Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1996, Page 21

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1996, Page 21
21 30 ^ LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ1996 Gullæði geisaði meðal Reykvíkinga í byrjun aldarinnar: Gullkvarz fannst við Hafravatn íslendingar hafa löngum trúaö því að gull fyndist í jörðu hér á landi þó að ekki hafi jafnmikið bor- ið á gullæði hér og í öðrum löndum og hafa margir lagt á sig ómælt erf- iði og útgjöld til að finna gull. Kísil- iðjan og Iðntæknistofnun hafa stofn- að fyrirtækið Melmi hf. og mun það standa fyrir borunum eftir gulli í nágrenni Hafravatns i sumar í sam- vinnu við Kanadamenn, Ástrala og Svía. Boraðar verða fimm til tíu hol- ur 100-150 metra ofan í jörðina. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem leit- að er gulls við Hafravatn því að þar var einnig grafið eftir gulli í byrjun aldarinnar, á árunum 1911-1913 og aftur 1923-1925 en án mikils árang- urs. Sögu gullæðisins á íslandi má rekja aftur til ársins 1909, eftir því sem segir í æviminningum Tryggva Einarssonar í Miðdal, í veiðihug, þar sem fram kemur að Steingrímur nokkur, frændi Tryggva, sem hafði orðið ríkur á gullgreftri í Ástralíu-, kom til landsins og dvaldist hjá fjöl- skyldunni í Miðdal í nokkur ár. Steingrímur fékk að sjá nokkra steina úr jarðlögum við Seljadalsá og komst hann að þeirri niðurstöðu að um gullkvarz væri að ræða. Steingrímur fór utan aftur og sýndi mönnum steinana og var talið talsvert gull í jörðu í Miðdal. í fram- haldi af því komu Englendingar hingað til lands til að grafa eftir gulli og setja upp gullnámu í Miðdal og voru menn bjartsýnir og töldu að gi'öfturinn gæfi góðar vonir. Einar Benediktsson skáld var fenginn til samstarfs en Englendingarnir urðu þó að gefast upp því að námurnar fylltust af vatni og heimsstyijöldin fyrri skall á. Nokkru síöar k’omu Þjóðverjar til landsins og grófu eftir gulli á svip- uðum slóðum með góðum árangri. Þjóðverjarnir voru stórhuga og ætl- uðu að virkja foss og reisa verk- smiðjuhús en urðu að hætta við vegna fjárskorts. Gull í Öskjuhlíð? Nokkrum árum áður en grafið var eftir gulli í Miðdal hófst gull- gröftur í Vatnsmýrinni í Reykjavík, milli Norræna hússins og Öskju- hliðar, og töldu menn að þar hefði fundist gull án þess að það væri byggt á nægilegum athugunum. Upprunalega var ætlunin að bora eftir vatni á þessum stað'en dansk- ur borunarmaður fann glóandi málm við boranir og birti blaðið Reykjavík frásögn um að gull hefði fundist í Öskjuhlíð. Fréttin „fór eins og eldur í sinu um allan bæinn,“ segir í Gömlu Reykjavík eftir Árna Óla blaða- mann, og má segja að gullæði hafi gripið um sig á íslandi og vonuðust menn til þess að geta mokað gull- hnullungum í stórum stíl. Fyrirtæk- ið Málmur var fljótlega stofnað án þess að nógu ítarlegar rannsóknir hefðu verið gerðar, borvélar voru- keyptar að utan og menn voru ráðn- ir til vinnslunnar en gullleitinni lauk 1909 án árangurs. Aftur var leitað gulls á sömu slóðum árin 1922-1924 en ekkert fannst. í bókinni Úr ríki náttúrunnar eft- ir Ara Trausta Guðmundsson jarð- fræðing er talið hugsanlegt að gull sé til í jarðlögum norðan við Reykjavík og hafi það borist með skriðjökli ísaldarjökuls í Vatnsmýr- ina. Gull í Esju Draumurinn um gull á íslandi hefur blundað í íslendingum allt frá því í byrjun aldarinnar og hefur verið leitað að gulli öðru hvoru. Gull hefur fundist nærri stöð Skógræktar ríkisins við Mógilsá, í Esju, þar sem er háhitaum- myndað berg og útfellingar. Á þessum stað má finna málma- sambönd, til