Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1996, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1996, Side 4
4 FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1996 Fréttir Yfírlýsing Seðlabankans: Höfum verið nauðbeygðir að halda uppi vöxtum - segir Birgir ísleifur Gunnarsson seðlabankastjóri „Menn hafa tekið þetta eina at- riði nokkuð út úr skýrslunni og ein- blínt á það. En ef það sem sagt er í henni er borið saman við það sem segir í þjóðhagsáætlun, sem lögð var fram á Alþingi í október, er um sömu tölur að ræða. Við teljum okk- ur sem faglega stofnun vera að benda á hvað sé óhætt að gera án þess að setja af stað verðbólgu og án þess aö setja raungengið í hættu. Það er alrangt að við séum að blanda okkur á einhvern hátt inn í gerð kjarasamninga," sagði Birgir ísleifur Gunnarsson seðlabanka- stjóri. Hann var spurður um þá gagn- rýni sem fram kemur hjá verkalýðs- hreyfingunni varðandi vaxtamálin. Hvers vegna vextir hér á landi séu ekki lækkaðir og samræmdir því sem er í viðmiðunarlöndunum? „Við höfum verið nauðbeygðir til að reka aðhaldssama peningapólitík með því að hafa vexti hér hærri en í löndunum í kringum okkur. Við teljum okkur með því forðast þenslu og verðbólgu og það að við missum gjaldeyri úr landi. Við verðum að hafa okkar peningapólitík í sam- ræmi við þetta. Svo vil ég benda á það að vextir eru mismunandi milli landa. Jafnvel á milli landa innan Evrópubandalagsins er vaxtamun- ur. Það er því ótrúlegt að vextir hér verði þeir sömu og í nágrannalönd- unum miðað við þau efnahagsskil- yröi sem við búum við,“ sagði Birg- ir ísleifur. - En þurfa þá launahækkanir hér að vera þær sömu og i nágranna- löndunum? „Það fer eftir því hvað við er mið- að. Ef menn vilja koma verðbólg- unni af stað með því að hækka laun hér meira en annars staðar þá er það sjálfstæð ákvörðun," sagði Birg- ir Isleifur. Hann sagöi það alveg af og frá að hér væri um pantaða yfirlýsingu að ræða. Skýrsla Seðlabanka íslands kæmi alltaf út um þetta leyti árs, burtséð frá því hvort kjarasamn- ingaferli væri í gangi eða ekki. -S.dór Komandi kjarasamningar Líklegar kröfur verkalýðshreyfingarinnar um kaupmáttaraukningu og það sem VSÍ, Seölabankinn og Þjóðhagsstofnun telja óhætt að kaupmáttur aukist Þjóðhags- Seðlabanki Vinnuveitenda- áætlun íslands sambandið Iðnaðar- manna- samböndin Verkamanna- sambandið |gg| ^ Yfirlýsing Seðlabankans: Otrúleg hlýðni við stjórnvöld - segir Björn Grétar Sveinsson, formaður VMSÍ „Nú í aðdraganda kjarasamninga koma hinar ýmsu stofnanir ríkisins allt í einu fram með yflrlýsingar og eru að reyna að hafa bein áhrif á framgang kaupmáttar verkafólks. Þetta gerist þrátt fyrir þaö að þeir sem eru að tjá sig fyrir hönd þess- ara stofnana eru menn með hund- ruð þúsunda í mánaðarlaun auk hlunninda. Ég minni á að það heyr- ist ekki múkk í þessum herrum þeg- ar kjaradómur og Alþingi voru að ausa út launahækkunum til top- panna í þjóðfélaginu fyrir rúmu ári. Maður verður stundum orðlaus yflr því hversu opinberar stofnanir eru hlýönar við stjórnvöld," sagði Bjöm Grétar Sveinsson, formaður Verka- mannasambandsins, um yflrlýsingu Seðlabankans. Hann sagðist hefði talið það eðli- legra að Seðlabankinn útskýrði fyr- ir fólki þann gífúrlega vaxtamun sem er á milli íslands annars vegar og viðmiðunarlandanna hins vegar. Það væri það mál sem Seðlabankinn ætti að hafa áhyggjur af. „Vaxtamunurinn er gífurlegur, okkur í óhag, og spilar ekki lítið inn í kaupmátt. Ég fullyrði að í banka- kerfinu, þar sem fjölbreytt útlána- kjör eru í gangi, nýtur verkafólk lökustu kjaranna sem þýðir mjög háa vexti, mun hærri en peninga- mennirnir. Seðlabankinn ætti að snúa sér að þessum málum en láta kjarasamningana í friði,“ sagði Bjöm Grétar Sveinsson. -S.dór Hvað eiga kjarabæturnar að vera miklar? Breitt bil milli hagsmunaaðila - yfirlýsing seðlabankastjóra veldur uppnámi Sú yfirlýsing Seðlabankans, sem Birgir ísleifur Gunnarsson banka- stjóri flutti á dögunum, um að laun mættu ekki hækka hér á landi um meira en 3,5 til 4 prósent í komandi kjarasamningum hefur valdiö miklu uppnámi innan verkalýðshreyflngar- innar og hleypt illu blóði í menn. Það er einnig ljóst að milli hug- mynda Seðlabankans, vinnuveitenda og þjóðhagsáætlunar, sem fjárlögin byggjast á, er breitt bil. Þjóðhagsáætlun gerir ráð fyrir 3,5 prósenta launahækkun milli áranna 1996 og 1997. Það þýðir í raun 