Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1996, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1996, Blaðsíða 31
LAUGARDAGUR 13. JULI 1996 útlönd Fyrrum barnfóstrur forsætisráðherrahióna Israels bera Söru Netanyahu ekki vel söguna: Einungis þremur vikum eftir að Benjamin Netanyahu tók við emb- ætti forsætisráðherra hefur einkalíf hans fengið meiri umflöllun en dæmi eru um í ísraelskri stjórn- málasögu. Fjölmiðlar í ísrael, og reyndar um allan heim, hafa undan- farnar tvær vikur Qallað mjög um slæma vist barnfóstra á heimili Net- anyahu-hjónanna. Hafa spjótin einkum beinst að Söru Netanyahu, 35 ára, þriðju eiginkonu forsætis- ráðherrans. Sara er fyrrum flug- freyja og er með próf í barnasál- fræði upp á vasann. Hún þykir líta mjög til Hillary Clinton, forsetafrú- ar Bandaríkjanna, í nýju hlutverki sínu sem forsætisráðherrafrú ísra- els. Hún ætlar sér ekki að vera þæga og hljóðláta eiginkonan við hlið manns síns og vill hafa áhrif á stjórn landsins á bak við tjöldin, líkt og Hillary. En ímynd hennar hefur beðið skaða strax fyrstu vik- urnar i nýrri stöðu en samskipti hennar við barnfóstrur heimilisins hafa þótt með ólíkindum. Hafa þær lýst starfi sínu við umönnum tveggja sona þeirra hjóna, Yair, 4 ára, og Avner, 18 mánaða, sem hreinni martröð. Kaldhæðnir blaða- menn hafa almennt kallað barn- fóstrumálið Nannygate með tilvisan i fræg hneykslismál eins og Water- gate og Irangate. Hent út á náttfötunum Upphaf alls þessa má rekja til þess þegar Sara Netanyahu rak Tanyu Shaw, 21 árs innflytjanda frá Suður-Afríku, um síðustu mánaða- mót. Tanja hafði þá gegnt barnfós- trustarfinu í sex mánuði. Tanja seg- ir svo frá að hún hafi verið að elda grænmetissúpu handa börnunum í eldhúsinu. Brann súpan við með þeim afleiðingum að Sara trylltist. „Þú brenndir súpuna og þú hefðir auðveldlega'getað brennt húsið. Þú ert ekki skömminni skárri en morö- ingi,“ hafði Tanja eftir Söru. Síðar um kvöldið, þegar Tanja var úti í garði, kallaði öryggisvörð- ur í hana og sagði að Sara vildi ræða við hana. Sara öskraði á barn- fóstruna um leið og hún kom inn og eftir heiftarlegt rifrildi sagði Tanja að hún mundi hætta eftir tvær vik- ur. En Sara hafði greinilega gert upp hug sinn og var ekkert að tvínóna við hlutina. Lét hún henda barnfóstrunni út á götu í náttfötun- um einum. Þegar Tanja reyndi að fá eigur sínar og vegabréf var henni einfaldlega sagt að koma seinna, þegar hún hefði greitt 10 þúsund króna sekt fyrir að halda ekki ráðn- ingarsamninginn. Hún leitaði til dagblaðsins Ma’ariv og þegar hún kom að húsinu stuttu síðar hafði eigum hennar verið safnað saman í töskur og hent út á gangstétt fram- an við húsið. Var fötunum troðið í töskurnar ásamt rusli og ýmsu laus- legu úr herbergi hennar. Og gler- augun brotin í þokkabót. Þvoði sár hendurnar 300 sinnum á dag Tanja var miður sín eftir vistina og var meira en fús til að lýsa henni í blaðaviðtölum. Hún segir Söru reka heimilið af ótrúlegri harð- neskju og.þar ríki heragi. Við ráðn- inguna fyrir hálfu ári var Tönju strax bannað að nota andlitsfarða innandyra og var fyrirskipað að ganga í inniskóm. Tanja segir Söru Tanja Shaw, 21 árs, situr á götunni með töskur sínar eftir að öryggisverðir Netanyahu-hjónanna höfðu hent henni út á götu að beiðni Söru Netanyahu. Ástæða brottrekstursins er að Tanja brenndi við grænmetissúpu handa börnun- um. Símamyndir Reuter hungruð allan starfstíma sinn. „Einu sinni öskraði hún á mig í 20 mínútur vegan þess að ég leyfði mér að borða tómata. Hún sagði mér að tómatar væru mjög dýrir og ég mætti ekki borða nema einn tómata á dag og ekki meira en eitt egg annan hvern dag. Hún staglað- ist stöðugt á því hve allt væri dýrt. Á stundum var ég svo svöng að ég varð að stelast í graut barnsins.“ Heidi tekur undir frásagnir Tönju af hreinlætisæðinu, hún hafi sífellt orðið að þrifa hvert herbergið á fæt- ur öðru. „Ég varð alltaf að þvo þvottasnúrurnar og klemmurnar áður en þvottur var hengdur til þerris. Ef sængurfatnaður kom við gólfið varð að þvo allt saman undir eins,“ sagði Heidi. Hún bætir við að eftir langan og erfiðan dag hefði sonur þeirra hjóna sofnað í skónum uppi í rúmi og við það hefði Sara umturnast af bræði og látið gamm- inn geisa um getuleysi hennar. Skipaði hún Heidi að taka herberg- ið í gegn þó klukkan væri ellefu að kvöldi. Heidi neitaði, sagðist mundu gera það daginn eftir. Þá fór allt í háaloft á ný. Heidi gafst upp og sagðist ætla að hætta. Svar Söru var: Gott