Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1996, Qupperneq 38

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1996, Qupperneq 38
46 fólk LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1996 Gunnar Cauthery, 15 ára íslendingur, hefur vakið mikla athygli fyrir ieik sinn í Bretlandi: Hefur leikið aðalhlutverk - vinkaði tii áhorfenda þegar hann renndi sér niður rennibraut í barnæsku, segir Björg Árnadóttir, móðir hans ræningjar þá leið þeim miklu betur og voru ekki eins yfirspenntir. Þeir einbeittu sér bara að því að leika hlutverkið. Þetta tókst svo vel að eftir þetta boð sátum við hjónin og gátum alveg hugsað okkur að halda aftur afmælisboð daginn eftir,“ seg- ir Björg og bætir við: „Hvenær dett- ur manni það í hug eftir afmæli?" „Það geröi enginn annar neitt svona. Það voru alltaf sömu leikirn- ir í öllum afmælum og venjuleg súkkulaðikaka en afmælin hjá okk- ur voru mjög vinsæl. Okkur fannst við svo miklir menn þvi að allir vildu koma í afmæli til okkar,“ út- skýrir Gunnar og segir að mamma sin hafi verið „snillingur" i afmæl- ishaldinu. Árið 1979 fluttu Björg og Andrew til Haslemere, í lítinn syfjulegan bæ um 50 mílur fyrir sunnan London, en það er heimabær Andrews. Þar hóf Björg þátttöku í áhugamannale- ikhópi og leikstýrði meðal annars þremur óperum. í framhaldi af einni af sýningum leikhópsins var hún spurð hvort hún hefði áhuga á að kenna leikræna tjáningu í litlum heimavistarskóla fyrir börn með dyslexíu í Haslemere. Hún lét slag standa og starfaði við það í sjö ár, fór svo í nám og lærði að kenna börnum með dyslexíu og starfar við það í dag. Ekki nóg að leika baunir - Það er greinilegt hvert Gunnar sækir leiklistina. En hvernig skyldi hann hafa byrjað að feta þá braut? janúar 1972 giftu Björg og Andrew sig og Björg fluttist svo til Bretlands um sumarið. Fyrstu tvö árin í Bretlandi starf- aði Björg með tilraunaleikflokki, sem ferðaðist víða með mjög fram- úrstefnulegar sýningar, aðallega á klassískum leikverkum. Við fæð- ingu Halla, eldri sonarins, hætti hún að starfa með tilraunaleik- flokknum og tók að sér ýmis verk- efni í lausamennsku. Síðar hefur hún starfað með áhugamannaleik- flokki og kennt leikræna tjáningu. Á árum áður sendi Björg pistla í út- varpið og skrifaði í blöð og timarit auk þess sem hún tók saman bókina „Ég á afmæli i dag“ með hugmynd- um að skemmtilegum afmælisboð- um. Afmælisboð með sjóræningjaleik „Strákarnir voru alltaf svo virkir í þessum afmælisboðum og svolítið yfirspenntir. Einhvem tímann datt einhverjum í hug að halda sjóræn- ingjaboð. Mér fannst þetta dálítið góð hugmynd en í stað þess að láta alla bara mæta í sjóræningjabún- ingi þá gerði ég allan matinn sjó- ræningjalegan, bjó til sjóræningja- skútu úr piparkökum með hákörl- um sem syntu í kring. Svo bjuggum við til fjársjóðsleik og það tók heil- an hálftima fyrir þá að finna fjár- sjóðinn. Þetta gerði ógurlega lukku,“ segir Björg. „Þegar strákcirnir voru komnir í búninga og voru ekki lengur þeir sjálfir heldur sjó- „Þegar ég var sjö eða átta ára fór ég í áhugamannaleikflokkinn, sem mamma var i, en það var svo leiðin- legt því að við krakkamir fengum ekkert bitastætt að gera. Ég var bara alveg óður í að fá að leika,“ segir Gunnar um sin fyrstu ár í leiklistinni. Björg nefnir sem dæmi að krakkamir í hópnum hafi bara fengið að leika baunimar í Jóa og baunagrasinu, að vísu verið mikið á sviðinu en ekki fengið að gera nóg. „Hann vissi alltaf nákvæmlega hvar hann átti að vera og hvað hann átti að gera og var alltaf kom- inn i réttan búning á réttan stað. Þetta kenndi honum enginn," segir Björg um fyrstu leikreynslu Gunn- ars hjá áhugamannaleikhópnum. Þrátt fyrir þessa reynslu segist Gunnar hafa haldið áfram að leika i jólaleikritinu í skólanum. Ellefu ára gamall fór hann svo í nýjan skóla þar sem listrænir krakkar fengu að njóta sín. Árið 1994 fóru hjólin svo allt i einu að snúast. í