Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1996, Page 16
16
íþróttir
Atli Eðvaldsson og Jóhannes Eðvaldsson við undirritun samningsins í gær. Á milli þeirra er Ámundi Halidórsson,
varaformaður knattspyrnudeildar Fylkis. DV-mynd Pjetur
Atli og Jóhannes
ráðnir til Fylkis
- Atli sem þjálfari og Jóhannes sem markaðs- og kynningarstjóri
Romario farinn
með 13 töskur
Brasilíski knattspyrnumaður-
inn Romario yfirgaf Valencia á
Spáni í gær með allt sitt haf-
urtask, 13 ferðatöskur, og fór til
Ríó. Hann sagðist ekki ætla aftur
til Valencia á meðan Luis Arago-
nes væri þjálfari þar og vonast
til að geta gengið aftim til liðs
Flamengo.
Edinburgh vill fara
Justin Edinburgh fór fram á
það við stjórn Tottenham í gær
að vera settur á sölulista eftir að
hann var settur út úr liöinu. Ed-
inburgh telur sig ekki vera inni
í myndinni hjá Gerry Francis og
vill því yFmgefa félagið. Talið er
að Tottenham fái 150 milljónir
fyrir leikmanninn.
Frí um páskana
Nú hefur verið ákveðið að
ekkert verði leikið í ensku knatt-
spymunni um páskahelgina en
að jafnaði hefur verið stift pró-
gramm hjá ensku liðunum um
þá helgi. Þetta var ákveðið þar
sem margir leikmenn ensku lið-
anna eru bundnir með landslið-
um sínum.
Sinclair til Leeds?
Enn og aftur er nú rætt um að
Trevor Sinclair, útherjinn snjalli
hjá QPR, sé á leið frá félaginu
enda fór kappinn fram á það
sjálfur að vera settur á sölulista.
Georghe Graham, sem nýlega
tók við Leeds, vili ólmur krækja
í Sinclair og er tilbúinn að reiða
fram 500 milljónir.
Kyssti dómarann
Framherjinn Alessandro Ver-
onese, sem leikur í ítölsku
áhugamannadeildinni í knatt-
spyrnu, fékk að líta rauða spjald-
ið i leik með liði sinu um helg-
ina. Það er ekki frásögum fær-
andi nema vegna þess að þegar
hann fékk að lita rauða spjaldið
tók hann í höndina á dómaran-
um og kyssti hann á báðar kinn-
amar. Þess ber aö geta að dóm-
arinn var kvenkyns.
Person í aðgerð
Chuck Person, leikmaðurinn
snjalli hjá San Antonio Spurs í
bandarísku NBA-deildinni í
körfuknattleik, þarf að gangast
undir aðgerð á baki og ljóst er aö
hann verður frá næstu þrjá mán-
uðina.
Styttist í NBA
Það styttist í aö keppnistíma-
bilið í NBA-deildinni hefjist en
fyrsta umferðin fer fram föstu-
daginn 1. nóvember. Meistararn-
ir í Chicago hefja titilvörnina
gegn Boston og af öðrum leikjum
má nefna að LA Lakers mætir
Phoenix, Seattle leikur gegn
Utah, SA Spurs gegn Minnesota,
Indiana mætir Detroit og Was-
hington tekur á móti Orlando.
Barist um Hottiger
Dagar Svisslendingsins Mark
Hottiger hjá Everton eru nú
senn taldir. Hann var keyptur
frá Newcastle fyrir 70 milljónir
og hefur fengið fá tækifæri hjá
Everton. Leicester og Shefiield
Wednesday berjast um hann.
í kvöld
Nissandeildin í handbolta:
Stjaman-FH.................20.00
HK-Grótta .................20.00
Fram-Valur ................20.00
Haukar-Afturelding ........20.00
KA-ÍR......................20.00
ÍBV-Selfoss................20.00
1. deild kvenna i körfubolta:
Keflavík-Njarðvik..........20.00
Breiðablik-ÍS .............20.00
Atli Eðvaldsson var í gær ráðinn
þjálfari 2. deildar liðs Fylkis í knatt-
spymu. Samningur Atla er til eins
árs en hann hefur undanfarin tvö ár
stýrt liði ÍBV.
Þá var Jóhannes, bróðir Atla, ráð-
inn markaðs- og kynningarstjóri hjá
Árbæjarliðinu en meginverksvið
hans verða tengsl við stuðnings- og
styrktaraðila knattspyrnudeildar
Fylkis.
