Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1996, Qupperneq 7
FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1996
7
Fréttir
Rekstur lífeyrissjóða 1995:
Heildareignin er
262 milljarðar
- sjóðir opinberra starfsmanna standa illa
Heildareignir lífeyrissjóðanna
um síðustu áramót námu 262 millj-
örðum króna og höfðu aukist um 28
milljarða milli ára. Langstærsti
sjóðurinn er sem Lífeyrissjóður
verslunarmanna með tæplega 40
milljarða eign í árslok 1995. Þetta er
meðal þess sem lesa má úr nýlegri
úttekt Vísbendingar á rekstri lifeyr-
issjóðanna 1995. Þetta er fyrsta tölu-
blað nýs ritstjóra, Tómasar Amar
Kristinssonar, sem starfaði áður á
Verðbréfaþingi.
Miðað við eignastöðu er Lífeyris-
sjóður sjómanna orðinn næststærst-
ur á eftir verslunarmönnum. Eignir
sjóðsins námu 22,3 milljörðum um
síðustu áramót, 200 milijóniun
meira en Lífeyrissjóður starfs-
manna ríkisins sem árið áður var
næststærsti lífeyrissjóðurinn.
í Vísbendingu segir að horfur séu
að vænkast í rekstri sjóðanna þrátt
fyrir mjög slæma stöðu margra
þeirra. Rekstrarkostnaður hafi ver-
ið lækkaður, sjóðir sameinaðir og
réttindi sjóðsfélaga skert. Sömuleið-
is hafi sjóðimir náð að fjárfesta pen-
inga sína með þeim hætti að ávöxt-
un er meiri en gert er ráð fyrir við
útreikninga.
Þegar tölur um eignir sjóðanna á
móti skuldbindingum em skoðaðar
kemur berlega í ljós hvað lífeyris-
sjóðir opinberra starfsmanna, jafnt
ríkis sem sveitarfélaga, em illa
staddir hvað þetta varöar. Þannig
ná eignir Lífeyrissjóðs starfsmanna
Reykjavíkurborgar aðeins 12% af
skuldbindingum og sama hlutfall
Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins
er 18%.
Ríki og sveitarfélög eru í ábyrgð-
um fyrir þessum sjóðum þannig að
starfsmenn þurfa ekki að örvænta,
nema þá að sveitarfélög og ríkis-
sjóður verði gjaldþrota. Greinarhöf-
undur Vísbendingar telur litlar lík-
ur á gjaldþroti en bendir þó á að
slíkt hafi gerst erlendis. Jafnframt
rýri opinberir aðilar getu sína til að
standa undir öðmm verkefnum í
framtíðinni með ábyrgð á lífeyris-
sjóðunum.
En hvaða lífeyrissjóðir em best
stæðir? Miðað við eignir á móti
skuldbindingum er það Lífeyrissjóð-
ur matreiðslumanna. Eignir sjóðs-
ins fara 40% umfram skuldbinding-
cir og næstur kemur Lífeyrissjóður
lækna með eignimar 27% umfram
skuldbindingar. Þar á eftir koma líf-
eyrissjóðir atvinnuflugmanna, KEA
og blaðamanna. Rétt er að taka fram
að þetta er ekki eini mælikvarðinn
á stöðu sjóðanna en gefur mjög góða
vísbendingu.
Tíu stærstu lífeyrissjóðina í eign-
um talið má sjá á meðfylgjandi
grafi. -bjb
10 stærstu lífeyríssjóðirnír
-eignir í milljónum kr. 1994 & 1995-
Ufeyrissj. verslunarmanna 39,595
Lífeyrissj. sjómanna
LTfeyrissjóöur
starfsmanna riklsins
Sameinaði lífeyrissjóöurinn
LTfeyrissj. Dagsbrúnar
og Framsóknar
Söfnunarsj. ITfeyrisréttinda
Llfeyrlssj. Noröurlands
Samvinnullfeyrissjóöurinn
Lífeyrissjóöur bænda
LTfeyrissjóöur Austurlands
22,370
22,191
17,650
11,827.
10,107
9,492
8,847
7,415
7,139
DTSI
10
20
30
S 1995
1994
40 M. kr
Akureyri:
Byggingu Giljaskóla
flýtt um eitt ár
DV, Akureyri:
Ákveðið hefur verið að flýta bygg-
ingu Giljaskóla á Ákureyri um eitt
ár, miðað við upphaflega verkáætl-
un. Þetta þýðir að 1. áfangi skólans
verður tekinn í notkun strax haust-
ið 1997.
Vinna er hafin við jarðvegsskipti
og í haust og vetur er ætlunin að
steypa upp grunn og kjallara verði
það hægt vegna tíðarfars.
