Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1996, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1996, Side 6
6 útlönd LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1996 stuttar fréttir Enn barist Stríöandi sveitir Kúrda áttu í höröum átökum við landamæri !. írans. Stjórnarskrá lek Æðsti dómstóll í Suöur- Afríku sagði að stjórnarskrá landsins | væri gloppótt og semja þyrfti hana að nýju. Fjórir handteknir Belgíska lögreglan handtók fjóra vegna morðsins á stjóm- málamanninum Andre Cools fyrir fimm árum. Vildi endurskoða skrár Vændiskonan, sem átti í árslöngu sambandi við Dick Morr- is, kosningastjóra Clintons forseta, segir í blaöaviðtali að Hillary Clint- on hafi fyrirskipað umfangsmikla | endurskoðun á skrám alríkislög- reglunnar, FBI, yfir repúblikana. Serbar erfiðir Skipuleggjendur væntanlegra f kosninga í Bosníu segja Serba fót- ■ umtroða kosningareglur með því i að hampa stríðsglæpamönnum. Gaf 100 milljónir Matthew Harding, varaformað- ur knattspyrnufélagsins Chelsea og einn ríkasti maður Bretlands, gaf 100 milljónir króna í kosninga- I sjóði Verkamannaflokksins. Vissu um sekt hans í nýrri bók kemur fram að lög- 1 menn O.J. Simpsons hafl vitað að ■ hann var sekur um morð og að | Simpson hafi vitað um sýknu I kviðdómsins degi áður en hún var | gerð kunn. Reuter Þjóðverjar geta stöðvað veiðar Islendinga Norska blaðið Dagens Næringsliv segir í gær að nýjar reglur, sem þýskir fiskinnflytjendur hafa sam- þykkt, geti orðið til að stöðva veiðar íslendinga í Smugunni. Segir blaðið að norskir fiskútflytjendur séu krafnir um vottorð þess efnis að fiskurinn sé veiddur á svæðum und- ir fiskveiðistjórn og með löglegum veiðarfærum. Veiðar íslendinga í Smugunni séu hvorki í samræmi við neinar reglur né aðferðir þeirra löglegar. Ræddi blaðið við formann þýskra regnhlífarsamtaka sem í eru 17 sam- tök fiskinnflytjenda. Sagði sá að all- ur innfluttur fiskur yrði að vera veiddur með lögmætum hætti. Þar sem Norðmenn hafi bent á að veið- ar íslendinga samræmist ekki inn- flutningsreglunum verði það mál skoðað. Umræddar reglur voru samþykkt- ar eftir þrýsting frá náttúruvemdar- samtökum en verið er að koma þeim í framkvæmd. Norðmenn full- yrða að þar sem íslendingar hafi ekki fengið úthlutað kvóta í Norður- íshafi séu veiðar- þeirra í bága við reglur þýskra innflytjenda. Bensínverð ytra: Óróleiki vegna Sadd- ams Hussein íraksforsetinn Saddam Hussein hefur valdið talsverðum óróleika á heimsviðskiptum með eldsneyti með árásum sínum á Kúrda í Arbil. Heimsmarkaðsverð hefur rokiö upp og niður í vikunni en jafnframt þok- ast eilítið upp á við, ef mið er tekið af síðustu viku. Þannig er hráolíu- tunnan komin vel yfir 20 dollara. 