Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1996, Síða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1996, Síða 50
58 IIíWkmyndir Haskolabío-Barb Wire: yr Pamela sem Bogart Þeir ráðast ekki á garð- inn þar sem hann er lægstur, höfundar Barb Wire. Það á að stæla eina allra bestu kvikmynd sög- unnar, Casablanca, hvorki meira né minna. Og silíkonbomban Pamela Anderson er í hlutverkinu sem Humphrey Bogart gerði svo góð skil á sínum tíma. Meginlínur söguþráðarins eru hér hinar sömu og i gamla klassíkernum, svo og sömu aðalpersónurnar, svona í megindráttum, en lengra nær samlíkingin ekki. Þessi mynd er nefnilega jafn vond og Casablanca var góð. Pamela leikur bareigandann Barb Wire, árið er 2017 og önnur borg- arastyrjöld Bandaríkjanna stendur sem hæst. Nasistalegir gæjar hafa náð völdum í landinu, nema i Stálhöfn, einu frjálsu borginni sem eft- ir er. Þar á Barb heima, rekur barinn en drýgir tekjurnar með því að veiða menn á flótta undan réttvísinni eða með því að stunda elstu at- vinnugreinina. En dag nokkurn koma til bæjarins helstu forsprakk- ar andspyrnuhreyfmgarinnar, Axel og eiginkona hans, vísindakonan Cora D., og ætla að komast þaðan úr landi, alveg eins og Ingrid Berg- man og Paul Henreid í Casablanca. Axel er gamall flammi Pamelu en hún vill ekkert með hann hafa, a.m.k. ekki í fyrstu. Hún gefur sig þó um síðir og saman berja þau á nasistahyskinu og svo framvegis, með þegjandi samþykki lögreglustjórans, sem leikur tveimur skjöldum, nema hvað? Það verður seint sagt um þessa mynd að hún sé merkileg. Fyrir- myndin er teiknimyndasaga og persónurnar því ekki upp á marga físka. Pamela ætti helst ekki að leika í kvikmynd þar sem hún þarf að gera meira en klæðast aðskornum sundbol og einhverju þvíum- líku. Hún ætti að minnsta kosti ekki að opna munninn, þótt ljótt sé að segja. Hún gerir sosum ekki mikið að því hér, nóg samt, lætur sér þó aðallega nægja að vera í sexí leðurdressi á mótorhjólinu sínu og utan, svo brjóstin eru við það að flæða út úr herlegheitunum. Nú, svo kýlir hún eins og besti karl. En Humphrey Bogart verður hún aldrei. Jafnvel góður leikari eins og Temeura Morrison, sem margir minn- ast úr Eitt sinn stríðsmenn, er eins og fiskur á þurru landi. Leikstjóri: David Hogan. Leikendur: Pamela Anderson, Temeura Morrison, Victoria Rowell, Udo Kier. Bönnuð innan 16 ára. Guðlaugur Bergmundsson Stjörnubíó og Bíóhöllin - Algjör plága ★★ Sjáffskipaður vinur Eftir að Jim Carrey fór langt yfir strikið í fiflalátum í Ace Ventura: When Nature Calls er það viss léttir að sjá hann í gjörólíku hlutverki í Algjör plága (The Cable Guy). Fetturnar og bretturnar eru að vísu á sínum stað, en Carrey er þó jarðbundnari en oftast áður þó svo sannarlega láti hann gamminn geisa I sumum atriðum. Og það verður að segjast að Jim Carrey leikur Jim Carrey vel. í Algjör plága leikur Carrey óþolandi gaur, Chip Douglas, sem sér um að tengja kapalkerfi í íbúðir. Steven Kovacs (Matthew Broder- ick), sem kærastan er nýbúin að fleygja á dyr, er svo óheppinn að lenda á Douglas þegar hann flytur í nýja íbúð. Douglas treður sér inn á Kovacs og gerist sjálfskipaður vinur og vemdari eða þar til hann er nánast búinn að leggja líf Kovacs í rúst. Eins og í flestum kvikmyndum Carreys em mörg atriði hreinlega byggð í kringum eftirhermuhæfileika hans og er nokkuð um fyndin atriði í fyrri hluta myndarinnar þar sem Carrey lumar á ýmsu sem hristir upp í áhorfendum. En tónninn í myndinni verður mun alvar- legri eftir miðja mynd þegar í ljós kemur að Douglas er ekki allur þar sem hann er séður og hann getur verið jafn andstyggilegur við vini sem yfirgefa hann og hann er greiðvikinn við þá sem eru vinir að háns mati. Þessi snögga breyting frá farsa yfir í gráan húmor virkar ekki vel og því er Algjör plága ákaflega köflótt mynd sem hef- ur nánast enga festu eða stígandi í frásögn og er aðeins