i im lor»rl ollt PHILIPS <o- ijss» & Qlæsilegar gjafir bragd er að! Heimilistæki hf SÆTÚNI 8 SÍMI 569 1500 Ef þú vilt gefa brúðhjónum fallega og nytsamlega gjöf þá eigum við PHILIPS heimilistæki í miklu úrvali. PHILIPS framleiðir glæsileg heimilistæki, sem prýða hvert heimili. Umboðsmenn um land allt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.