Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1996, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1996, Síða 20
20 rretur_______________ LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 1996 DV Árleg Ijósmyndasamkeppni DV og Kodakumboðsins er hafin: Glæsileg verðlaun fyrir sumarmyndirnar „Viljið þið vera memm?“ spurði Eiísabet litla endurnar á Finnlandi fyrir nokkrum árum. Kristín List Malmberg tók myndina. Fjöldi mynda hefur borist í árlega sumarmyndasamkeppni DV og Kodakumboðsins sem auglýst hefur veriö hér í blaðinu og að sjálfsögðu verður haldið áfram að taka á móti nýjum myndum alveg fram á haust. Myndimar, sem þegar hafa borist, eru fjölbreyttar og bera þess greini- leg merki að landinn hefur átt góð- ar stundir í sumarhita og stórbrot- inni náttúru á liðnu sumri. Sama gildir um þær myndir sem blaðinu hafa borist gegnum tíðina. Stórglæsileg verðlaun eru í boði fyrir bestu myndirnar eins og und- anfarin ár. Sá, sem hlýtur fyrstu verðlaun fyrir bestu sumarmynd- ina, fær glæsilegan ferðavinning fyrir tvo með Flugleiðum til Flór- ída. Önnur verðlaun er Canon EOS 500, með 35 mm linsum, að verð- mæti 45.900 krónur. Þriðju verðlaun er Canon Prima Super 28 V mynda- vél að verðmæti 33.900 krónur. Fjórðu verðlaun er Canon Prima Zoom Shot myndavél að verðmæti 16.900 krónur. Fimmtu verðlaun er Canon Prima AF-7 að verðmæti 8.900 krónur og sjöttu verðlaun er Canon Prima Junior DX að verð- mæti 5.990 krónur. 1 dómnefnd sumarmyndasam- keppninnar eru: Gunnar V. Andrés- son og Brynjar Gauti Sveinsson, ljósmyndarar á DV, og Halldór Sig- hvatsson frá Kodakumboðinu. Frestur til að skila inn myndum rennur ekki út fyrr en í lok ágúst en áhugaverðar myndir verða birtar reglulega í helgarblaði DV fram á haust og taka þær þátt í úrslitum. Æskilegt er að sendendur merki „í sól og sumaryl" eftir Val Óskarsson í Reykjavík. „Amma lndíáni“ heitir þessi stórskemmtilega mynd en hún var tekin í Skötulfirði í júlí árið 1993. Höfundur er Dóra Harðardóttir í Kópavogi. myndir sínar með nafni og heimilis- fangi, nafni myndarinnar og segi stuttlega frá myndefninu eða tæki- færinu þegar myndin var tekin. Lesendum er velkomið að senda fleiri en eina mynd í keppnina. -GHS Utanáskriftin er: Skemmtilegasta sumarmyndin, DV, Þverholti 11, 105 Reykjavík. Úrskurður Kjaradóms ræddur. Drengirnir tveir leysa eilífðarvandamál ís- lendinga. Höfundur er I. Gunnarsdóttir í Hafnarfirði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.