Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1996, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 1996
11
slendingurinn Bjarki Sigurgeirsson og Singapúrbúinn Nurashima Abdul
Rashid hittust á spjallrásunum á Internetinu. Þau hittust svo augliti til auglit-
is í Bandaríkjunum og Nura fór með Bjarka til íslands. Þau eru nú saman á
íslandi og segja sögu sína á Internetinu.
Bjarki og Nura urðu ástfangin á Internetinu:
Sameinuðust
23. mai og segja
söguna á netinu
„Hafir þú einhvem velt því fyrir
þér hvort rómans á spjaUrásunum
hafi raunverulega getað orðið að ein-
hverju meim þá skaltu hætta að
hugsa um það vegna þess að við
erum lifandi dæmi um slíkt. Við
heitum Bjarki Sigurgeirsson og
Nurashima Abdul Rashid. Bjarki er
20 ára gamall íslendingur og Nura er
20 ára Singapúrbúi. Við hittumst á
spjallrásunum í október á síðasta ári
og síðan hefur mikið vatn runnið til
sjávar," segir á heimasíðu elskend-
anna, „The Lovers’ Homepage".
Þess em mörg dæmi erlendis að
fólk hafi hist á spjallrásunum eða á
annan hátt gegnum Intemetið og sá
kunningsskapur hafi þróast, fólkið
hafi hist, orðið ástfangið og jafnvel
gifst og nú er dæmi um þetta á Is-
landi. Það er íslendingurinn Bjarki
sem hitti sína heittelskuðu á Inter-
netinu og ástarsfjguna segja þau á
heimasíðunni sinni undir mynd af
ástarguðinum Amor, sem skýtur ör
af boga, og er myndin vel við hæfi í
þessu tilfelli.
„Eftir tvo mánuði á spjallrásun-
um ákváðum við að það væri kom-
inn tími til að við hittumst. Það
gerðum við og það var stórkostlegt
augnablik þegar við hittumst í
fyrsta skipti augliti til auglitis á
Chicago O’Hare flugvellinum. Nura
fór með Bjarka til íslands og við
vorum þar saman í samtals tvo
mánuði áður en Nura fór aftur heim
til Singapúr. Þó að vegir okkar yrðu
að skiljast um tíma ákváðum við að
hittast aftur eins fljótt og hægt var,“
segir á heimasíðunni.
Eftir dvöl og pínu og þriggja mán-
aða aðskilnað í sitt hvoru landinu
ákváðu þau Nura og Bjarki að nú
væri loks kominn tími til að hittast
aftur og vera saman á nýjan leik.
Þau tala fallega um daginn þann
þegar Nura kom til íslands og þau
náðu loks saman að nýju.
„23. maí 1996 verður ávallt i
minni hafður sem einn af björtustu
dögunum í okkar lífi og það er dag-
urinn sem við vorum sameinuð í
síðasta skipti!” segir á síðunni.
Hvort sem þar er bara átt við
komu Nura til íslands eða hvort
þann dag hafi þau gengið í hjóna-
band skal ósagt látið. Það er spurn-
ing, sem þau ein geta svarað.
-GHS
_________sviðsljós
Þrír af fjórum Baldwin- bræðrum tóku þátt f fjáröflun fyrir bágstadda í útland-
inu nýlega. Það voru leikararnir Daniel, Stephen og William sem lögðu fram
krafta sína en bróðirinn Alec kaus hins vegar að nota tímann til að sinna
dóttur sinni.
IkáSSS
Allir sem versla
hjá Hróa Hetti,
jafnt á höfuð-
borgarsvæðinu
sem úti á landi,
fá skafmiða
Upplas miöanna er 60
þúsund os hefur hver miöi
aö geyma vinnins*
Yinninsarnir
eru allt frá
50 kr* afslætti
upp í utan-
landsferð*
Verðmæti vinninga er yfir 10
milljónir króna