Eins og kunnugt er féll Árbæjalið-
iðið í 2. deild nú í haust og hafa
Fylkismenn þegar sett stefnuna á að
endurheimta 1. deildar sætið. Þeir
vænta mikils af störfum þeirra
bræðra enda reyndir mjög i faginu,
Úrslit á Evrópumótunum í hand-
knattleik, sem fram koma hér til
hliðar í opnunni, vekja óneitanlega
mörg hver athygli. Lið frá Belgíu,
Hollandi og Portúgal koma á óvart
með góðum sigrum á sterkari lið-
um. Miklar sveiflur er á leikjum í
Evrópukeppni í handknattleik og
dæmi eru um að lið missi niður 12
marka sigur á heimavelli í 20
marka ósigur á útvelli.
Franska liðið Montpellier, sem
Geir Sveinsson, fyrirliði íslenska
landsliðsins, leikur með, lenti í
hremmingum í Lissabon um síð-
ustu helgi en þar beið franska liðið
sex marka ósigur fyrir Sporting.
Geir Sveinsson var inntur eftir
þessum skelli ef hægt er að kalla
svo.
„Við höfum orðið fyrir mikilli
blóðtöku"
„Við höfum orðið fyrir mikilli
blóðtöku. Átta leikmenn fóru frá
okkur fyrir þetta tímabili. Að vísu
koma fjórir nýir í þeirra stað og
þeir ná ekki að fylla skörð þeirra
sem fóru í burtu. Samt vil ég meina
að það afsaki ekki þennan sex
marka ósigur suður í Lissabon á
sunnudaginn var. Ég er samt að
vona að okkur takist að vinna
þennan mun upp í síðari leiknum í
Montpellier um næstu helgi. Það
bæði sem atvinnumenn til margra
ára og Atli sem þjálfari.
„Ég lít með bjartsýni til þessa
verkefhis. Það er mjög gott að fá
Jóhannes bróður til að starfa með
mér. Hann er þrautreyndur og kann
vel til verka. Ég tel að það taki 3-4
ár að byggja upp gott lið. Fylkir
stendur vel að vigi með mannskap
og ég tel að félagið hafi alla burði til
að komast í hóp hinna bestu að
nýju,” sagði Atli Eðvaldsson á
blaðamannafundi sem Fylkismenn
efndu til í gær vegna ráðningarinn-
ar.
Jóhannes, sem var framkvæmda-
stjóri hjá Reyni, Sandgerði, á síð-
getur þó allt gerst í þeim efnum eins
og dæmin hafa sannað í gegnum tíð-
ina. Ef allt er eðlilegt þá á það að
takast. Bilið á milli þeirra stóru og
litlu er engu að síöur að minnka,“
sagði Geir Sveinsson, í samtali við
Geir Sveinsson og samherjar hans í
Montpellier töpuöu illa í Lissabon.
asta keppnistímabili, sagði sér lítast
mjög vel á Fylkisliðið. Starfsemin
væri mikil hjá félaginu, aðstæður
mjög góðar, áhuginn mikill og efni-
viðurinn góður. Þá sagðist Jóhann-
es hlakka til að starfa með Atla
bróður sínum og sagði að Fylkir
hefði ekki getað fengið betri mann
til að þjálfa en Atla.
Þórhallur Dan Jóhannsson er eini
leikmaðurinn sem lék með liðinu í
sumar sem er horfinn á braut en
hann gekk í raðir KR-inga. Forráða-
menn Fylkis sögðust á fundinum í
gær ekki sjá nein teikn á lofti um að
fleiri leikmenn væru á förum írá fé-
laginu. -GH
DV í gær.
Montpellier gengur heldur ekki
nógu vel í frönsku 1. deildinni. Lið-
iö er í 8. sæti af 14 liðum þegar
fimm umferðum er lokið. Ivry, Cret-
eil og PSG Asnieres standa upp úr.
Liöin í frönsku deildinni
mun jafnari en áöur
„Liðin eru jafnari nú en oft áður.
