Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1996, Síða 22
34
FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 1996
Afmæli
r Jónína Helgadóttir
Jóhanna Sigríður Jónína Helga-
dóttir húsmóðir, Höfðahlíð 17, Ak-
ureyri, er níræð í dag.
Starfsferill
Sigríður fæddist á Ánastöðum í
Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði og
ólst upp hjá foreldrum sínum á Ána-
stöðum, Mælifellsbæ, Kolgröf og
Reykjum í Lýtingsstaðahreppi.
Sigríður lærði kvenfatasaum,
fyrst hjá Hólmfríði systur sinni á
Sauðárkróki en síðan í Reykjavík.
Hún hélt saumanámskeið víða í
sveitum Skagafjarðar, fór á milli
bæja og dvaldi gjaman um hálfs
mánaðar skeið á hverjum stað.
Eftir að Sigríður gifti sig bjuggu
þau hjónin í Hvammkoti í Lýtings-
staðahreppi, á Ytri-Kotum í Norður-
árdal og á Silfrastöðum í Blöndu-
hlíð. Þau byggðu nýbýlið Laugar-
bakka 1947 og bjuggu þar uns þau
brugðu búi og fluttu til Akureyrar.
Á Akureyri starfaði Sigríður við
sauma á vistheimilinu
Sólborg og fataverksmiðj-
unni Heklu auk þess sem
hún saumaði heima. Hún
býr nú hjá dóttur sinni,
Elísabetu.
Fjölskylda
Sigríður giftist 8.8.
1930 Svavari Péturssyni,
f. 20.1. 1905, d. 13.2. 1983,
bónda. Hann var sonur
Péturs Péturssonar
vinnumanns og Sigríðar
Benediktsdóttur.
Böm Sigriðar og Svav-
ars eru Marta Fanney, f.
8.11. 1931, húsfreyja í
Víðidal, gift Stefáni G. Haraldssyni
og eiga þau fjögur böm; Helgi Þorm-
ar, f. 7.5. 1934, bóndi á Laugarbökk-
um, kvæntur Eddu S. Þórarinsdótt-
ur og eiga þau fjögur börn auk þess
sem Helgi á stjúpson; Steingrímur
Sigmar, f. 6.3. 1941, búsettur í Sand-
Johanna Sigríður
Jonína Helgadóttir.
gerði, kvæntur Vordisi
Björk Valgarðsdóttur og
eiga þau fimm börn; Mar-
grét Elísabet, f. 22.11.
1944, búsett á Akureyri,
gift Karli Jóhanni Karls-
syni og eiga þau þrjár
dætur.
Hálfsystkin Sigríðar,
samfeðra, böm Helga
Bjömssonar og f.k.h.,
Steinunnar Jónsdóttur,
vom Erlendim, f. 8.5.1884,
d. 1964, bóndi í Laugar-
holti; Helga, f. 1.1. 1889, d.
1970, húsfreyja á Skíða-
stöðum og i Reykjavík.
Alsystkin Sigriðar: Marta
Kristín, f. 23.3. 1894, d. 1917; Sigur-
jón, f. 24.5. 1895, d. 1974, bóndi á
Nautabúi; Magnús Helgi, f. 21.12.
1896, d. 1979, bóndi í Héraðsdal; ísa-
fold, f. 30.6. 1898, d. 1971, húsmóðir í
Reykjavík; Hólmfríður Elin, f. 14.1.
1900, húsmóðir á Sauðárkróki; Mon-
ika Sigurlaug, f. 25.11. 1901, hús
freyja á Merkigili; Ófeigur EgiO, f
26.10. 1903, d. 1985, bóndi á Reykja
borg; Hjálmar Sigurður, f. 29.8.1909
bifreiðastjóri í Kópavogi. Fóstur
systir Sigríðar; Elín Sigtryggsdóttir
f. 16.6.1923, d. 1995, var búsett á Ak
ureyri.
