Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1996, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1996, Síða 17
16 FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 1996 FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 1996 25 I Gerbu laugardaginn ab típpdegi ú spilar til að vinna! milliónir í poHtnui" Iþróttir íþróttir Birkir Kristinsson Annaö mark Rúmena verður að skrifast á Birki en þá átti hann slæmt úthlaup út í vítateiginn. Hin 3 mörkin var erfltt að eiga við og verður hann ekki sakaður um þau. Varði í tvígang vel og þegar upp er staðið komst hann þokkalega frá sínu. Lárus Orri Sigurösson Náði sér engan veginn á strik og átti slakan leik. Skilaði bolta illa frá sér og virkaði mjög taugastrekktur frá upphafi. Kannski að álagið hafi verið of mikið eftir að fréttir bárust um að Manchester United væri með útsendara á leiknum. Guðni Bergsson Var traustur framan af leiknum en eftir því sem á leið féll hann niður í meðalmennskuna. Reyndar hefur hann oft verið meira áberandi en hann mátti sín lítils eins og aðrir varnarmenn þegar rúmensku sóknarmennirnir létu til sín taka. Hann gerði þó fáa feila. Ólafur Adolfsson Átti í vandræðum eins og fleiri félagar hans í vörninni. Var sterkur á „annarri hæðinni” en gekk illa að verjast gegn snöggum og liprum sókn- armönnum Rúmena. Nýttist ekki sem skyldi í aukaspymum og homspymum. Rúnar Kristinsson Fann sig engan veginn og lék án efa sinn slakasta landsleik í langan tima. Ætlaði sér oft um of þegar hann hafði boltann og var oft á tíðum spil- aður út úr stöðu sinni. Spuming er hvort Rúnar eigi ekki heima í annarri stöðu en í vinstri bak- verðinum. mm Eyjólfur Sverrisson Var stundum á köflum hreinlega utanveltu. Hann var ekki í takt við leikinn. Virkar þungur og hefur oft áður leikið miklu betur. Hann var óör- uggur í sendingum og fáar slikar rötuðu rétta leið. Hélt enn fremur illa knettinum. Rikharður Daðason reynir að brjóta sér leið fram hjá varnarmanni rúmenska liðsins. A myndinni til hliðar hefur Gheorghe Hagi betur gegn varnarmönnum íslenska liðsins. DV-myndir BG/ÞÖK „Staðan í riðlinum veldur mér vonbrigðum" - segir Logi Ólafsson landsliösþjálfari Við ofurefli að etja frá upphafi til enda - staða íslendinga í riðlinum veik eftir slæma útreið gegn Rúmeníu „Það vora menn í liðinu alls ekki að gera sitt besta. Ef við ætlum að gera eitthvað á móti liðum eins og Rúmenum þá verða allir að eiga góð- an leik. Það gengur ekki að helming- ur manna liðsins sé að ná sér upp. Það sem veldur mér mestum von- brigðum er að allir skuli ekki hitta á góðan leik,“ sagði Logi Ólafsson landsliðsþjálfari við DV eftir leikinn. „Það er stefna okkar að fara í hvem leik með því hugarfari að sigra. Ég átti þó von á þvi að við hefðum fleiri stig í riðlinum en þau era í dag. Við ætlum fyrst og fremst að gera meira á heima- velli en við höfúm gert fram að þessu. Það er alltaf sama gamla tuggan, við erum að gefa mörk. Staðan í riðlum veldur mér vonbrigðum. Eftir svona leik hugsar maður margt en þegar Þórður var felldur vildi ég fá víta- spymu. Þetta var erfitt eftir að Rúmen- ar gerðu fyrsta markið en við verðum að hafa í huga að