Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1996, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1996, Síða 19
JL> -.í: LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 1996 19 ______________________________________________________________ listir illur byggir utan um Stöðlakot: Hef fundið köllun mína í listinni - gagnrýni á byggingarstíl í Kvosinni „Ég er svo heppinn að hafa fund- ið köllun mina í lífinu en hún felst í því að skapa listaverk," segir arki- tektinn og umhverfislistamaðurinn Illugi Eysteinsson sem af mörgum hefur verið kallaður framúrstefnu- listamaður. Illugi opnar í dag sýningu sem hann kaUar í draumi sérhvers kots, í Stöðlakoti með dálítið óvenjuleg- um hætti. Hann hefur byggt falska framhlið í alþjóðlegum stíl utan um Stöðlakot. Framhliðin er fimm metra há og hylur hún algjörlega húsið frá þeim sjónarhóli. Þegar gengið er að verkinu frá Lækjargötu blasir þessi framhlið við en hún mun einkennast af hreinum geometrískum línum og málmáferð. Blaðamanni lék forvitni á að vita hvað listamanninum gengi til að hylja eitt af elstu húsum borgarinn- ar með þessum vegg. „Þetta er gagnrýni af minni hálfu á þennan byggingarstíl sem er í Kvosinni. Nýbyggingum af erlend- um toga hefur verið troðið inn í um- hverfi þar sem ekki hefur verið gerð nein tilraun til að samræma þær. Gott dæmi er viðbyggingin á Iðnó sem er ekki í samræmi við um- hverfið sem hún stendur í,“ segir Illugi. Yfir þrjátíu einstaklingar og fyr- irtæki hafa stutt þetta verk þannig að fleiri eru á sama máli og Illugi. Hann er mjög þakklátur fyrir þann stuðning sem hann hefur fengið því svona verk er kostnaðarsamt og erfitt uppsetningar. Ulugi var spurður um áhuga sinn á því að halda sýningu í Stöðlakoti sem er einn fárra steinbæja sem enn standa í Reykjavík. Steinbæim- ir voru reistir í Reykjavík alda- mótatímans og eru fulltrúar reyk- vískrar húsagerðar. Þeir voru yfir- leitt með hlöðnum hliðarveggjum úr tilhöggnu grjóti og göflum úr timbri. Veggirnir voru einhlaðnir og gluggalausir. Gluggar voru yfir- leitt aðeins á göflum og þakið oft bárujámsklætt. Steinbæjunum svip- aði til torfbæja að því undanskildu að hliðarveggirnir voru einvörð- ungu hlaðnir úr grjóti. Litja Gunna og litli Jón „Ég geri Stöðlakot að samnefnara Litlu Gunnu og Litla Jóns. Þau dreymir um velsæld í líkingu við er- lendar fyrirmyndir. Stöðlakot dreymir um aö vera höll, alþjóðlegt nútíma listasafn. Reynslan hefur því miður sýnt að Islendingar vilja kasta fyrir róða menningu sinni og sögu til þess að teljast fullgildir jafn- okar erlendra þjóða,“ segir Illugi. Ég ætla að byggja falska framhlið á Stöðlakot í þessum alþjóðlega stíl. Frá Lækjargötunni sést nýbygging úr málmi. Þegar nær dregur gerir áhorfandinn sér grein fyrir að hinn glansandi málmur er ekkert annað en málaður krossviður," segir 111- ugi. í draumi sérhvers kots er útilista- verk sem lýsir sálarkreppu íslenskr- ar húsagerðarlistar og smáþjóðar með minnimáttarkennd gagnvart erlendum hugmyndum og áhrifum. Þetta verk er ádeila á þá tilhneig- ingu íslendinga að sveipa um sig er- lendum fyrirmyndum til þess að sýna að þeir séu með á nótunum og hluti af alheims elítunni. Illugi er giftur leikkonunni Jó- hönnu Jónas en þau hafa verið sam- an í þrettán ár, frá því hún var í Verslunarskólanum og Illugi í MR. Illugi hefur tekið þátt í nokkrum sýningum, meðal annars setti hann upp útilistaverk í fyrra fyrir framan Háskólann, verk úr fisktrönum. Einnig hefur hann sýnt I Nýlista- safhinu, Hafnarborg, á ísafirði, í Héraðsskólanum á Laugarvatni, Ás- mundarsal og á Akureyri. Auk þess hefúr Ulugi tekið þátt í samsýningu í Stokkhólmi. Illugi er með masters- gráðu í arkitektúr og B.F.A. í um- lilur sýnir umhverfislist í Stöðlakoti. hverfishönnun. „Arkitektúr er mitt viðfangsefni en afurðin er list. Ég er með sjö og hálfs árs menntun frá Bandaríkjun- um í arkitektúr. Ég get ekki titlað mig neitt annað en umhverfislista- mann því það sem ég er að tala um er okkar