Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1996, Blaðsíða 64

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1996, Blaðsíða 64
Alla laugardaga Vertu viðbúin(n) vinningil FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 26)(27)(28) KIN m550 5555 Frjálst,óháð dagblað LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1996 Fegurðarsamkeppni karla: Linda P. til Tyrklands að dæma í Herra heimur - keppnin sýnd á Sky „Jú, ég er að fara vegna keppninn- ar Herra heimur. Mér finnst þetta mikill heiður fyrir mig og er mjög ánægð. Ég hlakka mikið til að fara. Keppnin verður haldin í Istanbúl þann 16. september. Ég verð þar í eina viku og er á fullu núna í einka- þjálfun og það er verið að sauma á mig kjóla. Það verður mikið í kring- um þetta,“ sagði Linda Pétursdóttir sem er ein af fjórum fyrrverandi ungfrú heimur sem hefur verið boð- ið að dæma í herrakeppninni í Tyrk- landi um miðjan september. Linda sagði að sömu aðilar og standi að keppninni Ungfrú heimur sjái um keppnina Herra heimur. Hjónin Julia og Erik Morley hafa reyndar boðið Lindu að gista hjá sér í London að lokinni keppninni. Henni verður sjónvarpað um allan heim á Sky sjónvarpsstöðinni. Þrjár fyrrverandi ungfrú heimur, frá Jamaíku, Puerto Rico og Venesú- ela munu dæma með Lindu. Hún sagðist ekki vita nákvæmlega enn þá - tneð hvaða sniði keppnin yrði. Hins vegar sagðist hún vita til þess að ekki væri um að ræða „vaxtarrækar- keppni" og að keppendur væru ým- ist úr atvinnulífinu eða nemendur. -Ótt Æfingaskóli KHÍ: Geitungar réðust á heilan bekk - 3 nemendur stungnir Geitungar réðust á 11 ára krakka í fimmta bekk Æfíngaskóla Kenn- araháskólans og kennara þeirra með þeim afleiðingum að a.m.k. þrir nemendur voru stungnir. At- vikið átti sér stað á lóð skólans í frí- mínútum í fyrradag. Stungurnar reyndust ekki alvarlegar. Steinunn Helga Lárusdóttir skóla- stjóri sagði við DV að krakkamir hefðu vitanlega orðið hræddir. „Svæðið í kringum skólann er dýrmætt fyrir börnin. Þau nota það til vettvangsferða og slæmt ef það orðspor kemst af svæðinu að ekki sé farandi þangað út vegna skordýra sem stinga,“ sagði Steinunn. -bjb Ekið á konu Ekið var á konu á reiðhjóli á Ak- ureyri i gær. Bíll ók út af bílastæði við íbúðarhús við Smárahlíð og konan kom hjólandi á gangstétt ineðfram því. Runnar byrgðu kon- unni sýn og skall hún á bílnum. Hún meiddist aðeins lítiilega. -sv ENGIR PELAR í RÉTTUNUM? HEIMUR VER5NANDI FER! L O K I Mikil fólksfækkun á Fáskrúösfiröi aö undanförnu: Nær tíundi hver íbúi flutt á síðustu níu mánuðum segir Eiríkur Stefánsson, fulltrúi í hreppsnefnd DV, Fáskrúðsfirði: „Við höfum verið aö fara yfir íbúaskrá hérna nokkrir og það kemur í ljós að 60 manns eru farn- ir héðan á síðustu 9 mánuðum. Hluti ástæðu þess að fólk fer héð- an er gjaldþrot Goðaborgar og önnur ástæða er sú að lífsskilyrði eru miklu betri í Reykjavík. Það er miklu lægra verð á matvörum og lægra orkuverð. Það þýðir að fólk getur lifað þar af lágum laun- um. Þess vegna flytur fólk héð- an,“ segir Eiríkmr Stefánsson, fulltrúi í minnihluta hreppsnefnd- ar og formaður verkalýðsfélags- ins á staðnum, um gífurlega fólks- fækkun sem hann segir hafa orð- ið á síðustu mánuðum. Eirikur segir að fækkunin samsvari því að nærri 10. hver íbúi hafi flutt búferlum. Hann segir ljóst að ástandið sé víðar erfitt á lands- byggðinni og nauðsynlegt að tek- in verði upp hreinskilin umræða um það sem er að gerast á lands- byggðinni almennt. „Það er tilhneiging hér til að fela vandann. Þeim sem segja sannleikann um þau mál sem snúa að fólksflótta er sagt að þegja. Siðan halda menn því fram að allt sé í blóma. Þá á að fela þetta og menn vilja að þetta sé feluleikur," segir hann. Eiríkur segir það vera hvað al- varlegast að fólk sem hefur menntað sig sest