Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1996, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1996, Side 25
25 >! LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 1996 Söfnuðisrinn Messías Fríkirkja hittist tvisvar í viku í bílskúr við Rauðarárstíg: Séra Guðmundur Örn Ragnarsson segir að það væru fá vandamál í 300 þúsund manna þjóðfélagi ef prestarnir væru trúir köliun sinni og fólkið beygði sig undir vilja prestsins og gera eins og hann segir. Prestarnir gætu skipt fólkinu upp í litla hópa og allir væru virkir í daglegu lífi og boðuðu fagnaðarerindið á sínum vinnustað. DV-mynd Pjetur „Eg var prestur í þjóðkirkjunni í 12-13 ár og hagaði mér lengst af ekk- ert frábrugðið öðrum prestum en kynni min af öðrum kirkjum urðu til þess að ég fór að boða fagnaðar- erindið bókstaflega. Það varð til þess að ég missti prestsembætti. Ég gerðist meðlimur í Orði lífsins en sótti aftur og aftur um prestakall innan þjóðkirkjunnar en fékk ekki því að menn óttuðust bókstafstrú mína, ég væri of biblíulegur. Ég hegðaði mér ekki lengur eins og flestir þjóðkirkjuprestar gera, sem predika ekki neitt sem máli skiptir, síst af öllu hreint Guðs Orð, og hafa engar skoðanir. Ég vildi þó koma aftur inn í þjóðkirkjuna til að predika Guðs Orð,“ segir séra Guð- mundur Öm Ragnarsson. Séra Guðmundur Örn er leiðtogi lítils safnaðar, sem hann stofnaði skömmu eftir áramótin eftir að hann fékk köllun til þess frá Guöi, og kallar söfnuðinn Messías Frí- kirkju. Um 15 manns eru í söfnuðin- um, aðallega menn sem höfðu verið með Guðmundi Erni i bænahópi. Söfnuðurinn kemur saman tvisvar í viku í bílskúr við Rauðarárstíg. Bíl- skúrinn leigir kirkjan og gengur samskotabaukur á safnaðarsam- komum til að greiða útgjöld. Nafn safnaðarins hefur skírskotun til Jesú Krists, Messias þýðir Hinn Smurði eða Kristur. Fjölgar hratt ef Guð lofar „Þegar kirkjur eru stofnaðar þá fær einn maður köllun að leiða söfn- uð. Hann fær köllunina gegnum samfélag sitt við Guð og finnur fyr- ir því að Guð talar til hans. Þegar prestar í þjóðkirkjunni hafa verið kallaðir þýðir það að Guð hafi talað til þeirra. Guð gerir gjarnan meira en að segja bara: þú ert kallaður, punktur og basta. Hann leiðir menn inn í eitthvað ákveðið. Þó að ég hafi talið að minn staður væri í þjóð- kirkjunni í 13 ár þá sannfærðist ég loks um að það væri ekki vegna þess að Guð hindraði það að ég tæki við prestakalli," segir séra Guð- mundur Öm. Hann segir að eftir síðustu ára- mót hafi Guð talað til sín um það að verða leiðtogi nýs safnaðar og i framhaldi af því hafi hann tekið bíl- skúrinn á leigu en þar eru sæti fyr- ir 20 manns. Guðmundur vonast til þess að söfnuðurinn stækki hratt ef Guð lofar. Biskup var órólegur Séra Guðmundi Erni liggur margt á hjarta í sambandi við þjóð- kirkjuna og gagnrýnir hana, yfir- stjórn hennar og prestana hart. Hann telur prestana ekki fara eftir markvissum, skýrum og biblíuleg- um kenningum kirkjunnar og segir að frjálsir söfnuðir fylgi kenningum þjóðkirkjunnar mun betur en þjóð- kirkjan sjálf. Hann segist hafa farið sem farprestur milli kirkna í veik- indum eða fjarveru presta þjóð- kirkjunnar fyrir nokkrum árum og predikað „dálítið öðruvísi en menn áttu að venjast," eins og hann út- skýrir það. Séra Guðmundur Öm hefur verið umdeildur prestur og nefnir hann sem dæmi um viðbrögð innan þjóð- kirkjunnar uppistand sem varð á Seltjarnamesi fyrir fimm árum þeg- ar hann predikaði í fjarveru séra Solveigar Láru Guðmundsdóttur og þótti ganga full hart fram þó að svo sé ekki að hans eigin mati. „Biskupinn hefði átt að vera ánægður með það en var það ekki. Þess í stað varð hann órólegur yfir því að