Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1996, Side 10
LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1996 JjV
erlend bóksjá
Metsölukiljur
Bretland
Skosk endurreisn
í skáldsagnagerð
ISkáldsögur:
1. Nlcholas Evans:
The Horse Whlsperer.
2. Patrlcla D. Cornwell:
From Potter’s Field.
3. Stephen Klng:
Nlght Journey.
4. Ken Follett:
A Place Called Freedom.
5. Nlck Hornby:
Hlgh Fidellty.
6. Mlchael Crichton:
The Lost World.
7. Danielle Steel:
Llghtnlng.
8. Jostein Gaarder:
Sophle’s Worid.
9. Pat Barker:
The Ghost Road.
10. Tom Sharpe:
Grantchester Grlnd.
I
IRit almenns eölis:
1. Blll Bryson:
Notes from a Small Island.
2. Slmon Nye & Paul Dorman:
IA-Z of Behaving Badly.
3. Margaret Forster:
Hldden Llves: A Famlly Memoir.
4. Lorenzo Carcaterra:
Sleepers.
5.Paul Bruce:
The Nemesls File.
6. John Gray:
Men Are from Mars, Women Are
from Venus.
7. Gltta Sereny:
Albert Speer: Hls Battle wlth
Truth.
8. Rlchard Holmes:
War Walks.
9. Nelson Mandela:
Long Walk to Freedom.
10. Paul Theroux:
The Plllars of Hercules.
Innbundnar skáldsögur:
1. Ben Elton:
Popcorn.
2. Chris Ryan:
Stand By, Stand By.
3. John Grlsham:
The Runaway Jury.
4. Kevln J. Anderson:
X-Flles 4: Rulns.
5. Jeffrey Archer:
The Fourth Estate.
Innbundin rit almenns eölls:
1. Dave Sobel:
Longltude.
2. R. Andrews & P. Schellenberger:
The Tomb of God.
3. Wendy Beckett:
The Story of Paintlng.
4. Antonia Fraser:
The Gunpowder Plot.
5. Jack Ramsay:
SAS: The Soldler’s Story.
(Byggt á The Sunday Times)
fSÍtSBWlP" « iftSgg /,$' » ' X,t
Þegar skoski rithöfundurinn
James Kelman fékk hin eftirsóttu
bresku Booker-verölaun árið 1994
fyrir skáldsöguna „How Late It Was,
How Late“ f]ölluöu ýmsir breskir
fjölmiölar ööru fremur um hversu
mörg blótsyrði væri að finna í sög-
unni - en þau skiptu víst mörgum
hundruðum.
í Skotlandi var hins vegar litið á
verðlaunin sem viðurkenningu á
þeirri endurreisn skáldsögunnar
sem mörgum þar um slóðir hefur
orðið tíðrætt um síðustu árin. Kel-
man er líklega einna þekktastur
þeirra rithöfunda sem reynt hafa að
lýsa afar hispurslaust, sumir segja
ruddalega, skoskum nútímaveru-
leika í skáldsögum sínum, gjaman
meö orðbragði götunnar, enda er
hann þeirra elstur. Aðrir yngri höf-
undar hafa líka náð að vekja á sér
athygli að undanförnu og um leið
komið skoskri skáldsagnagerð í
sviðsljósið.
Úr verkalýðsstátt
í nýlegri grein í bandaríska stór-
blaðinu New York Times er þessum
hópi tiltölulega ungra skoskra höf-
unda lýst sem hálfgerðum utan-
garðsmönnum sem eigi það gjarnan
sameiginlegt að koma úr verkalýðs-
stétt og hafa lengi lifað á atvinnu-
leysisbótum. Þeir sofi til hádegis,
skrifi fram eftir degi á milli þess
sem þeir stundi pöbbana og
skemmti sér svo rækilega fram eftir
allri nóttu.
Sögusvið þeirra er, að sögn blaðs-
ins, æskufólk sem lifir á mörkum
samfélagsins; fátæklingar, flkni-
efnaneytendur, alsæluætur, fót-
Irvine Welsh er höfundur skáldsög-
unnar „Trainspotters" sem vakiö
hefur verulega athygli og veriö
kvikmynduö.
Umsjón
Elías Snæland Jónsson
boltabullur og fólk sem sé árum
saman á framfæri hins opinbera í
félagslegum blokkaríbúðum.
Að Kelman frátöldum er Irvine
Welsh kunnastur þessara manna en
skáldsaga hans, „Trainspotting",
vakti mikla athygli þegar hún kom
út árið 1993 og hefur nú verið kvik-
mynduð. Hann skrifar um fíkni-
efnaneytendur og hefur verið líkt
við William Burroughs - en flkni-
efnið, sem sögupersónur Welsh
gleypa, er öðru fremur alsæla.
Welsh er 37 ára að aldri, háskóla-
menntaður og starfaði hjá hinu
opinbera í Edinborg áður en hann
gaf sig að ritstörfum. Hann býr nú í
Amsterdam en flestir hinna ungu
höfunda halda sig í Edinborg.
Hafa þeir úthaldið?
Duncan McLean er einn þeirra.