ekki að á lands- byggðinni, einfaldlega vegna þess að það fái ekki vinnu við sitt hæfi. „Það er hægt að segja fólki að það sé dásamlegt að vera hér en þá er spurt um atvinnu. Á ég að segja fólki sem hefur eytt stórum hluta ævi sinnar í að mennta sig að það sé nóg að gera í fiski eða það vanti afgreiðslumann í kaup- félagiö fyrir 65 þúsund krónur á mánuði. Það gengur einfaldlega ekki upp,“ segir Eiríkur. „Það verður að fjölga hér störf- um og auka fjölbreytni t.d. í iðn- aði þar sem menntun þessa fólks nýtur sín. Ef það verður ekki gert þá er ekkert til ráða. Ríkisvaldið hefur brugðist í þessu og það leið- ir tO þess að tækifærin eru öll á suðvesturhorninu og þangað leit- ar fólkið,“ segir Eiríkur. -rt Þegar haustar er frelsi sauðkindarinnar að baki og fé smalaö til byggða. Það var mikið um að vera í Fossrétt í Skaft- árhreppi í gær, enda fyrstu réttir haustsins. Bændur eru ánægðir með hversu vænt féð er eftir sumarið. Hér má sjá Jóhann Þorleifsson, bónda á Breiðabólstað, innan um fé sitt. DV-mynd ÞÖK Veðrið á morgun og á mánudag: Gola eða kaldi lengst af Búist er við vestan- og norðvest- anátt, lengst af verður gola eða kaldi en þó gæti orðið nokkuð hvassara um tíma á sunnudag. Það verður skýjað og skúrir vest- anlands og í útsveitum fyrir norð- an en bjart veður á Austur- og Suðausturlandi. Þar verður einnig hlýjast en hitinn mun ná allt að 17 stigum. Veðrið í dag er á bls. 61 Tryggingaútboð FÍB: Trygginga- félögin kæra í Samband ísl. tryggingafélaga hef- ur í tvigang kært til Vátryggingaeft- irlitsins formsatriði í sambandi við útboð Félags ísl. bifreiðaeigenda á bflatryggingum félagsmanna. Nú er til afgreiðslu hjá eftirlitinu kæra um hvort umboð það, sem FÍB hef- ur fengið frá félagsmönnum sínum til að segja upp tryggingunum fyrir þeirra hönd, standist lög og sé gilt. Kæran byggir á því að bllaeigend- ur verði að skila uppsögnum á tryggingum sínum inn í síðasta lagi einum mánuði áður en nýtt ið- gjaldatímabil hefst til að uppsögnin sé gild og viðkomandi geti skipt um tryggingafélag. Á hinn bóginn hafi Lloyd’s ekki lagt fram gjaldskrá og ekkert liggi því fyrir naglfast um það hvort eða hvers konar trygging- ar verði í boði né gjaldskrá. „Þetta er enn ein veikburða tfl- raunin tfl þess að tefja fyrir málinu og drepa á dreif með orðhengils- hætti. í raun er furðulegt að vá- tryggingafélögin láti sér detta í hug að reyna með þessum hætti að hindra neytendur í því að eiga eðli- legt val og leita bestu kjara í bíla- tryggingum. Viðbrögð þeirra öll koma í sjálfu sér ekki á óvart, en maður hefði nú búist við meiri fag- mennsku af þeirra hálfu að óreyndu,“ sagði Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, við DV. „Til þessa höfum við ekki talið neitt athugavert við útboð FÍB, en við höfum kallað eftir nánari upp- lýsingum frá þeim,“ segir Helgi Þórsson, deildarstjóri hjá Vátrygg- ingaeftirlitinu, við DV. -SÁ Fossrétt: Græt ekki vasapelana -Brook B (fompton g RAFMOTORAR Pouben Suðurlandsbraut 10. S. 568 6499 SS O » C* I 533-1000 r Kvöld- og helgarþjónusta i í i í i i tvígang é hanrl Isl trvppinpafplapfl hef- ! i i i - segir bóndinn á Fossi „Það er enn sami sjarminn yfir þessu þó auðvitað hafi margt breyst. Vasapelarnir eru til dæmis alveg hættir að sjást en ég græt það ekki,“ sagði Ólafía Davíðsdóttir, bóndi að Fossi í Skaftárhreppi, þegar DV ræddi við hana þar sem hún var við fyrstu réttir ársins í Fossrétt. Ólafía segir að fé hafi fækkað mikið í hreppnum á undanförnum árum. Nú sé sami flöldi i Skaftár- hreppi, sem samanstendur af fimm hreppum, og var í Hörgslands- hreppi, einum gömlu hreppanna, fyrir 10 árum. Alls eru um 10 þús- und fjár í Skaftárhreppi og segir Ólafía að fé komi vænt til byggða eftir sumarið. -rt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.