Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1996, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1996, Síða 11
T>V ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1996 íemung u Séð og heyrt í áttatíu og fimm ára afmælisblaði Háskólans, sem borið var í hús í vikunni, var prýðisviðtal við forsetann. Ræðan hans á Isafirði var líka Það ber ekki á öðru en alvöru „uppistand“ - stand-up comedy - jafnvel hið breska afbrigði henn- ar, hafi skotið rót- um hér á landi, ef marka má hlátra- sköllin sem Eddie Izzard tókst að laða fram í Loft- kastalanum á fimmtudags- og fóstudagskvöldið. Izzard hefur um nokkurt skeið verið ein skærasta stjarnan í breska hláturiðnaðinum, en heyr nú harða samkeppni við sér yngri og aggressífari skemmtikrafta. Sem er ef til vill ástæða þess að völl, að hestamennsku, breskri og íslenskri, veitingahúsamenningu, íslenskri og breskri, að tónlistar- flutningi, róm- verska heims- veldinu og þar langt fram eftir götum. Hann gerði gott grín að ýmiss konar hjá- trú og hindur- vitnum („Ef skeifur eru svona óbrigöult gæfu- merki, af hverju vinna þá ekki all- ir hestar kappreiðar?") og var fljótur að henda á lofti kjciftagang í sal eða önnur viðbrögð áhorf- enda sinna („Varstu að missa Grín Aðalsteinn Ingólfsson Af Edda kjaftaskúmi hann hefur lagst í ferðalög - World Tour - viða um lönd, þar á meðal til íslands. Izzard er ekki síst þekktur fyrir sveigjanlega afstöðu sína til kynjamismunar, það er, honum þykir jafn sjálfsagt að íklæðast kjólum og karlmannsbrókum. Sjálfur segist hann vera Wær lesbíur í karlmannsmynd. Ein- hvem veginn þannig var Izz- ard kynntur fyrir íslenskum áhorfendum i íslenskum fjölmiðlum, ' en tók skýrt fram í byrjun upptroðslunnar í Loft- kastalanum að hann væri ekki með „drag“sýningu held- ur ofur venjulegt uppistand. Farðað- ur, varalitaður og íklæddur háglans- andi leðurbrókum minnti hann helst á soldið útlifaðan auka- leikara í einni af Rómar- kvikmyndum Pasolinis eða Fellinis. Biskupasögur Izzard er ekki einn af þeim sem ryðja út úr sér hverri gamansögunni á fætur annarri heldur ger- ir hann út á gegndarlaus- an spuna, þar sem um- ræðuefnið er oftar en ekki ýmiss konar fárán- legheit í nútímanum sem fyrr en varir hafa tekið á sig enn fárán- legri myndir. Og þótt Izzard sé óspar á ákveðið enskt blóts- yrði sem byrjar á „f‘ notaði raunar „haltu kjafti" óspart - er hann ekki yfír- máta klúr. Hafandi lýst því yfir að hann ætlaði að tala úm „fingurbjargir", barst umræðan um víðan gerviaugað á gólfið, elsku vin- ur?“). Kenndur íslendingur hóf hróp og köll og fékk yfirhalningu sem hann gleymir ekki í bráð. Eitthvað hefur Izzard reynt að setja sig inn í séríslensk aðhlát- ursefni, að minnsta kosti gafst honum vel að nefna „bisk- upa“, auk þess sem hann þreifaði sig áfram með önnur vel þekkt „íslensk" um- ræðuefni: veðr- Eddie Izzard „ Eins og útlifaöur aukaleikari kvikmynd eftir Pasol- ini.