dæmis glópagull, en gullið þó ekki í nægilegu magni til að gullvinnsla borgaði sig. Samkvæmt upplýsingum frá ár- inu 1929 innihéldu gullríkustu sýnin aðeins 10-30 grömm gulls i tonni. Á Suðausturlandi eru málm- rík jarðlög og hafa menn talið sig fmna þar gull, til dæmis í Lóni og Álftafirði en sýni hafa ekki verið greind. Of lítið til vinnslu Á síðasta áratug kom hingað til lands júgóslavneskur náma- jarðfræðingur og stundaði hann rannsóknir á nýtanlegum málm- um á Suðausturlandi með aðstoð íslenskra jarðfræðinga og jarð- fræðinema en ekki virtist gull vera þar í neinu umtalsverðu magni. Gull hefur hins vegar fundist í Grænlandi og kemur til greina að rannsaka 40 staði á ís- landi með áþekkum aðstæðum og á Grænlandi, til dæmis í Esj- þó að ekki sé hægt að vekja vonir um gullfundi enda mestar líkur á að gullmagnið sé of lítið til vinnslu. Árin 1989-1990 stóð yfir leit að gulli á vegum Orkustofnunar, Kísiliðjunnar og Iðntæknistofn- unar á svæði frá Borgarfirði að Eyjafirði. Skýrslur hafa verið Gullæði greip um sig í Reykjavík í byrjun aldarinnar og kom Einar Benediktsson unnar um niðurstöðurnar og skáld að því máli. Grafið var eftir gulli í Miðdal og komu Englendingar og síðar eru frekari rannsóknir á dag- Þjóðverjar að því verki. Það lagðist þó niður aftur af ýmsum ástæðum. Nú er gull- skrá. vinnsla aftur hafin á íslandi og hafa fundist gömul námugöng í Þormóðsdal. -GHS DV-mynd Pjetur Gullgrafararnir í Miðdal hafa ekki smitast af gullæði: Engir gullklumpar hafa fundist enn „Við höfum ekkert verið að fyll- ast Eif gullæði en þetta er samt líf- legt starf og gaman að hugsa til þess að hér geti verið gull í jörð. Það er tiltölulega lítið um það að fólk komi hingaö að forvitnast, þó flækist stöku maður að göngunum og jafnvel inn i þau,“ segir Ólafur Guðnason bormaður en hann er að vinna við bor í Þormóðsdal ásamt Sævari Þór Björgvinssyni. Þeir fé- lagar segjast ekki verða varir við neina gullklumpa á svæðinu, segj- ast bara ná upp sýnum sem séu send utan til rannsókna. Það er fyrirtækið Jarðboranir hf. sem hefur sett' upp bor við Seljadalsá í Miðdal, skammt frá bænum Þormóðsdal, og hafa starfs- mennirnir þegar borað fimm holur um 100 metra ofan í jörðina. Verið er að dæla niður vatni til að ná kjarna úr berginu upp til rann- sóknar. Einnig eru jarðfræðingur og jaröfræðinemi við yfirborðs- rannsöknir á svæðinu. Búist er við að enn verði nokkrar holur borað- ar og yfirborðsrannsóknirnar haldi áfram heldur lengur en áður hafði verið gert ráð fyrir eða fram á haust. Þegar DV heimsótti gullgrafar- ana í Miðdal sátu bormennirnir í kaffi inni í litlu hjólhýsi. Þeir létu vel af gullgreftrinum og sögðu markmið rannsóknanna á svæðinu vera að kortleggja gullkvarzæðina sem talin sé þarna í jörðu. Fundist hafa gömul námugöng, sem talin eru frá því í byrjun ald- arinnar, og má sjá munna gang- anna og nokkur göt á þeim þó að sumar holurnar séu fullar af rign- ingarvatni. Steinar Sigurðsson jarðfræðinemi er um þessar mund- ir að saga þversnið af berginu á svæðinu og merkja, taka sýni og senda utan. Hann tekur því ekki fjarri að smávegis gull hafi fundist á svæðinu en ekki séu það neinir gullklumpar. Steinar segist búast við að rann- sóknirnar haldi áfram fram í októ- ber eða nóvember. -GHS Bormennirnir Ólafur Guðnason og Sævar Þór Björgvinsson sjá um að bora holur 100 metra ofan í jörðina og taka sýni. Þeir segjast alls ekki hafa smit- ast af gullæði og verði lítið varir við fólk að sniglast í hlíðunum. DV-myndir Pjetur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.