Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1996, Blaðsíða 34
. tónlist
LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ1996
'ÉV
Topplag
Það ætti ekki koma neinum á
óvart að hún Emiliana Torrini
hrifsar toppsætið úr höndunum
á Smashing Pumpkins með
kraftmikla laginu Lay down úr
söngleiknum Stone Free. Hún
stoppaði örlítið við i öðru sæti
en nú er toppsætið hennar.
Söngkonan frábæra Tracy
Chapman sýnir sko að hún er
langt í frá búin að syngja sitt síð-
asta. Nýja lagið hennar, Give Me
One Reason, er afskaplega gríp-
andi og skemmtilegt og þeytist
upp um 36 sæti. Kannski mun
hún hrifsa toppsætið frá starfs-
systur sinni, Emiliönu Torrini,
áður en langt um líður.
Hæsta nýja lagið
Kvikmyndin Trainspotting
hefur svo sannarlega slegið í
gegn enda er fjallað um sjálfseyð-
ingu og ömurleika þann sem
fylgir eiturlyfjaneyslu. Tónlistin
úr myndinni gefur henni enn
meiri gæðastimpil en ella enda
eru í henni frábær lög, eins og
Born Slippy með Underworld.
Það lag er hæsta nýja lagið á lista
og fer beint upp í 4. sæti.
Leiðrétting Spoon
í síðasta tónlistarblaði DV
kom fram að hljómsveitin Spoon
hefði ekki hitað upp á tónleikum
Pulp í Höllinni sökum þess að
hún hefði ekki „viljað“ leiða
Súper 5 hópinn á svið. Réttara
væri að segja að hljómsveitin
hefði ekki „komist" á svið sökum
vinnu hljómsveitarmeðlima og
ósveigjanleika skipuleggjanda
tónleikanna.
Hljómsveitin Spoon hefur sem
sagt ekki tekið upp einhverja
stórstjörnustæla heldur eru tveir
meðlimir hennar sumpart ábyrg-
ir fyrir því að fréttaþátturinn
19-20 far i í loftið og hann fer í loft-
ið, sama hvað tautar og raular.
Það síðasta frá
Prince
Tónlistarmaðurinn, sem eitt
sinn gekk undir nafninu Prince,
sendi í vikunni frá sér sína allra
síðustu afurð fyrir útgáfúrisann
Wamer og má því segja að sá
slagur sé á enda. Platan ber titil-
inn „Chaos & Disorder". Fyrsta
smáskífan er þegar farin að
hljóma á öldum ljósvakans hér á
landi. Hún heitir „Dinner with
Delores".
Hvort Prince er hér aðeins að
efna samninga eða semja tónlist
af lífi og sál verður síðan bara að
koma í ljós.
A.I.D.S.
Rapparar vestanhafs hafa nú
tekið sig saman til að styðja bar-
áttuna gegn AIDS með þvi að gefa
út plötu sem allur ágóði af renn-
ur til baráttunnar gegn sjúk-
dómnum. „America Is Dying
Slowly“ er nafn plötunnar en
meðal flytjenda era: Coolio, Wu
Tang Clan, Lost Boys, Goodie
Mob, De La Soul o.fl.
í boði
á Bylgjunni á laugardag kl. 16.00
H sð? JLJ EI tfSK I LIST INN NR. 178
vikuna 13.7 _1q 7 '98 b ik u iL i2 v/'
r
ÞESSI VIKA SÍÐASTA VIKA FYRIR 2 VIKUM VIKUR Á LISTANUM r i | 9. 1 ip 40
<3 2 2 LAY DOWN E...1. VIKA NR. 1... EMILÍANA TORRINI (ÚR STONE FREE)
2 1 1 8 TONIGHT TONIGHT SMASHING PUMPKINS
CD 5 . _ 2 NO WOMAN NO CRY FUGEES
... NÝTTÁ USTA ... I
O NÝTT 1 BORN SLIPPY UNDERWORLD (TRAINSPOTTING)
5 4 8 6 UNTIL IT SLEEPS METALLICA
o 40 2 ... HÁSTÖKK VIKUNNAR... j GIVE ME ONE REASON TRACY CHAPMAN
o 11 13 4 ÞAÐ ERU ÁLFAR INNÍ ÞÉR SSSÓL
8 6 2 7 CHAIRITY SKUNK ANANSIE
9 3 4 4 ILLUSIONS CYPRESS HILL
10 8 6 6 SOMEBODY TO LOVE JIM CARREY
11 9 3 8 THEME FROM MISSION: IMPOSSIBLE ADAM CLAYTON & LARRY MULLEN
(2) 1 OPNAÐU AUGUN ÞÍN KOLRASSA KRÓKRÍÐANDI
13 13 - 2 NAKED LOUISE
14 10 10 5 HVERSVEGNA VARSTU EKKI KYRR REAGGIE ON ICE
15 16 21 3 DON'T STOP MOVIN' LIVIN' JOY
GD 19 22 4 LÚÐVÍK STEFÁN HILMARS & MILLARNIR
17 12 9 10 READY OR NOT FUGEES
(2) 24 - 2 LIGHT MY FIRE MIKE FLOWERS POPS
19 15 7 7 JUSTAGIRL NO DOUBT
20 21 26 3 WE’RE IN THIS TOGETHER SIMPLY RED
21 7 6 5 FABLE ROBERT MILES
22) 29 36 3 FORGET ABOUT.... GABRIELLE
23 14 16 6 WRONG EVERYTHING BUT THE GIRL
(M) 33 29 3 COCO JAMBOO MR PRESIDENT
25 26 31 3 THAT GIRL MAXI PRIEST 8. SHAGGY
26 17 12 11 SALVATION CRANBERRIES
27 36 _ 2 FAUS VINIR VORS OG BLÓMA
28 18 14 15 LEMON TREE FOOL'S GARDEN
(?£) 38 - 2 TAKE A RIDE ROB'N'RAZ
30 20 20 6 THEY DON’T CARE ABOUT US MICHAEL JACKSON
(31) 31 - 2 DINNER WITH DELORES PRINCE
(32) NÝTT 1 SUMARNÆTUR STJÓRNIN
33 34 33 4 MYSTERIOUS GIRL PETE ANDRE
34 25 25 5 SKRÍTIÐ SÓLSTRANDARGÆJARNIR
dD NÝTT 1 EYJÓLFUR SNIGLABANDIÐ
36 32 24 8 MACARENA LOS DEL RIO
37 23 29 3 DANZLAG SKÍTAMÓRALL
38 30 30 5 ÓHEMJA GREIFARNIR
39 NÝTT 1 ALLIR DANSA SALSA GLOSS
40 LjlJ 4 THE CROSSROADS BONE THUGS-N-HARMONY
Kynnir: Jón Axel Ólafsson
Islenski listinn ersamvinnuverkefni Bylgjunnar, DV og Coca-Cola á Islandi. Listinn er niðurstaöa skoðanakönnunar sem er framkvaemd af markaðsdeild DVi hverri viku.
