Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1996, Qupperneq 35

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1996, Qupperneq 35
unglingaspjall Verzlunarskólanemar fóru í útskriftarferð til Jamaíku í júní: Lágu í sólbaöi og djömmuðu hin hliðin Ég er alæta á mat - segir Ari Edwald, aðstoðarmaður sjávarútvegsráðherra „Þetta er yndislegur staður þó að innfæddir séu á svolítið annarri bylgjulengd en við og það hafi tekið smátíma að komast inn á þennan Jamaíkutíma. Það tekur svolítið langan tíma að gera allt. Strætó gengur ekki eftir neinni áætlun heldur gengur þegar hann gengur. Ef það er rigning þá verður maður að bíða þangað til það er hætt að rigna,“ segja verzlingarnir Arna María Geirsdóttir og Kári Kristins- son. Mikið fjölmenni er venjulega í út- skriftarferðum framhaldsskólanna á hverju ári enda fara krakkarnir á ótrúlegustu staði í heiminum. Lang- flestir nýstúdentarnir í Verzlunar- skóla íslands fóru í tveggja til þriggja vikna útskriftarferð til Jamaíka í júní, eða alls tæplega 180 stúdentar, og féllust Arna Maria og Kári á að segja ferðasöguna. Ferðin stóð frá 2. til 22. júní með viðkomu í New York á leiðinni fram og til baka. Krakkarnir eyddu fríinu í að kynna sér lífið og landslagið á Jamaíka, gengu til að mynda upp með fossi á eynni, fóru á markaði, á romm- og bjórkynningu, sóttu skemmtistaði, heimsóttu æsku- stöðvar Bobs Marleys og syntu í sjónum og svo fengu þau að kafa 10- 15 metra ofan í sjóinn undir leið- sögn íslensks kafara, sem var með í fór. „Sjórinn var svo tær að maður sá niður á botn þegar maður var uppi á yfirborðinu," segir Arna. Þau segja að það hafi ekki farið framhjá neinum innfæddum að ís- lendingar voru svæ inu. Þau hafi ver- ið Arna og Kári fóru ásamt tæp- lega 180 verzlunar- skólanem- um til Ari Edwald, aðstoðarmaður sjávarútvegsráðherra, hefur verið virkur innan Sjálfstæðisflokksins undanfarin ár og komið fram sem talsmaður sjávarútvegsráðuneytis- ins í ýmsum málum. Ari studdi nú í vikunni átak Slysavarnafélags- ins, Landhelgisgæslunnar og Pósts og síma í sundlaugum borgarinnar þar sem farið var yfir björgunar- vesti fólks og hoppaði út í sund- laug ásamt forstjóra Granda hf. og nokkrum börnum. Ari sýnir hér á sér hina hliðina. Fullt nafn: Ari Edwald. Fæðingardagur og ár: 11. júlí 1964. Maki: Þórunn Pálsdóttir. Börn: Jóhanna, 5 ára, og eitt á leiðinni. Bifreið: Tvær Corollur, árgerð ’92 og ’96. Starf: Aðstoðarmaður sjávarút- vegsráðherra. Laun: Viðunandi. Áhugamál: Það er svo margt, félagsmál, útivera, badminton og veiðiskapur. Hefur þú unnið í happdrætti eða lottói? Nei. Hvað finnst þér skemmtileg- ast að gera? Vel heppnuð útilega. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Flokka sokkana mína. ÍUppáhaldsmatur: Ég er hálf- gerð alæta á góðan mat. Uppáhaldsdrykkur: Vatn hversdags og gott koníak þegar það á við. SHvaða íþróttamaðiu: stendur fremstur í dag? í dag finnst mér þaö vera Vala Flosadóttir. Uppáhaldstímarit: Economist. Hver er fallegasta kona sem þú hefur séð fyrir utan maka? Hófi. . ' •- ..I Ertu hlynntur eða and vígur ríkisstjórninni? Hlynntur. Hvaða persónu lang- ar þig mest að hitta? Mariu Estellu Thomp- son, öðru nafni Divine Brown. Uppáhaldsleikari: Ro- bert de Niro og Gunnar Eyjólfsson. Uppá- halds- leik- kona: Drew Barry- more og María Ell- ing- sen. Upp- áhalds- söngv- ari: Það er erfitt að gera upp á milli. Ég t segi Mick Jagger og tek afleið- ingunupi af því. Uppá- halds- stjórn- málamað- ur: Þor- steinn Pálsson. Uppá- haldsteikni- myndaper- sóna: Simp son. Uppáhaldssjónvarpsefni: Matlock. Uppáhaldsmatsölustaður: Þrír frakkar og Argent- ína. Hvaða bók langar þig mest til þess að lesa? Ég man það ekki. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? Rás 1. Uppáhaldsútvarpsmaður: Broddi Broddason. Hvaða sjónvarps- stöð horfir þú mest á? Ég horfi jafnmikið á Sjónvarpið og Stöð 2. Uppáhalds- sjónvarps- maður: Helgi E. Helgason. Uppáhalds- skemmtistaður eða krá: Astró. Uppáhaldsfélag i íþróttum: TBR. Stefhir þú að ein- hverju sérstöku í framtíðinni? Að reyna að gera eitthvað af viti. Hvað ætlar þú að gera í sumarfríinu? Fara til Benidorm í lok júlí. -GHS Ara Edwald, aðstoð- armanni sjávarút- vegsráðherra, þykir vatn gott hversdags en neitar sér ekki um koníak þegar það á við. DV-mynd Pjetur Sjórinn var hreinn og ströndin falleg. Hannes, Benni, Jón Hákon og Þor- steinn byggja sandkastala. „frekar hvít“ í þessu þjóðfélagi enda hafi íslendingarnir ekki allir gefið sér tíma til að liggja í sólbaði. „Sólin fór upp úr eitt eða tvö og það rigndi til fimm. Ef maður var að djamma til sex eða sjö á morgnana þá svaf maður út þangað til sólin var farin. Þegar maður vaknaði tók því ekki að fara út því að þá rigndi til fimm og þá var maður að fara aft- ur að djamma," segja þau. Verzlunarskólanemarnir bjuggu nokkur saman í herbergjum á strandhóteli í um tveggja klukku- stunda fjarlægð frá Montego Bay og segja þau að tvenn eða þrenn hjón hafi flúið hótelið eftir að þau komu, sennilega hafi þeim ofboðið skemmtunin hjá unga fólkinu. Örnu og Kára verður tíðrætt um það hvað I rólegheitum fyrir utan hótelið. Frá vinstri: Fríða Ammendrup, Björg Jó- hannsdóttir, Perla Þor- björnsdóttir, Arna Geirs- dóttir og fremst situr Kári Kristins- son. krókódílaferðinni komu íslendingarnir við á veitingastað og fengu sér að borða. Frá vinstri eru Jón Hákon, Gunni, Davíð, Hanna, Vilborg, Kristín og Magga ásamt innfæddum. Jamaíkubúar lifi áhyggjulausu lífi og velti sér ekki mikið upp úr efnislegum hlutum, til dæmis því hvort einn spegill haldist á bíl eða ekki. Það sé ekkert mál. „Maður heyrði ekkert nema reggae tónlist og það var búið að blanda alla evrópska tónlist með reggae takti. Maður var orðinn leiður á öllu þessu reggae," segja þau að lokum. -GHS Á leið á krókódíiaslóðir. Knattspyrnulið verzlunarskólanema keppti við innfædda og hafði sigur. Hér eru Benni og Runi með Tony.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.