ég stuðaði söfnuðinn með bókstafspredikun," segir hann. „í marga áratugi höfum við prest- ar predikað eins og við höldum að fólkinu líki, ekki eins og Guði líkar, til þess að fólkið sé ánægt tilfinn- ingalega. Þegar ástæða hefur verið til höfum við látið undir höfuð leggj- ast að koma með umvandanir við fólkið eins og heilög ritning segir okkur þó að gera. Jafnvel við útfar- ir er fólkinu sagt að allir séu á leið til Guðs þó að ritningin segi að það eigi enginn inngöngu í Guðs ríki nema fyrir trú á Jesú Krist. Þegar svo þetta er loks boðað við útför þá finnur söfnuðurinn til fordæming- ar. Flestir segjast kristnir en trúa þó í raun ekki á Jesú Krist sem frelsara sinn,“ segir hann. Meinið í þjóðkirkjunni „Meinið er að þjóðkirkjan og margar aðrar kirkjur eru raunveru- lega ekki lifandi kirkjur heldur dauðar vegna þess að fólkið í þeim skynjar ekki hvað það er að vera limur á líkama Krists, að gefast Jesú Kristi og kirkjunni. Þegar fólk gefst kirkjunni þá er það ekki bara til þess að það fái þjónustu heldur einnig til þess að þjóna öðrum í kirkjunni." Séra Guðmundur Örn minnir á að stærsti söfnuður í heimi, sem er í Kóreu og telur að minnsta kosti 750 þúsund manns, skiptist niður í litla hópa. Sjálfboða- liðar sinni þeim því að leiðtoginn nái ekki að sinna öllum þessum Qölda. „Þetta sama gilti í frumkirkjunni og ætti að gilda í þjóðkirkjunni með biskup yfir og svo skiptist kirkjan niður. Það væru fá vandamál í 300 þúsund manna samfélagi ef prest- arnir væru trúir köllun sinni frá Guði og fólkið væri tilbúið til þess að setja sig undir prestinn sinn og gera eins og hann segir, samanber Langholtskirkju. Þá getur prestur- inn skipt fólkinu upp í hópa og gert því að koma saman í heimahúsum. í daglegu lífi væru allir virkir og boðuðu fagnaðarerindið á sínum vinnustað og vitnuðu í Jesú sem frelsara og Drottin til að fá fólk inn í hópinn til að fá nýtt fólk í kirkj- una,“ segir hann. Þjóðin er heiðin „í dag er full ástæða til að stunda trúboð á íslandi eins og þetta væri heiðið land. Okkar þjóð kallar sig kristna en aðeins fá prósent hennar eru raunverulega kristin og fæst þeirra í þjóðkirkjunni, því miður. Aðeins kristið siðferði, ekki kristin- dómur, hefur lengi ríkt hér á landi en nú er það smátt og smátt að brotna niður því að grundvöllinn, trúna, vantar," segir séra Guð- mundur Öm. Hann bendir á að vestræn menn- ingarþjóðfélög hafi byggst á krist- inni trú. Þegar fólkið gangi af trúnni þá hverfi kristin hugsunar- háttur og siðferði smám saman, ekki sé lengur kristin hugsun á bak við heilsugæslu. Menn hætti að skeyta um börn í móðurkviði, þau séu réttdræp, og margvísleg lög gangi í gildi í andstöðu við Guðs Orð, „eins og kynvillulögin, lög um tæknifrjóvgun og kynskiptiaðgerðir þar sem á að örkumla fólk,“ segir hann. „Ef við værum kristin þjóð þá myndu svona hlutir ekki líðast því að okkar kristna siðferðisvitund sæi til þess. Ef þessi siðferðishnign- un fær að renna sitt skeið til enda hrynur okkar íslenska, vestræna velferðarþjóðfélag. Það eina sem getur bjargað okkur er kristin trú- arvakning og Messías Fríkirkjan gæti einmitt verið upphafið að slíkri vakningu," segir hann. -GHS Séra Guðmundur Örn Ragnarsson fékk köllun frá Guði um áramótin til að stofna lítinn söfnuð og verða leiðtogi hans. Um 15 manns eru í söfnuðinum nú og hittast þeir tvisvar í viku í bílskúr við Rauðarárstíg. Guðmundur Örn vonast til að söfnuðurinn stækki fljótt enda geti siðferðishnignun í þjóðfélaginu orðið til þess að hið íslenska velferðarþjóð- félag hrynur. Það eina sem geti bjargað sé kristin trúarvakning. DV-mynd Pjetur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.