Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1996, Blaðsíða 29
13"V LAUGARDAGUR 13. JULI 1996
opnuviðtal
Valgerður og Guðrún spila ktnaskák á borði sem þær bjuggu til sjálfar. DV-myndir JAK
því það eru engir fordómar þar. Við
fengum æðislega brúðargjöf frá
vinnufélögum mínum,“ segir Guð-
rún.
Valgerður og Guðrún fengu tals-
vert mikið af brúðargjöfum, meðal
annars golfsett frá vinnufélögum
Guðrúnar. Þær hafa hingað til ekki
leikið golf en hyggjast byrja á því í
sumar. Brúðkaupsferðin hefur enn
þá ekki verið farin en þær hyggjast
fara i brúðkaupsferð til eyjarinnar
Kýpur sem er rétt sunnan til við
Tyrkland. Fyrst ætla þær að fara til
vinar síns í Danmörku og fljúga
þaðan til eyjarinnar.
Barist við fordóma
Af samtölum við konurnar að
dæma virðist Guðrún vera sú sem
hefur oftar þurft að berjast við for-
dóma. Hún segir líklega skýringu á
fordómum fólks að það sé sjálft
hrætt við að vera fordæmt.
„Viðhorf fólks gagnvart lesbíum
hefur breyst í gegnum árin. Mér
finnst viðhorf eldra fólks orðið já-
kvæðara heldur en hjá hinu yngra.
Ég er þó ekki að tala um unglinga
þegar ég segi yngra fólk,“ segir Guð-
rún.
lega enn þá betri uppalendur heldur
en margir gagnkynhneigðir. Börnin
fá almennilegar útskýringar á hlut-
unum hjá samkynhneigðum á með-
an börn gagnkynhneigðra fá
kannski minna að vita um þessa
hluti eins og samkynhneigð. Börn
samkynhneigðra eru að vissu marki
betur sett. Foreldrar eiga það til að
vanmeta börnin sín. Þeir ýta undir
að fordómarnir haldi áfram,
kannski án þess að ætla sér það,“
segir Guðrún.
Guðrún og Valgerður eru glaðari
en þær hafa verið lengi og eru sam-
mála um að hvetja aðrar lesbiur og
homma til að bíða ekki lengur held-
ur koma úr felum og byrja að lifa
lífinu.
„Ég myndi ráðleggja hommum og
lesbíum sem eru í felum að galopna
skápinn sem allra fyrst, opria upp á
gátt og leyfa ekki öðrum að loka aft-
ur. Maður er búinn að hafa allt of
mikið fyrir þessu til þess að láta
einhvern skella á sig. Það er mjög
erfitt fyrst eftir að maður opnar
dyrnar en síðan kemur maður að
þessari frelsistilfinningu sem fleytir
manni áfram,“ segir Guðrún. Guð-
rún er viss um að fólk eins og Páll
Óskar Hjálmtýsson hafi áhrif á við-
horf til samkynhneigðra. Hann
kemur til dyranna eins og hann er
klæddur og hefur opnað umræðuna
mikið þar sem hann reynir aldrei
að þykjast. Hann hefur tvímæla-
laust aðstoðað marga til þess að
hætta að skammast sín fyrir að vera
samkynhneigður. Lesbíur hafa falið
hneigð sína betur og mjög fáar hafa
komið fram á sjónarsviðið saman-
borið við homma. Margrét Pála
Ólafsdóttir, formaður Samtakanna
’78, hefur ötullega kynnt samtökin
sem hefur haft góð áhrif á hina sem
á eftir hafa komið. Guðrún og Val-
gerður hafa aldrei orðið fyrir að-
kasti vegna þess að þær eru lesbíur.
Þær vilja þakka öllum sem sendu
þeim skeyti, kort og blóm og aðrar
hlýjar kveðjur.
Á meðan blaðamaður stoppaði
hringdu margir vina Guðrúnar og
Valgerðar til þess að óska þeim til
hamingju með þennan merka dag í
lífi sínu. Bráðlega halda þær Val-
gerður og Guðrún á vit ævintýr-
anna i brúðkaupsferð á eyjuna Kýp-
ur.
