Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1996, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1996, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1996 Frjálst, óháð dagblað Úlgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Sfjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON Aöstoöarritstjóri: ELIAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI11, blaðaafgreiösla, áskrift: ÞVERHOLTI14,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingan 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildin 550 5999 GRÆN númen Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíöa: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaöam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerö: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverö á mánuöi 1700 kr. m. vsk. Lausasóluverö 150 kr. m. vsk., Helgarblaö 200 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til aö birta aösent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Ferðaþjónusta allt árið Ef takast á aö lengja feröamannavertíð landsins, þarf að bjóöa fleira en sumarsól og sumarfagra póstkortanátt- úru. Eitthvað verður líka að geta freistað erlendra ferða- manna á öðrum árstímum og síðan haldið jákvæðri at- hygli þeirra, þegar þeir eru komnir til landsins. Ráðstefnur, ársfundir og sýningar eru ein eöiilegu leið- anna að þessu marki. Að hluta til njótum við þar ákveð- innar sjálfvirkni, því að ýmsar stofnanir eru að reyna að safiia löndum í mannfundaskrá sína. Röðin kemur um síðir að íslandi, þegar þannig er hugsað. Hins vegar gerum við lítið til að fá þetta fólk til að minnast dvalarinnar hér á landi, segja öðrum fi-á henni og jafnvel koma sjálft hingað aftur við önnur tækifæri. Margt af innviðum ferðaþjónustunnar leggst í dvala á hausti og vaknar ekki aftur fyrr en að vori. Gistihús, veitingastaðir og ráðstefnusalir í Reykjavík eru upp að vissu marki frambærilegar, en engan veginn svo minnisstæðar stofnanir, að þær geti talizt eins konar ferðamannaparadísir. Yfirleitt líkjast þær hliðstæðum og hversdagslegum miðlungsstofiiunum í útlöndum. Bláa lónið við Svartsengi er um það bil að taka við af Gullfossi og Geysi sem einkennistákn landsins. Það hef- ur þann kost að nýtast til ferðaþjónustu allt árið og vera í seilingarfjarlægð þeirra ferðamanna, sem eru á Reykja- víkursvæðinu og hafa lítinn tíma til umráða. Reykjavíkurborg og Hitaveitan geta lært af reynslunni af Bláa lóninu, hannað landnýtingu og mannvirki á Nesjavöllum með hliðsjón af útivist og slökun og haft frumkvæði að stofnun þróunarfélags um fjölbreytta ferðamanna- og heilsuræktarþjónustu á staðnum. Hagsmunaaðilar í ferðaþjónustu geta tekið til hendinni og boðið ýmsar fleiri tegundir af sérstæðri afþreyingu að vetrarlagi, til dæmis með áherzlu á hollustu og hreyf- ingu. Þar með má telja gönguferðir og hestaferðir, göngu- skíðaferðir á jökli og dorgveiði á ís. Akstursíþróttir í sandgryfjum kunna einnig að freista sumra, enn fremur vélsleðaferðir um jökla, fiallatrukka- ferðir um óbyggðir og skotveiði á sjó og landi. í öllum þessum tilvikum og þeim, sem áður var getið, er náttúra landsins höfð að bakgrunni athafiia ferðamannsins. Jarðhitinn nýtist ekki aðeins til sundlauga og heitra potta, heldur einnig til leirbaða, sem síðan tengjast nátt- úrulækningum og mataræði, eins og við þekkjum frá Heilsustofiiun í Hveragerði. Afeitrunarstöðvar áfengis, tóbaks og ofáts geta einnig verið þáttur ferðaþjónustu. Sameiginlegt með öllum þessum hugmyndum er, að þær nýtast ferðaþjónustunni að vetrarlagi og gera ráð fýrir eigin þátttöku ferðamannsins í einhverri hreyfingu, sporti eða hollustu, með hrikalega náttúru landsins að bakgrunni. Ýmsa þessa þætti má selja sameiginlega. Ein helzta dægrastytting ferðamanna er búðarápið. Merkjavöruverzlanir í Reykjavík geta tekið saman hönd- um um að tryggja, að álagning á merkjavöru í verzlun- um félagsmanna hækki ekki frá því sem nú er og verði áfram lægri en hún er í heimalöndum ferðamanna. Einna lakast er ástandið í söfiium. Ekkert safii á ís- landi er ferðamönnum minnisstætt. En safhahúsið við Hverfisgötu má innrétta sem ferðalagasafii í margmiðl- unarstíl með Guðríði Þorbjamardóttur að grunnþema, ferðir hennar til Grænlands, Vínlands og Rómar. Þannig er unnt að smíða innviði ferðaþjónustu að vetr- arlagi og seiða hingað fleiri ferðamenn, einkum