95 og 98 oktana bensín hafa hækkað enn meir en þó með sveiflum. Hlutabréfaverð hefur lækkað í flestum helstu kauphöllum heims. Nokkur lækkun varð á Dow Jones hlutabréfavísitölunni á fimmtudag vegna ótta fjárfesta við vaxtahækk- un í kjölfar hagtalna yfir ágústmán- uð. Þær tölur átti að birta í gær. Reuter Alexander Lebed slær á valdabaráttu innan Kremlar: Tsjernomyrdín verður að leysa Jeltsín af Alexander Lebed, yfirmaður ör- yggismála í Rússlandi, sagði í sjónvarpsviðtali í gær að Borís Jeltsín forseti ætti að tilnefna Viktor Tsjernomyrdín forsætisráð- herra sem afleysingamann sinn meðan hann ætti í veikindum. Sagði Lebed að hann hefði rætt þessi mál við Anatoly Chubais, að- alráðgjafa forsetans, eftir að Jeltsín tilkynnti að hann mundi gangast undir hjartaaðgerð.Sam- kvæmt stjórnarskrá Rússlands ber forsætisráðherra að taka við stjórnartaumunum ef forsetinn verður ófær um að sinna skyldum sínum. Stjórnar forsætisráðherra í lengst þrjá mánuði en síðan verði boðað til kosninga. Lebed sagði mikilvægt að Tsjernomyrdín yrði útnefndur af- leysingamaður svo endi yrði bund- inn á valdabaráttu innan Kremlar. Sagði Lebed ennfremur mikilvægt að koma í veg fyrir að hver sem er gæti sagst starfa í umboði forsetans. Gennadí Zjúganov, leiðtogi kommúnista, kaUaði til fundar oddvita þingflokkanna vegna málsins. „Lögin verða að hafa sinn framgang en ekki einhverjir klækjarefir sem hugsa, eins og ávallt, einungis um eigin frama," sagði Zjúganov. Helsti óvinur kommúnista er Chubais, ákafur fylgismaður efna- hagsumbóta í Rússlandi. Þær hafa hins vegar aflað honum mikflla Boris Jeitsín þegar hann tilkynnti um væntanlega hjartaaðgerð sína. Símamynd Reuter óvinsælda. Borís Jeltsín segir í tímaritsvið- tali, sem birtist eftir helgi, að hann hafi ekkert að fela fyrir þjóð sinni. Kemur fram að Jeltsín hafi i fyrstu harðneitað að fara í hjarta- aðgerð en Tsjernomyrdín hafi tal- að hann tfl á fundi þeirra fyrr í vikunni. Reuter Fran í rénun en tjón mikið LEI< FELLIBYLSINS FRANS Á annan tug manna höf> u farist flegar fellibylurinn Fran æddi um su> austurhluta Bandaríkjanna í gærdag. Yfir 200 þúsund íbúar strandsvæðanna flúðu heimili sín og kjarnorkuverum var lokað. Fellibylurinn Fran \l!l WashingtonD.C. i' VIRGINIA Hátt í 300 km vindhraði. Durhamsfsla Slökkviliðsmaður fórst. Raleigh Tveir létu lífið þegar þeir óku á fallin tré. Johnstonsfsla Tveir fórust undir trjám. Onslowsfsla Kona fórst undir tré. Kona lét lífið þegar hún ók á fallið tré. Southport Gríðarlegt óveðurstjón. Myrtle Beach Raflínur rofnuðu. Fellibylurinn Fran var ekki eins öflugur í gær og þegar hann skali á suðausturströnd Bandarikjanna í fyrrinótt. Vindhraðinn var kominn í um 70 km á klukkustund og hafði miðja bylsins færst lengra inn í land. En þrátt fyrir fellibyl í rénun horfðu íbúar Norður- og Suður- Kar- ólínuríkja upp á gríðarlega eyði- leggingu þegar mestu hamfarirnar voru liðnar hjá i gærdag. Fran hafði valdið dauða a.m.k. tólf manns, þar á meðal 10 ára drengs sem fórst þeg- ar tré lagðist yfir hjólhýsi þar sem hann bjó. Sögðu íbúar í Norður- Karólinu þetta versta fellibyl síðan 1954, þegar fellibylurinn Hazel varð 95 maims að bana. Fjöldi heimila eyðilagðist í byln- um, trjábolir hófust á loft eins og spýtur og ollu miklu tjóni. Vatnselg- ur og alls kyns