Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1996, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1996, Page 26
26 LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 1996 fréttir Flutningur Landmælinga til Akraness: Reykjavíkurborg mótmælir töku á ríkisstofnun - ákvörðun ráðherra valdníðsla, -segir forseti borgarstjórnar Reykjavíkur Guðmundur Bjarnason umhverfisráðherra ásamt Ágústi Guðmundssyni, forstjóra Landmælinga íslands, á fundi með starfsmönnum Landmælinga þar sem ráðherrann tilkynnti að hann hefði ákveðið að flytja stofnunina upp á Akranes. DV-mynd ÞÖK Valdboð Guðmundar Bjamason- ar, umhverfis- og landbúnaðarráð- herra, um flutning Landmælinga ís- lands til Akraness hefur vakið upp hörð viðbrögð og spumingum um hagkvæmnisrök hefur ráðherra ekki svarað en nánast eingöngu vís- að til þess að um pólitíska ákvörðun sé að ræða og spurt á móti um hag- kvæmni þess að allt sé í Reykjavík sem máli skipti fyrir þjóðfélagið í heild. Undanfarna tvo áratugi hefur um- ragða um að flytja ríkisstofnanir út á land verið áberandi, að vísu með hléum, en árið 1975 mælti nefnd, sem Ólafur Ragnar Grímsson, ný- kjörinn forseti, og Jón Baldvin Hannibalsson áttu sæti í, með því að flytja alls 25 ríkisstofnanir úr Reykjavík og út á land. Ekki var þó um helstu stjórnarstofnanir lands- ins að ræða en þær taldi nefndin að mættu vera áfram í borginni vegna nauðsynlegra tengsla þeirra við stjórnkerfið. Úr þessum fyrirætlunum varð ná- kvæmlega ekkert þá, enda vildi rík- isstjórn Geirs Hallgrímssonar ekki ráðast í þessa miklu flutninga ríkis- stofnana og yfirhöfuð enga slíka flutninga nema að fyrst hefðu mál hverrar stofnunar um sig verið skoðuð ítarlega. Ríkisstjórn Geirs Hallgrimssonar fól hins vegar i framhaldinu ríkisstofnunum að efla útibúastarfsemi sina. Þá var það af- dráttarlaus skoðun ríkisstjórnar Geirs að áður en ákvörðun um flutning yrði tekin yrði að liggja fyr- ir afstaða viðkomandi ráðuneytis, sem stofnunin heyrði undir, afstaða stjórnar viðkomandi stofnunar, for- stöðumanns og starfsfólks. Enn- fremur skyldi liggja fyrir samþykki fjárveitinganefndar Alþingis fyrir flutningnum. Áfram hélt umræðan um að flytja stjórnsýsluna úr höfuðborginni og árið 1986 skilaði byggðanefnd þing- flokkanna undir forystu Lárusar Jónssonar áliti um þessi mál. í þvi voru engar tillögur um flutning stofnana út á land enda vildi nefnd- in ekki mæla með honum. Misjöfn reynsla Byggðastofnun hefur fengið fyrr- verandi framkvæmdastjóra Nor- rænu rannsóknastofnunarinnar í byggðamálum til að taka út reynslu annarra Norðurlandaþjóða af flutn- ingi ríkisstofnana út á land. Sam- kvæmt niðurstöðum hans hefur orð- ið lítið úr slíku, nema þá helst í Svi- þjóð, en reynsla Svía er harla mi- sjöfn. Vandamál, sem upp komu, reynd- ust mun umfangsmeiri en ætlað var í upphafi, endurskipulagningu starf- seminnar á nýjum stað fylgdi mikill kostnaður og tregða starfsmanna til að fylgja stofnuninni á nýjan stað reyndist miklu meiri en ætlað var. í sambandi við flutning Skóg- ræktar ríkisins austur á Hallorms- stað og Egilsstaði og embætti veiði- stjóra hefur sama raunin orðið á hér. Flutningur Skógræktarinnar fór fram í tengslum við setningu nýs manns í embætti skógræktar- stjóra og það varð, þegar upp var staðið, aðeins hann einn sem flutti með Skógræktinni austur af alls sjö starfsmönnum. Allar skýrslur og úttektir opin- berra aðila eins og Byggðastofnunar og Hagsýslu ríkisins, sem fjalla um flutning ríkisstofnana út á land, og um fyrirhugaðan flutning Landmæl- inga nú skjóta heldur ekki rökum undir flutninga af þessu tagi heldur hiö gagnstæða. Tvær ríkisstofnanir hafa þegar verið fluttar úr