Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1996, Side 37
JjV LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1996
hestar
Jóhann G. Jóhannesson vann til margra verölauna á hestamóti Norður-Þýskalands á Lokku frá Stördal.
DV-mynd E.J.
■
Islendingar sigursælir
- á hestamóti í Þýskalandi
Flestir íslensku knapanna í
Þýskalandi búa í Norður-Þýska-
landi. Þeir eru í stærsta hesta-
mannafélagi Þýskalands, I.P.Z.V.
Nord e.V. ásamt um það bil 1.800
öðrum knöpum en flestallir félags-
menn búa á svæði í og við Ham-
borg.
Þegar félagið heldur félagsmót
sitt er mikið um að vera og voru
leiddir í dóm 430 hestar í átta flokk-
um á síðasta félagsmóti.
Mótið var haldið á hestabúgarðin-
um Stördal, sem er um 60 kílómetra
frá Hamborg, en þar hefur Jóhann
G. Jóhannesson verið ráðsmaður í
tæp fjögur ár, en aðstoðarmaður
hans er Guðmundur Jóhannesson.
Á búgarðinum eru 110 íslensk
hross, þar af 25 folaldsmerar og eru
22 þeirra með 1. verðlaun.
Aðstaða er til fyrirmyndar og eru
þar tveir hringvellir 200 metra og
300 metra og 200 metra innibyggð
braut, 250 metra skeiðbraut, áhorf-
endastúka og reiðhöll.
Mikið álag var á starfsmönnum,
því keppt var í þrjá daga og á laug-
ardeginum frá klukkan 7.00 um
morguninn til 1.30 um kvöldið.
Keppt var í 42 greinum í átta
flokkum. 43 kynbótahross voru
dæmd, en einnig var keppt í frítíma-
flokki, A-, B- og C-íþróttastigi full-
orðinna knapa, bamaflokki, ung-
lingaflokki og ungmennaflokki.
Knapar sem keppa í A-íþróttastigi
verða að hafa náð lágmarkseinkunn
til að fá að keppa 1 þeim flokki og
eru einir í braut í keppni en í B- og
C-stigi eru þrír inn á í einu.
í frítíma- og barnaflokki eru tveir
til þrír styrkleikaflokkar til að gefa
öllum knöpum tækifæri á að vera
með.
Flóðljós
skapa stemningu
Keppt var í skeiði á kvöldin í
flóðljósi og notuð fljótandi ræsing.
Hestarnir komu inn úr myrkri á
fullri ferð í flóðljós og hurfu aftur f
myrkrið að loknum spretti. Áhorf-
endur voru um 2.500 og hrifust mjög
af þessari keppni.
íslensku knaparnir gerður góða
ferð á mótið.
Árangur þeirra var eftirfarandi:
Knapar máttu keppa með mörg
hross í hverri grein sem útskýrir
hvers vegna Angantýr Þórðarson er
bæði I 2. og 3. sæti í tölti á íþrótta-
stigi B. Hann fékk varaknapa í úr-
slitin.
E.J.
Jóhann G. Jóhannesson
Grein Keppni Hestur
LFimmgangur íþróttastig B Lnkka frá Stördal
LTölt við slakan taum íþróttastig C Kátur frá Stördal
LFimmgangur íþróttastig C Príns frá Klauf
3.250 metra skeið — Ægir frá Stördal
3. Fjórgangur íþróttastig B Kátur frá Stördal
4. Tölt við slakan taum íþróttastig A Huginn frá Wiesenhof
Sveinn Hjörleifsson
LTölt Iþróttastig B Mózart
Jón Steinbjörnsson
2.TÖH Iþróttastig A Háleggur frá Fossi
5. Fjórgangur íþróttastig A Mökkur frá Flugumýrarhvammi
Styrmir Árnason
2. Fjórgangur Iþróttastig A Riddari
4.Tölt íþróttastig A Riddari
Herbert Úlason
2. Fimmgangur íþróttastig B Blekking
Angantýr Þórðarson 2.Tölt íþróttastig B Þótti frá Hólum
3.Tölt íþróttastig B Breki frá Eyrarbakka
4. Fimmgangur íþróttastig B Hera
_____________j sviðsljós 45
Jack Nichol-
son á útsölu
Stórleikarinn Jack
Nicholson , einn rík-
asti maður Holly-
wood, verslar á útsöl-
um. Hann sást i
kvenfatadeild í St
Tropes á dögunum
og gekk beint að
slánum sem höfðu
lækkað verð. Jack
hefur áreiðanlega
verið að kaupa
handa kærustu sinni
og barnsmóður,
Rebeccu Broussard,
og skoðaði hann
helst þrönga toppa
og þröng stutt pils.
Rebecca og Jack eiga
saman tvö böm, þau
Lorraine, sex ára, og
Raymond, fjögurra
ára. Margir hafa ef-
laust hneykslast á
því hvers vegna
hann velur föt á
kærustunna á útsölu
þegar hann hefur
efni á dýrustu búð-
unum. En ekki má
gleyma því að það er
hugurinn á bak við
gjöfina sem skiptir
mestu.
Jack Nicholson
kaupir á útsölum
handa kærustunni.
„Sýningin á Galdra-Lofti í íslensku óperunni er
fágætur listviöburöur."
„Jón Ásgeirsson er heilsteypt tónskáld, sjálfum
sér samkvæmur og þorir að semja tónlist sem
hljómar vel í eyrum.“
„Þorgeir vann stóran söng- og leiksigur með
frammistöðu sinni í Galdra-Lofti."
Þ.P., Mbl.
„Frammistaða Þorgeirs Andréssonar í hlutverki
Lofts telst til tíöinda."
F.T.St., DV
Niðurstaða: Sýning sem telst til stórviðburða í
íslensku listalífi. Höfundurinn Jón Ásgeirsson
hefur unnið þrekvirki og öll vinna aðstandenda er
þeim til mikils sóma.
A.B., Abl.
7. sýning laugardaginn 14. sept. kl. 20:00
8. sýning laugardaginn 21. sept. kl. 21:00
AÐEinSFAAR SYFII fl C A R
ÍSLENSKA ÓPERAN
miÐASÖLÖ OPin DACL.
15-19 sími 551-1475