Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1996, Qupperneq 32
40
trimm
LAUGARDAGUR 13. JULI1996
Á toppi Vífilsfells á gó&viöriskvöldi fyrr í vikunni. Pau standa viö útsýnisskífu Feröafélags íslands, frá vinstri: Þorgeir Porgeirsson og Katrín Sigurðardóttir
úr Gar&abæ, Kópavogsbúinn Ágústa Sigfúsdóttir og lengst til hægri er höfu&borgarbúinn Hjálmtýr Hei&dal meö Seltjarrnarnesið allt í baksýn. DV-mynd ÓG
- leysinginn gáði þar til veðurs og sjólags við Gróttu
Vífilsfell er suöaustur af Sand-
skeiði og blasir við ferðalöngum á
hægri hönd sem aka austur yfir
Hellisheiði frá Reykjavík áleiðis á
Suöurlandið. Fjallið stendur á mót-
um Árnessýslu og Gullbringusýslu
og í góðu skyggni er víðsýnt af tindi
þess. Fjallahringurinn allur þar
sem Hekla, Vestmannaeyjar og
Snæfellsnesjökull blasa við í fjærstu
fjarlægð. í vestri kúrir höfuðborgar-
svæðið, lágreist, séð af tindinum.
Vífilsfell lætur ekki mikið yfir
sér en er drjúgt
erfitt til göngu
miðað við að það
er aðeins 655 m
yfir sjó. Ekki ætti
það þó að fæla
neinn frá að klífa
fellið, því ef til dæmis er fariö upp
að austanverðu má vel finna auð-
velda leið upp. Þegar upp er komið
er það ekki aðeins útsýnið sem gleð-
ur heldur er mjög fróðlegt að skoða
allar þær myndir
og línur sem
sjást í móberg-
inu, sem er sí-
breytilegt eftir
stöðuga verðrun
regns og vinda.
Á toppi Vífilsfells hefur Ferðafélag
íslands komið upp útsýnisskífu.
Vífilsfell er nefnt eftir Vífli, sem
var leysingi Ingólfs Arnarsonar og
bjó á Vífilsstöðum. Hann er sagður
hafa stundað sjóróðra frá Gróttu á
Seltjarnarnesi. Þegar hann hugði á
róður gekk Vífill á Vífilsfell til að
huga að veðri. Seinfarið hefur verið
fyrir sjósóknarann því Vifilsfell
mun vera í 16 til 18 km fjarlægð í
beinni loftlínu frá Vífilsstöðum. í
það minnsta hefur verið farið að
halla degi þegar Vífill og menn
hans voru komnir í vörina við
Gróttu þá daga sem gaf á sjó.
Umsjón
Ólafur Geirsson
Teygjur mikilvægar skokkurum
Mjög mikilvægt er fyrir þá sem
skokka reglulega að teygja. Það er
mjög gott að fara í gegnum röð
teygjuæfinga í þaö minnsta þrisvar
í viku. Auk þess er mjög gott að
hafa það sem reglu að teygja kálfa
og lærvöðva eftir sérhvert skokk.
Mjög gott er að byrja að teygja
neðstu vöðvahópa líkamans og færa
sig síðan ofar upp eftir líkamanum
og enda á öxlum og höfði.
Teygjurnar viðhalda liðleika
líkamans og koma í veg fyrir of
mikla styttingu vöðvahópa. Stuttir
og illa teygðir vöðvahópar valda
stirðleika og meiðslahætta eykst til
muna. Með teyjguæfingum
minnkum við líka líkur á að fá
harðsperrur.
Þeir sem hlaupa miklar
vegalengdir s.s maraþonhlauparar
ættu auk þess að fara í nudd í það
minnsta lx í mánuði. Nuddið hefur
mjög slakandi áhrif og er alhliða
endumærandi. -JBH
ÍÍ-JJ3J JJjJ 3J 3J '1J JJ JJ
10 km 21 km 42 km
Sunnudagur lOkmról 18 km tól. 18 kmróL
Mónudagur Hvild Hvild Hvíld
Þriijudagur 8 km (Hroðaleikur). 12 km (Hroðoleikur). 12 km (Hroðoleikur).