Töluverðar breytingar hafa orðið á
flestum liðum og til marks um það
hafa fimm landsliðsmenn farið utan
til að leika. Fjórir til Þýskalands og
einn til Spánar. Við eigum að geta
rétt úr kútnum í næstu leikjum því
að baki eru leikir við lið sem eru
fyrir ofan okkur á töflimni. Menn
hér voru svo sem ekki með vænting-
ar fyrir tímabilið. Stefnan var þó
tekin á fjórða sætið,“ sagði Geir sem
kemur heim í leikina gegn Eistum í
Evrópukeppninni um næstu
mánðamót. Báðir leikirnir við þá
verða í Reykjavík.
Deildinni í Frakklandi eins og
annars staðar í Evrópu lýkur
snemma í vor en það er vegna
heimsmeistarakeppninnar í Japan í
maí. Frakkar hafa þar
heimsmeistaratitlinn að verja sem
þeir unnu í HM-keppninni á íslandi
vorið 1995.
-JKS
Mörg óvænt úrslit á Evrópumótunum í handknattleik:
„Það afsakar ekkert
tap okkar í Lissabon"
- sagði Geir Sveinsson hjá franska liðinu Montpellier
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1996
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1996
25
Snóker:
Kristján varð
meistari
meistaranna
Kristján Helgason, íslandsmeistari í
snóker, sigraði stigameistarann, Jóhannes R.
Jóhannesson, í einvígi um meistarabikarinn
um síðustu helgi, 4-2. Keppt var um bikarinn
í fyrsta skipti en stefnt er að því að þetta verði
árlegur viðburður.
Kristján efstur í stigakeppninni í snóker
eftir fyrsta mótið. Hann er með 55 stig, Jó-
hannes B. Jóhannesson 37 og þeir Jóhannes
R. Jóhannesson og Bernharð Bernharðsson
eru með 18,5 stig hvor. Annað stigamótið
verður haldið um helgina en keppt er á Billi-
ardstofunni Klöpp á laugardeginum frá klukk-
an 10. Úrslitin verða síðan á Billiardstofu
Hafnarfjarðar á sunnudaginn. -VS
Ríkharöur Daöason í leik með
KR-ingum í sumar.
Vildu halda Ríkharði lengur
- stóð sig vel í æfingaleik með FC Liege
Ríkharður Daðason, landsliðs-
maður í knattspyrnu úr KR, hefur
frá því um síðustu helgi dvalið í
herbúðum belgíska liðsins FC Liege
við æfingar. Belgíska liðið vildi fá
Ríkharð utan til æfinga til að skoða
hann betur með samninga í huga.
Ríkharður lék æfingaleik með
varaliðinu um síðustu helgi og
komst ágætlega frá sínu. Forráða-
menn liðsins töldu hins vegar mót-
spymuna of litla til að getað metið
styrkleika íslenska landsliðsmanns-
ins. Ríkharður hafði áætlanir um að
koma til íslands í gær en að beiðni
belgíska liðsins verður hann áfram
ytra og leikur annan leik með vara-
liðinu gegn sterkari mótherja. Eftir
þann leik ætti að koma í Ijós hvort
Ríkharður geri samning við félagið.
Tilgangur ferðar Ríkharðs var þó
fyrst og ffemst hugsuð til að sýna
sig og skoða aðstæður hjá FC Liege.
Liðinu vegnar vel í 2. deildinni og
er sem stendur í efsta sæti. Liðið
lenti í fyrra í fjárhagskröggum og
var dæmt niður í 2. deild. í dag er
liðið með hreint borð og stefnan tek-
in á 1. deild þar sem liðið hefur
lengstum verið frá stofnun þess.
Samkvæmt heimildum DV hafa
fleiri lið verið að fylgjast með Rík-
harði í haust. Lið frá Danmörku og
Svíþjóð hafa haft markakóng Is-
landsmótsins undir smásjánni.
-JKS
Newcastle tapaði i Budapest
- góður dagur frönsku liðanna í UEFA-keppninni í gær
Dómararnir létu ekki sjá sig
Sá leiðinlegi atburður varð í leik Víkings og KR í 2. deild karla í hand-
knattleik á laugardaginn að leikmenn og áhorfendur þurftu aö bíða í 40
mínútur eftir að fá dómara á leikinn. Leikurinn átti að hefjast í Víkinni
klukkan 16.30 en hófst ekki fyrr en klukkan 17.10 Leikmenn og áhorfend-
ur voru mættir en dómaramir létu ekki sjá sig.