þeir era mörgum sæt- um fyrir ofan okkur á styrkleikalistan- um. Við urðum að bæta í sóknarleik- inn eftir að við fengum á okkur fyrsta markið og auðvitað var viss áhætta því fylgjandi. Annað markið var hrein gjöf að mínu mati. Eftir það mark breytti ég leikskipulaginu og freistaði þess að jafha leikinn. Það gekk ekki eftir," sagði Logi. -JKS Islenska landsliðið í knattspyrnu á langt, langt í land með að standast bestu landsliðum heims snúning. Þessi ásýnd kom bersýnilega í ljós i gærkvöldi þegar íslenska landsliðið fékk slæma útreið gegn Rúmenum í undankeppni heimsmeistaramótsins. Rúmenar voru mörgum hæðum ofar en íslenska liðið á öllum sviðum knattspyrnunnar. Þetta verðum við að fara að viðurkenna þvi öðravísi getum við ekki bætt okkar leik, því fyrr því betra. Áfram lifað í minningunni Það var mikið í húfi fyrir þennan leik. Tveir leikir voru að baki í riölinum og uppskeran úr þeim eitt stig af sex mögulegum. Fyrirfram voru Rúmenar auðvitað taldir sigurstranglegri en ís- lenskt landsliö hefur í gegnum tíðina innbyrt glæsta sigra á heimavelli gegn sterkum þjóðum. Með þessa von í brjósti lögðu margir leið sina á völlinn. Þessi von seytlaði út úr brjóstum manna og síðan ansi hratt eftir því sem á leik- inn leið. Hugsunina um góða sigra á heimavelli verða menn að hafa í minningunni áfram. íslenska liðið virtist koma ákveðið til leiks og var svo sem að gera ágæta hluti fyrstu tuttugu mínútur leiksins. Eftir fyrsta mark Rúmena var Ijóst að framhaldið yrði erfitt og það kom í ljós þegar upp var staðið. Nokkrum andartökum á undan markinu kom upp umdeilt atvik sem menn eiga eflaust eftir að velta sér upp úr lengi. Þórður Guðjónsson var felldur innan vítateigs og vildu margir halda að dómarinn hefði átt að dæma vítaspyrnu. Eftir á að hyggja er ekki svo gott að sjá hvort víti hefði átt rétt á sér. Hitt er svo hægt að benda á að vítaspyma hefur verið dæmd af minna tilefni en þetta. Dómarann brast kjark til að dæma víti af því að stórir karlar, Rúmenar, áttu í hlut. Þórður Guðjónsson átti síðan stuttu síðar skot á markið úr teignum en rúmenski mark- vörðurinn varði í hom. Marktækifæri Islend- inga eftir þetta í leiknum er varla hægt að nefna. Sóknir liðsins voru bitlausar, ómarkviss- ar, þannig að engin ógnun stafaði af þeim. Mörkin þrjú, sem Rúmenar bættu síðan við í síðari hálfleik, voru frekar af ódýrari gerðinni en engu að síður vel að þeim staðið af hálfu Rúmena. Þeir hefðu svo sem getað bætt við fleiri mörkum. Þeir vora bara einfaldlega sáttir og eyddu ekki meira púðri í leikinn en orðið var. Af rúmenska liðinu verður ekki skafið að það er í hópi bestu landsliða sem á hólmann hef- ur komið. Það er þó ekki til að afsaka frammi- stöðu íslendinga i leiknum. Kominn tími á uppstokkun? Það hljóta allir aö sjá, sem unna knattspym- unni á annað borö og vilja að landslið okkar standi sig, að við verðum að gera betur. Við eram varla með í svona stórkeppni til að vera bara þátttakendur, eða hvað? Efhiviðurinn til að búa til sterkt landslið er kannski ekki lengur til staöar. Ef til vill er komið að uppstokkun og tími yngri og upprennandi knattspyrnumanna runninn upp. Ekki skal