Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1996, Page 40
LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1996
Frelsi á
Netinu
Það er fokið í flest skjól fyrir
lýðræðissinna í Indónesíu enda
hafa yflrvöld þar hert mjög tök-
in á almenningi. Ríkisvaldið í
Indónesíu hefur engin formleg
völd yfir prentmiðlum í land-
inu. Ritstjórar dagblaða halda
því fram að það sé ætlast til
þess að þeir segi sem minnst
frá óróa í landiu. Sjónvarps-
fréttum er dreift af ríkinu. Þeir
sem vilja eiga frjáls skoðana-
skipti deyja þó ekki ráðalausir
heldur nota Netið til þess að
tala saman. Sífellt fleiri
Indónesar eru að tengjast Net-
inu til þess að fá aðgang að
stjórnmálaumræðu, fréttum af
ofbeldisverkum stjórnvalda og
áróðri sem má finna á vefsíð-
um, fréttahópum og spjallrás-
um sem tengjast Indónesíu á
einhvern hátt.
Talið er að einungis tuttugu
þúsund Indónesar séu tengdir
Netinu en hafa verður í huga
að flestir þeirra eru úr milli-
stéttinni sem er skoðanamót-
andi og virk í stjórnmálum.
Upplýsingaráðherra Indónesiu
lýsti því yfir i vor að stjómvöld
þar hefðu engan áhuga á því að
setja reglur um Netið eins og
nágrannaríkið Singapúr hefur
gert. Þrátt fyrir þetta hafa
stjórnvöld handtekið og yfir-
heyrt þá sem hafa gagnrýnt þau
með aðstoð Netsins.
Peninga-
flóð
Auglýsingatekjur á Veraldar-
vefnum hafa aukist um 83 pró-
sent á fyrri helmingi þessa árs.
Auglýsingatekjur námu tæp-
lega hálfum milljarði íslenskra
króna á þessu tímabil. Sérfræð-
ingar telja að um aldamót muni
auglýsingar skila vefsíðueig-
endum um 35 milljörðum ís-
lenskra króna.
Sá galli er á gjöf Njarðar að
enn um sinn er við því að búast
að einu stóru auglýsendurnir
verði hátæknifyrirtæki sem séu
að auglýsa hvert á síðum ann-
ars. Stærsti auglýsandinn á
Netinu er Microsoft sem hefur
eytt tæplega 200 miljónum
króna í auglýsingar á vefnum
fyrsta hálfa mánuð þessa árs.
Stærstu auglýsendurnir á öðr-
um fjölmiðlum, fyrirtæki sem
framleiða venjulegar neyslu-
vörur virðast enn ekki hafa
áhuga á Netinu sem auglýs-
ingamiðli. Búist er við því að
þau fari inn á vefinn sem aug-
lýsendur en sú þróun mun
sennilega taka nokkurn tíma.
Það fyrirtæki sem hefur feng-
ið mestar auglýsingatekjur á
Netinu í ár er Netscape en talið
er að fyrirtækið hafi fengið um
700 miljónir króna í auglýsinga-
tekjur af heimasíðum sínum.
Aðstandendur leitarvéla eins og
Yahoo, Lycos og Excite koma
þar á eftir enda hafa leitarvélar
tekiö mikið til sín af auglýs-
ingatekjur frá upphafi.
Umsjón
.Inn Hniríar Þnrstfiinssnn
Barnaklámsleikhús heimsins
- sums staðar er stríð á netinu, segir Kristín Jónasdóttir
Netið algengasti
dreifingarmatinn
Kristín segir að lögreglumennirnir hafi sagt
netið vera algengasta dreifingarmáta barnakl-
áms í heiminum í dag. „Tyler benti á í fyrirlestri
sínum að barnaníðingar hefðu alla tíð nýtt sér
nýjustu tækni við að svala ónáttúru sinni. Notk-
Kristín Jónasdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla, sat nýlega ráöstefnu gegn kynferðislegri misnotkun
á börnum. Þar var mikið rætt um netið og notkun barnaníðinga á því.
un á netinu og myndbreytingar með
tölvum eru nýjasta dæmið um það,“
segir Kristín. Hún segir að barnakl-
ám sé hættu-
legt þar sem
líklegt er að
það reki fólk
með ónáttúru-
legar kenndir til
frekari aðgerða.