Forráðamönum Víkings tókst að útvega dómara seint um síðir en þeir
Guðjón L. Sigurðsson og Marinó Njálsson brugðu skjótt við þegar Vík-
ingar höfðu samband við þá og dæmdu leikinn. Þeir félagar áttu ekki að
dæma leikinn en Víkingar fengu þau svör að boöun á leikinn hefði eitt-
hvað skolast til hjá dómaranefndinni.
Vonandi er að þetta verði einsdæmi í vetur enda er leikmönnum og
áhorfendum sýnd mikil vanvirðing þegar svona hlutir eiga sér stað.
-GH
Jón Þórir áfram
með Dalvíkinga
Jón Þórir Jónsson var í gærkvöld endurráðinn þjálfari knattspymuliðs Dalvík-
inga, sem leikur í fyrsta skipti í 2. deild næsta sumar. Hann verður því sitt þriðja
tímabil á Dalvík, annað sem þjálfari, og leikur áfram með liðinu. Þá er frágengið
að Gísli Bjamason verður áfram aðstoðarþjálfari Dalvíkinga.
„Það er mikill hugur í mönnum að standa sig vel í 2. deildinni. Það verða ekki
stórvægilegar breytingar á leikmannahópnum en eflaust bætast einhveijir við,“
sagði Björn Friðþjófsson, formaður knattspymudeildar Dalvíkinga, við DV. -VS
Valsmenn uröu islandsmeistarar í éldri flokki karla í knattspyrnu í ár eftir úrslitakeppni gegn KR og Haukum. Valur
og KR geröu jafntefli en Valsarar unnu einu marki stærri sigur á Haukum og það réö úrslitum. Hér eru meistararnir
og í hópnum má sjá mörg gamalkunn andlit úr knattspyrnunni
Southend 12 2 5 5 12-23 11
Bradford 12 3 2 7 9-19 11
Charlton 10 3 1 6 7-13 10
Oldham 12 1 3 8 12-20 6
X
Breiðablik-Keflavik . . 37-13
2. ÐEILD KARLA
1. DEILD KVENHA
Grindavík-ÍR.............110-42
Penny Peppas skoraði 50 stig fyrir
Grindavík og Anna Dis Sveinbjöms-
dóttir 38. Hafdis, systir Önnu, skoraði
18 stig fyrir ÍR og Jófríður HaUdórs-
dóttir 6.
UEFA-BIKARINN
2. umferö - fyrri leikir:
Dinamo Tbilisi-Boavista.....1-0
Schalke-Trabzonspor..........1-0
Metz-Sporting Lissabon.......2-0
Legia Varsjá-Besiktas........1-1
Karlsruhe-Roma ..............3-0
Slavia Prag-Valencia.........0-1
Club Bmgge-National Búkarest . 2-0
Helsingborg-Neuchatel Xamax .. 2-0
Mönchengladbach-Mónakó .... 24
Inter Milano-Casino Graz ....1-0
Lazio-Tenerife...............1-0
Aberdeen-Bröndby ............0-2
Ferencvaros-Newcastle........3-2
Espanyol-Feyenoord ..........0-3
Guimaraes-Anderlecht ........1-1
ENGLAND
Heil umferö verður í meistaradeild Evrópu í kvöld. Skoska iiöið Glasgow Rangers á
erfiöan leik fyrir höndum gegn Ajax í Amsterdam. Myndin er tekin viö komu liðsins til
borgarinnar í gær. Paul Gascoigne og Joachim Björklund stinga saman nefjum.
Þulur á Eurosport:
Flóðljósin ekki nógu
góð í Laugardalnum
Eins og vænta mátti litu nokkur
óvænt úrslit dagsins ljós í UEFA-
keppninni í knattspymu í gær-
kvöldi. en þá fóru fram fyrri leikim-
ir í 2. umferð. Franska liðið
Mónakó vann frækinn útisigur á
þýska liðinu Borussia
Mönchengladbach. Karlsruhe bætti
það reyndar upp með glæsilegum
sigri á ítalska liðinu Roma.
Góöur sigur Bröndby í Aber-
deen
Danir höfðu einnig ástæðu til
fagna framgöngu sinna manna en
Bröndby gerði góða ferð til Aber-
deen þar sem liðið skellti heima-
mönnum á sannfærandi hátt.
Newcastle tapaði í Búdapest fyrir
Ferencvaros og ætti samt að eiga
alla möguleika á að vinna það tap
upp í heimaleiknum eftir tvær vik-
ur. Engu að síður kemur á óvart
hvað ensku liðin eiga í sumum til-
fellum erfitt uppdráttar gegn liðum
á meginlandinu.
