Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1996, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1996, Side 8
8 MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1996 Útlönd Stuttar fréttir i>v Arafat ekki bjartsýnn á samkomulag viö ísraela: Nýir samningar geta skapað stríðsástand - segir utanríkisráöherra Palestínu Yasser Arafat, forseti Palestínu, er ekki bjartsýnn á að samkomulag náist við ísraela um brottflutning hermanna frá Hebron. ísraelar vilja tryggja öryggi þeirra 400 gyð- inga sem í borginni búa og vilja gera nýtt samkomulag við Palest- ínumenn. Arafat vill hins vegar fá alþjóðlega friðargæslu með þátt- töku bandarískra hermanna. Hann sagði að fordæmi væru fyrir slíkri lausn mála og eins og staðan væri í dag væri ekkert sem benti til að aðrar lausnir væru í sjónmáli. Utanrikisráðherra Palestínu, Farouk Kaddoumi, sagði á frétta- mannafundi í gær að forsætisráð- herra ísraels, Benjamin Netanya- hu, væri búinn að játa syndir sínar með því að biðja um nýtt sam- komulag. „Hann flækir málin um of og ýtir undir óróa og jafnvel stríðsástand með stefnu sinni. Þetta er hættulegasta skref sem ríkisstjórn Netanyahus hefur tek- ið.“ Hussein Jórdaníukonungur kom í sína fyrstu opinberu heimsókn á Vesturbakkann í gær síðan hann tapaði svæðinu í hendur ísraelum í sex daga stríðinu fyrir 29 árum. Hann er fyrsti leiðtogi arabaríkis til að heimsækja sjálfsstjórnar- svæði Palestínumanna á Vestur- bakkanum. Hussein flaug með þyrlu frá Amman til borgarinnar Jeríkó þar sem hann dvaldi í fjórar stundir. Arafat var meðal farþega í þyrlunni. Arafat og Hussein neituðu því á blaðamannafundi að þeir væru að reyna að koma á sameiginlegum fundi með Netanyahu, forsætisráð- herra ísraels. Utanríkisráðherra ísraels, David Levy, sagði á blaðamannafundi í Jerúsalem í gær að deilan við Palestínumenn myndi að öllum lik- indum leysast á næstu dögum. „Málin hafa þokast í samkomulags- átt en það er þekkt bragð Palestínu- manna að búa til vandamál á síð- ustu stundu og koma fram með svo furðulegar tillögur eins og þá að fá bandarískt herlið til Hebron. Reuter Yfirvöld í Bangladesh eru þessa dagana meö herferð gegn flækingshundum og rétta jafnt stórir sem smáir hjálparhönd við að koma hundunum af götum borgarinnar. Heilbrigöisyfirvöld segja að hundruð manna séu bitin árlega af flækingshundum og smitist af hundaæði. Símamynd Reuter Skipar undir- mönnum að hætta að deila Borís Jeltsin Rússlandsforseti skipaði í gær undirmönnum sín- um að hætta deilum vegna frið- arsamkomulagsins í Tsjetsjeníu. Forsetinn hélt í gær vikulegan fund sinn með Tsjernomyrdin forsætisráð- herra. Sýnt var í sjón- varpi þar sem þeir ræddust við og virtist létt yfir forset- anum en ekki heyrðist hvað þeim fór á milli. í Kreml var því vísað á bug í gær að fyrirhugaðri hjarta- aðgerð á Jeltsín yrði frestað vegna veikinda forsetans. Eigin- kona Jeltsíns, Naina, fékk aö fara af sjúkrahúsi í gær en hún gekkst undir nýrnaaðgerð i ágúst. Hún er nú við hlið bónda síns og aöstoðar hann fyrir hjartaaðgerðina. Naina gekkst undir aðgerð þann 24. ágúst á sjúkrahúsi í Moskvu þar sem Jeltsín lá áður en hann fór á hvíldarheimili fyrr í þessum mánuði. Jeltsín fékk tvö hjartaáfóll á síðasta ári og með aðgerðinni ætla læknar að reyna að auka blóðstraum til hjartans. Reuter Clinton og Dole mætast í kappræðum í kvöld: Búist við aö Dole verði harðskeyttur Samkvæmt nýjustu skoðanakönn- un Reuters, sem birt var í gær, eyk- ur Bill Clinton, forseti Bandaríkj- anna, enn forskot sitt á forsetafram- bjóðanda repúblikana, Bob Dole. Clinton hefur 47,4% fylgi en Dole 32,3% sem er 15,1 prósentustigs