Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1996, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1996, Page 28
36 MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1996 Sitt sýnist hverjum um lands- fund sjálfstæðismanna. Ys og þys útaf engu „Þetta var ys og þys útaf engu. í raun var fullkomlega ástæðu- laust að halda landsfundinn, enda náði Davíð að fresta honum um heilt ár.“ Arnór Benónýsson, í Alþyöu- blaðinu. Draumur í dós „Landsfundurinn var algjör draumur í dós.“ Guðlaugur Þór Þórðarson, for- maður SUS, í Alþýðublaðinu. Ummæli Kvenfélag stjómað af körlum „Fjölmennasta kvenfélag landsins að sögn, Sjálfstæðis- flokkurinn, hélt aðalfund sinn um síðustu helgi. Það sem gerir þetta kvenfélag einkar sérstakt er að í öllum helstu forystuhlut- verkum félagsins eru karlar." Árni Þór Sigurðsson borgarfuli- trúi, í Degi-Tímanum. Kom færandi hendi „Þegar síðast var kosið til Al- þingis kom Stefán Guðmunds- son, þingmaður Framsóknar- flokksins, hingað í heimsókn og gaf okkur spilastokka, lyklakipp- ur og upptakara." Erla Jónsdóttir, Hofsósi, í Degi- Tímanum. Skrýtin söfn Söfn eru til í öllum borgum heimsins og eru flest hefðbundin þar sem listir og þjóðlegur fróð- leikur er algengast. En til eru söfn sem eru einstök í sinni röð og eru Bandaríkjamenn duglegir að búa til slík söfii. Má þar til dæmis nefna ísskápa- og loft- ræstikerfasafnið í Los Angeles. Þar má finna ótrúlegan fjölda af ískápum, sem hafa þó ekki mik- ið breyst frá því þeir voru fundn- ir upp, og ýmis loftræstikerfi sem hafa veriö fundin upp en hafa komið að litlum notum. Sér- stakur bás er til heiðurs Willis Carrier sem fann upp fyrsta loft- ræstibúnaðinn árið 1902, þá 25 ára gamall. Voðaatburðir á safni í St. Augustine i Flórída er safh sem ber heitið Tragedy in US. Þar má sjá bílinn sem Jane Mansfíeld ók þegar hún lést i bíl- slysi, sjúkrabílinn með öllu til- heyrandi sem Lee Harvey Oswald var keyrður í eftir að Jack Ruby skaut hann og einnig er þar innfluttur spænskur fangaklefi frá 1718 með beina- grindum sem fundust í honum. Blessuð veröldin Músagildrusafnið Á Bretlandseyjum er að finna eina músagildrusafnið sem til er og þar má sjá einar 150 gerðir af músgildrum, meðal annars 5000 ára gamla músagildru frá Eg- yptalandi og franska músagildru sem er eftirliking af frönskum höggstokki. Af öðrum söfnum má nefna striptease-safnið í Kali- forníu, Campbell-súpusafnið í New Jersey og víbratorasafnið í San Francisco. Víðast hvar smáskúrir Skammt norðvestur af Skotlandi er 978 mb. lægð sem grynnist og þokast norðvestur. Suður af Sval- barða er 1.027 mb. hæð sem hreyfist hægt norður. Veðrið í dag í dag verður austlæg átt á land- inu, viðast kaldi en sums staðar st- inningskaldi eða allhvasst suðaust- antil. Um landið austanvert verður súld eða rigning en smáskúrir ann- ars staðar. I nótt verður austan- og norðaustangola eða kaldi og smá- skúrir eða slydduél um allt land. Hiti verður á bilinu 5 til 10 stig í dag en 1 til 5 stig í nótt, hlýjast suðaust- anlands. Á höfuðborgarsvæðinu verður norðaustanátt, gola eða kaldi. Skýj- að verður með köflum