Foreldrar Sigríðar voru Helgi
Bjömsson, f. á MælifeUsá 2.10. 1854.
d. 1947, og s.k.h., Margrét Sigurðar
dóttir, f. að Ásmúla 23.7. 1867, d
1960.
Ætt
Foreldrar Helga voru Bjöm Jóns-
son og Maria Einarsdóttir.
Foreldrar Margrétar vora Sig-
urður Sigurðsson og Guðný Guð-
mundsdóttir.
Sigríður tekur á móti gestum í
félagsheimilinu Árgarði á morgun,
20.7., kl. 15-17.
Árni Björn Jónasson
Arni Bjöm Jónasson fram-
kvæmdastjóri, Skjólbraut 18, Kópa-
vogi, er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Ami fæddist í Hafnarfirði en ólst
upp í Reykjavík. Hann lauk stúd-
entsprófi frá MR 1967, fyrrihluta-
prófi í verkfræði frá HÍ 1970 og prófi
í byggingaverkfræði frá tæknihá-
Skólanum í Kaupmannahöfn 1975.
Árni var verkfræðingur hjá
Landsvirkjun í Reykjavík í fjögur ár
en stofnaði þá verkfræðifyrirtækið
Línuhönnun hf. og hefur starfrækt
það síðan.
Ámi hefur setið í stjórn Skák-
sambands íslands og Félags ráðgjaf-
arverkfræðinga.
Fjölskylda
Ámi kvæntist 14.6. 1967 Guðrúnu
Ragnarsdóttur, f. 27.9. 1947, kenn-
ara. Hún er dóttir Ragnars Jóhann-
essonar, cand. mag., kennara og
skólastjóra á Akranesi og í Reykja-
vik, og k.h., Rögnu Jónsdóthir kenn-
ara.
Böm Áma og Guðrúnar eru
Ragna, f. 30.8.1966, lögfræðingur hjá
Norðurlandaráði í Kaupmannhöfn,
gift Magnúsi Bjömssyni tannlækni
og eiga þau eitt bam; Páll, f. 28.5.
1974, nemi í foreldrahúsum; Jónas,
f. 9.8.1978, nemi í foreldrahúsum.
Systkini Árna era Baldur, f. 4.1.
1949, verkfræðingur í Reykjavík;
Ebba Sigin-björg, f. 13.7.1952, banka-
maður í Reykjavík.
Hálfbróðir Áma, samfeðra, er
Sigurður Rúnar, f. 6.2. 1939, rafvéla-
virki i Hafnarfirði.
Hálfsystkini Áma, sammæðra,
era Jón G.K. Jónsson, f. 30.9. 1933,
skrifstofustjóri í Reykjavík; Erla
Sigurðardóttir, f. 13.1.1939, húsmóð-
ir í Reykjavík.
Foreldrar Arna eru
Jónas Sigurðsson, f. 13.3.
1911, fyrrv. skólastjóri
Stýrimannaskólans í
Reykjavík, og Pálína
Ámadóttir, f. 27.5. 1914,
húsmóðir.
Ætt
Jónas er bróðir Sig-
rúnar, móður Margeirs
Daníelssonar hagfræð-
ings. Jónas er sonur Sig- Árni Björn Jónasson.
urðar, sjómanns og b. i
Ási í Garðahverfl, Jónas-
sonar, b. á Hóli undir
Eyjaljöllum, Þorleifssonar. Móðir
Jónasar var Guðrún, systir Bjöms,
föður Áma læknis, og systir Jóns,
afa Ólafs Walters í dómsmálaráðu-
neytinu. Guðrún var dóttir Áma, b.
í Móum, Bjömssonar, hálfbróður
Eyjólfs, rithöfundar á Hvoli, og
Halldórs rafmagnsfræðings Guð-
mundssona en sonur Hall-
dórs er Gísli verkfræðing-
ur. Móðir Árna í Móum
var Guðrún Þorsteinsdótt-
ir frá Úthlíð, systir Stein-
unnar, móður Þóris
Bergssonar rithöfúndar.
