Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1996, Side 36
K 1 [ N G A
L«TT«
til (fíísskl/s að vlnnö
Vinningstölur
9.9/96
©®@(g)
KÍN
s un
<c
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú Sbendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst óháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1996
Landfrystingin komin á hnén:
Mörg frystihúsin
Allt tiltækt lið lögreglu og slökkvi-
liös var kallað aö Alþingishúsinu.
DV-mynd S
Alþingi:
Spennir sprakk
Slökkviliðið í Reykjavík var kall-
að að Alþingishúsinu laust upp úr
*hádegi í gær þar sem reykur barst
um húsið og reykskynjarar gerðu
viðvart. Spennir hafði brunnið yfír
og sprungið og tók það slökkvilið
nokkra stund að finna upptök reyks-
ins. Engar skemmdir urðu. -sv
Framseldur til
Finnlands í dag
„Christopher verður sendur með
vél í fyrramálið (í dag) til Helsinki í
^egnum Kaupmannahöfn og ég ætla
að fara með þeirri vél. Við ætlum að
reyna að fá málið enduropnað í
Finnlandi en mér skilst að mikill
rasismi sé við lýði í finnska kerfinu
og það eykur mér ekki bjartsýni,“
segir Halldóra Gunnlaugsdóttir,
kærasta Christophers Bundeh,
manns sem fæddur er í Sierre Leo-
ne en búið hefur á íslandi í rúm
þrjú ár. íslensk stjómvöld hafa
framselt hann til Finnlands vegna
nauðgunarmáls þar í landi.
Halldóra segist afar ósátt við með-
ferð málsins hér á íslandi. Hún seg-
ist hafa fengið þau svör frá dóms-
málaráðuneytinu að mannréttindi
komi þessu máli ekkert við og það
segist hún eiga erfitt með að skilja.
'■“Tilveran í rúst
„Það er verið að henda kærastan-
um mínum úr landi. Við höfum ver-
ið að byggja upp okkar tilveru hér
og nú er verið að rústa hana. Ráðu-
neytið segir að hafi verið brotin
mannréttindi á Christopher í Finn-
landi þá sé það Finna að leiða það i
ljós. Það viðhorf finnst mér fárán-
legt því Christopher hefur búið hér
síðan 1993 og hann hlýtur þar af
leiðandi líka að hafa mannréttindi
hér á landi,“ segir Halldóra.
Christopher Bundeh var i gær
vistaður í fangageymslu i Hafnar-
firði og eins og áður sagði fór hann
utan í morgun. Halldóra sagðist að-
eins hafa heyrt að finnskir lögreglu-
—-þjónar væru komnir til þess að
sækja hann en sagðist ekki vita
hvort það væri reyndin. -sv
Samið innan sólarhrings, segja læknar:
Friðrik og Halldór leystu hnútana
„Ef ekkert óvænt gerist þá sýnist
mér það vera rétt stöðumat að þessu
ljúki með samningi innan sólar-
hrings. Efnislega get ég ekki sagt
hvaða atriði hafa leitt til þessarar
stöðu en þó get ég sagt að lausnin á
deilunni byggist á meiri varanleika
heldur en því einu að hækka grunn-
laun,“ sagði Gunnar Ingi Gunnars-
son, formaður samninganefndar
lækna, við DV í morgun en búist er
við samningi við ríkið í dag eða
kvöld. Deiluaðilar hittast hjá ríkis-
sáttasemjara eftir hádegi í dag.
Gunnar sagði að til þess að hnút-
ar yrðu leystir hefðu ráðherrar
þurft að koma að málinu síðustu
þ.e. Friðrik Sophusson fjár-
málaráðherra og Halldór Asgríms-
son, sitjandi heilbrigðisráðherra.
Ekki náðist í sáttasemjara eða
varaformann samninganefndar rík-
isins í morgun.
