Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1996, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1996, Síða 18
k\\\V\\\\\\\VV\ 18 ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1996 ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1996 23 Iþróttir Golf: Yfirburðir hjá Tryggva Tryggvi Traustason, GK, vann yfirburðasigur á opna íslands- bankamótinu í golfí sem lauk um síðustu helgi hjá Golíklúbbi Kópavogs og Garðabæjar. Tryggvi lék á 75 höggum en Óli Laxdal, GKG, varð annar á 80 höggum. Jón Ólafsson, GR, vann bronsverðlaun á 83 högg- um. Arnar Jónsson, GO, sigraþi í keppni með forgjöf á 62 höggum. Einar K. Hermannsson, GKG, kom næstur á 63 höggum og þeir Ríkharður Hrafnkelsson, GMS, og Bjöm Bjömsson, GR, léku á 70 höggum. -SK Þröstur vann Birgi Leif Þröstur Ástþórsson, GS, bar sigur úr býtum á opna Bláa lóns- mótinu í golíi um síðustu helgi. Mótið fór fram á Hólmsvelli í Leiru. Þröstur lék 18 holurnar á 73 höggum, en annar varð ís- landsmeistarinn, Birgir Leifur Hafþórsson, GL, einnig á 73 höggum. Þeir þurftu að leika bráðabana um sigurinn og þá hafði Þröstur betur.' Ævar Örn Hjartarson, GS, varð í þriðja sæti á 74 höggum. Þórhallur Óskarsson, GSG, varð sigurveg- ari með forgjöf og lék á 67 högg- um nettó. Þetta var þriðja Bláa lónsmót- ið í sumar. Sigurvegari í mótun- um þremur samanlagt varð Helgi Birkir Þórisson, GS, með 5 stig. Þórhallur Óskarsson, GSG, sigraði samanlagt í keppninni með forgjöf og hlaut 40,3 stig. -SK/-ÆMK Körfubolti: Þrír sigrar stelpnanna í Skotlandi íslenska unglingalandsliðið í körfuknattleik kvenna, skipað leikmönnum 16 ára og yngri, lék þrjá leiki í Skotlandi um síðustu helgi. Á föstudag mætti liðið skosku meisturunum í Polonia i flokki 18 ára og yngri og sigraði 62-21. Á laugardag lék íslenska liðið gegn 16 ára landsliði Skota og sigraði 83-54. Þriðji og síðasti leikur ís- lenska liðsins var gegn liöi Skota sem var skipað leikmönnum sem eru 17 ára gamlir. Er skemmst frá því að segja að yfirburðir íslands voru miklir og lokatölurnar 90-32. -SK Körfuboltalið KR hefur orðið fyrir áföllum: Ólafur og Ósvaldur úr leik í vetur Úrvalsdeildarlið KR-inga í körfuknatt- leik hefur orðið fyrir miklu áföllum að undanfórnu. Ljóst er að þrír lykilmenn frá því í fyrra verða ekki með og sá fjórði úr tíu manna hópi er einnig horfinn á braut. Tveir af bestu mönnum liðsins í fyrra, Ósvaldur Knudsen og Ólafur Jón Ormsson, hafa orðið fyrir slæmum meiðslum og þurfa að taka sér hvíld i vetur. Ósvaldur, sem skoraöi 25 stig að meðaltali í síðustu 7 leikjum KR-inga í deildinni í fyrra, sleit liðband í hné fyrir skömmu og ljóst er að hann verður ekkert með. Ólafur Jón hefur átt við þrálát meiðsli í baki að stríða, þau kostuðu hann hálft tímabilið í fyrra og ekki eru horfur á að hann geti leikið í vet- ur. Lárus þjálfar ÍS Þá hefur Lárus Ámason, bakvörðurinn reyndi, gengið til liðs við 1. deildar lið Stúdenta sem þjálfari og leikmaður. Enn fremur er Tómas Hermannsson farinn til 1. deildar liðs Snæfells. í staðinn hefur KR fengið landsliðs- manninn Hinrik Gunnarsson frá Tinda- stóli og bandaríska leikmanninn Champ Wrencher frá Þór í Þorlákshöfn. Jónatan Bow er orðinn íslendingur og leikur áfram með liöinu. Þá er Birgir Mikaelsson kom- inn heim frá Breiðabliki eins og sagt var frá í DV I gær. Góöar fréttir sem ég las í DV „Hópurinn leit vel út hjá okk- ur til skamms tíma en það var mikið áfall að missa þessa sterku leikmenn. Það era hins vegar góðar fréttir sem ég las í DV að Birgir væri á leiðinni heim, það eru svo sannarlega not fyrfr hann,“ sagði Benedikt Guð- mundsson, þjálfari