Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1996, Page 19
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1996
27
Fréttir
Ólgan í bæjarstjórn Húsavíkur vegna sölu á hlutabréfum í fyrirtækjunum:
Getur varla þýtt annað
en að meirihlutinn falli
DV, Akureyri:
Enn er allt á huldu með framtíð
meirihlutasamstarfs Framsóknar-
flokksins og Alþýðubandalagsins í
bæjarstjóm Húsavíkur vegna fyrir-
hugaðrar sölu Húsavíkurbæjar á
13% eignarhluta í Fiskiðjusamlagi
Húsavíkur og útgerðarfyrirtækinu
Höfða sem verða formlega sameinuð
í lok mánaðarins.
Eins og DV hefur skýrt frá hefur
bæjarstjóm borist erindi frá Fisk-
iðjusamlaginu sem vill kaupa 13%
af um 53% hluta Húsavíkurbæjar i
fyrirtækjunum tveimur, enda er
sterkur vilji til þess að bærinn verði
ekki áfram meirihlutaeigandi í fyr-
irtækjunum þegar þau hafa samein-
ast og fara á almennan hlutabréfa-
markað. Ágreiningur meirihluta-
flokkanna í bæjarstjórn stendur
ekki sist um söluverð á hlutabréfum
bæjarins, Fiskiðjusamlagið vill
kaupa á genginu 1,71 en alþýðu-
bcmdalagsmenn telja að miklu nær
sé að selja hlutabréfin á genginu 3
og munar þar um 80 milljónum
króna á söluverði bréfanna.
„Það er án efa meirihluti fýrir
sölunni í bæjarstjóminni en allt
eins óvíst að Alþýðubandalagið
standi að þeirri sölu. Það getur
varla þýtt nema eitt; að meirihlut-
inn falli, enda um stórmál að ræða,“
sagði einn viðmælenda DV í gær.
Þeir aðilar sem DV ræddi við um
þetta mál vildu ekki ræða það und-
ir nafni á þessu stigi.
Telja má fullvíst að úrslit málsins
ráðist á bæjarstjómarfundi nk.
þriðjudag og þá verði gerð sam-
þykkt um sölu bréfanna sem lögð
verður fyrir hluthafafundi fyrir-
tækjanna tveggja sem haldnir verða
29. október en þeir fundir munu
formlega samþykkja sameiningu
fyrirtækjanna.
-gk
Viðhaldsdeild
Flugleiða:
Enn nýr
stórsamn-
ingur viö
SAS
DV, Suðurnesjum:
„Við reiknum með aö fá 10
Fokker 50 flugvélar frá SAS í
skoðun í vetiu* - samningur upp
á annað hundrað milljónir króna.
Þetta verður tveggja mánaða
verkefni en vmna okkar hefur
vakið verðskuldaða athygli er-
lendis. Við höfum séð um stærstu
skoðanir á Fokker 50 vélum fyrir
flest flugfélög á Norðurlöndum
sem eru með slíkar vélar,“ sagði
Guðmundur Pálsson, fram-
kvæmdastjóri framleiðslusviðs
Flugleiða á Keflavíkurflugvelli, í
samtali við DV í morgun.
Þetta er einn stærsti samning-
ur sem deildin hefur gert og
verða ráðnir 15 flugvirkjar til
viðbótar vegna hans. Flugleiðir
hafa verið með rammasamning
við SAS um stórskoðanir á
Fokker-vélum og SAS- menn ver-
ið ánægðir með vinnuna og enn
er framhald á þessum stórskoð-
unum með nýja samningnum.
„Það eru fyrirsjáanlegar mikl-
ar annir hjá okkur, bæði i við-
haldi fyrir Flugleiðir og aðra eins
og SAS í vetur. Við höfum ráðið
nokkra tugi flugvirkja undanfar-
in ár og erum enn að bæta við. 15
í þessum mánuði,“ sagði Guð-
mundur en alls vinna nú 130 flug-
virkjar í viðhaldsdeildinni.ÆMK
Framboð gegn
sitjandi
formanni
framkvæmda-
stjórnar
„Ég tel aö Guðmundur Odds-
son, formaður framkvæmda-
stjómar, og Sigurður Amórsson,
gjaldkeri Alþýðuflokksins, standi
í vegi fyrir þvi að flokksstarf geti
blómstrað og skrifstofan verði
starfhæf á ný,“ segir Sigurður
Tómas Björgvinsson, fyrrverandi
framkvæmdasfjóri Alþýðuflokks-
ins.