höfuðborginni sem fyrr segir; Veiöistjóraembættið, sem var flutt til Akureyrar, og Skógrækt ríkisins til Egilsstaða. Samkvæmt úttekt Framkvæmdasýslunnar á kostnaði við tilskipaðan flutning Landmælinga nú er hann talinn ó- skynsamlegur og er vitnað til reynslunnar af flutningi fyrr- nefndra tveggja stofnana sem hafi reynst kostnaðarsamur og hækkað reksturskostnað þeirra. Þá hafi eng- inn starfsmaður flutt með annarri en aöeins forstjóri hinnar. Reynslan af flutningi stofnan- anna er því einfaldlega slæm, stofn- anirnar sinna hlutverkum sínum verr en áður, rekstur þeirra er óhagkvæmari fyrir ríkið og fyrir notendur þjónustu þeirra. Raunar er svo komið að sterkar raddir eru uppi um að leggja embætti veiði- stjóra niður í núverandi mynd og færa starfsemi þess undir setur Náttúruverndarstofnunar á Akur- eyri, sem þýðir að öllu óbreyttu að raunveruleg stjórnun embættisins fer aftur til höfuðborgarinnar. Höfuðborginni misboðið Borgarstjórn Reykjavíkur hefur samþykkt einróma mótmæli gegn flutningum Landmælinga nú. Borg- arstjórn telur að flutningur stofnun- arinnar valdi alvarlegri röskun á högum 30 starfsmanna stofnunar- innar og fjölskyldna þeirra, eða alls yfir 130 manns. Þá bendir borgar- stjórn Reykjavíkur á að staðsetning stofnunarinnar í Reykjavík sé hag- kvæm fyrir alla landsmenn og að það sé hagkvæmt fyrir alla þjóðina að stjórnsýslan sé öll á sama stað og því æskilegt að stofnanir, sem þjóna öllum landsmönnum, séu í höfuð- fréttaljós á laugardegi Stefán Ásgrímsson borg landsins, þótt með því sé síður en svo verið að gera lítið úr mikil- vægi þess að jafnvægi sé í byggð landsins, að sögn Guðrúnar Ágústs- dóttur, forseta borgarstjórnar. Guðrún Ágústsdóttir segir í sam- tali við DV að það sé eindreginn vilji borgaryfirvalda að landið allt fái notið sín og fái að blómstra og mikilvæg opinber starfsemi þurfi að fara fram á landsbyggðinni og geri það. Hins vegar sé mikilvægt í þess- um efnum að ráðamenn þjóðarinnar og sveitastjórnarfólk setjist niður og ræði á skynsamlegan hátt hvernig eigi að nálgast þessa hluti. Því það að gefa tilskipanir í sovéskum anda, eins og gert hefur verið með Land- mælingar og áður Veiðistjóraemb- ættið og Skógræktina af tveimur umhverfisráðherrum, séu aðferðir sem var verið að leggja niður í gömlu Sovétríkiunum. í þessum sovétstjómarháttum felist virðing- arleysi við fólk og stjórnaraðferðir sem ekki sé hægt að sætta sig við. Guðrún Ágústsdóttir segir að hvað sem þessum málum líði þá hljóti höfuðborg landsins alls að vera miðstöð stjómsýslu og óskyn- samlegt sé að vera að slíta i sundur stjórnkerfið þannig að fólk geti ekki leitað allra upplýsinga og þjónustu hjá því á einum og sama staðnum. Ráðherraveldi íslendingur, sem lengi hefur búiö í einu Norðurlandanna en oft kem- ur til íslands vegna starfa sinna, segist æ ofan í æ reka sig á það hversu mikil völd íslenskir ráðherr- ar hafi og þetta ráðherraveldi, eins og þessi maður kýs að kalla það, sé það mikið að nánast útilokað sé að stjórnarfarslegt jafnvægi komist á því aö um leið og nýr ráðherra komi til valda, sem telji sig þurfa að þjóna metnaði sínum og sértækum áhuga- málum, þá geti hann kollvarpað fjöl- mörgu sem þegar er í ákveðnum farvegi: Þannig geti ráðherra, eins og nú, gefið út tilskipun sem fyrir- sjáanlega mun koma niður á fjölda manns, tefja starf, sem þegar er í þokkalegum farvegi, við kortlagn- ingu landsins og kosta ríkissjóð stórfé og baka viðskiptavinum Landmælinga aukna fyrirhöfn og óþægindi í framtíðinni. Þingmenn, sem DV ræddi við, sögðu að þetta væri rétt, ráðherra- veldi væri hér mun meira en ann- ars staðar á Norðurlöndum og mætti skýra þann mun þannig