Um framhald framkvæmdanna
hefúr ekki verið gerð föst verkáætl-
un og mun það ráðast nokkuð af
fólksfjölgun í Giljahverfi og þörfinni
hversu hratt verður unnið og skól-
inn fullgerður. Giljaskóli verður
stór grunnskóli á mælikvarða skóla
á landsbyggðinni og er gert ráð fyr-
ir því í fjárhagsáætlunum að fullbú-
inn muni hann kosta ríflega 500
milljónir króna.
-gk
Hlutafjáraukning í Fisk-
iðjunni-Skagfiröingi hf.
DV, Fljótum:
Aðalfundur Fiskiðjunnar- Skag-
firðings hf. á Sauðárkróki sam-
þykkti heimild til stjómar að auka
hlutafé í fyrirtækinu um liðlega 80
milljónir króna.
Eftir sameiningu Fiskiðjunnar
og Hraðfrystihúss Grundarfjarðar í
byrjun þessa árs nam hlutafé Fisk-
iðjunnar-Skagfirðings 716 milljón-
um króna en verður því 800 millj-
ónir þegar væntalegt hlutafjárút-
boð er afstaðið. Á fundinum var
samþykkt tillaga þess efnis að fyr-
irtæki verði skráð á almennan til-
boðsmarkað. Er stefnt að því að sú
skráning verði í byrjun næsta
kvótaárs, þ.e. 1. september á næsta
ári.
Tuttugu og níu milljóna króna
tap varð af reglulegri starfsemi
Fiskiðjunnar-Skagfirðings á síðasta
ári, en þegar tekið hafði verið tillit
til söluhagnaðar á einu af skipum
fyrirtækisins varð 54 milljóna
króna hagnaður af rekstrinum. -ÖÞ
Við erum flutt í Faxafen 10 (Hús framtíðarinnar)
TILBOD í KJARAKAUP
MAGAÞJALFINN.
Aðeins kr.
2.998.
BRAUÐBOKUNARVEL.
Aðeins kr.
15.998.
ÖRBYLGJUOFN
850 w, 221, með
snúningsdiski.
Aðeins kr.
15.800.
Kjarakaupí
Faxafeni 10, sími 568-4910
OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ 10-18
OG LAUGARDAGA FRÁ 11-17
------------------;----------------------\
Síðasti bekkur
ársins byrjar
í kvöld!
□ Vissir þú að hægt er að ná skipulegu sambandi við
framliðna í gegnum a.m.k. 14 mismunandi þekktar
miðilstegundir í veröldinni í dag?
□ Og vissir þú að skyggnir einstaklingar geta á mis-
munandi hátt ýmislt séð og eða skynjað handanheimana sem
og hina makalausu álfa- og huldufólksheima í kringum
okkur nánast þegar þeim hentar?
□ En vissir þú að venjulegur einstaklingur eins og þú,
skyggn sem óskyggn, getur lært allt um þetta í hinum
vandaða íslenska Sálarrannsóknarskóla fyrir hófleg
skólagjöld?
Síðasti bekkur ársins byrjar í kvöld. Hringdu og fáðu allar
nánari upplýsingar um skólann og skemmtilega námið í
honum nú á haustönninni. Svarað er í síma skólans alla
daga vikunnar frá kl. 14-19.30.
903 * 5670
Aöeins 25 kr. mínútan. Sama verö fýrir alla landsmenn.
r*ra
Innbrot á
Króknum
Brotist var inn í þrjú fyrirtæki á
Sauðárkróki og Varmahlíð aðfara-
nótt þriðjudags. Farið var inn í tvö
bifreiðaverkstæði og landbúnaðar-
verslun og varð fengur þjófanna
óverulegur, verkfæri, dekk undir
bíl og sáralítið af peningum. Ungt
par af höfuðborgarsvæðinu var
handtekið vegna málsins og telst
það upplýst. -sv
STÓRA SKRIÐDÝRASÝNINGIN
Tropical Zoo í heimsókn
JL-Húsið v/Hringbraut
2. hæd, 1000 m2 sýningarsalur
5. okt. - 27. okt.
Opið virka daga kl. 12-20;
laugardaga og sunnudaga frá kl. 12-19
Upplýsingar gefur Gula línan - sími 562-6262
Lifandi
hitabeltisdýr
Risasnákar
Eitursnákar
Eðlur
Skjaldbökur
Sporðdrekar - kóngulær
o.s.frv.
Hitabeltisfiðrildi
í hundraðatali
Fjölbreytt safn af
óvenjulegum, lifandi
dýrum úr öll-
um heims-
hornum