KR-inga, í spjalli við DV í gær. -VS Kvennalandsliðið missir tvo leikmenn: Helga og Margrét verða ekki með Ljóst er að tveir fastamenn úr ís- lenska kvennalandsliðinu í knatt- spymu verða ekki með þegar það mætir Þjóðverjum í Evrópukeppni landsliða hér á landi þann 18. sept- ember. Helga Ósk Hannesdóttir er með slitið krossband og Margrét Ólafsdóttir þarf að gangast undir að- gerð á hendi og verður ekki tilbúin í þennan leik. Margrét verður hins vegar vænt- anlega með í síðari leik þjóðanna sem fram fer í Þýskalandi 29. sept- ember en Helga missir líka af hon- um. Þær hafa báðar verið í byrjun- arliði íslands í öllum landsleikjum ársins. Þá er ólíklegt að Olga Færseth geti tekið þátt í leikjunum en hún tognaði illa á hné fyrir skömmu. -ih/VS Derby gerði góða ferð á Ewood Park Derby County vann góðan sigur á Blackburn Rovers á Ewood Park í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöldi og með þessum leik lauk þar með 5. umferð. Ron Willems færði gestunum óskabyrjun strax á 1. mínútu leiks- ins. Það var gegn gangi leiksins sem Blackburn jafnaði og var Chris Sutton þar að verki á 11. mínútu. I síðari hálfleik jafnaðist leikurinn en fimm mínútum fyrir leikslok skor- aði Sean Flynn sigurmark Derby og var það sérlega glæsilegt. Derby er í 12. sæti með 6 stig en hvorki gengur né rekur hjá Blackbum, liðið enn án sigurs með eitt stig f 19. sæti. -JKS Skíðadeild Fram Haustæfingar hefjast þriöjudaginn 10. sept. Mæting í Laugardalnum milli stúku og sundlaugar. Skráning á staönum. Æfingar á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17.30. Nýir félagar velkomnir. Upplýsingar í síma 557 1210, 557 4671, 588 9820 og 561 7122. gegn AIK i, Þú getur unnið stúkumiöa 1 á Evrópuleik KR og AIK í skemmtilegri knattspyrnu- getraun í síma 904 1750. pÍmii__ -si’ 904*1750 •Verð aðeins 39,90 mín. Tekur Venables við liöi QPR? Senn líður að því að kynntur verði nýr framkvæmdastjóri hjá enska 1. deildar liðinu QPR í stað Ray Wilkins sem hætti á dögunum. Sá sem er talinn líklegastur til að taka við af Wilkins er Terry Venables, fyrrverandi landsliðs- þjálfari Englendinga. Aörir sem nefndir hafa verið eru George Graham og Ray Harford. -SK Steve Stone alveg úr leik? Nottingham Forest varð fyrir miklu áfalli í enska boltanum um síðustu helgi er einn besti leikmaður liðsins, enski lands- liðsmaðurinn Steve Stone, meiddist illa á hné í leik Forest gegn Leicester. Stone var skorinn upp í gær og spilar ekki fyrr en í fyrsta lagi eftir áramótin og er það gríðarlegt áfall fyrir Forest. „Það er harla ólíklegt að Stone spili meira með á þessu tímabili og það er auðvitað mjög mikið áfall fyrir okkur,“ sagði Frank Clark, framkvæmdastjóri Forest. -SK Blackburn á eftir Dahlin og Bierhoff Forráðamenn Blackburn Rovers leita nú logandi ljósi að eftirmanni Alans Shearers. Liði Blackburn hefur gengið mjög illa og er við botn úrvals- deildarinnar. Harford, stjóri Blackbum, er að reyna að fá Þjóðverjann Oliver Bierhoff eða Svíann Martin Dahlin til félags- ins til að hressa upp á sóknar- leikinn. -SK NBA-deildin: Chicago spáö meistaratitli Michael Jordan og félögum í Chicago Bulls er spáð sigri í NBA-deildinni í körfuknattleik og kemur það eflaust mjög fáum á óvart. Bulls er efst á blaði hjá stóru fyrirtæki sem lætur fóik veðja á úrslitin. Ef þetta gengur eftir verða það Chicago Bulls og Los Angeles Lakers sem leika til úr- slita um meistaratitilinn því LA Lakers er spáð öðru sætinu. Veldur þar eflaust mestu koma Shaquilles O’Neals til liðsins. Það verður svo Seattle Superson- ics sem hreppir þriðja sætið ef allt gengur eftir. -SK ■ Iþróttir