Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1996, Blaðsíða 16
i6 iiiveran
i ■
Hárið og förðunin í haust:
Heilbrigt og glansandi
litað hár
„Það er lögð áhersla á að hafa
hárið ekki stíft, eins og það hefur
verið undanfarið, heldur er það lát-
ið leika laust og endamir snyrtir
með hníf til að fá í hárið líf, jafnvel
rótarpermanent ef með þarf,“ segir
Þ. Erla Halldórsdóttir, hárgreiðlsu-
meistari á Stúdíó hár og húð í Hafn-
arfirði. Með hámæringu og léttum
efnum er hárinu svo gefinn gljái
sem kallar fram frísklegt og heil-
brigt útlit.
Flestir með litað hár
„í dag em til litarefni og skol úr
náttúrulegum efnum sem gefa hár-
inu gljáa og flestir draga fram sinn
- fríkaðar greiðslur
náttúrulega hárlit með litun. Haust-
litimir era brúnir og gylltir og svo
mismunandi litatónar sem vafnir
eru í hárið. Litirnir eru settir með
ýmsum hætti, penslum, spöðum, ál-
pappír, allt eftir einstaklingnum.“
Erla segir allar hársíddir ganga í
haust.
„í sjálfu sér er ekki mikill munur
á hártískunni hjá þeim eldri og
þeim yngri. Meira máli skiptir and-
litsfall hverrar og einnar og hennar
persónulegi stíll."
Fríkaðar uppgreiðslur
„Hvað uppgreiðslur varðar eru að
koma alls konar útfærslur af óreglu-
legu hári, tjásur, vafningar, fléttur
og litlir hanakambar," segir Erla og
tekur undir þá hugmynd blaða-
manns að það gætu verið áhrif frá
Björk og öðrum poppgoðum.
Ahrif utan úr heimi?
Erla telur hártískuna mjög al-
þjóðlega. Hingað kemur hún bæði
að vestan og frá Evrópu. Frægar
fyrirsætur og poppstjörnurnar setja
alltaf sitt mark á hártískuna sem
aðra tísku.
Erla klippti og greiddi módelun-
um á síðunni hér á móti.
-saa
Herrahárið
„Blur-klipping hefur verið vinsæl undanfarið og mun verða
áfram, sérstaklega hjá yngri strákunum," segir Árni Eiríkur
Bergsteinsson hársnyrtir sem rekur Hárstofuna við Reykjavík-
urveg og vísar hér í hárgreiðslu meðlima vinsælu popphljóm-
sveitarinnar Blur.
Hnífur eða skæri
„Aðalnýjungin í herraklippingunni er að hárið er stytt og
snyrt með hníf en ekki skærum. Þannig verður hárið allt tjás-
að og tætt. I raun er þetta ekki ósvipað og að blanda kven- og
karlaklippingu saman, ýmist með rakað upp hnakkann og
skorið að ofan eða allt haft frekar loðið. Erlendis er stefnan sú
að hafa hausinn loðinn og ekki eins rakaðan og verið hefur en
íslendingar hafa verið sér á báti hvað varðar raksturinn. Rak-
aðir hausar er mjög algegnir hér en strákarnir eru þó að fatta
að það er hægt að vera með stutt hár án þess að raka það allt,“
segir Árni en hann lítur mikið til Bretlands þegar tískan er-
lendis er skoðuð því þar segir hann svo margt í gangi.
Eldri karlarnir
„Snöggt klippt hárið í hnakkann, svona klassísk herraklipp-
ing frá 1940, er það sem er að koma,“ segir Ámi. En breyta
eldri karlmenn um hártísku? Árni segir mikið um strípur hjá
eldri mönnum sem yngri. ,',Þeir láta greiða, með grófum
Loðinn haus sem Árni snyrti með hníf.
DV-mynd Pjetur
bursta, strípur í hárið þegar það er að-
eins farið að grána. Þá lítur það út eins
og þeir séu að byrja að grána en ekki er
settur heill litur í. En annars eru þeir
frekar fastheldnir á klippinguna, einn og
einn eilífðarunglingur sem er til í að
prófa eitthvað nýtt.
Ámi lítur helst til Englands þegar
kemur að hártískunni. „Ég hef gaman af
Bretanum í hárinu og tískan þaðan geng-
ur líka vel í fólk hér. Annars er fólk hér
mjög meðvitað um hvað er í tísku, sér-
staklega unga fólkið. Það þarf ekki annað
en að sjá eitthvert poppgoðið með nýja
greiðslu og þá mætir það og biður um
eins.“
Allir litir í tísku
„Á meðan permanent hefur alveg horf-
ið eru hárlitir orðnir almennir. Meira en
annar hver kúnni er með litað hár. Þeir
ungu vilja mikið röndótt hár, þykkar
strípur. Það var soldið um það i vor að
vera með brodda og setja jafnvel bláan lit
í þá,“ segir Árni.
Svo segir Ámi skeggtískuna halda
áfram. „Kleinuhringsskeggið, hökutopp-
ar og þess háttar er enn vinsælt og menn
fara stundum á stofur til að láta snyrta
það. Ungir strákar sem ekki hafa góða
skeggrót eða Ijósa koma gjarnan og láta
lita skeggið."
Að lokum spáir Ámi því að ný- róman-
tíska línan sé að koma aftur í hártísk-
unni, eins og var um 1980. Karlarnir smá-
málaðir með lítinn fjólubláan lit eða jafn-
vel hvítan í hárinu. „En það góða við
tískuna í dag er að allt er leyfilegt og tísk-
an einstaklingsbundin."
Hér á síðunni eru sýndar þrjár útfærsl-
ur Árna af herrahárinu í haust.
Árni segir nokkuð beöið um greiðslu sem kennd er við George Michael.
Svipuö klipping og unga stráksins en miklu styttri, vinsælla hjá eldri mönn-
um.
-saa