Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1996, Qupperneq 16
skólar og námskeið
MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 1996
Viðskipta- og tölvuskólinn leggur áherslu á:
Vönduð námskeið og
góða leiðbeinendur
- fjórar námsbrautir í boði og fjöldi tölvunámskeiða
Um síðustu áramót sameinuðust
Viðskiptaskóli Stjórnunarfélagsins
og Nýherja og Tölvuskóli Stjómun-
arfélagsins og Nýherja í Viðskipta-
og tölvuskólann.
„Við leggjum áherslu á vönduð
námskeið, góða leiðbeinendur og
fyrsta flokks tækjakost við kennslu.
í skólanum eru fjórar námsbrautir
auk fjölda sérhæfðra tölvunám-
skeiða,“ sagði Ragna S. Óskarsdótt-
ir, skólastjóri Viðskipta- og tölvu-
skólans að Ánanaustum 15.
Námsbrautirnar fjórar skiptast í
almennt skrifstofunám, fjármála- og
rekstrarnám, markaðs- og sölunám
og alhliða tölvunám. Einnig er hægt
að velja um fjölbreytt námskeið sem
sniðin eru að þörfum atvinnulífsins
jafnt sem heimilanna.
Skólinn leggur metnað sinn í að
útskrifa starfsfólk sem er agað,
vinnuglatt og sjálfstætt í vinnu-
brögðum og vel undirbúið til að
takast á við alhliða skrifstofustörf. í
skólastarfinu eru því gerðar miklar
kröfur til nemenda og lögð mikil
áhersla á verkefnaskil og hópvinnu.
„Kvöldnámskeið sem hægt er að
stunda með vinnu er það nýjasta í
starfsemi skólans og hófst síðasta
vetur. Kvöldnámskeiðin hafa vakið
mikla athygli og henta t.d. mjög vel
fólki sem er í smáum rekstri," sagði
Ragna. Þar á meðal má t.d. nefna
námskeið í bókhaldi, rekstri og
áætlanagerð smáfyrirtækja og nám-
skeið í virkri markaðssetningu. Allt
eru þetta 8-12 vikna námskeið sem
haldin eru á kvöldin.
Einnig eru í boði í skólanum
styttri endurmenntunarnámskeið
fyrir fyrirtæki og einstaklinga, al-
menn tölvunámskeið fyrir fyrirtæki
og neytendur og sérhæfð tölvunám-
skeið og fyrirlestrar fyrir sérfræð-
inga á tölvusviðinu.
-ingo
Myndbandaskólinn býður upp á námskeið á myndböndum:
Kennarinn er
alltaf til staðar
og endurtekur eins oft og þú vilt
„Við bjóðum upp á námskeið á
myndböndum sem kenna fólki að
nota tölvur og tölvuforrit. Við erum
líka með myndbönd sem kenna
fólki að nota alnetið en þau hafa
verið mjög vinsæl. Þetta er kennari
sem er alltaf til staðar og þú getur
endurtekið eins oft og þú vilt,“
sagði Kristjón Benediktsson hjá
Myndbandaskólanum sem býður
upp á nýstárlega aðferð við
kennslu, þ.e. kennslu af myndbönd-
um.
„Þeir sem komast upp á lag með
að nota þetta koma aftur og aftur og
kaupa nýtt efni. Við erum með í
kringum 8 námskeið á myndbönd-
um en mörg þeirra eru á fleiri en
einni spólu. Við höfum bæði verið
að selja þessi myndbönd í settum,
Word og Excel og annað slíkt, en
einnig er hægt að kaupa hjá okkur
stóran námskeiðspakka með þrem-
ur bókum í og 12 spólum með al-
gengustu forritunum," sagði Krist-
jón.
Sérstök kynningarspóla fylgir
pakkanum þar sem þekktir ein-
staklingar i þjóðfélaginu segja frá
reynslu sinni af þvi að nota þessa
aðferð og vegleg bók sem ber nafn-
ið „Þannig virkar tölvan". Á meðal
tölvuforrita í pakkanum má nefna
Internet I—II, Windows 3.1, Word 6
I-III og Excel 5 I-III.
„Hver spóla tekur u.þ.b. 1-1)4
klst. og er sjálfstætt námskeið. Það
eru t.d. þrjár spólur í Word en samt
er hver þeirra sjálfstætt námskeið.
Þetta er bara spurning um hversu
mikið þú vilt kafa ofan i forritið,“
sagði Kristjón. Aðspurður sagði
hann Internetið, Word og Excel
vera vinsælustu forritin. „Svo erum
við líka með byrjendaspólu sem
heitir „Að læra á tölvu“. Það er
mjög vönduð spóla sem mikið hefur
verið tekin,“ sagði Kristjón.
Myndböndin eru öll framleidd í
Myndbandaskólanum sem nýlega
fjárfesti í nýjum tækjum. „Þau taka
beint upp af tölvunni í stað þess að
taka upp af skjánum. Þótt gæðin
hafi hingað til verið mjög góð verða
þau enn betri með tilkomu þessara
tækja,“ sagði Kristjón.
-ingo
TÖLVUGRUNNUR
WINDOWS
WINDOWS FRAMHALD W95
WORD1
WORD2
EXCEL1
EXCEL2
GAGNAGRUNNUR ACCESS 1
GAGNAGRUNNUR ACCESS 2
POWER POINT
INTERNET-GRUNNUR
INTERNET-FRAMHALD
ÚTGÁFA OG UMBROT - MS PUBLISHER
SAMSTEYPA - WORD / EXCEL
Hvert námskeið er 20 kennsiustundir og henta
þau þeim sem er í atvinnuleit og/eða þeim sem
vilja styrkja stöðu sína á vinnumarkaðinum og
vilja öðlast hagnýta tölvuþekkingu.
Boðið er upp á morgun-, miðdegis- og
kvöldtíma, einnig er boðið upp á
helgarnámskeið.
Morguntímar: kl. 08:30 -12.00.
Mánudagur, þriðjudagur, miðvikudagur og fimmtudagur.
Miðdegistímar: kl. 13:00 -16:30.
Mánudagur, þriðjudagur, miðvikudagur og fimmtudagur.
Kvöldtímar: kl. 17:30 - 21:00.
Mánudagur, þriðjudagur, miðvikudagur og fimmtudagur.
Helgarnámskeið : kl. 8:30 -16:30
Föstudagur og laugardagur.
Verð pr. námskeið
kr. 12000,-
Námsgögn innifalin
Félagsmenn stéttarfélaga fá afslátt
af heildarverði.
Verd kr. 8000,-
Kristjón (lengst t.v.) heldur hér á námskeiðspakkanum sem inniheldur öli algengustu tölvuforritin. Samstarfsmenn
hans eru með sýnishorn af öðrum kennslumyndböndum. DV-mynd S
RAFIÐNAÐARSKOLINN
Skeifunni 11 b -108 Reykjavík