Fyrst 2 kmról. ogsiSon Fyrst 2 km ról.og siðon Fyrst 2 km ról.og siðon
1 km hrotl til skiptis. 3 km hrott til skiptis 3 km hrott til skiptis somtols
somlols 4x1 km. Siðoo somtols 4x 2 km. Siðon 4x 2 km. Siðon 2 km. ról.
1 km. ról. i lokin 2km ról. ilokin. - i lokin.
Miðvikudagur 8 km ról. 14 km ról. 16 km ról.
Fimmtudagur Hvíld 6 km jolnt 8 km jolnt
Föstudagur Hvild 10 km ról lOkmról
Laugardagur Fræ hloup 5 km 8 km frisklego 12 km frisklego
Samtals: 31 km. 68 km 76 km
Unnur Guttormsdóttir, sem valdi Ijóöiö, lengst t.h., ásamt fer&afélögum sín-
um á Ströndum. Myndin er tekiö í Meyjarseli viö Bjarnarfjörö. i baksýn er
Skaufasel. Aörir á myndinni eru, frá vinstri: Hjálmtýr Hei&dal, Anna Kristín
Kristjánsdóttir og Ágústa Sigfúsdóttir. Feröin var farin í fyrra og var gengið
úr Reykjafiröi yfir í Ófeigsfjörð. „Rólega vikuferö," eins og göngugarpar taka
til orða. DV-mynd Jón Sigurösson
Ljóðið:
Óður til steinsins
Formœltu ekki steinvölunni
er sœrir il þína
göngumaður
kannski geymir hún
undir hrjúfri brá
það sem þú leitar
kannski er hún sjálfur
óskasteinninn
(Kristján frá Djúpalæk)
Ljóð þetta valdi Unnur Guttorms-
dóttir, sjúkraþjálfari og ein fjö-
margra þeirra sem stunda ferðir um
landið og þá helst gangandi. Þetta er
ellefti hluti ljóðaflokksins, sem
Kristján frá Djúpalæk samdi við
ljósmyndir sem Ágúst Jónsson,
byggingameistari á Akureyri, tók af
íslenskum steinum. Áður hafði
hann sagað þá í sundur og slípað.
Síðan lét hann ljós falla í gegnum
þunnar steinflögur og ljósmyndaði
það sem þá kom út. Eru það margar
undurfagrar myndir.
Unnur Guttormsdóttir sagðist
hafa valið þetta ljóð vegna þess að
það minnti okkur á að í íslenskri
náttúru býr ekki aðeins hrikaleiki
hins stórfenglega. Þar búi einnig
litlar steinvölur, sem feli í sér feg-
urð. Lággróðurinn, sem stöðugt
berjist við að halda velli og tóra í
hrjóstugu umhverfi íslenskra fjalla
megi heldur ekki gleymast, segir
Unnur, sem á ferðum sínum um
fjöll og óbyggðir sér ótal kynja-
myndir og trúir lika á tröll og álfa.
Bókin Óður steinsins kom út á veg-
um Gallery Háhóls á Akureyri árið
1976.
11 ferðir hjá hjól
reiðamönnum í júlí
Vinsældir hjólreiða hafa vax-
ið gífurlega hérr
á landi undan-í
farin ár. Nú erl
svo komið að|
hjólreiðamenn
geta víða fariðj
um, til dæmisj
á höfuðborgar-j
svæðinu, ánj
þess að hættaj
lífi og limumj
í umferðinnij
Göngu- og hjólreiðastígar
liggja nú víða og er til dæmis til
mikillar fyrirmyndar að í Graf-
arvogshverfí voru lagðir stígar
jafnhliða öðrum framkvæmd-
um. Þar má nú fara um allt án
þess að tengjast bOaumferð að
neinu ráði. Ekki má heldur
gleyma framkvæmdum eins og
nýrri brú fyrir gangandi og
hjólandi vegfarendur, sem ligg-
ur yfir Kringlumýrarbraut i
Fossvogi.
