Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1996, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1996, Blaðsíða 25
FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1996 33 Myndasögur Fréttir Ef það er tilfellið getur \ maður aðeins spurt... j (... hvernig ónormal og \ ^óheilbrigður drengur líti^r út.J f<2) •<« U ■*-> <4-1 S' (B C Síðan hvenzer hafa saumanám skeiðstaðið til kl. 3 eftir miðnartti, amma? Eg get ekki sannað það en égi þori að veðja að þú hefur veriðí enn einu brjáluðu partíinu. Friðrik Ólafsson: Athugasemd Friðrik Ólafsson, skrifstofustjóri Alþingis, óskar eftir að koma eftir- farandi á framfæri vegna fréttar sem birtist í DV í gær um þingmenn sem ekki taka við starfskostnaðar- greiðslu. „í fréttinni kom fram að ég hefði staðfest að um væri að ræða þrjá þingmenn. Hér var farið mjög frjáls- lega með það sem fram fór á milli mín og blaðamanns DV. Ég staðfesti aldrei að um þrjá þingmenn væri að ræða. Talan þrír var nefnd í samtal- inu og að það gæti verið um þrjá þingmenn að ræða en ég hafði hins vegar engar haldbærar tölur við höndina um fjölda þingmanna sem tæki greiðslur. Þetta er því alls ekki rétt eftir mér haft,“ segir Friðrik. ísafjörður: Morgun- stund manna DV, ísafirði: Morgunstund jafnaðarmanna var haldin á Hótel ísafirði laugardags- morguninn 27. október og er það lið- ur í fundaferð um landið með þátt- töku aðila úr Alþýðuflokki, Alþýðu- bandalagi og jafnvel Framsóknar- flokki ásamt fulltrúum úr verka- lýðsstétt og sveitarstjórnum á stöð- unum. Fundurinn á ísafirði var vel sótt- ur og meðal þátttakenda voru Sig-. hvatur Björgvinsson, Kristinn H. Gunnarsson, Ásta Ragnheiður Jó- hannesdóttir og Einar Karl Haralds- son. Jón Baldvin Hannibalsson, for- maður Alþýðuflokksins, sem aug- lýstur var meðal þátttakenda, til- kynnti forfóll. Á fundinum var farið vítt og breitt yfir þau hugsanlegu málefni sem jafnaðarmenn gætu sameinast um undir einum hatti. Voru um- ræður mjög líflegar en einna mest var rætt um það mál sem mest brennur á Vestfirðingum þessa dag- ana; kvótakerfið og það óréttlæti sem ýmsir telja aö það hafi skapað í þjóðfélaginu. Mikill áhugi virtist vera á fundinum um áframhald á slíkum viðræðum jafnaðarmanna með það í huga að ná fram eins kon- ar kosningabandalagi fyrir næstu kosningar. -HKr Tapað fundið Karlmannsgiftingarhringur fannst í versluninni Nóatúni, Háa- leitisbraut 68, sl. mánudag. Upplýs- ingar í síma 424 6572 eða 567 2624. Tilkynningar Árnesingakórinn Hinn árlegi haustfagnaður með Ár- nesingakórnum verður haldin fostu- daginn 1. nóvember í félagsheimil- inu Drangey, Stakkahlíð 17. Húsið opnað kl. 20.30. Allir velkomnir. Aöalskoöun hf. á 4 stööum á landinu Á öðru starfsári Aðalskoðunar hf. við skoðun ökutækja hefur fyrir- tækið komið sér upp glæsilegri að- stöðu og fullkomnum tækjabúnaði til skoðunar á ökutækjum við Hellu- hraun í Hafnarfirði og i ísbjamar- húsinu á Seltjamarnesi. Einnig hef- ur fyrirtækið skoðunaraðstöðu í Búðardal og á Ólafsfirði. Frá þvi í vor hefur Aðalskoðun hf. annast eft- irlit með leikfóngum og raffongum sem em til sölu eða í annarri dreif- ingu hér á landi. Leikhús ÞJÓDLEIKHÚSID STÓRA SVIÐIÐ KL. 20: ÞREK OG TÁR eftir Ólaf Hauk Símonarson í kvöld, 70. sýning, nokkur sæti laus, sud. 3/11, nokkur sæti laus, föd. 8/11, nokkur sæti laus, Id. 16/11. Ath. Takmarkaöur sýningafjöldi. NANNA SYSTIR eftir Einar Kárason og Kjartan Ragnarsson á morgun, Id. 9/11, fid. 14/11, sud, 17/11. SÖNGLEIKURINN HAMINGJURÁNIÐ eftir Bengt Ahlfors Id. 2/11, fid. 7/11, sud. 10/11. KARDEMOMMUBÆRINN eftir Thorbjörn Egner sud. 3/11, kl. 14.00, nokkur sæti laus, sud. 10/11, kl. 14.00, sud. 17/11, kl. 14.00. Ath. Takmarkaöur sýningafjöldi. SMÍÐAVERKSTÆDIÐ KL. 20.30: LEITT HÚN SKYLDI VERA SKÆKJA eftir John Ford á morgun, uppselt, mid. 6/11, uppselt, Id. 9/11, uppselt, fid. 14/11, sud. 17/11, föd. 22/11. Athygli er vakin á að sýningin er ekki viö hæfi barna. Ekki er hægt aO hleypa gestum inn I salinn eftir aö sýnlng hefst. LITLA SVIÐIÐ KL 20.30: í HVÍTU MYRKRI eftir Karl Ágúst Úlfsson i kvöld, uppselt, Id. 2/11, uppselt, sud. 3/11, uppselt, fid. 7/11, uppselt, föd. 8/11, uppselt, föd. 15/11, uppselt, Id. 16/11, uppselt, fid. 21/11, örfá sæti laus, sud. 24/11. Athugiö aö ekki er hægt aö hleypa gestum inn í salinn eftir ab sýning hefst. MiOasalan er opin mánud. og þriöjud. kl. 13-18, miövikud-sunnud. kl. 13- 20 og til 20.30 þegar sýningar eru á þeim tima. Einnig er tekiD á móti símapöntunum frá kl. 10 virka daga, sími 5511200 SÍMI MIÐASÖLU: 551 1200. aukaafslátt af simáauglýsingum DV Smáauglýsingar 550 5000 UPPBOÐ Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálf- um sem hér segir: Jörundarholt 12, þingl. eig. Fitjavík, fé- lag, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður rík- isins, mánudaginn 4. nóvember 1996 kl. 11.00._____________________ Vesturgata 25, kjallari, 00.01., þingl. eig. Ingi Þór Bjamason, gerðarbeiðendur Landsbanki íslands, lögfræðideild, og Lífeyrissjóður sjómanna, mánudaginn 4. nóvember 1996 kl. 11.30. SÝSLUMAÐURINN Á AKRANESI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.