og hætt við smáskúrum. Hiti verður 5 til 8 stig í dag en 2 til 5 stig í nótt. Sólarlag í Reykjavík: 18.04 Sólarupprás á morgun: 08.24 Síðdegisflóð í Reykjavík: 20.39 Árdegisflóð á morgim: 09.02 Veörið kl. 6 í morgun: Akureyri alskýjað 8 Akurnes rigning og súld 8 Bergstaðir skýjað 10 Bolungarvík alskýjað 6 Egilsstaöir alskýjað 7 Keflavíkurflugv. skýjað 8 Kirkjubkl. skýjað 7 Raufarhöfn þoka 7 Reykjavík skýjaö 8 Stórhöfði þokumóöa 8 Helsinki skýjað 2 Kaupmannah. Ósló alskýjað 8 Stokkhólmur alskýjaö 10 Þórshöfn rigning 10 Amsterdam rign. á síð. kls. 13 Barcelona rigning 14 Chicago heiðskírt 12 Frankfurt þoka 7 Glasgow skýjað 11 Hamborg þokuruðningur 8 London léttskýjað 11 Los Angeles þokumóöa 17 Madrid Malaga léttskýjað 15 Mallorca rigning 16 París skýjað 13 Róm rignig 21 Valencia léttskýjaö 14 New York heiöskírt 11 Nuuk léttskýjaö -1 Vin léttskýjaö 11 Washington heiöskírt 14 Winnipeg skýjað 11 Arnar Geir Hinriksson, íslandsmeistari í einmenningi í bridge: Sæki mikið í mót fyrir sunnan „Það er orðið langt síðan ég byrjaði að keppa í bridge. Ég hóf keppnisferilinn í Menntaskólan- um á Akureyri 1956 og hef verið virkur keppnismaður síðan en þetta er aðeins í annaö sinn sem ég tek þátt í einmenningskeppni, mest hef ég verið í tvímennings- keppni sem er að vissu leyti sama eðlis,“ segir Arnar Geir Hinriks- son sem fyrir stuttu gerði sér lítið fyrir og varð íslandsmeistari I ein- menningi í bridge. Amar Geir, sem býr á ísafirði, sagði að sigur- inn hefði komið sér á óvart: „Ég legg alltaf upp í keppni með það fyrir augum að standa mig sem Maður dagsins best og reyna að vera framarlega og alltaf er maður að vonast eftir því að komast á toppinn en sigur- inn kom vissulega á óvart. Ég hafði spilað með sama makkem- um í hátt í tvo áratugi, Einari Val Kristjánssyni, og við náðum við og við að komast upp á milli þeirra bestu fyrir sunnan og náðum hæst í annað sætið á íslandsmóti. En stutt er síðan Einar Valur dó svo Arnar Geir Hinriksson. ég er eiginlega makkerslaus um þessar mundir. Framundan er mót í tvímenn- ingi um næstu helgi á Selfossi sem Amar Geir ætlar að taka þátt í: „Ég sæki mikið í mót fyrir sunnan enda er lítið um mót á Vestfjörð- um. Mótið á Selfossi er tvímenn- ingur, árlegt minningarmót um Einar Þorfinnsson og þar mun ég spila með góðum vini mínum á Selfossi, Vilhjálmi Þór Pálssyni.“ Amar Geir sagði að það væri frekar dauft yfir bridgelifinu fyrir vestan um þessar mundir: „Það hefur verið starfrækt bridgefélag í rúm þrjátiu ár. Þvi miður hefur verið dvínandi kraftur í félaginu en vonir standa til að meiri kraft- ur verði settur í starfsemina. Ég spila hér fyrir vestan við vini og kunningja en er nú samt ekki hú- inn að finna mér annan makker, enda stutt um liðið síðan Einar Valur féll frá. Ég ætla samt að spila áfram alveg þangað til ég drepst." Amar Geir Hinriksson er lög- fræðingur og rekur eigin lög- mannsstofu á ísafirði. Hann sagði að fyrir utan bridgeið væru það skíðin sem ættu hug hans: „Ég hef sérstaklega gaman af að fara á skíði þegar tími er til. Hér á ísa- firði er stutt að fara á skíði en vet- urinn í fyrra var ekki góður, það er varla hægt að segja að fallið hafi snjókom á ísafirði eftir voða- atburðina á Flateyri. Þaö er von- andi að betur gefi fyrir skíða- mennskuna á komandi vetri.