Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1996, Blaðsíða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1996
Fréttir_____________________________________________________________________________________x>v
Sjö Súðvíkingar hafa kært Almannavarnir til rikissaksóknara:
Segja að röng viðbrögð
hafi leitt til manntjóns
- hús á skilgreindu hættusvæði ekki rýmt fyrir snjóflóðið
„Hús foreldra minna, Nesvegur 7,
var á skilgreindu hættusvæði, svo
miklu hættusvæði, að almanna-
varnanefnd Súðavikur hafði sam-
þykkt á fundi í febrúar 1990 að svæð-
ið ætti að hafa algeran forgang varð-
andi snjóflóðavamir. Foreldrar mín-
ir voru þrátt fyrir þetta ekki aövaraö-
ir né þeim gert að rýma húsið þessa
nótt og þau létu bæði lífið,“ segir
María Sveinsdóttir frá Súðavík.
María er ein sjö Súðvíkinga sem
ritað hafa rikissaksóknara bréf og
farið fram á opinbera rannsókn á
aðdraganda og afleiðingum snjó-
flóðsins í Súðavík þann 16. janúar
1995 og hvort brotin hafi verið lög
um almannavamir og lög um vam-
ir gegn snjóflóðum og skriðufóllum.
Þá er þess krafist að hinum brotlegu
verði refsað samkvæmt lögum,
verði sakir sannaðar.
Sjömenningamir hafa áður ítrek-
að gert alvarlegar athugasemdir við
aðdraganda, viðbúnað og allar að-
gerðir sem gripið var til vegna ham-
faranna í Súðavík og lýst þeirri
skoðun að lög hafi verið brotin mjög
alvarlega með þeim skelfilegu af-
leiðingum að manntjón varð af.
Þessi skoðun er ítrekuð í bréfinu til
rikissaksóknara.
I neöstu skúffu
Björk Þórðardóttir er ein þeirra
sem undirrita beiðnina til ríkissak-
sóknara um rannsókn. „Það virðist
sem þetta mál hafi átt að vera ein-
hvers staðar í neöstu skúffu, en
maður heldur alltaf í vonina um að
það komist á hreint. Það er alls ekki
hægt að vera sáttur við hvemig á
málum hefur verið tekið í sambandi
við hvað gerðist, bæði fyrir og eftir
snjóflóðin, og það held ég að þeir
sem setja sig inn í hlutina skilji vel.
Það verður að rannsaka það ofan í
kjölinn og fá skýra niðurstöðu, á
hvem veginn sem hún verður, það
verður bara að koma í ljós. Til
hvers að vera með Almannavamir,
ef enginn er ábyrgur fyrir því sem
er gert, eða látið ógert?“ segir Björk.
Önnur málsmeöferö
Sjömenningamir gagnrýna harð-
lega skýrslu Almannavama ríkisins
um snjóflóðin í Súðavík og Reyk-
hólasveit sem gerð var í byrjun
þessa árs og María Sveinsdóttir
bendir á mótsögn sem í henni sé að
fmna: Á blaðsíðu 5 í skýrslunni seg-
ir að snjóflóðahættumat fyrir Súöa-
vik hafi gert ráð fyrir því að öll efri
húsaröðin við Nesveg væri innan
hættusvæðis auk leikskólans, en lín-
an lægi að öðra leyti með fram efri
húsaröðinni við Túngötu. Þessi orð
staðfesti það að hús foreldra hennar
hafi verið innan hættusvæðis.
Á blaðsíðu 8 í skýrslunni segir
hins vegar: „Ekki verður séð af fyr-
irliggjandi gögnum að önnur máls-
meðferð hefði firrt því manntjóni
sem varð, þar eð þau hús sem lentu
í snjóflóðinu vom utan hættusvæð-
is samkvæmt gildandi hættumati."
„Þetta er bæði rangt og í mótsögn
við það sem segir á blaðsíðu 5 og
sýnir glöggt að þessi skýrsla er ekki
annað en kattarþvottur. Við höfum
leitað til dómsmálaráðherra um að
þetta mál verði rannsakað heiðar-
lega og gengið frá því þannig aö hið
sama endurtaki sig ekki í framtíð-
inni. Ráðherrann hefúr hins vegar
visað því frá sér og sjálfur bent á rík-
issaksóknara og þangað snúum við
okkur nú i þeirri von að málið verði
rannsakað ofan í kjölinn og þeir
dregnir til ábyrgðar sem ábyrgö
bám. „Það er alla vega staðreynd að
hús foreldra minna var inni á hættu-
svæði. Þau vora ekki vömð við og
þau fórust," segir María.
Slakur viöbúnaöur
í bréfi sjömenninganna til ríkis-
saksóknara segir m.a.: „Viöbúnaður
var lélegur og í engu samræmi við
lög, forsvarsmenn Almannavama
bragðust rangt við og hundsuðu
mjög alvarlegar athugasemdir sem
komu fram af hálfu yfirverkefha-
stjóra Veðurstofu íslands þessa
sömu nótt. Almannavamanefhd rík-
isins var aldrei látin vita um yfir-
vofandi hættu og afstöðu Veður-
stofu íslands í málinu og ekki held-
ur sýslumaður." -SÁ
Rannsókn á aðdraganda:
Hefur veriö hafn-
að hingaö til
- segir Ragna Aðalsteinsdóttir
Við höfum verið að reyna að fá
málið rannsakað hingað til en án
árangurs og höfum spurt hvers
vegna formaður Almannavama í
Súðavík varaði leikskólakennara
við og að skólinn ætti að vera lokað-
ur mánudaginn 16. janúar vegna
hættu. Vora þá ekki aðrir innan
sama svæðis líka í hættu?" segir
Ragna Aðalsteinsdóttir á Laugabóli
og ein þeirra sem undirrita beiðni
um rannsókn á aðdraganda snjó-
flóðanna í Súðavík.