þá, sem hafa dýrari lífsstíl en þeir, sem nú koma að sumri. Jónas Kristjánsson Mestu máli skipti aö 19 þúsund bfleigendur fylktu sér um FÍB meö því að gerast félagsmenn, segir Árni m.a. Sigur félags- manna í FÍB Kjallarinn Undanfama daga og vikur hefur íslensk- um heimilum boðist kær- komin kjara- bót. Iögjöld bílatrygginga hafa lækkað svo um munar hjá flestum tryggingafé- lögum. Þama munar svo miklu að það mun hafa tals- verð áhrif á vísitölu neysluvöru- verðs þegar ““’ fi-am líða stundir. @.mfyr:Gömlu trygginga- félögin Flestir þekkja forsögu málsins. FÍB reið á vaðið með FÍB Trygg- ingu, sem er 25-37% lægri en flest- ir bíleigendur hafa átt að kynnast. VÍS og Sjóvá-AImennar fylgdu í kjölfarið með 16-25% lækkun til að mæta samkeppninni. Önnur tryggingafélög era að undirbúa lækkun. Margir hafa furðað sig á því hvers vegna gömlu trygginga- félögin vora ekki fyrir löngu búin að lækka iðgjöldin. Þau höfðu fúll- yrt að þau ættu í samkeppni. Öll- Arni Sigfússon formaöur FÍB um má vera ljóst að svo var ekki. Það er áfellisdómur yfir þeim opinbera aðilum sem eiga að gæta hagsmuna neytenda í þessum efhum. En hvað þurfti til að koma á þeirri alvöra samkeppni sem leiddi til þessarar lækkunar? Þar skipti mestu máli að 19 þúsund bíleigendur fylktu sér um FÍB _________________ með því að gerast félags- menn. Þar með skapað- ist grund- völlur þess að fara í út- boð á trygg- ingunum. munu leiða til taprekstm-s upp á hundrað milljón króna ef eitthvað er að marka þeirra eigin orð síð- astliðið ár. Áframhaldandi samstaða Af yfirlýsingum VÍS má ráða að ef tekst að stöðva FÍB Tryggingu, þá muni iðgjöldin hækka aftur. Helsta von okkar til að slíkt gerist „Margir hafa furðað sig á því hvers vegna gömlu tryggingafé- lögin voru ekki fyrir löngu búin að lækka iðgjöldin. Þau höföu fullyrt að þau ættu í samkeppni. Öllum má Ijóst vera að svo var ekki.u Grafa undan HÐ Lyktir útboðs- ins urðu þær að breska tryggingafélagið Ibex Mot- or Policies at Lloyds bauð íslensk- um heimilum verulega kjarabót með FÍB Tryggingu. Þessi árangur sýnir hveiju samstaðan getur áorkað. Gömlu tryggingafélögin vilja ekki þessa samkeppni. Þau reyna nú að grafa undan FÍB Tryggingu til að koma í veg fyrir missi við- skiptavina. Þau bjóða iðgjöld sem ekki er að sýna áframhaldandi samstöðu. Með því að gerast félag- ar í FÍB og tryggja bíla sína i FÍB Tryggingu slá bíleigendur þrjár flugur í einu höggi. Þeir fá víð- tæka þjónustu fyrir sig og bíla sína hjá FÍB, fá lægstu iðgjöld bíla- trygginga og tryggja framtíð þeirr- ar samkeppni sem nauðsynleg er til að halda iðgjöldunum áfram lágmn. Árni Sigfússon Skoðanir annarra Óskaland fjárfesta? „Sorglegar staðreyndir mn kjör og réttindi ís- lenskra launamanna blasa við. í áróðursbæklingi stjómvalda til erlendra fjárfesta tekst ekki að dylja þær. Þar kemur fram að laun í iðnaði hérlendis era mn helmingur launa í Danmörku, Noregi og Þýska- landi ... Nú era kjarasamningar framundan. Verk- efni stétfarfélaganna er að tryggja launamönnum mannsæmandi kjör og réttindi á íslandi. Stöðvum landflóttann og gerum ísland að óskalandi latma- manna og fjárfesta." Birgir Bjöm Sigurjónsson í Degi-Tímanum 15. okt. Sjálfstæðisflokkurinn og þjóðin „Landsfúndur er í raun eins konar þverskurður af þjóðinni og fer með stefnumarkandi vald í Sjálfstæð- isflokknum ... En Sjálfstæðisflokkurinn getur ekki öllu lengur haldið sig til hlés í umræðum um þau stóra mál sem við blasir að þjóðin þarf að taka af- stöðu til á næstu árum. Þannig hlýtur flokkurinn ekki síður en aðrir stórir stjómmálaflokkar á Vest- urlöndum, t.a.m. breski íhaldsflokkurinn, að ræða mál á borð við Evrópusambandið og framtíðartengsl okkar við það, þótt hitt sé að sjálfsögðu rétt að EES- samningurinn stendur fyrir sínu.“ Úr forystugreinum Mbl. 15. okt. Frelsissvipting - hegning „Nú er það opinber stefiia sfjómvalda að frelsis- svipting eigi að vera hegning og ekkert annað en hegning. Ekki er litið svo á að fangelsun eigi að leiða til betrunar eða uppbyggingar sakamanna. Það virð- ist ekki breyta neinu þótt sýnt sé fram á að enginn hagnast af þessari stefnu og að þeir sem einu sinni lenda í refsingarfangelsum islenska ríkisins era mjög liklegir til að halda áfram á glæpabraut og lenda aftur og enn aftur i fangelsi." Hrafú Jökulsson í Alþbl. 15. okt. T

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.