Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1996, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1996, Síða 32
36 ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1996 Stjómmála- menn verda sér til skammar „Mér flnnst þessi umræöa um ástandið í sjávarútvegi vera ótrúlegt dæmi um hvemig stjómmálamenn geta orðið sér til skammar ár eftir ár.“ Jóhann Ársælsson, fyrrv. al- þingismaður, i Vikublaðinu. Óskamótheijamir „Ég vildi að við spiluðum við Eyjamenn í hverri viku.“ Þórður Lárusson, þjálfari Stjörnunnar, í DV. Landbúnaður lendir í skakkaföllum „Ef bændur og afurðastöðvar fara ekki að skilja nauðsjm þess að verða samkeppnishæf við aðr- ar vörur og innflutning er mikil hætta á því að íslenskur land- búnaður lendi í verulegum skakkafoOum." Ari Skúlason, framkvæmda- stjóri ASÍ, í DV. Ummæli Sköpunargleðin „Ég geri myndir vegna þess að ég nýt þess að skapa, þetta snýst allt um sköpunargleðina. Og um leið og ég finn að hún hefúr yfir- gefið mig er ég hættur.“ Biile August kvikmyndaleik- stjóri, í Morgunblaðinu. Orðið undir í kjaraslagnum „Það er bjargfost skoðun mín að skipulag verkalýðshreyfingar- innar geri það að verkum að við höfum orðið undir í þessum kjaraslag." Hrafnkell A. Jónsson, form. Verkalýðsfélagsins Árvakurs, í DV. íslendingar eru duglegir að gefa blóð. Blóðflokkar Það er mismunandi eftir land- svæðum heimsins hvaða blóð- flokkur er algengastur. Þegar lit- ið er á veröldina í heild er O- flokkurinn algengastur og eru 46% jarðarbúa í þessum flokki en í sumum löndum er A-flokk- urinn algengastm-, t.d. á Norður- löndum. Á íslandi er O-flokkur- inn langalgengastur en um 55% íslendinga eru í þessum flokki, A- flokkurinn kemur næst með 32%, B-flokkur 10,7% og AB- flokkur 2,4%. Sjaldgæfasti blóðflokkurinn Sjaldgæfasti blóðflokkur, sem vitað er um í heiminum, er blóð- flokkur í Bombay-kerfi (undir- flokkur h-h) og hefur hann að- eins fundist í tékkneskri hjúkr- unarkonu (1961) og í tveimur bandarískum systkinum í Massachusetts í Bandaríkjunum (1968). Blessuð veröldin Dýrasta blóð í heimi í ágúst árið 1970 fréttist það að Joe Thomas frá Detroit í Michig- an í Bandaríkjunum hefði mælst með mesta magn af Anti-Lewis B, sem fundist hefur í blóði, en þetta er sjaldgæft mótefni í blóði. Bandarískt fyrirtæki gerði strax samning við Thomas um að kaupa af honum lítrann á 1500 dollara. Þegar bandarísk skatta- yfirvöld komust að þessu ákváðu þau að sala þessi væri skatt- skyld. Súld og þoka Um 600 km suður af landinu er 1038 mb hæð. Um 200 km suðvestur af Scoresbysundi er heldur vaxandi 1012 mb lægð sem hreyfist austur. skýjað með köflum en skýjað að mestu í öðrum landshlutum. Vest- anlands og við norðurströndina verður víða súld. í nótt verður vest- Sólarlag í Reykjavík: 20.11 Sólarupprás á morgun: 6.39 Síðdegisflóð í Reykjavlk: 17.18 Árdegisflóð á morgun: 5.39 Veðrið í dag í dag verður vestan- og suðvestan- átt, stinningskaldi eða allhvasst norðvestan til en víðast kaldi ann- ars staðar. Á Suðausturlandi verður læg átt, gola eða kaldi og þokusúld