-bjb
Erfiðleikar eru nú hjá mörgum frystihúsum og þegar hefur nokkrum þeirra veriö lokað. Nokkur fyrirtæki hafa brugðið
á það ráö að breyta vinnslunni frá frystingu á þorski yfir í söltun. Hér má sjá Halldór Kristjánsson, starfsmann
Gunnarstinds á Stöðvarfirði, moka salti í stæöuna. DV-mynd ÞÖK
eyri. Hann hafði áður verið sviptur
ökuleyfi en lét sér ekki segjast við
það. -sv
- og munu loka á næstu mánuðum haldi fram sem horfir, segir Arnar Sigurmundsson
„Ég er ekki viss um að þau
verði mörg frystihúsin sem ekki
opna aftur eftir sumarlokun. Hins
vegar er ég sannfærður um að ef
þetta ástand varir áfram og menn
sjá ekki til lands í rekstrinum á
næstu mánuðum þá muni mörg
fyrirtæki gefast upp og hætta
rekstri. Þar með mun enn meiri
fiskvinnsla færast út á sjó sem aft-
ur þýðir aukið atvinnuleysi í
landi," sagði Arnar Sigurmimds-
son, formaður Samtaka fisk-
vinnslustöðva, í samtali við DV.
Mörg frystihús bera sig afar illa
um þessar mundir og einhver
þeirra opna ekki aftur eftir sumar-
lokun. Þar má sem dæmi nefna
frystihúsið á Ólafsfirði.
Hátt hráefnisverð
Arnar segir að um þessar mund-
ir sé um það bil 10 prósent tap á
frystingunni í landi og að hún hafi
átt undir högg að sækja i allt að
eitt og hálft ár. Þann tíma hefur
hún verið rekin með samfelldum
halla.
„Ástæðurnar fyrir þessu eru
nokkrar. Á undanförnum árum
hefur hráefnishlutfallið farið
hækkandi af tekjum þessara húsa.
Magnið sem unnið hefur verið í
húsunum hefur farið minnkandi
og verð á erlendum mörkuðum
ýmist staðið í stað eða lækkað.
Þegar allt þetta kemur saman
verður útkoman sú að frysting er
rekin með allt að 10 prósenta
halla,“ segir Arnar.
Hann segir að þau fyrirtæki
sem eru í fjölþættari vinnslu hafi
sloppið betur. Loðnufrysting, sild-
arvinnsla og humarvinnsla hafa
skilað hagnaði. Þau sem aftur á
móti byggja 80 til 90 prósent af sín-
um rekstri á frystingu botnfiskteg-
unda eru á hnjánum.
Minni kostnaöur
við sjófrystingu
„Dæmið frá Ólafsfirði, þar sem
frystihúsinu hefur verið lokað,
sýnir við hvaða erfiðleika er verið
að glima," segir Arnai'.
Hann var spurður hvers vegna
sjófrystingin gengi vel þar sem
hún yrði að greiða sama hráefnis-
verð og frystingin í landi.
„Sá fiskur er minna unninn en
fiskurinn í landi. En það sem
skiptir meginmáli er að vinnu-
launakostnaður við þá vinnslu er
minni þegar upp er staðið. Þegar
lagður er saman hlutur sjómanna
á ísfisktogurum annars vegar og
vinnulaunakostnaður landverka-
fólks við aflann hins vegar kemur
út að kostnaðurinn er umtalsvert
meiri en það sem greitt er til sjó-
manna á frystitogurunum sem
bæði veiða og vinna aflann. Síðan
má nefna að mörg fiskvinnslufyr-
irtækin eru skuldsett eftir sam-
drátt undanfarinna ára. Hráefnis-
verð hefur hækkað en verð er-
lendis staðið í stað eða lækkað.
Þetta er vandinn i hnotskum,"
sagði Amar Sigurmundsson.
-S.dór
Réttindalaus
tekinn
Lögreglan á ísafirði tók i gær rétt-
indalausan mann við akstur á Flat-
eru að gefast upp
L O K I
Veðrið á morgun:
Hæg
norðvest-
anátt
Á morgun verður fremur hæg
norðvestanátt. Það verður súld
eða skúrir suðvestan-, vestan- og
norðanlands en bjartviðri um suð-
austan- og austanvert landið.
Veðrið í dag er á bls. 36
I _Brook j
I (rompton 1
RAFMÓTORAR
Vbulsen
Suöurlandsbraut 10. S. 568 6499
1
533-1000
7
Kvöld- og
helgarþjónusta