Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1996, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1996, Qupperneq 32
F S Vlnnlngstölur mlðvlkudaglnn 9.10.’96 *J2*130 35Y4ÍX48 5 X25X29 Vinningstölur ( a 9.10/96 Vlnnlngar Fjöldl vinnlnga Vinningsupphxd l.tafi 0 43.960.000 l.Saft 0 887.934 3. S af 6 0 228.791 4.taft ,159 2.280 S.laft' ►to'%20 250 45.594.245 1.634.245 KIN FRETTASKOTIB SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Frjálst,óháð dagblað FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 1996 Eldur kom upp í verkstæði í timbur- portinu hjá BYKO í Kópavogi í gær. Talið er að eldurinn hafi kviknað JBB>'egna ofhitnunar á sagarblaði. Vel og fljótiega gekk að ráða niðurlög- um eldsins og eru skemmdir taldar litlar. DV-mynd S Þingflokkur Framsóknar: Þriðjungur þingmanna . andvígur Valgerði Þriðjungur þingmanna Fram- sóknarflokksins greiddi Valgerði Sverrisdóttur ekki atkvæði sitt þeg- ar hún var kosin þingflokksformað- ur við upphaf þings í síðustu viku. Kosningin var leynileg en sam- kvæmt heimildum DV hlaut Val- gerður 10 atkvæði en þingmenn flokksins eru alls 15. Heimildir DV herma að Guðni Ágústsson, Gunnlaugur Sigmunds- son, Ólafur Öm Haraldsson og Stef- án Guðmundsson hafi ekki greitt Valgerði atkvæði sín og einn þing- ,niaður hail skilað auðu. -bjb Vatnsstígur: Innbrot í kjallara- íbúð Brotist var inn í kjallaraíbúð við Vatnsstíg í gærkvöld. Útidyrahurð var brotin upp og skemmd. Stolið var sambyggðu útvarps- tæki og geislaspilara. Lögegla rann- sakar málið en enginn hafði verið —handtekinn vegna þess I morgun. -RR Dæmdur í 8 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot: Sekt föður byggð á framburði barns og fagfólks - enginn vafi talinn leika á sök þó að faðirinn hafi neitað Héraðsdómur Vesturlands hef- ur dæmt karlmann í átta mánaða fangelsi fyrir að hafa í nokkur skipti misnotað 5 ára dóttur sína kynferðislega á heimili þeirra á árinu 1995. Grunur um athæfi mannsins vaknaði fyrst þegar leikskóla- stjóri á leikskóla stúlkunnar, sem er þroskaþjálfi, var að vinna verkefni með henni ásamt öðram böraum þegar stúlkan sagði allt í einu eitthvað sem benti til að fað- ir hennar hefði í frammi viö hana kynferðislega tilburði. í kjölfar þess var haft samband við félagsmálastjóra sem tilkynnti um málið til lögreglu og var kæra síðan lögð fram á hendur manninum. Faðirinn neitaði alfarið sakar- giftum - bæði hjá lögreglu og fyr- ir dómi. Rannsókn leiddi hins vegar í ljós að mjög sterkar líkur voru á því að frásögn stúlkunnar ætti við rök að styðjast og voru viðtöl höfð við hana af þar til bæru fagfólki. Framburður henn- ar var ávallt staðfastur og ekkert sérstakt kom fram sem benti til að bamið hefði spunnið sérstak- lega upp sögur eins og faðirinn bar fyrir dómi. Við sakfellingu tók dómurinn meðal annars mið af því að stúlk- an hefði ótilkvödd og að eigin frumkvæði greint fóstru sinni með hryllingi frá athæfi foður- ins. Einnig hefði hún lýst þessu fyrir skólasálfræðingi. í niður- stöðu héraðsdóms, sem var skip- aður þremur dómurum, segir jafnframt: „Dómurinn velktist ekki í vafa um, er hlýtt var á framburð stúlkunnar, að hún var að lýsa