“ una, trjáleysið og drykkju- skapinn, hafði þó ekki alltaf er- indi sem erfiði. Allt um það virðist þörf bæði fyrir breskt uppi- stand og Loft- kastalann. Gaman væri ef einhver tæki að sér að siga öðrum breskum kjaftaskúm- um, til dæm- is A1 Murray, Phil Jupit- us, Dylan Moran eða Phil Kay, á íslenska áhorf- endur. Birgitta Bardot - fullklædd. hressandi og fór vel í fólk sem vill helst ekki búa í Reykjavík. Auðvitað fylgist maður grannt með fyrstu skrefum nýja forsetans síns, mér líkar vel það sem ég hef séð í fjölmiðlunum, hann setur ekki upp landsfoðursvip frammi fyrir þjóð sinni, er ekki stífur af hátíðleik, hatt- laus og frakkalaus í rokinu á Vest- fjörðum, en aldrei sást fara um hann hrollur. Er beðið eftir faraldri? Ég er ekki jafn ánægð með heil- brigðisráðherrann og liðið sem hefur heObrigðismálin í sínum höndum. Og mér finnst það ekki gáfumerki hjá ráðherranum að fara í sólbað til útlanda í hálfan mánuð, eins og á stendur. Alveg sama þótt hún sé með gemsa og fax eins og flokkssystir hennar sagði í fyrrakvöld og reyndi að gera gott úr öllu saman. Heilbrigðisþjónusta liggur niðri í landinu og það er hræðilegt ábyrgð- arleysi hjá stjómvöldum. Eftir hverju er beðið? Faraldri af ein- hverju tagi? Heilu sýslumar em án læknis síns, á svipuðum slóðum fást ekki kennarar til þess að segja börn- unum til, af því við tímum ekki að borga þeim sæmileg laun. í sambandi við þetta læknaverkfall þá er ekki langt síðan sjónvarpið sýndi þátt um berkla í velferðarríkj- unum. Það voðalega land Belgía var tekið fyrir og slakri læknisþjónustu við almúgann m.a. kennt um, sama var að segja um Bandaríkin og Bret- land. Við viljum prinsessur En í léttvægari fréttum er þetta helst, að allir karlmenn sem ég um- gengst ætluðu heldur betur að horfa á Tyson boxara um helgina. En allir með tölu misstu af þessari mínútu sem beðið var eftir. Vekjaraklukkur hringdu og allt var vel undirbúið, en því miður, þeir sem ég hef talað við höfðu brugðið sér inn í eldhús eða á klóið og þegar þeir komu að sjón- varpinu sínu var allt búiö og gert. Spælandi. En það var ekkert í sjónvarpinu þessa vikuna sem höfðaði sterklega til kvenna. Mér finnst vera mikið af skrýtnu efni sem enginn nennir að horfa á. Síðdegis, alla daga vikunnar eru hræðilega leiðinlegar sápur bæði á stöð eitt og tvö og sjónvarpsmark- aðir sem eru svo leiðinlegir að það er nú bara meira. Ekki veit ég hver horfir á þá eða hvort hægt er að selja fólki draslið sem þar er á boðstólum. Mér detta í hug beikonsnúrustaurar sem hægt er að skella á borðið. Þar hangir beikonið á þerrilínum sem eru einsog dúkkuhúsamubla. Hvað með spæleggin, eiga þau bara að liggja á pönnunni áfram? Hann frændi minn, sem er ungur og nýj- ungagjam, keypti sér tæki til þess að skera niður kartöflur, hann steikti kartöflurnar með alblóðugum fingr- um, stakk tækinu í uppþvottavélina og eftir þvottinn lá leiðin út í ösku- tunnu með einnota ruslið. En það er ekki allt jafn vont. Nenni maður ekki að horfa á leiðin- legu sápumar og sjónvarpsmarkað- ina má alltaf líta í blöðin. Ég leit í Dag- Tímann í vikunni. Tölublaðið sem ég á var skrifað til þess að gleðja og þóknast Akureyringum. í mið- opnu var mynd af dönskum brussum að stíga dans í Lystigarðinum í til- efni af hundrað þrjátíu og fjögurra ára afmæli hans. Svo var mikið um skólabörn og önnur börn og hollt nesti þeirra. Ég hef haldgóða reynslu og þekkingu á hollu nesti skóla- bama, var að byrja að smyrja aftur í vikunni eftir nokk- urra ára hlé. í stuttu máli þá hefur ekkert breyst. Rúgbrauð með kínakálslufsu skreytt með graslauk og fitusnauðri lifrar- kæfu fer beinustu leið í mslafötuna í skólastofunni, franskbrauð með miklu smjöri og sultu eða súkkulað- ikremi gleður unga sál. Ég hef líka prófað að vera kennari og