Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1996, Qupperneq 16
LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 1996 DV
__ íslensk stúlka yfirkokkur á skemmtiferðaskipi:
Ævintýraleg sigling
um heimsins höf
Helga Björg meö Drottninguna í baksýn í Reykjavíkurhöfn.
Nýja-Sjáland heillar
„Nýja-Sjáland heillar mig
mest af þeim iöndum sem viö
siglum til. Þangað er siglt annað
hvert ár. Náttúran á Nýja-Sjá-
landi er mjög lík þeirri ís-
lensku, þar eru eldfjöll og svip-
uð veðrátta og á íslandi. Ég er
ekkert sérlega hrifin af þessum
heitu löndum. Fólkið á Nýja-
Sjálandi er afskaplega vinalegt
og líkist helst fólkinu hérna.
Þar er mjög léttur andi og fólk
ið er afar frjálslegt og
skemmtilegt," segir Helgc
Björg.
Acapulco heillar einnig
Helgu Björgu en hún hefur
komið við á mörgum ævin-
týralegum slóðum og séð það
sem margir íslendingar koma |
aldrei til með að sjá. Skipið er í
siglingum um heimsins höf allt
árið og ekki er farin nein fyrir-
framákveðin leið. Lífið um borð
snýst mikið um vinnu og eig-
inleg frí eru sjaldgæf. Þó
er frí á sex mán-
aða fresti.
Viðmót farþeganna er yf-
irleitt mjög gott en
nöldurskjóðurnar
leynast alltaf
innan um,“ segir
Helga Björg sem
vinnur oft náið
með farþegun-
um.
Helga Björg
eldar alls kyns
gómsæta rétti á
hlaðborðið.
Reglan er að
farþegarnir
geti pantað
hvað eina sem
hugurinn
1 girnist. Það
fer þó eftir því
nversu dýra
'erð fólkið hefur
feypt sér. Einnig
eru dæmi um að
fólk fái sérpant-
aðan mat á
skipið.
skjóður
innan
um
„Ég hef alltaf verið haldin svolít-
illi ævintýraþrá og þegar ég sá skip-
in koma inn á Pollinn á Akureyri
langaði mig með þeim,“ segir Helga
Björg Finnsdóttir, 28 ára íslensk
stúlka sem gegnir starfi yfirkokks
um borð í skemmtiferðaskipinu
Queen Elizabeth II. DV hitti hana
aö máli þegar skipið lá fyrir akker-
um í Reykjavíkurhöfn þann 8. júlí.
Helga Björg er ættuð frá Litlu-
Brekku í Arnarneshreppi og er ein-
hleyp og barnlaus. Hún segir skipið
ekki rúma ástarsambönd þar sem
frítími sé lítill og ef það slettist upp
á vinskapinn sé fólk samt sem áður
fast um borð. Helga Björg byrjaði
að læra til matreiðslumanns á Ak-
ureyri og lauk náminu á Hótel Óð-
insvéum í Reykjavík þar sem hún
starfaði í þrjú ár. Hún sótti um á
skipinu og var valin ásamt 30 öðr-
um úr 18 til 20 þúsund manna hópi
og hefur starfað á skipinu í þrjú ár.
Hún stefnir á að halda áfram þar til
í febrúar á næsta ári þegar skipið
verður statt í Hong Kong og ætlar
þá að ferðast þaðan. Hún ætlar lik-
ast til ekki að koma heim heldur fá
sér vinnu í landi.
Skemmtilegast að koma til Is-
lands
„Það skemmtilegasta sem ég hef
lent í á þessum ferðum mínum er
að sigla til íslands. Þegar ég byrj-
aði á Drottningunni fyrir þremur
árum vissu fáir nokkuð að ráði um
ísland. Ég sagðist ætla að vera um
horð þar til siglt yrði til íslands,"
segir Helga Björg.
Hún segir jafnframt að stöðugt
sé verið að reyna að hafa uppi á
fleiri stöðum til þess að sigla til og
nýju skipin hafi byrjað að sigla til
íslands. Ferð Drottningarinnar til
íslands er farin í tilraunaskyni og
miðað við veðrið sem farþegarnir
fengu verður hún endurtekin. Mik-
il hræðsla var viö að veðrið á ís-
landi yrði leiðinlegt og farþegar
gætu ekki farið í land. Farþegarnir
borga morð fjár fyrir ferðina og ef
veðrið er vont getur það vakið óá-
nægju hjá þeim og eyðilagt ferðina.
Það varð þó ekki í þetta sinn því
farþegarnir voru í skýjunum yfir
íslandi.
Á svona skipum þarf að vinna
sig upp metorðastigann þar sem
eldhúsin eru mörg. Á skipinu eru
fimm veitingastaðir með fimm eld-
húsum, eftirréttaeldhús og for-
réttaeldhús svo eitthvað sé nefnt.
Helga Björg bjóst ekki við því að
ná svo langt að verða yfirkokkur í
einu eldhúsanna en setti sér það
takmark að verða aðstoðaryfir-
kokkur.
Náðu í kjúklingavarir
Þegar komið er um borð er
margt að læra fyrir nýliðana og
sumir verða hálfruglaðir yfir öll-
um þeim matartegundum sem þeir
þurfa að læra að þekkja.
