Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1996, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1996, Page 23
13’V LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 1996 23 Arna Rúnarsdóttir sýnir litaafbrigði íslenska hundsins á plakati: Ferðaðist um allt land g\\t mll/i himin<t Smáauglýsingar 550 5000 ARMORCOAT SÓL- OG ÖRYGGISFILMAN Arna á tvær tíkur, Ösku og Skellu. DV-mynd Pjetur t m ^mm M Arna Rúnarsdóttir Ijósrryndari er mikill áhugamaður um íslenska hundinn og hefur hún nú gert plakat sem sýnir öll helst litaafbrigði hundsins. Arna er hér með hundinum Snata sem stillti sér upp til myndatöku við fætur hús- móðurinnar. DV-mynd Pjetur \ss r Kiötvinnslal yP- SrtA\> **A . „ ktUH t að mynda hundana „Ég er með algjöra hundadellu. Ég hef alltaf haft gaman af hundum og átt hund, til dæmis þegar ég bjó nokkur ár úti í Hollandi, en fyrir tveimur árum fékk ég mér íslensk- an fjárhund og fékk þá algjöra dellu fyrir íslenska hundinum. Ég er ljós- myndari og hef ekki verið að vinna úti svo að ég ákvað að gera svona hundaplakat því að það hefur aldrei verið neitt gefið út um íslenska hundinn síðustu 50 árin,“ segir Ama Rúnarsdóttir ljósmyndari. Arna hefur gefið út plakat með 30 myndum af íslenska hundinum þar sem helstu litaafbrigðin eru sýnd og sýnir það einnig glögglega fjöl- breytileika íslenskrar tungu. Á plakatinu má sjá hund sem er svart- botnóttur, strútóttan og löppóttan hund með týru, dökkgrágulkolóttan og strútóttan, hundflekkóttan, gulkápóttan, rauðgulkolóttan og strútóttan með týru, rauðgulan og leistóttan með bringublett, leirhvít- an, leirkolóttan, strútóttan og leistóttan hund svo að nokkur dæmi séu nefnd. Myndirnar sýna íslenska fjár- hundinn eins og hann gerist falleg- astur og þó er plakatið ekki tæm- andi, til era ótal önnur litaafbrigði. Myndimar valdi Ama í samvinnu við litasérfræðinginn Stefán Aðal- steinsson búfjárfræðing. „Hreinræktaðir íslenskir hundar skipta þúsundum. Á plakatinu virð- ast þeir vera voðalega ólíkir því að feldurinn er svo mismunandi en ef þeir væru rakaðir og spreyjaðir með grænu þá yrðu þeir líkari," seg- ir hún. 200 myndir af hverjum hundi Þaö tók Örnu sex mánuði að vinna plakatið og þurfti hún að fara ótal ferðir út á land til að mynda hunda. Hún tók myndir af tæplega 200 hundum víðs vegar um landið og á hún 100-200 myndir af hverjum og einum. Suma hundana þurfti hún aö mynda oftar en einu sinni því að erfitt var að fá þá til að standa kyrrir meðan ljósmyndarinn var að störfum. Þegar heim var komið og Ama fór að skoða mynd- imar og velja úr varð hún stundum að fara aftur af stað því að eyrun löfðu eða hundurinn var á hreyf- ingu. „Ég sat svo uppi i rúmi á kvöldin með heila hrúgu og rýndi í mynd- irnar því að ég þurfti að velja mynd- ir á plakatið. Maður var stundum orðinn þrælruglaður á öllum þess- um myndum," segir hún. Arna segist hafa þurft að mynda tvisvar alla hundana sem hún tók myndir af í upphafi því að þá hafi hún haft allt aðrar hugmyndir um plakatið en síðan urðu að veraleika. Hún segist hafa uppgötvað þegar hún fór að skoða myndimar að hún hafi viljað hafa þær öðravísi, hafa hundana helst í svipuðum stelling- um á myndunum en það hafi ekki verið neinn leikur því að þeir hafi gjaman snúið rassinum í sig og vingsað skottinum eða þvíumlíkt. „Og ekki er hægt að segja við þá „stattu kyrr“ því að þá leggjast þeir,“ segir hún. Ama segir í grini að hún hafi ef- laust kynnst hverjum einasta ís- lenska fjárhundi á landinu í vetur og eiga myndir af þeim flestum, nægt efni í heila bók enda hafi ekk- ert birst um íslenska hundinn frá því Bretinn Paul Watson fékk áhuga á honum og bjargaði honum fyrir bam, sem er tilbúið í alls konar æv- intýri en vill ekkert illt og ætlar ekki að gera neitt af sér. Það bara gerist," segir hún. Sámur er rauðgulstrútóttur, kol- hærður og löppóttur og voðalega prakkaralegur á svipinn. Þurfti að bíða inni Arna nefnir einnig að hún hafi þurft að mynda einn hundinn tvisvar og í seinna skiptið hafi þurft að halda honum inni hálfan dag. Hún hafi verið búin að mynda hann áður en þá hafi hann verið skítugur og því hafi þurft að endurtaka myndatökuna. Hann hafi verið sett- ur í bað, strokinn og þveginn, og svo hafi hann þurft að bíða inni því að hann hefði strax oröið skítugur hefði honum verið hleypt út að reka kindur. Arna og fjölskylda hennar eiga tvo hunda, Ösku, sem er skjömbótt, og Skellu, sem er skellótt, og þessa dagana er í heimsókn hjá þeim Snati frá Þorvaldsstöðum í Breið- dal. -GHS hundinn Skugga sem er næstneðst- ur til hægri á plakatinu. Skuggi er um fimm ára gamall, svartur, sporóttur með bringublett og alinn upp hjá eldra fólki. Arna segir að hann hafi horft yfirvegaður á sig, „hann var töffari og vissi alveg ná- kvæmlega hvað hann vildi,“ segir hún. Fleiri hundar eru Ömu minnis- stæðir og segir hún til dæmis að hundurinn Sámur úr Mosfellsbæ hafi verið „mikill strákur í sér,“ eins og hún orðar það, „hann er guttinn." Hún segir að Sámur sé alltaf tilbúinn í prakkarastrik og stráksskap. „Hann er eins og lítið er límd innan á venjulegt gler. Sólarhilt- inn minnkar um 75% (3/4) Upplitun hverfur nánast (95%) Glerið verður 300% sterkara. í fyrsta sinn er hægt að bjóða sól- og öryggisfilmu fyrir bíla sem sett er á af fagmönnum með sérhæft verkfæri. Filman breytir skjannabirtu í milda þægilega birtu og stórminnkar hita, upplitun hverfur nánast og öryggi stóreykst. Filman setur glæstan svip á bifreiðina. I)ip ISkannltilB^ liifi. Krókhálsi 3, sími 567-4727 J hálfri öld. Hún neitar því þó að til standi að gefa út bók og telur sig eiga nóg með að koma nýja plakatinu á framfæri. Hún hefur meðal annars kynnt það á hesta- mannamótinu á Hellu nýlega og ætl- ar að koma því í bókabúðir. Stoltur töffari -Hundar hafa mismunandi per- sónuleika alveg eins og mannfólkið. Voru einhverjir hundar sem voru Ömu minnisstæðastir úr mynda- tökunum? „Þessi svarti er stoltur og ofsaleg- ur karakter," segir hún og bendir á

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.