Móðir Guðrúnar var Sig-
ríður Jónsdóttir, b. á
Bakka í Landeyjum,
Oddssonar og Sigurðar
Jónssonar, b. á Kárastöð-
um, Árnasonar.
Pálína er háifsystir Guð-
finnu Einarsdóttur, móð-
ur Sigfúsar Elíassonar,
prófessors í tannlækningum. Pálína
er dóttir Áma, skrifstofumanns og
umboðsmanns í Vestmannaeyjum,
Oddssonar og Sigurbjargar Sigurð-
ardóttur.
Ámi og Guðrún bjóða til fagnað-
ar í Lionsheimilinu, Auðbrekku 25,
Kópavogi, í kvöld kl. 18.00.
Valgerður
Magnúsdóttir
Valgerður Magnús-
dóttir, Sólvangsvegi 1,
Hafnarfirði, er áttræð í
dag.
Starfsferill
Valgerður fæddist í
Borgamesi og ólst þar
upp. Hún flutti til Akur-
eyrar 1940 og átti þar
heima fram á miðjan átt-
unda áratuginn er hún
flutti suður. Auk hús-
móöurstarfa stundaöi Va'9eröur
Valgerður almenna dóttir.
verkamannavinnu á Ak-
ureyri. Eftir að Valgerð-
ur flutti suður starfaði hún í eldhús-
um við sjúkrahús í Reykjavík.
Fjölskylda
Valgerður giftis
/algeröur giftist 11.6. 1940 Eiði
Haraldssyni, f. 26.6.1914, d. 6.3.1947,
skósmið. Hann var sonur Haralds
Ásmundssonar og Sigríðar Sigfús-
dóttur, bænda i Austur-
görðum í Kelduhverfi.
Seinni maður Valgerðar
var Árni Maron Sigur-
pálsson, f. 12.11. 1907, d.
9.12. 1964, vélstjóri. Hann
var sonur Sigurpáls Sig-
urðssonar og Sigríðar
Árnadóttur, bænda í
Brimnesi í Ólafsfirði.
Böm Valgerðar eru Mar-
ía Björk Eiðsdóttir, f. 3.5
1940; Hildur Eiðsdóttir, f
Magnús- 18.6. 1942; Svala Eiðsdótt
ir, f. 18.6. 1942; Sif Eiðs-
dóttir, f. 29.3. 1945; Eiður
Haralds Eiðsson, f. 21.12.
1946; Páll Amar Ámason, f. 11.6.
1951; Anna Margrét Ámadóttir, f.
23.1. 1954.
Foreldrar Valgerðar vora Magn-
ús Jóhannesson, f. 3.11. 1880, d. 1.2.
1969, verkamaður í Borgamesi, og
María Ólafsdóttir, f. 7.2.1882, d. 17.2.
1970, húsmóðir.
Kristófer Helgi
Jónsson
Kristófer Helgi Jónsson,
fyrrv. bóndi og verkamað-
ur að Hólabrekku í Miðnes-
hreppi, er níræður í dag.
Starfsferill
Kristófer Helgi fæddist í
Miðhúsum i Álftanes-
hreppi á Mýrum og ólst þar
upp. Hann var bóndi í
Álftaneshreppi á Mýrum,
fyrst að Miðhúsum og sið-
an á Langárfossi, en var .. . .
síðan bóndi og verkamaður Krls,oter
á Hólabrekku í Miðnes- son'
hreppi frá 1952 og þar til
hann hætti störfum fyrir aldurs sak-
Sonur Kristófers Helga
og Auðar er Páll Kristó-
fersson, f. 23.12. 1935,
verkstjóri hjá íslensk-
um aðalverktökum á
Keflavikurflugvelli,
kvæntur Ingibjörgu
Gestsdóttur bréfbera og
eiga þau fjögur böm,
Kristófer Helga, Elsu,
Pál Inga og Auði, en
barnaböm þeirra eru
sjö talsins.