eftirminni- leg vegna nokkurra fyndinna atriði þar sem Jim Carrey fær greini- lega að impróvisera að vild. Leikstjóri: Ben Stiller. Handrit: Lou Holtz, jr. Kvikmyndataka: Robert Brinkmann. Tónlist: John Ottman. Aðalleikarar: Jim Carrey, Matthew Broderick, Leslie Mann, George Segai og Diane Baker. Hilmar Karlsson LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 1996 , Independence Day er á góðri leið með að setja aðsóknarmet í Bandaríkjunum. Independence Day frumsýnd í Bandaríkjunum: Setti strax aðsóknarmet Kvikmyndin Independence Day var frumsýnd í Bandaríkjun- um daginn fyrir þjóðhá- tíðardag Bandaríkjanna. Frumsýningar myndar- innar hefur verið beðið með ótrúlegri eftirvænt- ingu vestra. Þeir sem best til þekkja spáðu því að myndin hlyti fyrstu sýn- ingarhelgi sína mestu að- sókn sem nokkur mynd hefði áður hlotið. Þær spár virðast vera að ræt- ast. Myndin er sögð hafa alla burði til þess að skila 70-80 milljónum dollara eftir fyrstu sýningarhelgi. Metið í þessum efnum er nýlegt en það var sett með sýningu spennu- myndarinnar Mission Im- possible. Sú mynd skilaði 57 milljónum dollara fyrstu sýning- arhelgi sína. Myndin var forsýnd í nokkrum bíóhúsum vestra í siðustu viku og skiluðu þær forsýningar tekjum upp á tæpar 12 miUjónir doUara en slíkt hefur aldrei áður gerst. Independence Day segir frá því er tendrast upp og ótti grípur um sig meðal borgarbúa. Mannfólkinu til mikiUar skelfingar gerir það sér Ijóst að herafli ókunnra geim- skipa sækir að jörðinni með það takmark fyrir augum að tortíma jarðarbúum. Inntak Independence Day er ekki fyrst og fremst að kynna ógnvekjandi geimverur miklu fremur er varpað fram spurningum um mann- leg viðbrögð ef svona lagað myndi gerast. Hvernig myndi mannlegt eðli bregð- ast við og hvernig myndum við verjast? Titill myndarinnar vísar tU þjóðhátíðardags Banda- ríkjanna fjórða júlí en árás geimveranna átti einmitt að hefjast þann dag. 20th Century Fox fram- leiðir myndina og Skífan annast dreifingu hennar hérlendis. Myndin verður frumsýnd um miðjan ágúst í fjórum kvikmyndahúsum samtímis; Regnboganum, Háskólabíói, Laugar- ásbíói og Borgarbíói á Akureyri. em Jeff Goldblum leikur aðalhlutverkið í myndinni Independence Day. geimverur setjast að jarðarbúum og ráðast að þeim með ofbeldi og eyði- leggingu. Griðarstór geimskip taka sér stöðu yfir stærstu borgum heims og fyrr en varir hefja geim- verumar árás. Jarðarbúar verða að sameinast gegn mestu vá sem sótt hefur að mannkyninu. Himininn eiffer og Redford í gær var myndin Up Close and Personal með þeim MicheUe Pfeif- fer og Robert Redford í aðalhlutverkum frumsýnd í Laugarásbiói og Regnboganum. Pfeiffer leikur hér Tally Atwater, fyrrver- andi gengUbeinu sem hefur náð langt sem sjónvarpsfrétta- kona. Það er ekki sist að þakka Warren Justice (Red- ford), frægum fréttamanni er tekur hana upp á arma sína. Þau verða ástfangin en þegar frægð Tally er orðin meiri heldur en Warrens reyn- ir heldur betur á sambandið. Það eru engir aukvisar sem halda þessari mynd uppi. Robert Redford hefur verið einn vinsælast leikari í heimi seinustu þrjátíu árin. Hann hefur unnið tU fjölda verðlauna, meðal annars óskarsverðlauna sem besti leikstjóri fyrir Ordinary People. Redford, sem var vinsæll sviðsleikari þar til hann færði sig yfir í kvikmyndimar, sló fyrst veru- , lega i gegn þegar hann lék í mynd- inni Butch Cassidy and The Sundance Kid ásamt Paul Newman. Sú mynd er löngu orð- in ein af sígUdum myndum kvik- myndasögunnar. MicheUe Pfeiffer er ein ást- sælasta leikona hvíta tjaldsins. Hún hefur leikið í fjölda vinsæUa mynda, svo sem Batman Ret- urns, The Age of Innocence, Scarface, Frankie and Johnny og Tequila Sunrise. Pfeiffer var tU- nefnd til óskarsverðlauna fyrir leik sinn í myndunum Danger- ous Liaisons, The Baker Boys og Love Field.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.