Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1996, Síða 36
44
fólk
LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1996
Ef væri ég gullfiskur! frumsýnt í Borgarleikhúsinu:
Leikhúsið reynir að trufla nætur-
svefninn og hreyfa við fólki
- segir höfundurinn, Árni Ibsen
„Útgangspunkturinn í leikritinu
er viðleitni okkar íslendinga til þess
að bera okkur saman við næsta
mann,“ segir Árni Ibsen leikrita-
skáld. Þjóðleikhúsið frumsýnir um
næstu helgi nýjan farsa eftir Árna,
Ef væri ég gullfiskur!
„Það væri draumalíf að vera gull-
fiskur. Hann syndir í hringi og fæð-
an dettur af himnum ofan og það
eina sem hann þarf að gera er að
gapa. Gullfiskurinn hefur skamm-
timaminni. Hann mætir kerling-
unni sinni í hverjum einasta hring
sem hann syndir um tankinn. Það
merkilega er að hann man aldrei
eftir að hafa séð hana áður. Hann á
nýja kerlingu í hverjum hring. Ég
heyrði söguna um gullfiskinn og
það kveikti í púðrinu,“ segir Ólafur.
Árni Ibsen er fæddur 17. maí 1948
í Stykkishólmi. Hann stundaði leik-
listar- og bókmenntanám í Exeter á
Englandi. Hann starfaði í 16 ár við
Þjóðleikhúsið sem leikhúsritari og
listrænn ráðgjaíi. Hann skrifaði
leikgerð að Oliver Twist sem sýnd
var í Þjóðleikhúsinu. Nú sinnir
hann eingöngu ritstörfum og er
einn okkar allra fremstu leikskálda.
Hann hefur einnig starfað sem leik-
ari og leikstjóri. Árni er höfundur
margvíslegs efnis, meðal annars fyr-
irlestra, greina, hljóðvarps- og sjón-
varpsþátta, allt frá viðtalsþáttum til
áramótaskaupa. Helstu leikrit hans
eru Skjaldbakan kemst þangað líka,
1984, Afsakið hlé, 1989, Fiskar á
þurru landi, 1993 og Himnaríki -
geðklofinn gamanleikur sem sýnt
var í Hafnarfirði í fyrra. Hann gerði
viðreist á leiklistarhátíðir viða um
Evrópu. Þriðja ljóðabók Áma kem-
ur út í haust hjá Máli og menningu.
Hann segir að ljóð þurfi tíma og
þess vegna hafi hann ekki gefið út
fleiri bækur.
„Þetta eru ekki neitt stórkostleg
afköst. Ég er ekki viss um, ef ég
hefði gefið út meira, að það væri
neitt merkilegri afrakstur," segir
Árni.
Árni er kvæntur Hildi Kristjáns-
dóttur, kennara í Engidalsskóla.
Þau eiga synina Kára, 23 ára, Flóka,
20 ára, og Teit, 13 ára.
Ögrandi leikform
Ef væri ég gullfiskur! er farsi að
frönskum hætti en með íslensku
inntaki. Þar er beitt viðteknu formi
19. aldar farsans sem Georges
Feydeau fullkomnaði og enn er með
öruggu lífsmarki.
„Farsi er mjög ögrandi leikform
sem mjög erfitt er að skrifa en það
reynir mjög á leikni höfundarins.
Skriftimar hafa tekið gífurlegan
tíma og kostað miklar pælingar.
Sumir líta niður á þessa tegund
leiklistar og finnst það ósköp
„klént“. Farsinn er að mínu mati
býsna áleitinn og ögrandi. Áhorf-
endur hafa oft áhuga á þessu leik-
formi og ef vel tekst til er hægt að
hreyfa við fólki. Leikhúsið reynir
oft að tmfla dálítið nætursvefninn
hjá fólki,“ segir Árni.
Það vefst svolitið fyrir Áma að
segja frá boðskap verksins en hann
segir hann svolítið flókinn og marg-
þættan. Leikritið fjallar um fjármál,
frama og framhjáhald. Það er ís-
lenskt samfélag í hnotskurn, segir
Árni.
„Islendingar eru mjög bíræfnir
framapotarar í rauninni. Við erum
alltaf að tala um mjúk og hörð gildi.
Maður hittir ekki einn einasta ein-
stakling sem ekki er í óðaönn að
reyna að tileinka sér hörðu gildin,"
segir Árni.
í miðri atburðarásinni stendur
maður sem er að nálgast miðjan ald-
SKOKKNÁMSKEIÐ
Ný námskeið hefjast 9. september 1996.
Byrjenda- og framhaldshópar.