Hann er 31 árs og fékk verðlaun
sem kennd eru við rithöfundinn
Sommerset Maugham árið 1993.
Hann hefur sent frá sér smásagna-
safnið „Bucket of Tongues" og
skáldsögurnar „Blackden" og
„Bunker Man“ en þar lýsir hann
daglegu hlutskipti persónu sinnar
af miskunnarlausu raunsæi. Sjálfur
er hann afar pólitískur og telur að
Skotland sé enn mergsogið af Eng-
lendingum eins og hver önnur ný-
lenda.
Annar er Gordon Legge sem er 35
ára. Hann hefur sent frá sér þrjár
bækur og vakti mikla athygli með
smásögusafninu „In between Talk-
ing about the Football". Hann segir
í viðtali við New York Times að
skosku höfundarnir séu mjög
vinstrisinnaðir: sumir þeirra hafi
náð þrítugsaldri áður en þeir hafi
komist í kynni við einn einasta
ihaldsmann!
í Skotlandi er gjarnan talað um
að hinir nýju höfundar séu að end-
urreisa skáldsagnagerð þar í landi
og búast megi við miklu af þeim í
framtíðinni. Þótt ýmsir aðrir efist
um úthald höfundanna fer ekki á
milli mála að í Bretlandi er í fyrsta
sinn í langan tíma tekið eftir því
sem skoskir rithöfundar eru að
gera.
df& * m a m
vismdi
Metsölukiljur
Bandaríkin
Skáldsögur:
1. Stephen Klng:
The Green Mlle: Nlght Journey.
2. John Grlsham:
A Time to Klll.
3. Patrlcia Cornwell:
From Potter’s Field.
4. Sue Gratton:
„L“ Is for Lawless.
5. Sidney Sheldon:
Mornlng, Noon & Night.
6. Danlelle Steel:
Llghtnlng.
7. David Guterson:
Snow Falling on Cedars.
8. Stephen Klng:
The Green Mile: The Bad Death of
Eduard Delacroiz.
9. Pat Conroy:
Beach Muslc.
10. Ken Follett:
A Place Called Freedom.
11. Rosamunde Pilcher:
Comlng Home.
12. Dean Koontz:
Strange Hlghways.
13. M.P. Kube-McDowell:
Shleld of Lles.
14. Stephen King:
The Green Mlle: The Two Dead
Glrls.
í 15. Stephen King:
The Green Mlle: Coffey’s Hands.
Rit almenns eölis:
1. J. Douglas & M. Olshaker:
Mindhunter.
2. Mary Pipher:
Reviving Ophelia.
3. Mary Karr:
The Uar’s Club.
4. Thomas Cahlll:
How the Irlsh Saved Clvillzation.
5. John Felnstein:
A Good Walk Spolled.
6. Colln L. Powell:
My Amerlcan Journey.
7. M. Scott Peck:
The Road Less Traveled.
8. Jack Miles:
God: A Biography.
9. Isabel Allende:
Paula.
10. J.M. Masson & S. McCarthy:
When Elephants Weep.
11. Thomas Moore:
Care of the Soul.
12. B.J. Eadie & C. Taylor:
Embraced by the Light.
13. D. Hays & D. Hays:
My Oid Man and the Sea.
14. Gail Sheehy:
New Passages.
15. Andrew Weil:
Spontaneous Healing.
(Byggt á New York Times Book Review)
Plútón í
endurvinnslu
Kanadíska orkufyrirtækið Ont-
ario Hydro hefur þróað tækni
sem gerir kleift að endurnýta það
mikla magn plútóns sem til er í
heiminum vegna kjarnorku-
vopnakapphlaupsins, einkum þó í
Rússlandi og Bandaríkjunum.
Hin nýja tækni nýtir þetta eitur-
efni í raforkuframleiðslu.
Stjórnendur Ontario Hydro
leggja til að kjarnakljúfum fyrir-
tækisins verði breytt þannig að
þeir gangi fyrir eldsneyti sem í er
lítið magn plútóns. Úrgangurinn
yrði ekki nærri eins eitraður og
efnið sem er i kjarnorkusprengj-
um.
Græningjar hafa lagst gegn
hugmyndinni. Þeir telja hana of
dýra og of hættulega umhverfinu.
Risajarðarber
um aldamót
Jarðarber á stærð við epli?
Hljómar kannski dálítið ótrúlega
en það mun víst ekki langt í að
slik risajarðarber verði fáanleg.
Það eru breskir vísindamenn sem
vinna að ræktunrtilraununum.
Það sem veitti visindamönnun-
um innblástur er tískubylgja í
Bandaríkjunum þar sem stór jarð-
arber eru seld stök, á stilkinum,
og hefur neðri hluta ávaxtarins
verið dýft í súkkulaði.
Reyna á að lengja vaxtartíma-
bil berjanna án þess að það komi
niður á gæðunum.
Umsión
Guðlaugur Bergmundsson
Bakteríur í stórhvelismaga
gegn eiturefnum í sjónum
Nú, þegar stórhvelaveiði hefur verið hætt að mestu
eða öllu leyti, hafa fundist not fyrir eina hluta skepn-
unnar sem ekki var nýttur í þá gömlu góðu daga, nefni-
lega magann.
