Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1996, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1996, Side 9
LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 1996 9 Bandarískar „herkonur" segja sögu sína: Hinir hermennirnir nauðguðu okkur - talin vera reynsla 60-200 þúsund kvenna í hernum •■•«*«■ M • iÍiitiVMM •• GeisJcirjdi 9 1 Marguerite Hurt var á leið heim til Kentucky. Hún hafði starfað á bandarískum herspítala um langt skeið við að líkna sundurskotnum hermönnum. Þetta var að kvöldi 30. mars 1969 og flugvélin, sem átti að flytja hana, var væntanleg á hverri mínútu. Eins og þruma úr heið- skíru lofti hófst skothrið óvinanna og Marguerite stökk ofan í næstu skotgröf. Þar var dimmt og kalt. Einni klukkustund seinna skreið hún upp úr skotgröfínni, föl og titr- andi. Þrír bandarískir hermenn, út- úrdrukknir og undir áhrifum eitur- lyfja, höfðu ráðist á hana og nauðg- að henni. Hún staulaðist um borð í vélina og sagði engum hvað gerst hafði. í læknisskoðun seinna hafði henni tekist að má atburðinn svo gjörsamlega úr huga sér að hún gat ómögulega útskýrt hvemig hún hafði fengið lekanda. Finnst þær sviknar Bandarískar herkonur með sömu reynslu eru nú í auknum mæli fam- ar að koma fram í dagsljósið og segja sögu sína. Sumum þeirra var nauðgað fyrir allt að 50 árum. Eng- inn veit fyrir víst hversu margar þær era allt í allt en ef marka má framburð vitna var á bilinu 60-200 þúsund konum nauðgað eða þær áreittar kynferðislega af bandarísk- um hermönnum í stríðinu. Flestar þeirra kærðu atvikið aldrei og margar sögðu sínum nánustu ekki einu sinni frá því. Sumum var nauðgað oftar en einu sinni og öðr- um var nauðgað af mörgum í einu, stundum af mönnum sem þær höfðu álitið vera vini sína. Sérfræðingar segja þessar konur margar bera sömu einkennin. Flestar þeirra eiga það sameiginlegt að þeim finnist þær hafa verið sviknar. Belindu Barger var vikið úr her- num fyrir „óeðlilega hegðun" og „óstöðugan persónuleika". Hún gekk í herinn 17 ára gömul til að flýja fátækt heima fyrir. Hún hafði heyrt að herinn v?eri eins og manns annað heimili. Þar yrði greitt fyrir framhaldsnámið og hún fengi jafn- framt þjálfun. Reynslan var önnur. Til að fá inngöngu í herinn þurfti hún að hafa útskrifast úr grunn- skóla. Tveir skráningaraðilanna buöust til að sjá til þess að hún fengi góðar einkunnir til að útskrif- ast ef hún svæfi hjá þeim. í átta mánuði gerði hún þeim til hæfis. Hún hafði sífellt samviskubit og áhyggjur af því að herinn myndi komast að því hvemig hún fékk inngöngu. Eins skrýtið og það kann að virðast fannst henni hún skuld- bundin mönnunum fyrir að hafa hjálpað sér út úr fátæktinni og gef- ið sér tækifæri. Martraðir og mígren Þegar í herinn var komið varð hún undrandi að sjá að það stóð vörður við herbúðir kvennanna all- an sólarhringinn. Fljótlega komst hún að ástæðunni. Hvar sem kon- umar fóru um var hrópað að þeim ókvæðisorðum. í desembermánuði fór Belinda á steikhús að kvöldlagi í fylgd vinkonu sinnar úr hernum og tveggja annarra karlkyns her- manna. Eftir kvöldverðinn gáfu þeir það skýrt í skyn að þeir vildu sofa hjá þeim. Þeir fóra með þær á af- skekkt svæði og annar þeirra vafði örmum sínum um háls Belindu með þeim orðum hversu einfalt það væri fyrir hann að hálsbrjóta hana. Kon- urnar reyndu að telja þeim hug- hvarf en tókst ekki. Þær sögðu eng- um hvað gerst hafði. Nokkrum vikum síðar fékk Be- linda martraðir, mígreni og ýmis þunglyndiseinkenni. Yfirmenn hennar hvöttu hana til að ræða við sálfræðing í herbúðunum. Hann til- greindi í skýrslum sínum hversu erfiða æsku hún hefði átt og mælti með því að hún yrði leyst undan herþjónustu. Sáifræðingurinn Norma King- Joiner eyddi tveimur árum í að taka viðtöl við konur í bandaríska hernum og hlustaði á þær lýsa því hvernig þeim var nauðgað af karl- kyns hermönnum; í eyðimörk Saudi Arabíu, af rútubílstjóra, í bíl, af þjálfara í líkamsþjálfún, eftir sam- kvæmi og af 5 drukknum flugmönn- um í hemum, svo að dæmi séu tek- in. „Ég held að þetta sé aðeins brot af þeim konum sem urðu fyrir svona reynslu í hemum, allflestar þeirra halda þessu fyrir sig og lifa hara með þessu.“ Þýtt og endursagt. VAK4-HELGAFELL »Lifandi útgáfa - í 15 ár » n □. Lesum í sumar Talið er að 60-200 þúsund konum í bandaríska hernum sé nauðgað árlega eða þær beittar kynferðislegu ofbeldi. Símamynd Reuter VERSLUNARHUS QUELLE DALVEGI 2 - KOPAVOGI ■ M tSi 1ki 1 Quelle Quelle-Verðdæmi! Jakkar Frakkar, stuttir Frakkar, síðir Piis Blússur Buxur, stuttar Buxur, síðar Draktir Nú Madeleine-Verðdæmi! jakkar Kjólar Pils Bermudabx. + vesti + Chiffon bl. Blússur kr. 995.- kr. 2.450.- kr. 2.950.- kr. 995.- kr. 499.- kr. 198.- kr. 398.- kr. 2.450.- kr. 2.995.- kr. 2.450.- kr. 1.950.- kr. 1.499.- kr. 1.950.- 5 pottar og 3 skálar. Glæsilegt útlit, hert glerlok, gæðastál, má fara í uppþvottavél, tvöfaldur botn. Hægt að fá pönnu og 9 lítra pott í stíl. Kr. 9.900.- BORÐBÚNAÐUR «i d t: 1 ,11 \ f :3 f.U n BARNAFATNAÐUR - HERRAFATNAÐUR BÚSÁHÖLD - RAFTÆKI - OFL. 38 hlutir i vondQðri tösku. Gæðostól, folleg skreyting, mó þvo í uppþvottovél. Kr. 4W°' LISTA KSDP FRABÆR UT5ALAI! $$ Sími 564 2000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.