Ragna segir að engin viðvörun
hafi verið gefin þrátt fyrir að snjó
hafi kyngt niður í þrjá sólarhringa
ofan á klaka. „Það eina sem var
ákveðið, var að halda fund í al-
mannavamanefnd kl. 8. Það passaði
vel. Þá var flóðið fallið,“ segir hún.
-SÁ
Sjö Súövíkingar hafa ritaö ríkissaksóknara bréf og fariö fram á opinbera rannsókn á aödraganda og afleiöingum
snjóflóösins í Súöavík þann 16. janúar 1995. DV-mynd Brynjar Gauti
Ráðuneytisstjóri dómsmálaráðuneytis:
Bentum þeim á ríkissaksóknara
- segir Þorsteinn Geirsson
„Ráðuneytið svaraöi sl. vor erindi
fólksins á þann veg að viö myndum
ekki krefjast frekari skýrslna af Al-
mannavömum, enda ekki þeirra
hlutverk að gera skýrslu sem hægt
væri að byggja á ákvörðun um sekt
eða sýknu manna,“ segir Þorsteinn
Geirson, ráðuneytisstjóri dómsmála-
ráðuneytisins, í samtali við DV.
Tilefni þessa svars var það að sl.
vor ritaði Hafsteinn Númason opið
bréf í Morgunblaðið til Þorsteins
Pálssonar dómsmálaráðherra þar
sem hann gerði alvarlegar athuga-
semdir við skýrslur sem Almanna-
vamir höfðu tekið saman að beiðni
dómsmálaráðuneytisins um snjó-
flóðin í Súöavík. Hafsteinn ritaði
síðan dómsmálaráðherra bréf 30.
apríl sl. þar sem hann ítrekaði at-
hugasemdir sínar og krafðist þess
að skýrsla Almannavama, sem út
kom í byrjun ársins, yrði unnin upp
aö nýju.
í svcirbréfi ráðuneytisins frá 24.
maí segir að dómsmálaráöuneytið
muni ekki hlutast til um frekari
rannsóknir eða lagfæringar á þeim
skýrslum sem unnar hefðu verið af
Almannavömum ríkisins um snjó-
flóðin í Súðavík. „í svarinu var bent
á að ef verið væri að biðja um rann-
sókn af þeim toga hvort einhver
hefði bakað sér refsiábyrgð með
saknæmri athöfn eða athafnaleysi
þá yrði það rannsókn sem ætti að
fara fram í samræmi við lög um
meðferð opinberra mála. Viö bent-
um á að ef svo væri þá skyldu þau
snúa sér til ríkissaksóknara með
kæra,“ sagði Þorsteinn Geirsson.
DV leitaði álits Hafsteins Haf-
steinssonar, formanns Almanna-
vamanefndar ríkisins, á erindi Súð-
víkinganna sjö til ríkissaksóknara.
Formaðurinn óskaði ekki eftir aö
tjá sig að svo stöddu.
Stuttar fréttir
Álag á sjúkrahúsi
Álag á bama- og slysadeild
Sjúkrahúss Reykjavíkur var það
mesta um helgina síðan læknar
hættu störfúm. Samkvæmt RÚV
komu 170 manns á slysadeildina.
Bakslag hjá SÍF
Bakslag virðist vera komið í
kaup SÍF á saltfiskverksmiðju á
Spáni. Samkvæmt RÚV hefur
fyrirtæki í Noregi keypt meiri-
hluta í verksmiðjunni upp í
skifld.
Silfur í Berlín
Kokkalandslið íslands varð í
öðra sæti í keppni um bestu
heitu réttina á Ólympíuleikum
matreiðslumanna sem haldnir
vora i Berlín um helgina. Á
morgun fer fram keppni um
besta hlaðborðiö.
Aðsókn féll
Aðsókn að Heilsuhælinu í
Hveragerði datt niður þegar
heilsugæslulæknar hættu störf-
um. Samkvæmt RÚV stóðu 40
rúm auð og ónotuð þegar verst
lét.
Sameining
Þormóður rammi á Siglufirði
og Leiti á ísafirði hafa sameinast
undir nafni Þormóðs ramma.
Hlutafé eykst í 692 milljónir
króna og kvótinn eykst um 20%.
Skorað á ríkið
Landlæknir skorar á stjóm-
völd að gripa inn í læknadeil-
una. Samkvæmt Sjónvarpinu
hafa komið upp 10 alvarleg sjúk-
lingatilfelli, þar af 2 dauðsfóll.
Ný tímamæling
Stjóm SVR ákvað I gær að
gera ítarlega endurskoðun á
nýja leiðakerfinu og bæta fúll-
trúmn vagnstjóra í svokallaðan
leiðakerfishóp þar sem tími
verður mældur upp á nýtt á öll-
um leiðum.
-bjb