1,5 pró- sent kaupmáttaraukning á ári í 2 prósent verðbólgu eins og nú er. Fjárlagafrumvarpið er byggt á þeirri tölu. Seölabankinn er með sömu tölu. Birgir fsleifm- sagði að laun mættu ekki hækka mn nema 3,5 til 4,0 prósent ef verðbólga ætti ekki að æða af stað hér á landi. Vinnuveit- endasambandið hefrn líka verið með töluna 3,5 til 4 prósent kauphækkun. Stærstu iðnaðarmannasamtökin í landinu vilja semja um 4 til 5 pró- senta kaupmáttaraukningu á ári næstu 3 árin. Verkamannasambandið, sem er langfjölmennasta sámbandið innan ASÍ, vill meira. Þar tala menn um allt að 8 prósenta kaupmáttarauk- ingu á ári næstu tvö árin. Hver sem lendingin veröm varð- andi hækkun launa hjá verkalýðs- hreyfingunni er ljóst að mikið mun bera í milli þegar aðilar vinnumark- aðarins setjast að samningaborði á næstunni. -S.dór Dagfari Arðurinn af orkunni Allir vita að það getur verið erfitt að fást við taprekstur í at- vinnulífinu. Skuldir safnast upp, eigendm fá ekki arð af framleiðsl- unni og stjórnendm missa annað- hvort vinnuna eða verða að ganga í mikinn og erfiðan niðmskurð í útgjöldum og mannahaldi. Rekstr- arhalli fyrirtækja er mikið böl fyr- ir þá sem eiga fyrirtækin og reka þau. Þetta eru þó smámunir á við það böl sem fylgir því þegar fyrir- tækin taka upp á því að græða og skila afgangi. Þá fyrst reynir á þol- rifin. Hvað á að gera við arðinn? Hvemig á að skipta honum upp? Hver á að fá hvað? Landsvirkjun stendur nú frammi fyrir þessum mikla vanda. Eins og ailir vita hefur Landsvirkj- un átt erfitt uppdráttar undanfarin ár. Fyrirtækið hefúr safnað skuld- um og Reykjavíkurborg var jafnvel farinn að tala um að selja eignar- hluta sinn í fyrirtækinu. í stjóm Landsvirkjunar tóku menn þessu tapi og skuldasöfnun meö æðm- leysi og stóðu tapið af sér eins og hraustir menn em vanir að gera. Ekki man Dagfari betur en að for- stjórum Landsvirkjunar og eigend- um fyrirtækisins hafi þótt eðlilegt og sjálfsagt að almenningur tæki þátt í erfiðleikum fyrirtækisins með því að láta hann axla nokkra ábyrgð sem fólst í hækkuðum orkugjöldum. Þótti það heldur ekk- ert tiltökumál þegar fyrir liggur að almenningur veröur auðvitað að standa undir öllu tapi sem máli skiptir og þetta vafðist ekki fyrir neinum frekar en annað þegar erf- iðleikar steðja að i hallarekstri. En svo gerist það skyndilega að ísal ákveður að stækka álverið og suð- uramerískir tjárfestar hyggja á byggingu annars álvers í Hvalfirði og Landsvirkjun sér fram á rífandi tekjur og reiknimeistarar hafa nú þegar áætlað verulegan arð af rekstri fyrirtækisins. Og þá hófst vandinn fyrir alvöru. Hvað á að gera við arðinn? Reykjavíkurborg hætti strax við að selja hlut sinn í fyrirtækinu enda er búið reikna það út að borg- in fái hundruð milljóna króna í arðgreiðslur á næstu árum. Samtals er búið að reikna það út að arðurinn verði tæpar tvö hund- ruð milljónir á næsta ári, tvö hundmö milljónir árið 1998 og 334 milljónir króna á árinu 1999. Ekki em þó allir sáttir við þessa út- réikninga og málið var ítarlega rætt á fundum Landsvirkjunar, enda er hér um svo stórar upphæð- ir að ræða að ekki er verjandi að hleypa öðrum inn í slíka ákvarð- anatöku. Almenningur er til dæm- is allsendis ófær um að fá vitn- eskju um skiptingu þessarar köku, fyrr en allt er klappað og klárt. Þó má geta þess í framhjáhlaupi að stjómendur Landsvirkjunar hafa sýnt neytendum og almenn- ingi þann rausnarskap og þá vel- vild að gefa það í skyn að orkuverð til almenningsnota kunni að lækka um 3% árlega á næsta áratugi! Þetta er vitaskuld erfið ákvörðun enda ekkert gefið að almenningur eigi rétt á þessari lækkun og enda þótt arðurinn skili sér strax á næsta ári þykir ráðamönnum fyr- irtækisins ekki ráðlegt né sann- gjamt að lækkun orkuverðs til al- mennings komi á þessari öld. Það getur beðið fram yfir aldamót. Þar að auki hafa aðrir glöggir menn minnt á að Landsvirkjun skuldar um fimmtíu milljarða króna og væri ekki nær að leggja eitthvað af arðinum í greiðslur á þessum skuldum? Það eru sem sagt margar spumignar sem vakna þegar fyrir- tæki taka upp á því græða og fram undan em harðvítugar deilur um arðinn af orkunni og verða það grimm átök sem geta endað með ósköpum. Sannleikurinn er sá að það er miklu vandasamara að græða heldur en að tapa og það er miklu meiri vandi að eyöa arðin- um heldur en tapinu. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.