-em
Byrjaði að lifa 44 ára
Guðrún segist hafa verið orðin 44
ára þegar hún byrjaði að lifa. Hún
gekk í Samtökin ’78 fyrir mörgum
árum en það faldi hún jafnvel fyrir
öllum, eins og það hver hún væri í
raun og veru. Vinkona hennar
geymdi skírteinið fyrir hana í
bankahólfi til þess að enginn sæi
það. Valgerður hefur ekki enn þá
séð ástæðu til þess að ganga í sam-
tökin. Það gæti orðið í framtíðinni
en hún er ekki búin að ákveða það.
Henni fannst í lagi að láta taka við
sig viðtal ef það gæti orðið til þess
að hjálpa öðrum úr felum.
Pískrað úti í horni
„Ég hugsa að það séu ofsalega
margir sem eru þarna úti og þora
ekki að viðurkenna fyrir sjálfum
sér né öðrum að þeir séu samkyn-
hneigðir. Þeim líður jafn illa og okk-
ur leið áður en við komum úr fel-
um,“ segir Guðrún.
„Mér leið mjög illa því þegar ég
var ung var aðallega pískrað um
þessi mál úti í horni. Samkynhneigt
fólk var oft fyrirlitið. Það var þó
misjafnt en ef fóik var létt í skapi og
skemmtilegt var því tekið öðruvísi.
Ef maður er feiminn og ekki nógu
kraftmikill snúa málin öðruvísi,”
segir Valgerður.
Bæði Valgerður og Guðrún fundu
fyrir áreynslunni við það að berjast
við tilfmningar sínar i mörg ár.
Valgerður og Guðrún skála í kampavíni á brúðkaupsdaginn.
neinum. Þær hafa oft skammast sín
fyrir að vera samkynhneigðar og
reynt að afneita því.
„Ég hef aldrei verið montin af því
að vera samkynhneigð en núna er
ég ánægð með hverju við höfum
áorkað. Ég skelli þó ekki skuldinni
á neinn því ég veit ekki hvaðan ég
hef þetta og ætla ekki einu sinni að
pæla í því,“ segir Guðrún.
Ekki síðri uppalendur
„Fyrst eftir að við byrjuðum að
vera saman langaði mig til þess að
við gætum alið upp barn en síðar
fannst okkur það ekki skipta máli. í
samfélaginu er litið á samkyn-
hneigða sem þriðja flokks verur. Þó
er einn og einn að byrja að opna
augun. Samkynhneigðir borga
skatta eins og hinir og eru ekkert
síðri þjóðfélagsþegnar en aðrir.
Sumir samkynhneigðir eru áreiðan-
Guðrún drakk út á þetta í tólf ár en
hún náði tökum á áfengisneyslunni
fyrir sautján árum. Valgerður dró
sig lengra og lengra inn í skel sína
til þess að leyna því hvernig henni
leið raunverulega.
21 árs aldursmunur
Valgerður er 67 ára gömul og
Guðrún er 46 ára. Það er 21 ár á
milli þeirra Valgerðar og Guðrúnar
en þær segjast ekki finna neitt fyrir
því. Valgerður vísar helst til Guð-
rúnar í því sambandi þar sem hún
er 21 ári yngri. Guðrún segir aldur
alls ekki skipta máli ef sambandið
er gott. Valgerður bendir á að ef
áhugamálin séu lík skipti aldur
ekki máli. Þær eru í raun og veru
sín af hvorri kynslóðinni en eru
báðar náttúruunnendur og þykir
gaman að ferðast. Þær fóru mikið í
göngur hér áður fyrr og fara oft i
sumarbústaðinn sem þær eiga fyrir
austan fjall. Þéim þykir einnig mjög
skemmtilegt að spila.
Frjálsar sem fuglinn
„Mér fannst við ekki vera frjálsar
fyrr en við fengum sömu réttindi og
annað fólk. Oft leið mér eins og
gesti á minu eigin heimili þegar við
fengum gesti sem ekki vissu um
okkur. Mér fannst ég ekki getað
hagað mér eins og heima hjá mér.
Mér fmnst notalegt að fá fólk í
heimsókn en þægilegra ef það er
sámkynhneigt. Ég vil samt umgang-
ast gagnkynhneigt fólk í bland við
samkynhneigt. Það er ekki gott að
samkynhneigðir verði lokaður hóp-
ur,“ segir Guðrún.
Báðum konunum líður betur eftir
giftinguna. Þær geta stoltar sýnt sig
saman þar sem þær eru nú hjón og
vilja alls ekki fela sig lengur fyrir