Fjöldi svarenda er á bilinu 300 til 400, á aldrinum 14 til 35 ára af öllu landinu. Jafnframt er tekið mið af spilun þeirra á islenskum útvarpsstöðvum. Islenski listinn birtist
a hverjum laugardegi i DV og er frumfluttur á Bylgjunni kl. 14.00 a sunnudögum i sumar. Listinn er birtur, að hluta, i textavarpi MTV sjónvarpsstöðvarinnar. Islenski
listinn tekur þátt i vali "World Chart" sem framleiddur er af Radio Express í Los Angeles. Einnig hefur hann áhrif á Evrópulistann sem birtur er i tónlistarblaðinu Music
& Media sem er rekið af bandariska tónlistarblaðinu Billboard.
QöíítL:
- ^
Safn frá Sykur-
molum
.
„Best of the Sugarcubes“ er tit-
ill sem gæti sést í plötubúðum
Evrópu þegar á haustmánuðum.
Platan mun að sjálfsögðu hafa að
geyma allt það besta sem Sykur-
molamir gáfu út á sínum tíma,
alla vega þverskurð þar af. Búast
má við að platan seljist vel enda
fyrrum söngkona hljómsveitar-
innar nú orðin súperstjarna á
heimsmælikvarða. Má bjóða þér
mola?
Jarvis
og Stipe?
Jarvis Cocker, söngvari Pulp,
og Michael Stipe, söngvari
R.E.M., verða báðir gestir (sinn í
hvoru lagi) á Edinborgar-kvik-
myndahátíðinni þetta árið.
Cocker mun ræða Pulp mynd-
böndin við sýningargesti ásamt
leikstjóranum Pedro Rohmanyi
og bassaleikara Pulp, Steve
Mackie. Stipe mun hins vegar
verða viðstaddur frumsýningu
tónleikamyndarinnar „Road
Movie“ sem var tekin á Monster
heimstónleikaferð R.E.M. Mynd-
in verður sýnd þann 16. ágúst á
Edinborgarhátíðinni.
Red Hot að
hætta?
Red Hot Chili Peppers eiga að
hætta næsta sumar eftir kveðju-
tónleikaferð og plötuútgáfu. Þetta
kemur fram í síðasta riti Kerrang.
Warner hefur neitað þessum
fréttum sem eru sagðar koma frá
vini hljómsveitarinnar í Banda-
ríkjunum. Vinna gítarleikarans
Dave Navarro með fyrrum félaga
sínum úr Janes Addiction hefur
hins vegar gefið sögunni byr und-
ir báða vængi.
Eru Red Hot að hætta og J.A.
að byrja aftur? Ef svo er þá misstir
þú af „síðustu" tónleikum hljóm-
sveitarinnar á Wembley í gær. Ef
ekki, þá hefur þú engu að kvíða.
Gallagher og
Bacharach
Noel Gallagher, annar Oasis-
bræðra, steig á svið með guði „e-
z“ tónlistarinnar, Burt Bac-
harach, í lok síðasta mánaðar á
tónleikum hins síðarnefnda í
Royal Festival Hall i London.
Noel er mikill aðdáandi
Bacharach og fékk þarna að
syngja með honum uppáhalds
Burt lagið sitt; „This Guy’s in
Love with You“. Ekki eru taldar
miklar líkur á að þessi uppákoma
verði endurtekin enda eru þeir
hvor frá sinni álfunni, Bacharach
og Gallagher.
GBG
Yflrumsjón meö skoðanakönnun: Hrafnhildur Kristjánsdóttir - Framkvæmd könnunar: Markaðsdeild DV - Tölvuvinnsla: Dódó - Handrit: Sigurður Helgi
Hlöðversson, Ágúst Héðinsson og Ivar Guðmundsson - Tæknistjórn og framleiðsla: Þorsteinn Ásgeirsson og Þráinn Steinsson - Útsendingastjórn: Halldór Backman.
og Jóhann Garðar Ólafsson - Yfirumsjón meö framleiðslu: Ágúst Héðinsson - Kynnir: Jón Axel Ólafsson