Sigurður Tómas hefur lýst því
yfir að hann ætli að gefa kost á
sér til formanns framkvæmda-
stjómar á flokksþinginu 9. nóv-
ember ef formaður og gjaldkeri
„sjá ekki sóma sinn í því að segja
af sér,“ segir hann og býst við að
almennir flokksmenn muni taka
málefni flokksskrifstofúnnar og
framkvæmdastjómar upp á þing-
inu. -GHS
80
þús.tonn
76.714
70
60
JLoðnuaflinn
eftir verstöðvum
Skipin á útleið á ný:
Loðnuaflinn yfir
400 þúsund tonn
DV, Akureyri:
Loðnuaflinn á sumar- og haust-
vertíð er kominn yfir 400 þúsund
tonn, nánar til tekið 403.271 tonn, og
er þá eftir að veiða um 334 þúsund
tonn af upphafskvóta samkvæmt
upplýsingum frá Fiskistofu.
Einhver loðnuveiði var fyrir helg-
ina en skipin fóm í land vegna veð-
urs og var víða landað um helgina
og á mánudag. Veður var að ganga
niður á miðunum í gær og skipin
því á útleið aftur.
Loðnu hafði i gær verið landað á
16 stöðum víðs vegar á landinu.
Siglufjörður er langhæsta löndunar-
stöðin á vertíðinni en þangað höfðu
í gær borist tæplega 77 þúsund
tonn. Annars lítur listinn yfir þá
staði þar sem mestu hafði verið
landað þannig út:
1. Siglufjörður 76.714 tonn.
2. Eskifiörður 37.914 tonn.
3. Akureyri 33.092 tonn.
4. Seyðisfiörður 30.553 tonn.
5. Þórshöfn 28.841 tonn.
6. Neskaupstaður 28.243 tonn.
7. Raufarhöfn 27.836 tonn.
8. Vestmannaeyjar 25.215 tonn.
9. Akranes 24.502 tonn.
10. Fáskrúðsfiörður 17.605 tonn.
-gk
Hábergið á loðnumiöunum um helgina, en þá var mikil veiði,
DV-mynd Þorsteinn
Borgarbyggð:
Hitaveitan
tók á sig
hækkunina -
DV, Vesturlandi:
„Við ákváðum að hitaveitan
tæki þessa hækkun á sig. Hún
ræður vel viö það,“ sagði Óli Jón
Gunnarsson, bæjarstsjóri í Borg-
arbyggð, í samtali við DV, en í
síðustu viku ákvað bæjarstjóm
Borgarbyggðar að taxtar hitaveit-
unnar hækkuðu ekki þó svo taxt-
ar Hitaveitu Akraness og Borgar-
fiarðar hefðu verið hækkaðir um
2,8%. -t..
Samkvæmt heimildum DV
stendur Hitaveita Borgamess vel
að vígi enda var staöið myndar-
lega að undirbúningi og stofnun
hennar. Meðal annars seldu
Borgnesingar Rafveitu Borgar-
ness og sinn hlut í Andakílsár-
virkjun til að lækka skuldir sín-
ar í Hitaveitu Akraness og Borg-
amess - HAB - og skapa þannig
hitaveitu Borgamess góðan
rekstrargrundvöll.
Hitinn hækkar hins vegar á
Akranesi hjá hitaveitunni þar
eins og áður hefur komið fram
enda er reksturinn erfiðari hjá
Skagamönnum. -DVÓ
Alþjóðleg
danskeppni:
íslenskt par
sigraði
Dansparið Benedikt Einarsson
og Berglind Ingvarsdóttir sigr-
uðu flokk 12 - 15 ára í Imperial
Championships danskeppninni í
London á sunnudag. Keppt var i
Suður amerískum dönsum. -JHÞ
KIENZLE
EES ökurita
ffærö þú hjá okkur!
Haföu fyrirvara!
Pantaöu tímanlega
ELDSHÖFÐA 17
SÍMI 587 5128