eða rigning vestan til en skýjað með köflum austan til. Hiti verður á bil- inu 6 til 17 stig, hlýjast á Austur- landi yfir daginn. Á höfuðborgarsvæðinu verður suðvestangola eða kaldi og þoku- súld með köflum. Hiti 9 til 12 stig. 1 A° m" i y 11° f ■ y n°_' 16^ 1 10°g em v % ... }, * '>j ' 10°^ , ÝcTY'! \ y > 11° Veðrið kl. 6 í morgun Veðrið kl. 6 í morgun. Akureyri Akurnes Bergstaöir Bolungarvík Egilsstaðir Keflavíkurflugv. Kirkjubkl. Raufarhöfn Reykjavik Stórhöfói Helsinki Kaupmannah. Ósló Stokkhólmur Þórshöfn Amsterdam Barcelona Chicago Frankfurt Glasgow Hamborg London Los Angeles Madrid Malaga Mallorca París Róm Valencia New York Nuuk Vín Washington alskýjaó 16 þoka i grennd 7 skúr 13 skúr 14 skýjaö 10 súld 11 skýjað 12 súld 10 þoka 11 súld 11 rigning 7 hálfskýjað 9 skýjað 10 skýjað- 9 skýjað 11 súld á síð.kls. 13 léttskýjað 15 þokumóóa 16 hálfskýjað 8 skýjað 13 skýjað 12 súld 12 léttskýjað 18 skýjaó 10 sýjað 20 skýjað 15 þokumóða 13 skýjað 13 skýjað 18 þokumóða 26 súld 6 skúr 11 alskýjaö 24 Rúnar Jónsson rallkappi: Fór í fyrsta rallið fimmtán ára „Þetta var fimmta mótið í sum- ar sem við vinnum svo sigurinn kom kannski ekkert sérstaklega á óvart enda lögðum við upp í rallið með það fyrir augum að verða fyrstir,“ segir Rúnar Jónsson rall- kappi en hann og faðir hans, Jón Ragnarsson, sigruðu í alþjóða GSM-rallinu sem fór fram um helgina. Þeir feðgar hafa verið mjög sigursælir í sumar, eins og flest undanfarin ár, og voru með forystu í rallinu strax á fyrsta degi og héldu henni alla dagana. Rúnar sagði að þeir feðgar hefðu verið á sama bílnum undan- farin ár: „Þessi bíll hefur reynst okkur afar vel og í sumar enrni Maður dagsins Rúnar Jonsson. við búnir að vinna allar keppnir sem við höfum tekið þátt í á þess- um bíl en það brotnaði gírkassinn í honum um helgina og við rétt náðum að ljúka keppni og megum í raun teljast heppnir að hafa get- að klárað, þannig að við missum af síðasta ralli sumarsins sem verður eftir tvær vikur og erum þvi komnir í vetrarffí. En við erum þegar búnir að tryggja okk- ur íslandsmeistaratitilinn og það með fullu húsi. Rúnar sagði aðspurður að þeir keppinautar sem hefðu verið hvað öflugastir fyrir fram hefðu verið Norðmennirnir Nils Peter Gill og Einar Staff: „Þeir voru á mun öfl- ugri bil en við en sjálfsagt hafa ís- lensku aðstæðurnar, sem við þekkjum mjög vel, ekki hentað þeim og þá hefur verið erfitt fyrir þá að beita fullu afli og urðu þeir i öðru sæti.“ Rúnar segist hafa tekiö þátt í sínu fyrsta ralli árið 1985: „Ég var þá aðeins fimmtán ára gamall og hafði að sjálfsögðu ekki aldúr til að keyra en mátti vera að- stoðarökumaður. Þegar ég var á nítjánda ári skiptum við pabbi um sæti og hef ég keyrt síðan. Rúnar hefur fylgst með ralli frá blautu barnsbeini en faðir hans og föðurbróðir, Ómar Ragnarsson, voru mjög sigursælir á fyrstu árum rallsins: „Ég kom inn í þetta þegar Ómar varð fyrir meiðslum í hálsi og varð að hætta en þeir pabbi og Ómar höfðu keyrt saman síðan 1975. Þótt pabbi hafi verið í þessu í rúm tuttugu ár hefur hann enn mjög gaman af og er enn þá ótrúlega sprækur og meiningin er að halda áfram saman.