Boðið verður upp á eftirfarandi:
FYRIRLESTRA
ÆFINGAÁÆTLANIR
ÞREKMÆLINGAR
STÖÐVAÞJÁLFUN
Upphitun fer fram í leikfimisal, hlaupið úti,
teygjuæfingar fyrir og eftir hlaup.
Kennt er mánudaga, miðvikudaga
og fimmtudaga.
Kennari Jakob Bragi Hannesson.
INNRITUN
stendur yfir í Miðbæjarskóla, Fríkirkjuvegi 1.
Upplýsingar í síma
551 2992 og 551 4106.
ALDREi OF SEiNT!
ur. Hann stendur allt í einu frammi
fyrir þeirri opinberun að allir sem
hann þekkir standa í sukki og svín-
aríi. Hann er sá eini sem stendur
fyrir utan sukkið og honum finnst
hann hafa það síst af öllum.
Skylda við samtím-
ann
Ég vel íslenskan sam-
tíma vegna þess að við
búum í þessum samtíma.
Það höfðar mjög til mín
að skoða samtímann.
Kollegar mínir höfðu á
orði fyrir einhverjum
árum að samtíminn væri
óspennandi. Við lifum í
þessu og mér finnst í raun og \
veru vera skylda okkar að rýna '
í samtímann. Við megum ekki
snúa baki við samtíman-
um,“ segir Árni.
Ámi segir leik-
húsið oft á tíð-
um nútíma-
legra held-
ur en bók-
mennt-
meira þegar maður skrifar fyrir
leikhúsið. Auðveldara er að fara í
felur á bak viö sögulegt efni,“ segir
Ámi.
Ef væri ég gullfiskur! er fjölmenn-
asta leikritið sem hann hefur skrif-
að. Hann segir leikritið gerast
á einni nóttu í sama hús-
inu og það geti oft
orðið flókið. Það
; hjálpar að skrifa á
blað hverjir eru
inni á sviðinu
hverju sinni.
Persónurnar
eru fyndnar
„Ég veit ekki
hvort ég er fyndinn
en persónurnar em
það. Þær þurfa ekki
endilega að vera
fyndnar í
til-
ímar
Mað
opm
berar
sjálf-
ArniIb-
sen er að
veröa af-
kasta-
mesta
leikrita-
skáld
okkar ís-
lendinga.
svörum. Tímasetningarnar verða að
vera réttar til þess að verkið sé
fyndið. Maður verður að sjá verkið
fyrir sér áður en það er sett upp,“
segir Árni.
Árni segir uppákomurnar geta
orðið mjög flóknar. Margar persón-
ur eru inni á sviðinu að gera marga
hluti í einu. Ekkert má rekast á og
erfiðast er að ná endinum þannig að
hann virki því þá eru margir inni á
í einu.
„Það er mjög lærdómsríkt að tak-
ast á við að skrifa farsa. Ég er að
vona að ég hafi lært talsvert af
þessu. Ég sit flestar æfmgar því það
er ekki hægt annað. Leikararnir og
leikstjórinn halda áfram að skapa
verkið og það breytist oft á æfingun-
um þar sem það er í frumuppfærslu
í leikhúsi. Senurnar ganga ekki
alltaf upp og þá þarf að breyta þeim.
Það skemmtilega við þetta er að
maður dettur niður í mjög nána
samvinnu. við fólk,“ segir Árni.
Ekki hungurmorða
Það er langt síðan Árni vissi hvað
hann vildi gera en hann var í fastri
vinnu þar til hann sagði upp í
Þjóðleikhúsinu fyrir ári. Hann
áleit að hann skuldaði sjálfum sér
að láta reyna á hvort hann gæti
haft skriftir að aðalstarfi.
„Ég var búinn að sjá fram á að
ég yrði ekki hungurmorða þó ég
sæti eingöngu við skriftir næstu
tvö árin. Fram að þvi hafði ég ein-
göngu skrifað í hjáverkum en
mér finnst alveg meiri háttar að
hafa skriftir að aðalstarfi. Ég hef
meiri yfirsýn yfir vinnuna og
meiri stjórn á því hvemig vinnan
gengur fýrir sig. Allt sem ég geri nú
fær meiri athygli af minni hálfu,“
segir Árni.
Árni hefur að undanförnu skrif-
að handrit að kvikmynd á ensku
sem væntanleg er í framleiðslu.
Hann gat að svo komnu máli ekki
upplýst hverjir kæmu til með að
gera myndina eða hvenær til
stæði að taka hana upp. Árni neit-
ar því ekki að eftir frumsýningu
taki við önnur verkefni. Síðar í
vetur ætlar hann að skrifa aftur
fyrir Hafnflrðingana sem koma
til með að setja upp verk eftir
hann ásamt Nemendaleikhúsinu.
Frá æfingu á farsanum Ef væri ég gullfiskur.