Atburðaalmanak sumarsins
í öllum reiðhjólaverslunum
íslenski fjallahjólaklúbburinn
starfar ötullega og hefur meðal
annars komið upp félagsheimili
að Austurbugt 3 við gömlu höfn-
ina í Reykjavík. Fjallahjóla-
klúbburinn stendur fyrir ýms-
um skipulögðum ferðum, bæði
fyrir byrjendur og lengra
komna. Hjólhesturinn, frétta-
bréf klúbbsins, er fullt af frá-
sögnum af hjólreiðaferðum hér
á landi sem erlendis. Auk þess
eru ýmis fræðslukorn um hjólið
og aðrar upplýsingar. Með blað-
inu er Atburðaalmanak íslenska
fjallahjólaklúbbsins fyrir árið
1996. Þar kennir ýmissa grasa.
Staifið er greinilega blómlegt
því boðið er upp á einar 11
hjólaferðir í þessum mánuði og
í ágúst eru ferðirnar tíu. í dag
er til dæmis byrjendum boðið í
lautarferð upp í Heiðmörk.
Hægt er að fá Atburðaalmanak-
ið í öllum hjólreiðaverslunum.
Fram undan...
Bláskógaskokk HSK verður á
sunnudaginn og hefst klukkan 13
skammt frá Gjábakka í Þingvalla-
sveit. Vegalengdir eru 5 km og 16
km með tímatöku. Flokkaskipting,
bæði kyn, 16 ára og yngri (5 km),
17-39 ára, 40-49 ára, 50 ára og
eldri. Upplýsingar á skrifstofu HSK,
Engjavegi 11, Selfossi, sími 482
| 1189 ogfax 482 2909.
Akureyrarmaraþon (og jafn-
framt Meistaramót íslands og hálf-
maraþon). Það hefst kl. 12 hinn 20.
júlí nk. við íþróttavöllinn á Akureyri.
Vegalengdir eru 4 km
skemmtiskokk, 10 km og hálfmara-
þon með tímatöku. Flokkaskipting,
bæði kyn, 12 ára og yngri (4 km), 14
ára og yngri (10 km), 13-15 ára (4
S km), 15-17 ára (10 km), 18-39 ára
(10 km), 16-39 km (4 km og hálf-
maraþon), 40-49 ára, 50-59 ára,
60 ára og eldri. Sveitakeppni, 3 í
sveit. Ailir sem Ijúka hiaupi fá verð-
launapening. Útdráttarverðlaun: 26
aukaverðlaun. í þátttökugjaldi er
innifalin pastaveisla fyrir þá sem
skrá sig fyrir 15. júlí nk. Frítt í sund-
laug Akureyrar. Upplýsingar veitir
Jón Árnason í símum 462 5279 og
: 462 6255.
Ármannshlaup verður 25. júlí
klukkan 20 og hefst .við Ármanns-
heimilið við Sigtún í Reykjavík.
Vegalengdir: 2 km án tímatöku, 4
km og 10 km með tímatöku. Flokka-
skipting, bæði kyn: 18 ára og yngri,
19-39"ára, 40-49 ára, 50 ára og
| eldri. Verðlaun verða veitt fyrir 1 -3.
sæti í heild og 1. sæti í hverjum
flokki. Sveitakeppni, 3 í sveit. Allir
sem Ijúka hlaupunum fá verðlauna-
pening. Upplýsingar veitir Katrín
Sveinsdóttir í síma 562 0595 og í
Ármannsheimili, s. 561 8140.
wi—at—riiiiiTi mr.twnanimmmammmmi
er styrktaraðili
Reykjavíkurmaraþonsins
FWGIMIDIR^ JL*
mkm ^