Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1996, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1996, Síða 17
X>V ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1996 ** MUveran * ■ '•£ & „Núna er „eye linerinn“ að koma aftur en lítið um miklar skyggingar og litimir mjög sanseraðir. Þetta er mikill mimur frá þvi sem verið hef- ur og mjög skemmtileg tíska með sterkum litum,“ segir Brynhildur Stefanía Jakobsdóttir snyrtifræð- ingur en hún og Eva Ama Ragnars- dóttir, báðar á snyrtistofunni Hel- enu fögru, gefa hér Tilverulesend- um innsýn í haustförðunina. Eva er islandsmeistari i'tísku- og samkvæmisíorðun snyrtifræði- nema. Fjólublátt „Sterkfjólublátt er aðalliturinn í haust, sérstaklega í varalitum, en lögð áhersla á að hafa augun hlut- laus. Til að stækka augun er hvítur litur settur inn á augun hjá þeim yngri,“ segir Brynhildur. Augabrúnimar segir Brynhildur hvorki verða neitt sérstaklega mjó- ar né mjög dökkar heldur frekar ljósar. Þegar líður á haustið er jafn- vel búist við að aflitaðar augabrún- ir verði vinsælar en Brynhildur veit ekki hvort sú tiska nær fótfestu hér á landi, kannski hjá þeim yngstu. Ekki mikinn farða oq frekar glansandi analit „Kökumeikin em á imdanhaldi og tískan kallar á náttúrulegt útlit. Húðin á ekki að vera mjög mött heldur glansa hæfilega þannig að púðrin verða ekki mikiö notuð. Fyr- ir árshátíðir og slíkt er þó nauðsyn- legt að matta húðina vel,“ segir Brynhildur og bendir á að diskó- áhrifin séu augljós. Kinnalitir hafa ekki verið áber- andi undanfarið en Eva segir að þeir séu að koma aftur og taki við af sólarpúðrinu. „Enn ein áhrifin frá 8. áratugnum," segir hún. Þær stöllur segja glossið nú aftur hafa fengið pláss í tískunni. Á var- imar er það ýmist notað eitt sér, þá litað gloss, eða yfir varalit. Star Power, sanserað útlit „Þetta sanseraða útlit, Star Power, á augunum er mjög vinsælt en hentar auðvitað ekki eins vel þeim eldri eins og þeim yngri. Öll sansering dregur fram hrukkur. Þessir augnlitir era ekki í fostu formi heldur eins og púður,“ segir Brynhildur. Naglalakkatíska er mikil í dag og þar kemur sanseringin líka vel fram. Brynhildur og Eva förðuðu módeiin á síðunni með Make Up Forever og naglalakkið er frá Nina. -saa Greinilegt diskóútlit, þó meö nokkrum pönkáhrifum. Hér er áherslan lögö á varirnar meö glossi. Augnskuggarnir renna saman en ekki haföar skarpar skyggingar. Erla setti háriö upp í lítinn hanakamb sem undirstrikar hvaöan tískan er komin. Einn aöailitur yfir alit og áherslan lögö á umgjörö augnanna og varirnar haföar hlutlausar meö glossi sem sett er yfir brúnan varalitablýant. Ljós litur var settur i hárrótina. DV-myndir JAK Kvöldföröun. Dökkbrúnn eye-liner og rauöbrúnn varalitur meö glossi. Brúnir litir sem eru dekkri en veriö hefur á haustin. Háriö þynnti Erla meö hníf og setti í þaö djúpbrúnan iit, þrjá rauöa lita- tóna og gylltan tón. Kvenfatnaðurinn: Neongrænn kjól, stærö 36, passar vel á módeliö sem er meö barni. Sumarlegur kjóll en tilheyrir þó haustlínunni. Eftir að hafa greitt og farðað þessar þrjár konur fannst Tilverunni upplagt að forvitnast lítillega um fatatískuna og fékk verslunina Stórar stelpur til að klæða tvær þeirra upp. Verslunin Stórar stelpur er með fatnað í yfirstærðum, 42-60, en líka tækifæris- fatnað í stærðum 34-48. Rósmarý Bergmann hjá Stórum stelpum segir neon-grænan lit koma mikið í haust og karrígulan. „Svart og hvitt er sígílt en það skemmtilega við tískuna núna er hversu margir geta fengið fatnað við sitt hæfi því svo til allir litir eru í tísku. Oft er maður bimdinn við ákveðna liti, t.d. á vorin eiga sumir erfitt með að fá á sig fót í tískulitunum," seg- ir hún. Og þótt um hausttískuna sé að ræða era bjartir litir ríkjandi. Úléttar konur „Konur em hér miklu meðvitaðri um tískuna en erlendis og ófrískar konur vilja geta gengið í tísku- fatnaði. Það er erfitt að kaupa inn þannig fatnað en mikið er um leggings og skokka," segir Rósmarý. -saa Dragt í yfirstærö i dempuöum grænum lit og karrígul blússa undir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.