byggðaumhverfi. Ég lít á mig sem geranda í þjóðfélaginu," Musteri sálarinnar Allt sem Illugi gerir stuðlar að því að styrkja hann sem einstak- ling. Hann æfir karate eða hleypur þrisvar í viku til þess að styrkja sig. Miðað við þá vinnu sem hann stundar verður líkaminn að vera í góðu formi. Hann segist ekki geta klifrað upp um allt með aukakílóin utan á sér. „Það er mikilvægt að þetta hús, sem ég bý í, sé sterkt, líkaminn er musteri sálarinnar," segir Illugi. Illugi minnist á að heilu íbúðar- hverfin rísi með tilteknum bygging- arstU án þess að nokkur geri at- hugasemdir um útlit þeirra. Honum Finnst að íslendingar mættu vera kritískari og láta sig meira varða hvernig byggt er og í hvernig um- hverfi börnin þeirra alast upp í. Frankenstein íslenskrar byggingarlistar „Ég er þar með ekki að tala um að hér eigi að byggja í gömlum stíl. ís- lendingar eiga bara að gera sér grein fyrir hvað er að gerast og vera krítískari. Fólk getur ráðið hvaða' listaverk það kaupir á veggina hjá sér en verktakar bjóða ekki hús til sýnis áður en þau eru byggð. Það er okkar sem þjóðfélagsþegna að at- huga hvað er að gerast því fólk á eft- ir að alast upp í þessum byggingum. Frankenstein íslenskrar byggingar- listar er Hamraborgin en það er hræðUeg bygging," segir Ulugi. IUugi telur starfstétt arkitekta aUs ekki henta sér þar sem hann sé gerandi í lífmu og líkar best að vinna að því að skapa. Hann segir arkitektúr erlendis skiptast í nokkr- ar greinar en hann brjótist aðeins út í byggingum á íslandi. Sumir arkitektar erlendis teikna eingöngu ímyndaðar byggingar og eru virtir fyrir það. IUugi vinnur aftur á móti að arkitektúr sem list. „Kúnnar mínir 1 framtíðinni eru ekki einstaklingar sem kaupa Nýtískuhöll í stað steinhúss. skraut á veggina heima hjá sér. Það eru fyrirtæki og stofnanir, sem sjá um umhverfið okkar, sem gætu keypt mína þjónustu. Starfsvett- vangur fyrir mann eins og mig er að brúa bilið á miUi bygginga og um- hverfis. Það er hægt að vefa list og byggingar miklu betur saman held- ur en gert er. Það er hægt að búa tU umhverfi í kringum listaverkin. Það er hægt að búa til listaverk inn í umhverfin. Ég hef áhuga á að búa til verk sem draga fram tilfinningu staðarins, umhverfis það,“ segir 111- ugi. Hæfastir lifa af Eins og svo margir listamenn verður Ulugi að starfa á öðrum vett- vangi til þess að framfleyta sér. Hann vinnur á tveimur stöðum, á sambýli þroskaheftra í Garðabæ og kennir öldruðum tréút- skurð á vetuma. Hann ætlar sér að lifa af listinni í framtíðinni. Hann gefur sér sex ár tfl þess að kynna sjálf- an sig og líkir sjálfum sér við vöru á mark- aðnum. „Þeir hæfustu lifa af. Ég kom heim vegna þess að þetta er besti staðurinn til þess að byrja á. Ég væri að gera nákvæmlega sömu hluti í Bandaríkjunum og hér. List- in sem ég stunda er af þeirri stærð að ég þarfnast fólks tfl þess að hjálpa mér. Það er auðveldara að vinna með íslendingum. Ég get til dæmis pantað fund hjá landsbanka- stjóra og seðlabankastjóra hér og sýnt þeim hvað ég hef áhuga á að gera. Ef ég gerði það sama í Banda- ríkjunum myndi öryggisvörðurinn henda mér út í hvefli. Vegna smæð- ar sinnar er ísland mjög góður starfsvettvangm-. Fyrirtæki sem vinna að uppbyggingu og mótun hins byggða umhverfis geta notað mig tU að brúa bilið milli arkitekt- úrs og listar og þannig stuðlað að skemmtilegra landi," segir IU- ugi. -em Stöðlakot eins og það lítur út dagsdaglega. Gardveisla! Hvernig væri að breyta til og flytja veisluna út í garð! Við leigjum falleg, sterk tjöld, 10-200 manna. Við aðstoðum við upp- setningu á tjaldinu ef þú óskar. Leigjum einnig borð og stóla/bekki. Nú skiptir veðrið ekki máli - andrúmsloftið verður afslappað og skemmtilegt. ijaldaleigan o!c0jj]jj] JijJetit hff. Krókhálsi 3 - sími 587 67 77 ísetning og innsiglun Bjóöum nýja ökurita frá VR ásamt ísetningu og innsiglun á öllum gerðum rafdrifinna ökurita. m HEKLA véladeild Laugavegi 170-174, sími 569 5500

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.