Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1996, Side 23
Sumarlandsmót enska bridgesam-
bandsins var haldið fyrir stuttu og í
tilefni þess var efnt til vináttulands-
leiks milli íslands og Englands.
Þrír fyrrverandi heimsmeistarar,
Aðalsteinn Jörgensen, Guðlaugur R.
Jóhannsson og Örn Arnþórsson,
ásamt Matthíasi Þorvaldssyni, spil-
uðu fyrir íslands hönd, meðan Eng-
lendingar tefldu fram Ólympíu-
landsliði sínu, Forrester, Robson,
Jason, Justin, Paul Hackett og
Monachan. íslenska landsliðið sigr-
aði örugglega með 226 impum gegn
163. Ég hefi aldrei getað skilið mun-
inn á vináttulandsleik og öðrum
landsleikjum. Það er spila með skil-
rúmum, farið eftir reglum Heims-
sambandsins og annað liðið vinnur
meðan hitt tapar. Ef til vill líður
þeim sem tapar betur í vináttu-
landsleik?
En sleppum því! Að mínu áliti
byrjar íslenska landsliðið nokkra
impa yfir þegar liðin mætast á
Ólympíumótinu í Grikklandi, alla
vega er sálfræðilegur ávinningur af
sigrinum.
Landsleikurinn var spilaður í
átta 10 spila lotum og sýndur á
BridgeRama, eða Bridgevision.
4 G1042
«* 95
4- G87
♦ 7632
Það hefir vart farið fram hjá nein-
um sem fylgist með bridge á annað
borð, að hið fræga par Englendinga,
Forrester og Robson, fóru 3400 nið-
ur í redobluðu spili gegn Guðlaugi
og Erni. Þeir voru hins vegar kátari
þegar þeir náðu Aðalsteini og Matt-
híasi 1400 niður upp úr tveggja
laufa opnun sem þýddi allt milli
himins og jarðar.
Grínlaust spila þeir opnun á
tveimur laufum í fyrstu og þriðju
hönd, utan hættu gegn á, veikt með
einhverjum lit.
Við skulum skoða eitt spil frá ein-
vígisleiknum. S/A-V
í lokaða salnum voru Guðlaugur
og Örn fljótir að komast í fjóra
spaða, fengu 11 slagi og 650. í opna
salnum sátu n-s Matthías og Aðal-
steinn en a-v Monachan og Paul
Hackett. Og Aðalsteinn dró upp
nýja leikfangið :
Suður Vestur Norður Austur
2 lauf dobl pass* pass
pass
4 AKD753
A* Á1062
4 ÁD10
♦
4 986
V KG4
4 K43
* ÁK10Í
N
V A
S
4 -
V D873
4 9652
* DG95
Umsjón
Stefán Guðjohnsen
* a.m.k. þrílitur í laufl
Englendingarnir voru auðsjáan-
lega ekki tilbúnir til þess að verjast
gegn „leikfanginu" og því fór sem
fór.
Aðalsteinn var hins vegar fljótur
að renna heim tíu slögum, fékk 330
og 14 impa.
Eftir lotuna sáust Englendingarn-
ir í áköfum samræðum og glöggir
menn þttust heyra minnst á hvem-
ig best væri að verjast opnun á
tveimur laufum veikum.
Allt að 64. OOO kr.
verðlækkun á
Skoda Felicia
Seljum síðustu bílana afSkoda Felicia árgerð 1996 á einstöku sértílboði.
*959.000
Verð nu fra
895
OOO
795.000
000
849
Fyrirtæki og stofnanir
Bjóðum einnig vsk-útgáfu á einstöku verði, eða frá 659.000 kr.
Komdu núna í Jöfur og tryggðu þér glænýjan
Skoda Felicia á sértilboði.
Söluaöilar Jöfurs á landsbyggðinni
Akranes: Bílver, ísafjörður: Bílaþjónusta Daða, Sauðárkrókur: Kaupfélag Skagfirðinga,
Akureyri: Skálafell, Húsavik: Skipaafgreiðsla Húsavíkur, Egilsstaðir: Bílasalan Fell,
Höfn: Egill H. Benediktsson, Vestmannaeyjar: Bílaverkstæðið Bragginn, Selfoss: Bilasala Suðurlands
1 9 4 6 - 1 9 9 6
Nýbýlavegur 2
Sími: 554 2600