Tigana í sjöunda himni
Jean Tigana, þjálfari Mónakó, var
að vonum í sjöunda himni með sig-
urinn gegn Mönchengladþach.
Hann fagnaði um leið sinum fyrsta
sigri á þýsku félagsliði, bæði sem
þjálfari og leikmaður.
„Ég er undrandi yfir þessum stór-
sigri okkar. í huga okkar var að
skora mark en varla öll þessi þijú,“
sagði Tigana eftir leikinn.
Það var annað hljóð í Bernd
Krauss, þjálfara Mönchengladbach.
Við sáum það hvað Frakka eiga
góða knattspyrumenn. Það er aldrei
að vita nema franskur fótbolti
standi þeim þýska framar um þess-
ar mundir. Við náðum okkur engan
veginn á strik í þessum leik. Það er
ekki öll nótt úti, síðari leikurinn er
eftir,“ sagði Krauss.
Viðureign Ferencvaros og
Newcastle var íjörug í meira lagi.
Ungverjamir skoruðu fyrstu tvö
mörkin en Newcastle tókst að jafna
fyrir leikhlé. Eitt er þó öruggt, að
enska liðið verður að leika betur í
síðari leiknum ætli það sér að kom-
ast áfram í keppninni.
Ungverska liðið sýndi í gærkvöld
að það er sýnd veiði en ekki gefln.
Knattspyrnu í Ungverjalandi hefur
fleygt fram eftir mögur síðustu ár.
Valencia, sem sló Bayern
Múnchen út í 1. umferð, heldur
áfram að koma á óvart. Spænska
liðið sótti Slavía í Prag heim og
sigraði sanngjarnt.
Feynoord kom á óvart
Feyenoord kom á óvart með því
að vinna stórsigur á Espanoyl í
Barcelona. Spænska liðið hefur
ávallt þótt erfitt heim að sækja.
Ekki er víst að markið, sem
Jocelyn Angloma skoraði fyrir Inter
gegn Casino Graz, nægi en austur-
ríska liðið á heimaleikinn til góða.
-JKS
Barnsley-Oxford .............0-0
Birmingham-Ipswich...........1-0
Bolton-Tranmere..............1-0
Portsmouth-Wolves............0-2
Reading-Manch.City ..........2-0
Sheffield Utd-Charlton.......3-0
Efstu og neðstu lið:
Bolton 12 9 2 1 28-14 29
Norwich 11 7 3 1 17-7 24
Wolves 13 6 3 4 18-13 21
Barnsley 11 6 3 2 17-10 21
Tranmere 13 5 4 4 16-14 19
Cr.Palace 11 4 6 1 23-10 18
Sheff.Utd 10 5 2 3 19-12 17
Huddersf. 10 5 2 3 17-12 17
Stoke 10 4 4 2 15-16 16
Það hefúr vakið athygli marga, sem ná
útsendingum Eurosport, að ekki var ver-
ið hrósa flóðljósunum á Laugardalsvell-
inum í leik íslands og Rúmeníu i und-
ankeppni heimsmeistaramótsins sem
fram fór á miðvikudaginn í síðustu viku.
Margir leikir í keppninni fóru fram
þetta umrædda kvöld og hefur Eurosport
síðan verið að sýna mörkin úr þeim á
síðustu dögum. Meðal annars úr leik ís-
lands og Rúmeníu.
Þulurinn þrítók í útsendingunni hvað
flóðljósin væru léleg á vellinum í Laug-
ardal. Birtan, sem þau ættu að gefa, væri
einfaldlega ekki nægileg. Hann sagðist
ekki trúa öðru en kvörtun um þetta yrði
komið á framfæri við FIFA.
Hvort sem það er tilviljun eða ekki
tóku nokkrir áhorfendur eftir misbjört-
um svæðum á vellinum í leiknum í síð-
ustu viku.
DV reyndi árangurslaust að ná tali af
vallarstjóranum á Laugardalsvelli í gær
til að bera þessa athugasemd Eurosport
undir hann.