,Þetta er eins og
með klám almennt,
það var sagt að það
myndi duga mönnum
en sú varð
ekki
raunin.
Við
þetta eru menn hræddir varðandi barnaklámið
nú,“ segir Kristín.
Barist á netinu
Kristín segir að á netinu sjálfu fari fram hörð
barátta milli barnaníðinga og þeirra sem vilji
stöðva þá. „Tyler sagði frá því að þeir sem berðust
gegn þeim „hökkuðu" sig inn á síður með
barnaklámi og skemmdu þær. Sums staðar er stríð
á netinu. Hann hefur barist gegn kynferðislegu of-
beldi gegn börnum í 15 ár. Hann er sjálfur tölvuá-
hugamaður og hefur barist gegn vafasömum sið-
um í frítíma sínum. Einnig hefur hann kennt öðr-
um lögreglumönnum vestanhafs baráttuna gegn
barnaklámi á netinu," segir Kristín. Hún segir að
á ráðstefnunni hafi komið fram að tölvupóstur sé
einnig notaður til að dreifa barnaklámi. „Þar er
mikið sent af myndum fram og til baka“
Baráttan er erfið
Störf Tylers gegn barnaklámi á Internetinu fel-
ast yfirleitt í því að hann fer inn á slíkar síður og
ef einhver hefur samband við hann og býður hon-
um bamaklám þykist Tyler hafa áhuga. Þá hefrn’
hann samband við seljandann og leiðir hann í
gildru. „Oft er samt erfitt að komast að því hver
setur hvað inn á netið. Þar mun vera auðvelt að
fela sig enda er áræðni þessara manna að
aukast," segir Kristín. Hún segir að netið sé sí-
fellt meira notað í því skyni að koma á
,stefnumótum“ þar sem barnaníðingar kom-
ast í samband við fórnarlömb sín. „Hér er
um vændi að ræða og Tyler notar svipaðar
aðferðir við að stöðva slíkt,“ segir Kristín.
Stóriðnaður
Hún segir að fyrst núna séu menn að
vakna til meðvitundar um að þetta sé
meiri háttar iðnaður og baráttan sé senni-
lega mjög erfið „Það verður að reyna að
halda þessari glæpastarfsemi eins mikið
niðri og mögulegt er þó að sennilega losn-
um við aldrei við hana,“ segir hún. Að
hennar sögn er mikilvægt breið samstaða
myndist innan og milli ríkja um að
stöðva barnaklám. „Hér er um að ræða
lögreglu, almenning og þá sem starfa við
að miðla og selja netþjónustu. í Banda-
rikjunum starfa starfsmenn fyrirtækja
sem miðla netþjónustu í sjálfboðavinnu
við að koma auga á sóðalegar vefsíður.
Þetta virtust lögreglumennirnir telja að
væri árangursríkasta aðferðin" segir
Kristín að lokum. -JHÞ
Oftar en ekki er
fjallað um skugga-
hliðar netsins. Hing-
að til hefur umræð-
an yfirleitt snúist um
klám og ofbeldi fullorð-
ins fólks. Nú eru menn
að vakna upp við þá
óþægilegu staðreynd að net-
ið er vettvangur barnaníð-
inga sem nota það til að
stunda ónáttúru sína. Þetta erf-
iða mál var meðal annars rætt á
ráðstefnu gegn kynferðislegri mis-
notkun á börnum sem lauk nýlega í
Svíþjóð og Kristín Jónasdóttir, fram-
kvæmdastjóri Barnaheilla, sat.