fullyrt um það. Þegar lagt var upp í þessa keppni voru sett takmörk. Þau vora ekki þau að eftir þrjá leiki væri liðið aðeins með eitt stig af níu mögulegum. Fyrir um tíu árum stóðum við jafnfætis Norð- mönnum. í dag eru þeir langt fyrir framan okk- ur. Hvað veldur því? Jú, skýringin er einfold því á skömmun tíma hafa norskir knattspymu- menn verið að ganga í raðir bestu klúbba Evr- ópu. Á meðan eigum við atvinnumenn í neðri deildum í Evrópu. Þetta er staðreynd sem ekki verður horfið fram hjá. Við eigum aðeins einn atvinnumann sem leikur með liði í efstu deild. Það er Þórður Guðjónsson hjá Bochum í Þýska- landi. Eiður Smári Guðjohnsen er að vísu hjá PSV í Hollandi en hann er fjarri góðu gamni vegna meiðsla. Til að okkur takist að koma sam- an landsliði í fremstu röð þurfa íslenskir knatt- spyrnumenn að komast að hjá betri liðum í Evr- ópu en þeir era í dag Horfa til framtíðar Leikurinn við Rúmena er að baki og hinir tveir við Makedóníu og Litháa. Við getum ekki alltaf sagt að þetta hafi verið ágætt og þetta komið bara næst. Við hljótum öll að vilja ís- lenskri knattspyma vel. Bretta verður upp ermarnar, horfa til framtíðar og gera okkar landslið öflugra en það er í dag. -JKS ísland (0)0 Rúmenía (1)4 0-1 Dino Moldovan (25.) af stuttu færi eftir aö hafa fengið fasta fyrirgjöf frá Hagi af hægri kanti. 0-2 Gheorghe Hagi (61.) skallaði yfir Birki sem átti slæmt úthlaup eftir að hafa fengið sendingu frá Petrescu af hægri kanti. 0-3 Gheorghe Popescu (75.), fékk laglega sendingu frá Petrescu og skoraði með skalla úr markteignum. 0-4 Dan Petrescu (89.) rangstöðutaktík íslendinga brást, Petrescu slapp einn inn fyrir og skoraði auðveldlega. Lið íslands: Birkir Kristinsson - Lárus Orri Sigurðsson (Ólafur Þórðarson 68.), Guðni Bergsson, Ólafur Adolfsson, Rúnar Kristinsson - Eyjólfur Sverrisson, Sigurður Jónsson, Heimir Guöjónsson - Bjarki Gunnlaugsson (Amar Gunnlaugsson 71.), Ríkharður Daðason (Helgi Sigurðsson 65.), Þórður Guðjónsson. Lið Rúmena: Bogdan Stelea - Dan Petrescu, Anton Dopos, Daniel Prodan, Constantin Gilca - Gheorghe Popescu, Tibor Selymes, Dorinel Munteanu, Gheorghe Hagi (Ion Vladoiu 81.) - Dinu Moldovan (Hie Dumitrescu 81.), Adrian Hie (Iulian Filipescu (73.) Markskot: ísland 6, Rúmenía 17. Hom: Island 7, Rúmenía 6. Gul spjöld: Láms Orri, Dopos, Hie, Hagi, Munteanu. Rauð spjöld: Engin. Dómari: Claude Detmche frá Sviss, var hliðhollur Rúmenum og bar of mikla virðingu fyrir þeim. Áhorfendur: Um 3600. Aðstæður: Suðvestan kaldi, úrkomulaust og 5 stiga hiti, völlurinn góður miðað við árstima. Guðni og Óli settu met Guðni Bergsson og Ólafur Þórðarson léku tímamótaleik í gær. Þeir léku báðir sinn 71. landsleik og settu þar með landsleikjamet. íleiknum gegn Litháum jöfnuðu þeir metin sem Atli Eðvaldsson, fyrrum fyrirliði lands- liðsins átti. Gult eftir 7 sekúndur Lárus Orri Sigurðsson sló kannski met i gær þegar hann nældi sér í gult spjald eftir aðeins 7 sekúndna leik. Atti von á leik „Fyrri hálfleikurinn var í jafn- vægi en í þeim síðari tókum við leikinn í okkar hendur og við gátum þess vegna unnið stærri sigur. Ég átti von á erfíðari leik enda hafa íslendingar oft