munur. Forsetaframbjóðendurnir mætast öðru sinni í kappræðum í kvöld í beinni sjónvarpsútsendingu frá San Dieogo í Kaliforníu. Þar munu þeir meðal annars svara spumingum kjósenda sem ekki eru búnir að gera upp hug sinn. Bob Dole hefur látið í það skina að hann verði harður í horn að taka í kvöld og ætli sér að gagnrýna sið- ferði forsetans. Repúblikanar hafa gefíð það í skyn undanfarið að demókratar hafi þegið ólögleg fjár- framlög frá einstaklingum sem tengjast indónesísku fjármálafyrir- tæki. Hafa þeir bent á tengsl Clint- ons við auðkýfinginn James Riady, sem þeir telja að standi á bak við framlögin. Stuðningsmenn Clintons spá því að það komi Dole mjög illa ef árásir hans verða of persónulegar og leiði Clinton hefur gott forskot á mót- frambjóðandann Dole fyrir seinni kappræður þeirra sem fram fara í kvöld. til þess eins að hann tapi atkvæðum til þriðja frambjóðandans, Ross Pe- rot. Það eru síðustu forvöð fyrir Dole að reyna að bæta stöðu sína en aðeins þrjár vikur em til kosninga og fleiri verða kappræður í sjón- varpi ekki. Hann hefur undanfarið Búist er við því að Dole gagnrýni siðferði Clintons Bandaríkjaforseta í beinni útsendingu í kvöld frá San Diego. reynt að bæta ímynd sina sem hinn mjúki maður og fróðlegt verður hvort honum tekst að halda andlit- inu í kvöld, þegar um 70 milljónir Bandaríkjamanna fylgjast með kappræðum þeirra Clintons. Jarðskjálfti á Ítalíu Tveir aldraðir ítalir létust úr hjartaslagi er öflugur jarð- skjálfti reið yfir norðurhluta landsins í gær. Þrír hafa látist í flððum í suðurhluta ítaliu. Vísað frá sendiráði Heimildarmenn á Austur- Tímor segja þremur löndum sínum hafa verið vísað frá franska sendiráðinu í Jakarta snemma í morgun. Skilnaður í aðsigi Bresk blöð greindu frá því í morgun að fyrirsætan Jerry Hall, eiginkona Micks Jag- gers, hefði rætt við þekktan skiln- aðarlögfræðing. Lögfræðingur- inn er sá sami og samdi fyrir Díönu prinsessu I skilnaðar- máli hennar. Dregur úr ofbeldi Minnka má ofbeldi í fangels- um um helming með réttu mat- aræði, að sögn bandarísks sér- fræðings. Haldið á sjúkrahúsi Sjö konur og átta nýfædd börn fá ekki að yfirgefa fæðing- ardeild á sjúkrahúsi í Zaire fyrr en greitt hefur verið fyrir með- ferðina sem þau fengu. Sumar konurnar hafa dvalið í 3 mán- uði á sjúkrahúsinu. Verja Hundruð sjálfboðaliða hafa komið til Kabúl, höfuð- borgar Afganistans, til þess að verja höfuð- borgina, að því er sagði í ríkisútvarpinu í Afganistan í morgun. Sjálfboðaliðarnir eru sagðir tilheyra sama ættbálki og fyrrum forseti landsins, Nadzibullah, sem Talebanar tóku af lífi í septemberlok. And- stæðingar talebana hafa mynd- að bandalag og sækja að höfuð- borginni. Réttað á ný Áfrýjunarréttur á Ítalíu hef- ur fyrirskipað að réttað verði á ný í máli fyrrum SS foringjans Erichs Priebkes. Fjöldi syrgir Um þrjú þúsund Kýpurbúar fylgdu til grafar Grikkjanum sem tyrkneskir landamæra- verðir skutu til bana á sunnu- daginn. Sprengja í Alsír Þrír létust og 13 særðust í sprengjutilræði í bænum Lak- hdaria í Alsír á mánudags- kvöld. Kabúl Páfi til vinnu Jóhannes Páll H. páfi er nú kominn heim eftir að hafa dvalið viku á sjúkra- húsi vegna botnlanga- skurðar. Læknar hafa fyrirskipað páfa að taka það ró- lega en í gær sáust þess engin merki að hann ætlaði aö hlýða skipunum þeirra. Handtökur í Þýskalandi Lögreglan í Þýskalandi hefur handtekið nokkra menn vegna ráns á kaupsýslumanni. Kaup- sýslumaðm'inn er enn ófund- inn. Látnir lausir Lögreglan í Nígeríu hefúr lát- ið lausa þrjá stjómarandstöðu- leiðtoga sem hafa verið í haldi síðan í júní. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.