að sérhver ráðherra hefur ríkisstjórn- arvald hver yfir sínum málaflokki meðan ríkisstjórnir í heild á Norð- urlöndunum hafi það vald og afl at- kvæða ráði þvi hvort og hvað hverj- um ráðherra er falið að fram- kvæma. Valdníðsla „Þetta er valdníðsla að tilkynna starfsmönnum Qutning stofnunar með þeim hætti sem hefur verið gert og þeim sem ekki vilja flytjast í annan landshluta sagt að þeir bara missi vinnu sína ef þeir ekki flytja. Það er valdníðsla að ekki skuli rætt um hlutina, ekki síst í ljósi þess að það er búið að sýna fram á að þetta er óhagkvæmt fyrir þjóðina. Ef þjóð- in hefur efni á að vera með svona æfingar, sem eru dýrari fyrir okkur öll, þá er ég hrædd um að efnahags- ástandið hjá þjóðinni hljóti að hafa breyst. Allt þetta mál virðist mér vera vanhugsað og þurfi virkilega að endurskoðast, ekki bara út frá hagsmunum Reykjavíkur heldur landsins alls. Hagsmunir Reykvik- inga og landsbyggðarbúa fara sam- an og það er fráleitt að skipta þjóð- inni upp með þeim hætti að Reyk- víkingar séu eitt og íbúar annarra landshluta annað,“ segir forseti borgarstjórnar þegar hún var spurö um málefni starfsmannanna. Útibú Hafró ákveðin af stjórnmálamönnum Jakob Jakobsson, forstjóri Haf- rannsóknastofnunar, segir að reynsla stofnunarinnar af rekstri útibúa hennar sé að mörgu leyti já- kvæð. Hins vegar hafi ákvörðun um staðsetningu þeirra á sínum tíma ekki verið tekm af stjórnendum stofnunarinnar sjálfrar heldur af stjórnmálamönnum. Aðspurður hvar hann hefði valið þeim stað út frá hagsmunum Hafrannsóknastofn- unar og vísindalegum sjónarmiðum sagðist Jakob ekki vilja svara þeirri spurningu og vera of sjóaður i þess- um slag til þess. „Okkur hefur þótt það helst valda erfiðleikum i rekstri útibúanna þeg- ar þau eru einmenningsvinnustað- ir. Það reynir mikið á útibússtjór- ann. Stefnan hefur verið sú að efla útibúin og það hefur tekist, sérstak- lega á Akureyri, en þar starfar það í mjög náinni samvinnu við Háskól- ann á Akureyri og starfsmenn þess hafa kennsluskyldu við skólann." Jakob segir að rekstur útibúsins í Vestmannaeyjum stefni svolítið í sömu átt en Háskóli íslands er þar með aðstöðu og útibúið vinni þar með Háskólanum og Rannsókna- stofnun fiskiðnaðarins á staðnum. Þá sé útibúið á ísafirði við hliðina á Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins, sem sé báðum að gagni, en þar þyrfti þó að koma á meiri starfsemi útibúsins til þess að reksturinn ■gagnaðist Hafró að fullu. Misjafnt lán með mann- skap Jakob segir að á ýmsu hafi geng- ið með rekstur útibúanna og stund- um ekki einu sinni gengið að manna þau en eins og ástandið sé núna sé stofnunin heppin með úti- bússtjóra. „Það hefur lengi verið erfitt í Ólafsvík undanfarin ár og erfitt að manna það útibú en nú starfar þar afburða útibússtjóri sem er að ná mjög góðu sambandi við heima- menn. Það er mjög erfítt fyrir menn að vera alltaf einir í vinnunni og geta aldrei rætt hlutina við sam- starfsfólk." Jakob Jakobsson segir að rekstur útibúa sé vegna eðlis starfsemi Haf- rannsóknastofnunar heppilegur og hafi í stórum dráttum tekist þokka- lega en leggur að lokum áherslu á að stærsti vandinn í rekstri þeirra hafi verið sá að manna þau góðu fólki, sérstaklega þau smærri, sem eru einmenningsvinnustaðir, þar sem ekki sé fýsilegt fyrir fræöi- menn að vinna einir og hafa ekki færi á að bera sig daglega saman við aðra fræðimenn á sama sviði. Hann segir að nú séu útibúin öll vel mönnuð og starfsemi þeirra í góð- um farvegi. Starfsemi þeirra, sér- staklega einmenningsútibúanna, mótist þó mjög af því hver sérfræði- menntun viðkomandi útibússtjóra sé. -SÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.