verið erfiðir heim sækja. íslensku leik- mennirnir era likamlega sterkir en kannski var þetta ekki þeirra dagur. Ég vona samt að þeir nái sér á strik gegn írum og nái stig- um af þeim,” sagði Gheorghe Popescu, miðvallarleikmaður Rúmena og leikmaður Barce- lona, við DV eftir leikinn en hann hélt upp á 29 ára afmæli sitt í gær. -GH Heimir Guðjónsson Skilaði sínu hlutverki vel framan af. Hann vinnur vel og gefur sjaldnast þumlung eftir. Bakkaði vel aftur og kom ósjaldan vörninni til hjálpar. Sendingar hans skiluðu sér vel og þegar á leikinn leið bar minna á honum. Heimir hefur þó sannað að hann á landsliðssæti fyllilega skilið. Bjárki Gunnlaugsson Hefur átt í meiðslum og af þeim sökum ekki komist í sitt besta form. Það hefur áður staðið miklu meiri ógn af honum. Hann fór að missa boltann meira en góðu hófi gegnir enda fór svo að Arnar bróðir hans leysti hann af hólmi í síðari hálfleik. Amar var ekki áberandi í leiknum. Þórður Guðjónsson Átti langbestan leik íslensku landsliðsmannanna og var sá eini sem eitthvað kvað aö. Kom rúm- ensku vöminni oft f vandræði, einkum í fyrri hálf- leik, með sprengikrafti sínum og áræðni og hefði átt að fá dæmda vítaspyrnu rétt áður en Rúmenar skoraðu. Sigurður Jónsson Hefur oft leikið betur en í gær. Skilaði varnar- hlutverkinu illa og lítið kom út úr leik hans þegar hann hafði boltann. Var lítið skapandi og spilaði oft á hálfri ferð. Sigurður er mikilvægur hlekkur í liðinu og verður að vera meira áberandi svo liðið fái notið krafta hans til fulls. „Rúmenarnir klassa betri” „Ég er bara mjög svekktur. Rúmenarnir vora klassa betri og það var eiginlega við ofurefli að etja, sérstaklega eftir að þeir komust yfir. Það var áfall þegar þeir skoruðu en rétt áður vildi ég fá vítaspyrnu. Þetta var snerting og auðvitað lét ég mig falla en dómarinn var ekki á sama máli og gaf ekki víti. Þetta var vendipunkturinn í leiknum. Þetta er með sterk- ari liðum sem ég hef leikið gegn. Nú þurfum við bara að einbeita okkur að því aö ná þriðja sætinu í riðlinum, hækka um styrkleikaflokk og klára riðilinn með sæmd,” sagði Þórður Guðjónsson, besti leikmaður Is- lendinga í leiknum. -GH „Baráttan ekki til staðar” „Þetta er bara einfaldlega munurinn á þessum liðum. Auðvitað er þetta stórt tap en Rúmenar eru með topplið í Evrópu. Strákarnir hittu ekki á góðan dag og manni fannst baráttan ekki vera til staðar hjá þeim. Rúmenarnir voru miklu betri og þetta er eitt besta lið sem hefur leikið hér á landi, þori ég að fullyrða. Við vorum að gefa boltann allt of mikið frá okkur á slæmum stöðum og mér fannst liðið ætti að geta haldið bolt- anum betur innan liðsins. Þá fannst mér vörnin óöragg og það vantaði einhvern til að stjórna henni,” sagði Pétur Pétursson, fyrrum landsliðs- maður, við DV eftir leikinn. -GH Ríkharöur Daðason Mátti sín lítils frammi gegn sterkri vörn Rúm- ena. Hann var sem sagt ekki öfundsverður af sínu hlutverki. Hann hélt ekki boltanum nógu vel, missti hann oft. Helgi Sigurðsson leysti hann af hólmi í síðari hálfleik en fékk ekki mikið rými eins og Ríkharður. Velkomm ab netfangi WWW. TOTO. IS t

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.