eigin reynslu af kynferðislegri misnotkun af hálfu föðurins." Átta mánaða fangelsi var talin hæflleg refsing. Manninum er einnig gert að greiða 100 þúsund krónur í saksóknaralaun til rík- issjóðs og 100 þúsund krónur til skipaðs verjanda. -Ótt Vetur konungur hefur aðeins verið að minna á sig víða um land að undanförnu, sumum til ama en öðrum til gleði. Þessir hressu krakkar á Blönduósi fögnuðu fyrsta snjónum þar í bæ, klæddu af sér kuldabola og drifu sig út í bygg- ingarframkvæmdir. Þeir virðast ánægðir með sköpunarverkið en ekki er víst að það hafi staðið af sér hitatölur gær- dagsins. DV-mynd G. Bender Gosið í Vatnajökli: Áfram gýs af krafti Gosið í Vatnajökli hélt áfram I nótt af fúllum krafti, að því er kom fram á mælum Raunvísindastofnun- ar, þótt sá kraftur sé minni en var í upphafí gossins. Jarðskjálftamælir- inn á Grímsfjalli sýnir stöðugan óróa að sögn Bryndísar Brandsdótt- ur jarðeðlisfræðings. Jarðvísindamenn flugu í gær yfir gosstöðvarnar, en að sögn Bryndís- ar mun ekki hafa náðst nákvæm mæling á vatnsstöðu Grímsvatna en verið væri að vinna frekar úr gögn- um og ljósmyndum sem náðust í leiðangrinum. -SÁ GPS gefur strax vísbendingu um hlaup Þegar DV fór i prentun í morgun var þyrlusveit Landhelgisgæslunn- ar að kanna hvort hægt yrði að fljúga með vísindamenn á TF-LÍF austur að Grímsfjalli í Vatnajökli og lenda þar, rétt sunnan gosstöðv- anna. Ætlunin með leiðangrinum er meðal annars að koma GPS-stað- setningartæki fyrir á íshellunni sem flýtur ofan á Grímsvötnum. Þannig ætla menn að mæla hæðar- breytingar á hellunni. Um leið og hún hyrjar að síga munu vísbend- ingar liggja fyrir um hvort Skeiðar- árhlaup er að hefjast. Gert er ráð fyrir að það muni taka vísindamenn um eina klukkustund að koma tækj- um fyrir við lendingarstað. Að því loknu verður síðan hægt að fylgjast með framvindu mála frá Reykjavík. Ekki er ljóst hvenær flugskilyrði verða hagstæð fyrir þyrluna en 1 morgun var veðurútlit harla óhag- stætt fyrir daginn í dag. -Ótt Gervihnattamyndin: Myndin segir sitt - segir Ragnar Stefánsson „Ég sé ekkert annað en að þessi gervitunglamynd segi sitt. Hún bendir til þess að um geti verið að ræða lengingu á bráðnunarsvæðinu til norðurs og þar með að gossprungan sé eitthvað lengri en menn hafa talið fram að þessu,“ sagði Ragnar Stefánsson jarðeðlis- fræðingur í morgun við DV Gervihnattamynd sú sem DV birti í gær vakti verulega athygli en í sjónvarpsviðtali í gærkvöldi sagði Magnús Tumi Guðmundsson jarð- eðlisfræðingur, aðspurður um hana, að hún gæti sýnt svipað og kaffi- bollahringur verkfræðings á vinnu- teikningunni. -SÁ L O K I Veðrið á morgun: Stormur og slydda Á morgun er búist við norð- an hvassviðri eða stormi og slyddu. Norðan- og austanlands gæti komið snjókoma en á Suð- ur- og Vesturlandi verður skýj- að en úrkomulítið. Seint á morgun fer heldur að lægja á vestanverðu landinu. Hiti verð- ur nálægt frostmarki. Veðrið í dag er á bls. 36 1^553 - 1QOO; ! Kvöld- og helgarþjónusta mm—mmam Með brother merkivélinni e að hafa allt í rö reglu í bílskúrnum brother Verð frá kr. 6.995 Nýbýlavegi 28 Sími 554 4443

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.