Heimurinn einn markaður
„Það kom í ljós á ráðstefnunni að
barnaklám og barnavændi verður sífellt al-
gengara. Aðalástæðan er talin vera sú að
heimurinn er að verða að einu þorpi. Mark-
aðir hafa opnast og það er auðveldara fyrir
fólk að fara milli landa en áður. Almennt er
þessi alþjóðavæðing, sem netið er hluti af,
talin vera jákvæð þróun en henni fylgja líka
afar dökkar hliðar," segir Kristín
Netið er áhrifavaldur
Kristin segir að netið og tölvutækni hafi
auðveldað barnaníðingum lífið. Þar er algengt
að klámmyndir af börnum séu falsaðar. „Ég
sat fyrirlestra tveggja lögreglumanna, Toby
Tyler frá Bandaríkjunum og Michael Hawkins
frá Bretlandi, og þeir segja að oftar en ekki
finni barnaníðingar venjulegar ljósmyndir af
börnum og þeir skeyti barnaandlitum á nakta
líkama sem þeir finna í venjulegum karlablöð-
um. Með tölvutækni er síðan líkömunum breytt
þannig að um börn virðist að ræða. Reyndar
töldu lögreglumennirnir, sem Kristín hlýddi á,
að megnið af því barnaklámi sem væri að finna
á netinu væri falsað á þennan hátt. Þar með er
kominn möguleiki á því að fólk gæti rekist á
slíkar myndir með andlitum barna sinna. Tyler
kallaði meira að segja netið barnaklámleikhús
heimsins," segir Kristín.
Hin kraftmikla körfu-
boltahetja ShaquiUe
O’Neill eða bara Shaq hef-
ur sett upp sina eigin vef-
síðu þar sem hann kynnir
sjálfan sig og NBA- bolt-
ann. Slóðin þangað er ein-
faldlega Shaq.com
Allt um Shaq
Shaquille O’Neill er
ekki einungis körfubolta-
kappi af bestu gerð heldur
er hann einnig liðtækur
rappari og kvikmynda-
leikari. Á síðunni er hægt
að skoða ítarlega umfjöll-
un hans á kvikmyndasvið-
inu en þar er helst að
nefna þegar hann lék í
myndinni Blue Chips
með Nick Nolte hér um Hér er Shaquille O’Neill aö kynna heimasíðu sína á netkaffihúsi
Körfubolta-
veisla
Ef svo ótrúlega
vill til að menn
hafi einungis
áhuga á körfubolta-
ferli Shaq eða
NBA-boltanum yf-
irhöfuð þá er
heimasíða körfu-
boltakappans alger
veisla fyrir þá. Á
síðunni má spila
körfuboltaleik þar
sem notandi síð-
unnar setur upp
sitt eigið körfu-
boltalið og stjórnar
því í gegnum ref-
skák NBA-deildar-
árið. Einnig má skoða nokkru 1 New York ° dögunum. Slóöin inn á heimasíðu kappans er jnnar par er ejnnig
þær auglýsingar sem goð- shaq.com
ið hefur leikið í. Shaq hefur starfað mikið að góðgerðar-
málum og nú um stundir starfar hann mikið fyrir sam-
tökin RIF sem berjast fyrir því að fólk læri að lesa.
Hafi vefsíðuflakkarar meiri áhuga á Shaq sem rapp-
ara og tónlistarmanni geta þeir hlustað á tónlist hans á
netinu og lesið allt um afrek hans á því sviði.
safnað miklu af upp-
lýsingum um staðtölur ýmiss konar eins og siður er í
bandarískum íþróttum.
Einnig er hægt að komast inn á heimasíðu styrktar-
aðila Shaqs, Sportsline.com sem fjallar um amerískar
íþróttir frá a-ö.
-JHÞ
Það er uppselt á þá. Mjög heit sveit.
http://www.parlaphone.co.uk/
Tomahawk stýriflaugar
Er einhver að koma inn um glugg-
ann þinn? http://fedix.fi-
e.com/defense.htm
Eraser
Arnold er heitur, flott að myndin
hans gætj heitið „strokleður" á ís-
lensku. http://movies-onl-
ine.com.sg/filminfo/eraser/
Geitungar
Sífellt til leiðinda. http://ca-
irns.aust.com/environ/hazards.htm
Heilsufæði
Ekkert kólesteról, ekkert bragð og
þaö er ósaðsamt.
http://www.response-
net.com/cnc.htm
írak
Sennilega vonlaust að ferðast þang-
að núna. http://adagent.com/tra-
vel/iraqa.html