Bandaríski eiturefnafræðingurinn Morrie Craig, sem
starfar við fylkisháskólann í Oregon, hefur sem sé upp-
götvað að örverur í maga
Grænlandssléttbaksins
geta eytt eitruðum og
þrávirkum efnum sem
verða eftir þar sem olía
hefur runnið i sjóinn.
í grein í breska blað-
inu Guardian segir að
Craig hafi kynnt upp-
götvun sina á þingi efna-
fræðinga i London fyrr i
sumar. Segja má að
þessi uppgötvun Craigs
sé eins konar aukaafurð
aðalrannsókna hans á
áhrifum eitraðra
plantna á búpening.
Hann var að leita leiða
til að koma í veg fyrir að
nautgripir fengju eitrun
af völdum ákveðinnar
tegundar krossgrass.
Nautgripabændur í Oregon-fylki einu missa búpening
fyrir sem svarar rúmar sex hundruð milljónir króna ár-
lega af völdum illgresisins.
Krossgrasið inniheldur efni sem eitrar lifur nautgripa
og hesta en skaðar ekki sauðfé. Það lá því beinast við að
kindalifur innihéldi ensím sem gæti brotið niður
plöntueiturefnin. Svo var þó ekki heldur reyndust það
vera bakteríur í maga kindarinnar sem báru ábyrgð á
þessu. Þegar þessum bakteríum hafði svo verið spraut-
að í maga kúnna gátu þær étið krossgrasiö án þess að
verða meint af.
Craig sneri sér þá að hinum risastóru skíðishvölum
sem gleypa í sig mikið magn eiturefna. Meðalskíðishval-
ur etur um það bil tonn af átu á degi hverjum en átan
nærist á þörungum sem vitað er að innihalda mikiö
magn eituretna.
Craig áætlaði sem svo að úr þvi að kindur væru með
verndarbakteríur í maganum hlyti hið sama að gilda
um hvali þessa. Hann
fékk síðan tækifæri til
að kanna tilgátu sina
þegar hann var að
störfum í Alaska. Á
meðan hann var þar
bauð hópur frum-
byggja honum að fylgj-
ast með því þegar hann
veiddi Grænlandsslétt-
bak sem er af skíðis-
hvalaættinni.
Hvalamagar skiptast
upp i nokkur hólf, rétt
eins og magar naut-
gripa, og í þeim eru
bakteríur sem brjóta
niður fæðuna. Craig
tók sýni úr fyrsta hólf-
inu og beitti þeim gegn
ýmsum mengunarvöld-
um. Bakteríurnar eyddu
naftalíni og anþrasíni en það eru eitruðustu efnin sem
er að finna i hráolíu. Bakteríurnar brutu einnig niður
hin stórhættulegu PCB efni sem náttúrulegar bakteríur
i jarðvegi og vatni ná ekki að vinna á.
Náttúrulegu bakteríumar þurfa á súrefni að halda til
að geta starfað eðlilega. Hins vegar er oft lítið um súr-
efni þar sem helst þarf að eyða olíuflekkjum. Hvals-
magabakteríurnar þurfa aftur á móti ekki súrefni og
henta því vel til verksins. Craig er nú að reyna að fá
ýmis olíufélög til að vinna með sér að frekari þróun
uppgötvunar sinnar.
Mæður sakna
frelsis
Talið er að geðlægð, sem hrjá-
| ir um tuttugu prósent nýbakaðra
mæðra, geti stafað af því að kon-
an eigi erfitt með að venja sig við
það skerta frelsi sem hið nýja
hlutskipti hennar og umönnun
bamsins hafa í för með sér.
Breski sálfræðingurinn Ruth
Paradice rannsakaði átján mæð-
ur og reyndust sex þeirra þjást af
depurð. Konurnar sögðu þó allar
að börn þeirra væm óskabörn og
| því væri ekki ástæða til annars
l en að kætast. Ekki var að sjá að
I hormónum kvennanna, aldri
| þeirra og þjóðfélagsstöðu væri
I um að kenna.
Mæðurnar sem Ruth Paradice
; rannsakaði viðurkenndu að þær
söknuðu fyrri lífsmáta og einnig
I þess flotta vaxtar sem þær höfðu
áður.
Nýtt vopn
gegn malaríu
Malaría eða köldusótt er ein-
hver mannskæðasti smitsjúk-
| dóm.urinn sem til er. Það er ein-
fmmungssníkjudýr í blóðinu
I sem veldur sjúkdómnum og til
þessa hefur efnið kínín verið ár-
I angursríkast í baráttunni gegn
honum. Vísindamenn urðu því
að vonum nokkuð áhyggjufullir
þegar upp kom malaríuörvera í
Suðaustur-Asíu sem var ónæm
1 fyrir kíníni.
Sérfræðingar í hitabeltissjúk-
dómum geta þó aftur andað ró-
lega því að í ljós hefur komið að
gamalkunnugt kínverskt jurtalyf
gagnast vel gegn þessu nýja
malaríuafbrigði.