Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1996, Side 4
20
sjíólar og námskeið
MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 1996
Skátastarfið hefst af fullum krafti með haustinu:
Eflir sjálfstæði og sjálfsímynd barnanna
- segir Júlíus Aðalsteinsson, félagsmálafulltrúi BÍS
J ® Tölvuskóli
= ... Reyl<javíkur
Viðskipta- og sknfstofutækninám
Markmið námsins er að mennta fólk til starfa í nútíma
viðskipta- og skrifstofuumhverfi. Námið skiptist í tvo hluta:
I. Sérhæfð skrifstofutækni
Aðaláhersla er lögð á tölvugreinar,
þ.e. notendaforrit og internet,
en einnig er tekin f/rir bókfærsla
og verslunarreikningur.
Almenn tölvufrasði og
Windows, 12 klst.
Ritvinnsla, 22 klst.
Töflureiknir og áætlanagerð, 20 klst.
Tölvufjarskipti, Internet o.fl., 14 klst
Glærugerð og auglýsingar, 12 klst.
Bókfærsla, grunnur, 16 klst.
Verslunarreikningur, 16 klst.
Tölvubókhald, I6klst.
2. Bókhaldstækni
Markmiðið er að þáttakendur
verði færir um að starfa
sjálfstætt við bókhald
fyrirtækja allt árið.
Almenn bókhaldsverkefni,
víxlar og skuldabréf, 16 klst.
Launabókhald, 12 klst.
Lög og reglugerðir, 4 klst.
Virðisaukaskattur, 8 klst.
Raunhæf verkefni,
fylgiskjöl og
afstemmingar, 12 klst.
Tölvubókhald, 32 klst.
Skráning er hafin.
Upplýsingar í síma 561-6699
eða í Borgartúni 28
„Skátafélögin hefja sitt vetrar-
starf almennt í byrjun september.
Hafi fólk áhuga á aö starfa með
skátunum ráðlegg ég því að hafa
samband við skátafélagið í sínu
hverfi eða sínum bæ og spyrjast fyr-
ir um hvenær það félag er að inn-
rita og hefja sína starfsemi," sagði
Júlíus Aðalsteinsson, félagsmála-
fulltrúi BÍS, í samtali við DV.
Að sögn Júlíusar er 41 skátafélag
starfandi í landinu, þau stærstu í
Reykjavík, á Akureyri og í
Hafnarfirði. „Skátafélögin
verða öll með opið hús
helgina 14.-15. september
og verður skátastarfið þá
kynnt sérstaklega. Al-
mennt taka skátafélögin
ekki böm undir 9 ára aldri
en frá 9-10 ára era þau
kölluð ylfingar, á aldrinum
11-14 ára eru þau skátar og
þegar þau eru 15 ára og
eldri eru þau dróttskátar.
Pólk getur gengið til liðs
við skátahreyfinguna á öll-
um aldri, það er ekkert
búið að missa af neinu þó
það byrji ekki 9 ára,“ sagði
Júlíus.
Aðspurður sagði hann
skátastarfið fyrst og íremst
gefa börnunum góðan fé-
lagsskap. „Við gefum böm-
um og unglingum kost á
því að vinna saman og
takast á við að stjórna sjálf-
um sér og hvert öðru undir
leiðsögn þeirra eldri og í
gegnum útilíf. Þetta bygg-
ist að miklu leyti upp á
þroskandi leikjum og verk-
efnum þannig að þau fá að
spreyta sig svolítið sjálf.
Grunnurinn í því sem við
erum að gera er að efla
sjálfstæði barnanna og
sjálfsímynd þeirra í gegn-
um verkefni. Við reynum
að vinna þetta þannig að
þetta sé ekki eintóm mötun
heldur taki þau sjálf frum-
kvæðið," sagði Július. Þeg-
ar unglingarnir eru orðnir
dróttskátar er megináhersl-
an á útilíf og meira krefj-
andi verkefhi ásamt því að
fá innsýn í fundartækni,
ræðumennsku og ýmislegt
sem tengist félagsmálum,
að sögn Júlíusar.
-ingo
„Á víkingaslóö“ var þem-
að á nýafstöönu landsmóti
skáta.
Rafiðnaðarskólinn hélt tæplega 300 námskeið í fyrra:
Aðalstarfsemi skólans
er námskeiðahald
- fyrir fálagsmenn jafnt sem almenning
„Við bjóðum tölvunámskeið í
samvinnu við stéttarfélög eins og
t.d. VR, BSRB, Starfsmannahald
Reykjavikurborgar, Félagsmála-
stofnun, Dagvist barna, SVR og
Iðju, svo að eitthvað sé nefnt. Við
bjóðum jafnframt ýmis eftirmennt-
unamámskeið sem tengjast rafiðn-
aðinum í landinu. Á síðasta ári
héldum við 295 námskeið með rúm-
lega 2.600 þátttakendum," sagði Jón
Árni Rúnarsson, skólastjóri Rafiðn-
aðarskólans.
Aðalstarfsemi Rafiðnaðarskólans
er námskeiðahald sem hefur vaxið
frá því að vera ein gerð námskeiðis
í yfir 60 mismunandi námskeið. I
dag sækja um 25% félagsmanna ár-
lega þessi námskeið skólans sem í
grófum dráttum má skipta í þrennt:
fagtæknileg og fagtengd námskeið;
námskeið á sviði rekstrar og stjórn-
unar og almenn og sértæk tölvu-
námskeið. „Markhópurinn í tölvu-
námskeiðunum er allt landið en
fagnámskeiðin eru helst sótt af raf-
iðnaðarmönnum," sagði Jón Ámi.
Stór þáttur í starfsemi skólans er
að vinna að almennum fræðslumál-
um rafiðnaðarmanna í samvinnu
við menntamálaráðuneytið og
framhaldsskólana en skólinn sér
þó ennfremur um endurmenntun
fyrir flugvirkja og er í nánu sam-
starfi við lögmannastofur og tölvu-
fyrirtæki varðandi námskeiðahald.
Á árinu 1995 var komið á fót
skipulögðu starfsnámi í skólanum.
Annars vegar 260 tíma tölvu- og
rekstrarnámi og hins vegar námi í
rekstri og umsjón tölvuneta. Fyrir-
sjáanlegt er jafnframt að skólinn
þarf að fjölga fagnámskeiðum fyrir
t.d. rafveitumenn í réttindanámi
fyrir sveinspróf, sýningarmenn við
kvikmyndahús, fyrir tæknifólk hjá
fjölmiðlafyrirtækjum og auka eftir-
menntun fyrir rafveituvirkja og
rafvirkja sem starfa á rafveitu-
sviði.
-ingo