“ Jón Ragnarsson rekur fyrirtæk- ið Bílahöllin Bílaryðvöm og starfar Rúnar hjá honum: „Þetta er bæði bílasala og bilaryðvöm og emm við um tuttugu manns sem starfa við fyrirtækið." Rúnar segir að aðaláhugamál frá því hann var krakki hafi verið bílar en einnig hafi hann gaman af útiveru af ýmsu tagi. Eiginkona Rúnars er Guðrún Ýr Birgisdóttir og eiga þau þrjú börn. -HK Myndgátan Spillir milli hjóna Myndgátan hér aö ofan lýsir nafnoröi Verk eftir súrrealistann Roberto Matta. Matta og svo framvegis Um síðustu helgi var opnuð á Kjarvalsstöðum sýning á mál- verkum og skúlptúrum eftir súrr- ealistann Matta sem ber yfir- skriftina Matta og svo framvegis Roberto Matta fæddist í Chile árið 1911. Hann fLuttist til Evrópu 1930 þar sem hann fékk vinnu á teiknistofu Le Corbusier. Þegar hann hóf að mála í kringum 1937 vöktu myndir hans strax athygli og var hann hvattur af listamönn- um á borð við Dalí, Picasso og Andre Breton sem tók hann inn í súrealistahópinn. Matta dvaldi í Bandaríkjunum alla seinni heimsstyrjöldina og einkennast verk hans frá þessum árum af tærðum figúrum í óskilgreindu umhverfi. Sýningar Eftir að hann flutti aftur til Evrópu tók hann virkan þátt í „mannskemmandi iðnaðarsamfé- lagi samtímans". í lok sjötta ára- tugarins kynntist hann Erró og unnu þeir saman nokkrar seríur þar sem þeir skiptast á um að teikna upp myndbyggingar og fígúrur. Á sýningunni á Kjarvalsstöð- um eru verk sem valin eru af Matta og Alain Sayag, safhverði við Pompidousafnið í París. Öll verkin eru í eigi listamannsins. Bridge í úrslitakeppninni um Vanderbilt bikarinn í sveitakeppni í Bandaríkj- unum, áttust við sveitir Zia Ma- hmood og Nick Nickells. Zia hafði betur í leiknum og græddi meðal annars 13 impa á þessu spili. Sagnir gengu þannig í opnum sal, vestur gjafari og NS á hættu: f K54 * D1053 •f K8642 * 8 Vestur Norður Austur Suður Freeman Deutsch NickeU Rosenb. pass pass pass lGrand 2« pass 2f pass 2f 3f Dobl 4f pass p/h 4f pass 6* Freeman ákvað að opna ekki á hendi vesturs og það gaf Deutch og Rosenberg meira næði til að athafna sig. Tveggja laufa innákoma vesturs lofaði einhverjum lit og þegar það lá ljóst fyrir að liturinn var spaði, hófust Deutsch og Rosenberg handa við sagnirnar. Fjögurra spaða sögn norðurs var fyrirstöðusögn og slemmuboð í laufi og Rosenberg tók áskoruninni. Þegar tigulsvíning mis- tókst, tók Rosenberg hjartasvíning- una og stóð sitt spil. Á hinu borðinu fengu Hamman og Wolff úr sveit Nickells minna sagnrými á hendur NS. Vestur Norður Austur Suður Stansby Hamman Martel Wolff 3é pass 4f Dobl pass 5* p/h Stansby ákvað að hindrunarsegja 3 spaða í upphafi á hagstæðum hætt- um og lokasamningurinn hjá Ham- man og Wolff var því hálfgert skot í myrkri. Þeir hefðu getað grætt á spil- inu, ef það hetði legið verr, en i þess- ari legu var 13 impa tap óhjákvæmi- legt. ísak Öm Sigurðsson f DG10932 V 742 •f 103 * D3

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.