því er mér vel kunnugt um hvílík ógrynni af hollu skólanesti umhyggjusamra mæðra lenda i bréfakörfunni. Hvað segið þið til dæmis um þetta álegg úr Degi-Tímanum: Niðursneiddar kald- ar-kartöflur með kryddblöndu, eða kalt fiskisalat með mjög fmskomum lauk og örlitlu majónesi? Gleymdu því. En þá er að létta sér lundina og fletta „Séð og Heyrt“. Alltaf þótti manni gaman að komast í Se og Hörið danska þegar maður var krakki. Stundum tók hún amma mín það af mér af því það var í því efni sem óekkí var við hæfi barna. Birgitta Bardot ber að ofan á strönd, greinar um hryllileg framhjáhöld og ofsalega hjónaskilnaði. En svo var alltaf eitthvað fallegt inn prinsess- umar þrjár, þær vom á hestbaki eða renndu sér á skíðum og svo voru þær náttúrlega að trúlofast almennilegum mönnum. Ég var í áttræðisafmæli um dag- inn og systir afmælisbamsins stóð upp og sagði nokkur orð í tilefni dagsins. - Þannig var að fyrir nokkmm vikum héldu þær systur að þær væm allt í einu og loksins orðn- ar gáfaðar. Þær sátu saman á hár- greiðslustofu og flettu vikublöðum. Eftir góða stund segir Sigga við Viggu systur: „Það er meira hvað þeir em mikið að tala um biskupinn okkar, heilt viðtal við hann héma?“ Vigga er niðursokkin í sitt blað og svarar ekki strax. Svo lítur hún upp og segir við Siggu: „Alveg er þetta merkilegt, ég skil hvert einasta orð sem stendur í blaðinu!" Fjölmiðlar Sigríður Halldórsdóttir Furðu- leikhúsið Furðuleikhúsið er að leggja upp í sitt árstíða- bundna flakk um skóla, leik- skóla og aðra staði þar sem þörf er fyrir farandleikara. Fyrsta sýning haustsins er Mjallhvít og dvergamir sjö. í hópnum em fjórir atvinnu- leikarar sem búa til sýning- amar sínar sjálf og byggja mikið á spuna, þó að þeir fái hugmyndir eða söguþráð annars staðar að. Mörg börn muna eflaust eftir sýningu hópsins á Bé-tveim, sem var byggð á verðlaunasögu Sig- rúnar Eldjám og sýnd hjá Leikfélagi Akureyrar og í Tjamarbíói. Sú sýning verð- i ur tekin upp aftur stytt eftir áramót og löguð að flakkinu. Hópurinn hefur ekkert fast aðsetur - nema símann: Leik- skólakennarar og aðrir sem vilja fá til sín leiksýningu | geta hringt i síma 588 9412 og I 554 6271. I 1 Ný Dísa Óperan Galdra Loftur eftir Jón Ásgeirsson verður tekin upp aftur í íslensku óperunni um næstu helgi. Sem kunn- ugt er var hún mest sótta at- 1 riðið á Listahátíð í júní, en nú eru fyrirhugaðar fimm sýningar á henni. Skipt hefur verið um söngkonu í hlut- verki Dísu, Alda Ingibergs- j dóttir kemur nú í staðinn fyr- S ir Þóm Einarsdóttur, og væri enginn öfundsverður af því hlutskipti, svo sönn Dísa sem IÞóra var. Viðar Gunnarsson eykur við sig hlutverki gamla mannsins sem Bjami Thor Kristinsson söng. Aðrir söngvarar eru hinir sömu og í sumar. Draumar kynjanna Eins og allir muna varð bókin Karlar em frá Mars, konur eru frá Venus ein sölu- hæsta - eða jafnvel allra sölu- hæsta bókin á síðustu jóla- vertíð. Nú hefur Edda Björg- vinsdóttir leikari og leik- ! stjóri samið leikverk upp úr henni sem leikhópurinn Draumasmiðjan fmmsýnir Iseinna í þessum mánuði. Val- geir Skagfjörð semur tónlist- ina. í verkinu eru dregnar upp skoplegu hliðarnar á samskiptum kynjanna eins og Eddu hefur verið lagið lengi. MFA styrkir sýning- una og hún verður sýnd á vinnustöðum eftir pöntun. Umsjón Silja Aðalsteinsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.