Schmeichel kyrr Peter Scmeichel, mark- vörður Manchester United, hefur ákveðið að taka ekki tilboði danska liðsins Hvidövre um að gerast þjálf- ari og leikmaður eftir næstu leiktíð. „Ég ætla að leika með United næstu tvö árin en það var samt mikill heið- ur fyrir mig að fá þetta til- boð,“ sagði Schmeichel. Fjortoft á förum Svo gæti farið að norski landsliðsmaðurinn Jan Age Fjortoft væri á forum frá Middlesboro til Sout- hampton. Fjortoft kom til Middlesboro 1995 en hefur ekki tekist að vinna sér sæti í liðinu. Seaman ekki með Litlar líkur eru taldar á því að David Seaman verði í marki Arsenal, sem mætir þýska liðinu Borussia Mönchengladbach í Evrópu- keppninni í kvöld, vegna meiðsla. Real Betis sigraði Real Betis sigra Extrem- edura, 0-3, á Spáni í gær. -JKS Osvaldur Knudsen lék mjög vel meö KR-ingum í fyrravetur, sérstaklega seinni hluta tímabilsins, og þaö er því mikiö áfall fyrir þá að hann skuli ekki spila meö þeim á komandi tímabili. DV-mynd Brynjar DV telur markskotin í 1. deildinni í knattspyrnu: Skagamenn skjóta mest á markið - Suðurnesjaliðin hafa ógnað mótherjunum minnst Skagamenn virðast vera með mark- sæknasta lið 1. deildarinnar i knatt- spymu í sumar - að minnsta kosti skjóta þeir oftar á mark mótheijanna en önnur lið í deildinni. íþróttafrétta- menn DV hafa talið markskot liðanna í hverjum leik í sumar og það er fróðlegt að kíkja á þær tölur þegar 15 umferðir af 18 eru búnar. Skagamenn eru með nokkra forystu á næsta lið, ÍBV, eins og sjá má á töfl- unni hér til hliðar. Það era síðan Suð- umesjaliðin sem hafa átt fæst mark- skot í sumar, Grindavík einu skoti meira en Keflavík. KR með langbestu nýtinguna Ef litið er á nýtingu markskotanna standa hins vegar KR-ingar upp úr. Þeir hala skorað úr 35 skotum af 188 sem er 18,6 prósenta nýting, tæpum fjórum prósentustigum meira en næstu lið, Leiftur og ÍA. Valsmenn em með slökustu nýtinguna og þeir hafa líka skorað fæst mörk í deildinni. Það er hins vegar athyglisvert að Keflavík, sem hefur átt fæst markskotin, er með flmmtu bestu nýtinguna. Stjarnan átti 25 markskot gegn Grindavík Stjörnumenn hafa átt flest skot í ein- um leik í sumar en þeir skutu 25 sinn- um á mark Grindvíkinga þegar liðin skildu jöfn, 2-2, í fjórðu umferð 1. deild- arinnar. Skagamenn koma næstir en þeir skutu 24 sinnum á mark Fylkis- manna þegar þeir sigruðu þá, 3-2, í sjöttu umferð. Fylkismenn eru þess vafasama heið- urs aðnjótandi að hafa átt fæst mark- skot i einum leik. Þeir skutu aðeins þrí- vegis á mark KR-inga í 14. umferöinni en þeim leik lauk samt með jafntefli, 1-1. Góð nýting það. Markskotin í 1. deild: Félae Markskot Meðaltal Mörk Nvtine ÍA (1) 232 15,5 34 14,7% ÍBV (4) 206 13,7 27 13,1% Leiftur (3) 190 12,7 28 14,8% KR (2) 188 12,5 35 18,6% Fylkir (8) 182 12,1 21 11,5% Stjarnan (5) 171 11,4 19 11,1% Breiðablik (9) 145 9,7 15 10,3% Valur (6) 134 8,9 13 9,7% Grindavík (10) 126 8,4 15 11,9% Keflavík (7) 125 8,3 15 12,0% Eyjamenn sókndjarfastir í seinni umferöinni Eyjamenn virðast vera sókndjarfasta liðið í deildinni í seinni umferð deildar- innar. í síðustu 6 umferðunum hafa þeir átt 96 markskot, eða 16 að meðal- tali í leik. Á sama tíma hefur Vals- mönnum gengið verst að ná skoti á mark mótheijanna, aðeins 48 sinnum, eða 8 sinnum í leik. Þar af hafa þeir að- eins skotið 18 sinnum á mark í síðustu þremur leikjunum. Hér fýrir neðan má sjá tímabilið hjá hverju liði fýrir sig þegar markskotin era talin saman í þremur umferðum í senn og þar sést því hverjar sveiflum- ar hafa verið hjá liðunum á tímabilinu. -VS Markskotin í 1. deild: Umferðir: 1-3 4-6 7-9 10-12 13-15 