brak gerði að verk- um að þjóðvegir voru víðast ófærir. Fólk komst hvergi. Rúmar fjórar milljónir manna vora án rafmagns þar sem raflínur höfðu víða rofnað. Helsta ógn Frans var að sögn veður- fræðinga miklar rigningar og flóða- hætta sem þeim fylgdi. Reuter Kauphallir og vöruverð erlendis I Steffi Graf vissi um skattasvindliö Joachim ! Eckhardt, ; fyrrum skattaráðgjafi fiölskyldu tennisstjörn- unnar Stefíi Graf, fullyrti ( fyrir rétti í | gær að hún hefði vitað um þær flóknu aðgerðir sem voru við- hafðar til að forða himinháum tekjum hennar frá skattakrumlu i þýska ríkisins. Fullyrðing | skattaráðgjafans, sem er ákærð- ur fyrir skattsvik ásamt fóður Steffl, Peter, er andstæð fullyrð- ingu fóðurins um að Steffl hafi ekkert vitað um skattasvindlið. Peter Graf hefur verið í gæslu- varðhaldi sl. 13 mánuði og á 10 ára fangelsisdóm yfir höfði sér ! fyrir skattsvik. Tímamál Frakka mætir andstöðu Sú ákvörðun Alains Juppé, forsætisráðherra Frakklands, að hætta að skipta yfir á sumar- og vetrartíma vor og haust hefur vakið harkaleg viðbrögð í aðild- arlöndum Evrópusambandsins. Juppé segist hafa orðið við þrá- ; látum óskum úr viðskiptalifinu. Embættismenn hjá ESB sögðu að ákvörðun Juppés hefði komið öllum í opna skjöldu og óvíst ; væri hvernig henni yrði komið í framkvæmd. Óaði þá við að fólk í daglegum viðskiptaerindum milli Frakk- j lands og nágrannalandanna | þyrfti sífellt að breyta klukk- unni og spáðu að ákvörðun Juppés mundi hafa afar trufl- andi áhrif á öll viðskipti. Sextán ára í fangelsi fýrir nauðgun „Það væri óvirðing við dýra- ríkið að segja að þið hefðuð hag- að ykkur eins og skepnur," j; sagði dómari í London þegar í hann dæmdi Gerrard Molloy, 16 Iára forsprakka unglingagengis, og félaga hans til fangelsisvistar fyrir að hafa nauðgað tvitugri japanskri námsmey. Molloy hlaut tvo 10 ára fangelsisdóma fyrir tvöfalda nauðgun, tvo sex ára dóma fyrir aö hvetja aðra til nauögunar og fjögurra ára dóm | fyrir líkamsárás. Hinir með- seku, á aldrinum 15-23 ára, fengu einnig harða dóma, sá yngsti 30 mánaða dóm. Molloy bauð japönsku náms- meynni á bíó en þau hittust á skyndibitastað. Eftir myndina tók hann konuna með sér að húsi þar sem henni var haldið | fanginni í tvo sólarhringa og nauðgað hvaö eftir annað. Hitler átti fúlg- ur í svissnesk- um banka Jewish Chronicle, dagblað j gyðinga í Bretlandi, fullyrðir að Hitler hafi lagt gríðarlegar fjár- hæðir sem hann græddi á sölu höfuðrits síns, Mein Kampf, inn • á reikninga Unions bankans í Bern í Sviss. Segir að bandarísk- ar njósnaskýrslur, sem nýlega I voru gerðar opinberar, sýni að Hitler hafi átt fjölda reikninga í umræddum banka og að úgef- andi hans, Max Amman, hafi haldið utan um þá. Talsmenn bankans segja að ekki sé hægt að staðfesta full- yrðingar blaðsins þar sem engar skýrslur séu lengur til frá tím- um heimsstyrjaldarinnar. Fé í eigu Þjóðverja hefði verið gert upptækt á sínum tíma og því skipt milli bandamanna. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.