Helgi Jóns- Systkini Kristófers
Helga voru fjögur tals-
ins en þau eru öll látin.
Þau vora Þórann, bjó í Reykjavík;
Jón, bóndi i Miðhúsum á Mýrum;
Fjölskylda
Kristófer Helgi kvæntist 1933
Auði Pétursdóttur, f. 28.7. 1907, d.
10.11. 1985, húsfreyju. Hún var dótt-
ir Péturs Guðmundssonar, kennara
á Eyrarbakka, og Elísabetar Jóns-
dóttur húsmóður.
Agúst, bóndi á Sveinsstöðum á Mýr-
um; Pétur, bjó í Reykjavík.
Foreldrar Kristófers Helga vora
Jón Einarsson, bóndi í Miðhúsum,
og Helga Jónsdóttir húsfreyja.
Kristófer Helgi tekur á móti gest-
um á heimili sonar síns og tengda-
dóttur, að Urðarbraut 13 í Garði,
laugardaginn 20.7. eftir kl. 17.00.
staðgreiðslu- og greiðslu-
kortaafslðttur og stighœkkandi
o8trr«5/>7,(>Ij
%
Jlla. birtingarafsláttur
%
Smáauglýsingar
Egj
Til hamingju
með afmælið
19. júlí
95 ára
Jónína Jónsdóttir,
Hringbraut 50, Reykjavík.
85 ára
Gunnlaugur Stefánsson,
Dalbraut 20, Reykjavík.
Ingileif Guðmundsdóttir,
Austurbyggð 16, Akureyri.
80 ára
' Ólafía Guðrún Ásbjöms-
dóttir,
Kumbaravogi, Stokkseyri.
Tonny Möller,
Tjamarbraut 17, Hafnaifirði.
75 ára
Hallur J.M. Sveinsson,
Skarðshlíð 36 F, Akureyri.
Sverrir Sveinsson,
Neshaga 5, Reykjavík.
Hjálmar W. Juiiussen,
Sörlaskjóli 7, Reykjavik.
Ólöf Ólafsdóttir,
Vallholti 16, Selfossi.
70 ára
Guðmundur Armann Böð-
varsson,
Vallargötu 14, Vestmannaeyj-
um.
Halldóra Sigurjónsdóttir,
Skipholti 40, Reykjavík.
Svava Sveinbjörnsdóttir,
Hverabakka, Hranamanna-
hreppi.
60 ára
Haukur Karlsson,
Marbakkabraut 9, Kópavogi.
Sigurbjörg Sveinsdóttir,
Syðsta-Mói, Fljótahreppi.
Jón Pétursson,
Brekkustíg 6a, Reykjavík.
40 ára
Margrét Ágústa Hallsdóttir,
Urðarbakka 22, Reykjavík.
Halldór Halldórsson,
Langanesvegi 6, Þórshöfn.
Sigurður V. Guðmundsson,
Breiðvangi 12, Hafnarfirði.
Guðný Hafsteinsdóttir,
Álfatúni 7, Kópavogi.
Kristín Hálfdánsdóttir,
Seljalandsvegi 12, ísafirði.
Guðmundur Ásvaldur
Tryggvason,
Ljósabergi 44, Hafnarfirði.
Bergdís Guðnadóttir,
Arnarhrauni 16, Hafnarfirði.
Guðjón Magnús Ólafsson,
Flúðaseli 89, Reykjavík.
Helga Hauksdóttir,
Álfheimum 56, Reykjavík.
Sólveig Þórhallsdóttir,
Unnarbraut 30, Seltjarnar-
nesi.
Björg Ólinudóttir,
Eiðismýri 26, Seltjamarnesi.
550 5000
m
Askrifendur
«10% 1
aukaafslátt af
smáauglýsingum
DV
a\\t mil// him/,
'ns.
"c%
Smáauglýsingar
550 5000