og vel. Mér líkaði aldrei við þig. Þú lagðir ekki nógu hart að þér. Ég ætla að hringja i sálfræðing- inn sem gaf þér góða einkunn. Nið- Sara Netanyahu, sem hér er ásamt eiginmanni sínum, Benjamin, og fjögurra ára syni, Yair, þykir hafa vaidið eiginmanni sínum vandræðum með fram- komu sinni gagnvart barnfóstrum þeirra hjóna. Benjamin lagði mikla áherslu á gildi fjölskyldunnar í kosningabaráttu sinni og sátt á heimilinu. hafa verið afar skappstygga og hún margsinnis öskrað á sig og úthúðað sér. Þá sé Sara haldin hreinlætisæði á alvarlegu stigi og hefði það birst í ýmsum myndum. „Ég varð alltaf að þvo mér um hendurnar áður en ég snerti börnin. Sama gilti ef ég ætlaði að snerta rúmin þeirra, fötin, þvottinn eða annað. Þetta þýddi að ég varð að þvo mér hendurnar hátt í 300 sinn- um á dag,“ segir Tanja og bætir við að sömu reglur hafi gilt um hús- bóndann á heimilinu, sjálfan forsæt- isráðherrann. Hann hafi varla getað snert börnin vegan sífelldra krafna eiginkonunnar um handþvott. Og börnin fengu einnig að finna fyrir hreinlætisæðinu. Tanja fuil- yrðir að eldri sonurinn, Yair, hafi orðið að hanga í sófanum heilu og hálfu dagana þar sem húsmóðirin óttaðist að hann mundi skíta sig út ef hann snerti gólfteppið. „Önnur börn, vinir og frændur, voru ekki velkomin þar sem þau voru skítug,“ segir Tanja. Fákk ekki að kjósa Þó Sara fái það óþvegið hjá barn- fóstrunni ber hún Benjamin Net- anyahu, eða Bíbí, vel söguna. Hann hafi verið mjög almennilegur við sig. Hún segist hafa ætlað að kjósa hann í kosningunum en Sara hafi meinað sér útgöngu á kjördag. Þyk- ir það undarleg ráðstöfun þegar haft er í huga hversu naumur sigur Net- anyahus var. Þegar Tanja hafði sagt sögu sína af vistinni á heimili forsætisráð- herrahjónanna kom yfirlýsing þess efnis frá talsmanni þeirra að Sara hefði verið rekin af öryggisástæðum samkvæmt ráðleggingum öryggis- þjónustunnar, Shin Bet. Hún hefði einnig þótt óstöðugur persónuleiki og haft tilhneigingu til ofbeldis. Sara lýsti því enn fremur yfir í blaðaviðtali að sögur barnfóstrunn- ar væru uppspuni frá rótum, komn- ar frá pólitískum andstæðingum til þess eins að koma höggi á eigin- mann hennar. Hún kallaði frásögn barnfóstrunnar vitleysu að sagði að sóðalegt fólk liti snyrtimennsku gjarnan öðrum augum en aðrir. Hreinasta martröð En bæði yfirlýsingar Söru og talsmanna hennar áttu eftir að draga dilk á eftir sér. Hjá Shin Bet könnuðust menn ekki við að Tanja fréttaljós á laugardegi hefði ógnað öryggi forsætisráð- herrafjölskyldunanr og þvertóku fyrir að hafa ráðlagt um brottrekst- ur hennar. Til að bæta gráu ofan á svart kom önnur fyrrverandi barn- fóstra fram i dagsljósið og sagði far- ir sínar ekki sléttar eftir vikuvist á heimili Netanyahu-hjónanna fyrir tveimur árum. „Mér ofbauð að heyra viðbrögð Heidi Ben-Yair var ekki sein að koma fram með sögur af Söru Net- anyahu þegar sú síðarnefnda reyndi að gera lítið úr frásögnum Tönju Shaw. Heidi segir Söru hafa gert vikuvist á heimilinu að martröð. Söru og talsmanna hennar og gat ekki annað en komið fram til stuðn- ings TönjU: Ég var einungis í viku í barnfóstrustarfinu en sá tími var hreinasta martröð," sagði Heidi Ben Yair, nemi við hebreska háskólann í Jerúsalem. Og hún hélt lífinu í Nannygate með frásögnum sínum. Heidi hafði ráðið sig sem bajm- fóstru í nóvember 1994, áður en yngri sonurinn fæddist. Hún segir að Sara hafi látið sig gangast undir daglangt sálfræðipróf. Eftir jákvæða útkomu hafi þrælkunin hafist. „Hún hélt mér að vinnu dag og nótt. Ég varð að fara á fætur hálfsex á morgnana og vinna fram undir miðnætti. Ég fékk engan tima fyrir sjálfa mig og gat ekki einu sinni far- ið í sturtu.“ Einn tómat á dag Heidi segist hafa verið ban- urstöður hans voru greinilega rang- ar. Hypjaðu þig.“ Eftir þref féllst Sara á að greiða Heidi hálft kaup. Opinberlega er lát- ið heita að Heidi hafi verið ráðin til reynslu og látin hætta. Frásagnir af harðræði Söru koma á versta tíma fyrir Benjamin Net- anyahu. Þær yfirskyggðu allt annað i umfjöllun gölmiðla og skyggðu á frásagnir af heimsókn hans til Bandaríkjanna, en henni var ætlað að hjálpa upp á ímynd hans. Þóttu frásagnir barnfóstranna í hróplegu ósamræmi við þá ímynd sem Bíbí reyndi að skapa af sér sem einlæg- um fjölskyldumanni. Vakti athygli að þau hjón tóku báða synina með til Bandaríkjanna, nokkuð sem þótti undirstrika vandræði þeirra heima- fyrir. Reuter/Guardian/Observer o.fl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.