ÍA 45 46 58 37 46 ÍBV 40 30 40 45 51 Leiftur 37 38 38 42 35 KR 37 37 47 30 37 Fylkir 46 31 35 43 27 Stjarnan 32 47 38 25 29 Breiðablik 29 23 28 27 38 Valur 19 34 33 30 18 Grindavík 23 27 17 30 29 Keflavík 23 22 26 27 27 Þýski handboltinn hefst um helgina: „Vonandi spennandi vetur fram undan“ - segir Dagur Sigurðsson hjá Wupperthal „Það hefur verið meira en nóg að gera á undirbúningstímabilinu. Við höfum æft eins og skepnur og ég held að megi segja að liðið mæti vel undirbúið til leiks. Ég kann mjög vel við mig hér í Þýskalandi og það er ljóst að slagurinn um sæti í úr- valsdeildinni verður mjög harður. Við getum örugglega sagt að vetur- inn fram undan verður spennandi og skemmtilegur en við rennum blint í sjóinn,“ sagði Dagur Sigurðs- son landsliðsmaður hjá þýska 2. deildar liðinu Wupperthal. Auk Dags leika Ólafur Stefánsson og Rússamir Dimitri Filippov og Mikahel Vasiliev með liðinu og Viggó Sigurðsson er þjálfari. 2. deildinni er skipti í tvo riðla, suður og norður, og í hvorum þeirra leika 18 lið. Erlendir leikmenn hafa flætt inn í þýskan handbolta og leika að meðaltali 3-4 erlendir leik- menn með hverju liði. Tíu íslenskir leikmenn leika með liðum í Þýska- landi í vetur. Wupperthal er spáð 3. sæti í norð- ur-riðli en Bad Schwartau er sett í fyrsta sætið. -JKS Leeds United tók erfiða ákvörðun: Wilkinson látinn fara Howard Wilkinson, framkvæmdastjóra Leeds United, var sagt upp störfum hjá félaginu i gær. Þessi uppsögn hefur þó nokkum aðdraganda en stórt tap gegn Manchester United á heimavelli um síðustu helgi var þó komið sem fýllti mælinn. Liðið hefur þótt leika illa það sem af er tímabilinu og Wilk- inson mjög valtur i sessi. Þessi brottvikning kom af þeim sökum ekki á óvart. Wilkinson var mjög óánægður með ákvörð- un stjómarinnar og sagðist ekki sjá að tapið gegn Manchester United hefði verið ástæðan- fyrir brottrekstrinum „Það býr eitthvað annað að baki. Ég sá fyrir mér að hægt yrði að koma liðinu á rétta braut. Meiðsli leikmanna hafa sett strik í reikninginn i gengi liðsins," sagði Howard Wilkinson við fréttamenn í gær. Undir stjórn Wilkinsons varð Leeds Englands- meistari 1992. Bill Fotherby stjómarformaður sagði ákvörðunina hafa verið erflða en hjá henni hefði ekki verið komist. Wilkinson er fjórða stóra nafnið í ensku knatt- spyrnunni sem vikið hefur verið úr starfi framkvæmdastjóra á síðustu vikum. Bruce Rioch, Arsenal, Ray Wilkins, QPR, og Alan Ball hjá Manchester City hafa allir farið sömu leið. Einn af unglingaþjálfurum félagsins, Paul Hart, mun annst þjálfunina á að- alliðinu þangað til nýr framkvæmda- stjóri verður ráðinn. Vangaveltur um nýjan stjóra á Elland Road fóru strax í gang í gær og voru Kenny Dalglish og George Graham nefndir til sögunnar. Stjórnin ætlar ekki að ana að neinu í leit sinni að nýjum framkvæmdastjóra. Bill Fotherby sagði á fréttamannafundi í gær að sú leit væri hafm og hún myndi vonandi ekki taka of langan tíma. -JKS Manchester United og Juventus lf 11 Stórleikur Manchester United og Juventus í Meistarakeppni Evrópu verður sýndur í beinni útsendingu á SÝN miðvikudaginn 1 1. september kl. 18.30. Fylgstu með á SÝN. Ertu ekki örugglega áskrifandi! SÝN & FJÖLVARP FYRIR AÐEIIMS Ef þú ert, eða gerist áskrifandi að Stöð2, og gengur frá áskriftar- samningi fyrir 20- september færö þú SVN & Rölvatp fyrir 990 kr. á mánuði. Miðað er við boðgreiðslur og samfellda áskrift í sex mánuði. Qsm-2 svn FJÖLVARP Tryggðu þér áskrift að SÝN og Fjölvarpi Askriftarsími: 51S 6100 á tilboðsverði fyrir 20. september. Greent númer: 800 6161

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.