-JKS
1. deild
íþróttir
Evrópumótin í
handknattleik
Evrópukeppni meistaraliöa:
Barcelona-Volgograd .. 37-22 34-29
Fretemele Esch-Kiel......17-33
Winterthur-Redbergslid....24-17
B.Zagreb-C.Ankara .... 27-24 31-20
HSG Linz-SKA Minsk.......19-18
Braga-Hapoel Le Zion . . . báðir eftir
GOG Gudme-Pelister Bitola .. 21-24
Jskra Kisica-Principe Trleste . 22-21
Gran.Kaunas-Anova Emmen . 33-13
Topocany-Celje Pivovama . . . 18-33
Cabot Zubri-Rauða stjaman . . 23-24
Hasselt-PSG Asnieres......22-18
Pick Szeged-Steaua.........27-17
Runar-Vrissia .......báðir eftir
Valur-Shaktyor Donetsk . báðir eftir
BK 46 Karis-Caja Santander . . 20-29
Evrópukeppni bikarhafa
Veszprém-Katarinl....báðir eftir
Stockerau-US Ivry .......29-25
Lemgo-Tsjeljabinak .... báðir eftir
Kosice-Skenderborg.........19-17
Momar Bar-Mladost........41-28
KA-Amicitia Ziirich . . . 27-27 29-29
Savehof-Magdeburg..........18-25
Aalsmeer-Bidasoa ..........20-33
Siracusa-SKAF Minsk .......35-26
Zaporozhje-Petrochemis Plock 25-23
H. Liege-L. Kaunas .... 20-18 18-18
Dukla Prag-Maccabi Raanana 31-27
Savinesti-Halkbank Ankara . . 19-16
Kutina-Zeljeznicar SarajeVo . . 30-21
Viking-Dambis Riga . . . 37-24 27-23
Slovan Ljubljana-Porto ...... 29-27
EHF-bikarinn
CSKA Moskva-Besiktas ....30-16
Kariovaca-Slask Wroclaw .... 31-21
Sp.Bruck-Filippos Verias .... 27-17
Granollers-Union Beynoise . .. 24-19
Acad.Vigo-A. Minsk . . . 36-26 29-17
Elektromos-Gorenje Velenje . . 25-25
Flensburg-Schafthausen...27-18
Brovary-Virum Sorgenfri .... 23-21
Ness-Ziona-B.Karvina . . 20-26 19-31
Lamacos-St.Luxemburg ....23-24
Baia Mare-Drott............20-17
Sporting Liss.-Montpellier . . . 22-16
PSK Riga-Mam.Tbilisi . 41-23 33-23
Jafa Resen-Part.Belgrad..18-11
HC Prato-Stavanger.........26-20
Stjaman-Hirschmann.........22-18
Borgakeppni Evrópu
Györi ETO-Drammen........27-25
Skövde-Klaipeda......báðir eftir
PA Leon-Strovolou .... 30-17 35-18
Dobova-Nettelstedt.........22-22
Borec Titov-Benflca........15-18
Ericsson Wien-US Creteil .... 17-18
Vrbes Figrad-Sandefjord .... 31-21
Kolding-Zadar Bortan . . 30-17 23-17
Difierdange-B.Travnik . 29-26 30-20
D.Astrakhan-A.Lodz .... báöir eftir
Din.Búkarest-SKA Lvov . báðir eftir
St.Otmar-Doukas Aþena....24-19
Haukar-Martve Tbilisi . . báðir eftir
ASK Ankara-Neerpelt......30-19
K.Plzen-Univ.Gomel . . . 28-15 28-16
Teramo-Sittardia.........20-19
Fýrsta mark
Margrétar
Margrét Ólafsdóttir skoraði
fyrsta mark sitt fyrir Fortuna
Hjörring í dönsku úrvalsdeild-
inni í knattspymu kvenna um
helgina. Fortuna sigraði þá
Vejle, 6-0, og skoraði Margrét
síðasta markið.
Þetta var annar leikur Mar-
grétar en Fortuna vann HEY,
6-5, í toppslag deildarinnar á
dögunum. Fortuna hefur þriggja
stiga forskot á HEY þegar fiórar
umferðir eru búnar.
-ih/VS
Bærinn styrkir
Skallagrím
Á síðasta fundi bæjarráðs
Borgarbyggðar var ákveðið
vegna góðs árangurs Skalla-
gríms í sumar að veita knatt-
spyrnudeildinni 200 þúsund
króna viðurkenningarstyrk.
Skallagrímur vann sér sæti í 1.
deild í fyrsta skipti í sögu félags-
ins.