Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1996, Page 27
I f LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 1996
27
Listamaður af íslenskum ættum með sýningu á íslandi í haust:
Listin er leiðin til Mekka
- segir Harry Bilson
„Ég hef hugsað mér að koma
bráðlega til íslands aftur og fara á
hestbak á íslenskum hestum með
Jóhanni frænda mínum. Einnig er
mögulegt að ég setji upp málverka-
sýningu á íslandi," sagði Harry Bil-
son, heimsfrægur listmálari af ís-
lenskum og breskum ættum, þegar
DV sló á þráðinn til hans í Bristol
vegna orðróms um að hann væri
væntanlegur til landsins.
Bilson, sem er tæplega flmmtug-
ur, fæddist á íslandi og bjó hér á
landi fyrstu æviár sín. Hann talaði
íslensku í æsku en hefur ryðgað í
henni þar sem hann hefur vart not-
að málið í tuttugu ár. Móðir Bil-
sons, Kristjana Jónsdóttir Bilson,
hætti að tala íslensku við Harry eft-
ir að fjölskyldan fluttist til Bret-
lands.
Bilson kom í stutta heimsókn til
landsins í fyrra og kom þá á fornar
slóðir og kannaði nýjar. Honum lík-
aði svo vel að hann telur mjög
miklar líkur á að hann haldi mái-
verkasýningu á íslandi. Hann vill
þó ekki gefa nein loforð þess efnis
þar sem margt geti breyst. Honum
þykir óþarfi að lofa upp i ermina á
sér.
Myndir eru bara myndir
„Annars þykir mér mjög leiðin-
legt að undirbúa sýningar fyrir
fram. Mér þykir skemmtilegt að
mála en mér leiðast sýningar, ef ég
á að vera alveg hreinskilinn. Á sýn-
ingum er ætlast til að maður geti
útskýrt málverkin sín en ég vil
helst ekki þurfa að gera það. Mynd-
ir eru bara myndir og að mínu mati
eru þær endanlega tilbúnar þegar
ég hef lokið við að mála þær. Það er
fint ef fólki líkar við myndirnar
mínar en þaq skiptir mig heldur
engu máli þótt því líki þær ekki.
Mér finnst leiðinlegt að þurfa að
verja gerðir mínar fyrir alls konar
fólki og frekar þreytandi að segja
því frá myndunum mínum,“ segir
Harry.
40 sýningar að baki
Harry hefur haldið í kringum 40
sýningar víðs vegar um heiminn,
þar á meðal í Flórens, Venesúela,
Tokyo, Úrúgvæ, Ástralíu og Hong
Kong auk heimalands síns, Bret-
lands. Hann hefur verið búsettur í
fimm ár í Asíu og Ástralíu þar sem
hann varði tíma sinum í að mála.
Hann hefur eignast aðdáendur víða
um heiminn og safnarar keppast
við að safna verkum hans. Haft hef-
ur verið eftir Bilson að verk hans
séu opin í báða enda og þau segi
bæði allt og ekkert. Hann segist
ekki meina neitt sérstakt með verk-
um sínum en hann dái fegurð.
Myndir hans eru fullar af lífi og að-
dáun hans á hestum kemur ljóslega
fram í verkum hans. Bilson á ekki
erfitt með að útskýra verk sín en
hann segist ekki fylgja neinni
ákveðinni stefnu. Hann segist mála
eftir tilfinningum og þær breytist
eftir því hvernig honum líði.
Bilson hefur sterkar taugar til Is-
lands og kom hingað á hverju
sumri fyrstu árin eftir að hann
fluttist til Bretlands með foreldrum
sínum. Tímaskortur og heims-
hornaflakk eftir að hann varð
þekktur málari hömluðu því að
hann kæmist hingað í heimsókn til
þess að rækta sambandið við ætt-
ingja sína sem flestir búa hér á
landi. Hann segist vera mjög önn-
um kafinn maður -.....eins og all-
ir,“ bætir hann við.
Bilson ásamt börnum sínum og vinum þeirra.
Verk Bilsons lýsa mörg hver mikilli gleöi.
Hestamaður í Ástralíu
Myndir Bilsons eru mjög glaðlegar
og mikið að gerast í þeim. Blaðamað-
ur spurði hvort hann væri hamingju-
samur maður og það birtist í mynd-
um hans.
„Ég er jafn hamingjusamur og
hver annar. Það er einungis tilviljun
að ég mála fólk og hesta. Það hefur
enga sérstaka þýðingu. Ég á að vísu
nokkra hesta þar sem ég hý stundum
í Ástralíu. Undanfarin ár hef ég búið
þar talsvert mikið,“ segir Bilson.
Málarinn er kvæntur og á átta ára
son og tólf ára dóttur og koma þau yf-
irleitt til Ástralíu í skólafríunum sín-
um. Honum líkar afar vel í Ástralíu
og segir að þar sé jafh rúmt um fólk
og á íslandi. Hann hefur ekki spá
mikið í íslenska listamenn en
hefur þó heyrt minnst á Erró
og hans verk.
„Ég hef farið víða og haldið
sýningar og ekki haft tima til
þess að koma til íslands. Flest-
ir ættingjar mínir búa á ís-
landi en ég er ekki mjög dug-
legur að halda sambandi. Ég
skrifa ekki því mér finnst leið-
inlegt að skrifa bréf og ég er
mjög latur við símann. Ég hef
einfaldlega of mikið að gera til
þess. Ég hef þó mjög gaman af
að fá bréf,“ segir Harry.
Slökkti á heilanum
Málverk Bilsons hafa runn-
ið út eins og heitar lummur og
á sumum sýninganna seljast
öll verkin strax við opnunina.
Bilson er hógvær og segist
selja nóg til þess að hafa getað
lifað góðu lífi undanfarin þijá-
tíu ár.
„í fyrstu þurfti ég að vinna
verkamannavinnu til þess að
sjá fyrir mér. Mér fannst best
að starfa við það sem ekki krafðist
neinnar andlegrar orku frá mér og
ég gat slökkt á heilanum. Það leiðin-
lega við kennslu er að ef maður ætl-
ar að vera góður kennari tekur það
mikla orku frá manni. Þá er engin
orka eftir til þess að mála en það er
mín leið til Mekka,“ segir Bilson.
-em