janúar var verið að leita að krökkum fyrir nýj- an sjónvarpsþátt hjá BBC sem heit- ir Just Willicim. Gunnar fór í prufu- leik og fékk þau svör að hann væri aðeins of gamall til að leika aðal- hlutverkið en var beðinn að láta umboðsmann fá nafnið sitt. Fyrsta aðalhlutverkið „Um sama leyti var hann beðinn að koma inn í söngleik eftir sögu sem heitir Whistle Down the Wind en National Youth Music Theatre hafði sýnt hann á Edinborg- arhátíðinni 1993. Söngleikurinn byrjar á því að strákur gengur inn á sviðið og syngur aleinn mjög háa tóna. Hann syngur svo með öllum krökkunum en seinna í stykkinu kemur sami drengurinn aftur og syngur þessa sömu háu tóna. Strák- urinn, sem hafði stmgið þetta, var um það bil að fara í mútur og mað- ur frá leikhúsinu kom í skólann og bað Gunnar að koma í prufu,“ út- skýra mæðginin. Gunnar fór í prufuna og söng hlutverkið í tvær vikur í ágúst 1994. í febrúar sama ár hafði Björg verið á íslandi og rekist á smáklausu í Mogganum um að það yrði tekin upp mynd með 12 ára gömlum strákum á íslandi í ágúst. Ef hann gæti fengið statistahlutverk þá gæti hann lært íslensku, hitt íslenska stráka og gert það sem honum þætti skemmtilegt svo að hún hringdi í kvikmyndagerðina og sendi mynd- band með Gunnari þar sem hann las á íslensku. „Við heyrðum ekki neitt svo að við afskrifuðum þetta. Þegar við vorum í Leeds byrjuðu skilaboðin að hlaðast upp á símsvaranum. Það var verið að bjóða honum aðalhlut- verkið í myndinni. Það skemmti- lega gerðist í Leeds að hann var bara búinn að vera þar í tvo daga þá var hann gerður að varaleikara fyr- ir eitt aðalhlutverkið. Hcmn fékk eina æfingu og varð að læra alla músíkina," segir Björg. Hoppaði inn í aðalhlutverk- ið „Eitt kvöldið gat aðalstrákurinn ekki farið inn á sviðið tíu mínútum fyrir sýn- ingu. Þá var mér sagt að fara upp á svið og leika aðal- hlutverkið í heilum söng- leik I atvinnu- mannaleik- húsi. Ég varð að vera búinn að læra allan textann og tónlistina og það var ekki svo auðvelt. Ég varð að nota hvert tæki- færi sem gafst,“ seg- ir Gunnar. „Þegar við komum heim frá Leeds þá uppgötvuðum við að það var búið að bjóða honum eitt að- alhlutverkið af fjór- „Hann hefur leikið alla ævi. Þeg- ar hann var lítill og ég var að horfa á hann á rólóvellinum og bera hann saman við hin bömin þá léku hin börnin sér en hann var aö leika fyr- ir áhorfendur. Ég horfði á hann renna sér niður rennibrautina og vinka til áhorfenda. Það lá við að hann hneigði sig þegar hann var kominn niður. Ég sat einu sinni gapandi og horfði á hann,“ segir Björg Árnadóttir um son sinn, Gunnar Cauthery, 15 ára, en hann hefur leikið aðalhlutverk í sjón- varpsþáttum og kvikmyndum hér og landi og erlendis og vakið mikla athygli fyrir leik sinn. Gunnar er fæddur og alinn upp i Bretlandi. Móðir hans er Björg Árnadóttir leikkona, dóttir Árna Bjömssonar tónskálds, og faðir hans er Andrew Cauthery, 1. óbó- leikari í ensku þjóðaróperunni. Gunnar á einn eldri bróður, Davíð Harald, 21 árs, kallaðan Halli. Halli er fiðluleikari og stundar tvöfalt tónlistamám í háskóla í Manchest- er. Gunnar hefur hins vegar gert það gott í leiklistinni og er spenntur fyrir því að leggja hana fyrir sig í framtíðinni. - En hver ætli hún sé þessi ís- lensk-enska fjölskylda? Það voru Björg og Gunnar, yngri sonur hennar, sem samþykktu að segja lesendum DV örlítið frá hög- um fjölskyldunnar og þó sérstaklega stjömum stráðum leikferli Gunn- ars, meðal annars hjá sjónvarps- stöðinni BBC í Bretlandi. Pabbinn kom til ís- lands „Við hittumst á íslandi árið 1969 þegar Andr- és kom hingað og spilaði með sinfóníunni í eitt ár. Hann átti líka að spila í Fiðlar- anum á þakinu í Þjóðleikhúsinu og ég var á svið- inu þar. Ég var þá að klára leiklist- arskólann og lék ömmu Tzeitl og statista,“ Björg um hvemig þau hjón- in kynntust. Andrew fór utan aftur áriö 1970. í
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.