„Þegar nýir kokkar koma á skip-
ið þurfa þeir að aðlagast mörgum
matartegundum sem þeir hafa
aldrei séð áður. Nýbyrjaður kokk-
ur var sendur til slátrarans til þess
að ná í „chicken lips“ eða
kjúklingavarir. Slátrarinn sendi
hann til baka og sagðist ekki eiga
neitt slíkt. Strákgreyið fór aftur
niður um sex hæðir og slátrarinn
spurði hvort hann væri vitlaus en
það var auðvitað verið að grínast
með hann,“ segir Helga Björg.
„Fólkið /li
sem kaup-
ir sér þess-
ar ferðir,
er yflrleitt
ríkt og komið yfir fimmtugt. Sumir
hafa reyndar sparað í 20 ár til þess
að geta siglt með Drottningunni.
Meirihlutinn er þó fólk sem á pen-
inga, til dæmis ekkjur og ekklar.
Helga Björg í fullum skrúða
matreiðslumeistara.
Lítill frítími
„Við fórum á barinn í frítímanum
og komum saman í matsalnum eða
r
.jv':' . „ ' JMNmM
íþróttasalnum á kvöldin eftir vinnu.
Við fórum oft yfir daginn því sumir
hafa átt hrikalegan dag og reynt er
að hughreysta þá,“ segir Helga
Björg.
Stundum er horft á myndbönd,
farið á bíó eða hingó. Á skipinu er
nánast allt til alls; bókasafn og
tölvuherbergi ásamt skemmtistöð-
um og fleiru. Áhöfnin fer saman út
að borða þegar Drottningin er í höfn
og skoðar saman markverða staði.
„Maður þarf samt að vera skipu-
lagður til þess að komast í gegnum
daginn því vinnudagurinn er svo
langur. Dagskráin er oft mjög
ströng og meira að segja björg-
unaræfingar eru stundaðar í frítím-
anum. Þegar skipið er eins fullt og
núna gerir maður ekki mikið annað
en að vinna, tala við félagana og
sota. Ég á mjög góða vini um borð. í
flestum tilfellum eru allir vinir og
maður heilsar annarri hverri mann-
eskju um borð en 1.080 manns vinna
á skipinu," segir Helga Björg.
Lífið um borð er áreynslulítið að
því leytinu að uppihald um borð er
ókeypis. Bjórinn kostar þrjátíu
krónur og lítrinn af vatni sjötíu
krónur. Hægt er að þvo af sér sjálf-
ur eða láta þvottahúsin um verkið
fyrir lágt verð.
Andlega styrkjandi
„Ef maður getur lifað það af að
vera þama um borð getur maður
hvað sem er. Maður verður andlega
sterkur af þessari vinnu. Það er
einnig mjög gaman að kynnast fólki
af óliku þjóðemi eins og er um borð.
Maður lærir á fólk og sér í raun og
veru allan heiminn ef maður er
nógu lengi um borð,“ segir Helga
Björg.
Lengsti tíminn sem Drottningin
er á sjó er flmm dagar en stundum
þegar veðrið er slæmt seinkar ferð-
DV-mynd Pjetur
inni um einn eða tvo daga. Helga
Björg segir að áhöfnin verði þá svo-
lítið pirruð. í hvert skipti sem farið
er í land kemur nýr andi i umræð-
una sem annars er stundum til-
breytingarlítil.
„Ef ekkert nýtt gerist látum við
það gerast. Mann skortir ekki neitt
um borð en ég sakna helst fjölskyld-
unnar. Þeir sem búa í Englandi geta
séð fjölskyldu sína miklu oftar held-
ur en ég. Maður getur ekki farið út
að borða hvert sem er og bíó er tak-
markað. Maður fer ekki á kafíihús
og hefur það huggulegt og saknar
þess svolítið. Maður getur ekki far-
ið út að keyra. Við neitum okkur
um mikið en fáum heilmikið i stað-
inn,“ segir Helga Björg.
Fellibylurinn Louis
„Við lentum í fellibylnum Louis
á miðju Atlantshafi og urðum að
vera yfir nótt í New York. Skipið
rifnaði allt að framan þar sem 30
metra alda brotnaði á þilfarinu hjá
okkur. Það var gert við skipið í New
York og á meðan þrömmuðum við á
Broadway," segir Helga Björg.
Helga segir að henni líði mjög vel
um borð og semji vel við flesta. Hún
er að vísu hæna í hanahópi því
meirihluti kokkanna er karlmenn.
Henni virðist fárnast vel í karla-
veldinu og lætur áreiðanlega engan
vaða yfir sig eins og sjálfstæðri is-
lenskri konu sæmir. Yfirmenn
skipsins eru, eins og búast má við,
nær eingöngu karlmenn og sumir
þeirra afar formlegir.
„Kurteisisreglurnar um borð eru
mjög stífar og yfirmennirnir vilja
margir hverjir láta ávarpa sig með
tilum. Ég er ekki mjög formleg því
ég vil hafa þetta létt og frjálst. Ég
nota titilinn við þá sem eru stífastir
á þeim,“ segir Helga Björg.
-em