“ -HK Myndgátan Jökulsporður Myndgátan hér aö ofan lýsir lýsingarorði Heil umferð í handboltanum I kvöld verður handboltinn í sviðljósinu en þá verður leikin heil umferð í 1. deild karla. Flestir eru á því að deildin verði jöfn í vetur og að allir geti í raun unnið alla en efst um þessar mundir eru nýliðamir í Fram og Afturelding og eiga þau bæði erfiða leiki í kvöld, Fram tekur á móti íslands- meistumm Vals, sem töpuðu illa í Iþróttir síðasta leik og verða því erfiðir viðfangs, og Afturelding fer í Hafn- arfjörð og leikur við Hauka en margir spáðu Haukaliðinu góðu gengi í vetur. Aðrir leikir kvölds- ins eru Stjarnan-FH í Garðabæn- um, HK-Grótta í Kópavogi, KA-ÍR á Akureuri og ÍBV-Selfoss í Vest- mannaeyjum. Bjöm Thor. og Egill á Kringlukránni í kvöld leikur Tríó Bjöms Thoroddsens ásamt Agli Ólafs- syni á Kringlukránni. Aðal uppi- staða tónleikanna era lög af plöt- unni Híf opp sem varð til í sam- vinnu Bjöms og Egils á síðast- Tónleikar liðnu ári. Tónlistin er íjölbreytt meö ívafi ýmissa stíltegunda, djassi, rokki og latin og einnig áhrifum frá íslenskum þjóðlög- um. Flytjendur auk Egils era Ás- geir Óskarsson á trommur og Gunnar Hrafnsson á kontra- bassa. Tónleikamir hefjast kl. 22.00. Bridge Þetta skrautlega spil kom fyrir á HM í kvennaflokki árið 1968. Úrlsit- in í einum leiknum vora í meira lagi skrautleg. Eins og glögglega sést standa 7 grönd á hendur NS en það er enginn hægðarleikur að ná þeim samningi ef vestur hindrar kröftuglega. Sagnir gengu þannig á öðra borðanna, norður gjafari og enginn á hættu: 4 53 * Á6 4 KG107 * D9632 * 109 * DG10875432 4 54 * — Norður Austur Suður Vestur pass pass 2 * 6* p/h Tvö lauf suðurs voru alkrafa og vestur var ekkert að tvínóna og hindraði strax á sjötta sagnstigi. Pass norðurs lofaði einhverjum spil- um (dobl hefði sýnt veik spil) og suður var ekki reiðubúinn að spila 6 hjörtu dobluð sem hefðu gefið 900 miðað við þeirri tíma útreikning (1100 í dag). Norður hefði vel getað skotið á 6 grönd en lét það vera og átti eftir að sjá eftir því. Vestur hóf vömina á því að spila út hjartatvisti sem austur trompaði. Tvisturinn í hjarta var skilaboð um að fá lauf til baka og austur hlýddi því. Vömin tók þannig fjóra fyrstu slagina á víxltrompun. Á hinu borðinu í leiknum opnaði suður einnig á al- kröfunni tveimur laufum. Vestur ákvað þar að stökkva í fimm hjörtu og það gaf NS meira næði til að segja á- spilin sín. Norður sagði sex hjörtu og suður ákvað þá að stökkva í 7 spaða. Norður átti að breyta þeim samningi í 7 grönd því það er erfitt að sjá hvemig 7 spaðar getur verið betri samningur en 7 grönd. Sjö spaðar era hins vegar betri samningur en 6 spaðar. Nú var komið að vestri að hnekkja spilinu en á einhvem hátt var vestur sann- færður um að NS væru viðbúnir hjartaútspili og spilaði út tígulfimmunni. Það útspil kostaði 19 impa sveiflu. ísak Öm Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.