Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1996, Blaðsíða 19
FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1996
27
DV
Iþróttir
Chicago
Árangur í fyrra: 72 sigrar, 10
töp, 1. sæti í miðriðli. NBA-
meistari.
Þjálfari: Phil Jackson, 574
leikir með Chicago.
Nýr leikmaður: Robert Parish.
Kostir: Sá besti í heiminum,
Michael Jordan, spilar með
Chicago og það þarf varla að
segja meira. Scottie Pippen er
þarna líka og Dennis Rodman
sýndi sig og sannaði með liðinu
í fyrravetur. Ekkert lið ræður
yfir annarri eins breidd.
Gallar: Fáir þegar allt er í
fullum gangi en úrslitakeppnin í
fyrra tók sinn toll og Scottie
Pippen, Ron Harper og Luc
Longley fóru i uppskurði í sum-
ar. Liðið gæti verið lengi í gang
af þessum sökum.
Lykilmaður: Michael Jordan
er að sjálfsögðu sá sem gerir út-
slagið í frábæru liði.
Möguleikar: Chicago hefur
alla burði til að verja meistara-
titilinn.
Lakers tapaði
fyrir Houston
í kynningu á liðum í Kyrra-
hafsriðlinum í gær var sagt að
LA Lakers hefði tapað fyrir
Boston í 1. umferð úrslitakeppn-
innar. Það er að sjálfsögðu mesta
flrra, þessi lið hefðu aldrei getað
mæst, en það rétta er að Lakers
tapaði fyrir Houston.
Cleveland
- nema hvað Chicago vinnur hann með yflrburðum
Það þarf ekki að eyða miklum
tíma í vangaveltur um hvaða lið
vinnur miðriðilinn í vetur. Meistar-
ar Chicago eru með langsterkasta
liðið og hafa eflaust svipaða yflr-
burði og í iyrra þegar þeir unnu 20
leikjum meira en næsta lið í riðlin-
um. Spurningin er hvort hægt sé að
bæta metið í sigurleikjum sem liðið
setti, 72 sigrar í 82 leikjum.
Fimm lið komust áfram úr riðlin-
um í fyrra og litlu munaði að það
sjötta, Charlotte, skákaði liði númer
þrjú í Atlantshafsriðlinum. Indiana
og Atlanta eiga að öllu eðlilegu að
vera númer tvö til þrjú og lítið skil-
ur næstu lið, Detroit, Cleveland og
Charlotte. Þá gætu hin tvö,
Milwaukee og Toronto, sótt sig og
gert hinum skráveifú.
Á þessu sést að hér er um að
ræða jafnasta riðil deildarinnar, ef
Chicago er undanskilið, og þar verð-
ur harðasta haráttan um að komast
áfram. Úthald, breidd og heppni
varðandi meiðsli ráða því sennilega
mestu um útkomuna.
-VS
Indiana
Árangur í fyrra: 52 sigrar, 30
töp, 2. sæti í miðriðli. Tapaði fyr-
ir Atlanta í 1. umferð.
Þjálfari: Larry Brown, 246
leikir með Indiana, 1.022 í NBA.
Nýir leikmenn: Jalen Rose,
Reggie Williams, Erick Dampier.
Kostir: Tókst aö halda Reggie
Miller eftir mikla baráttu í sum-
ar og hópurinn er sterkari eftir
að Rose og Williams komu frá
Denver í skiptum fyrir Jackson
og Pierce. Það þýðir aö bakverö-
irnir eru yngri og frískari en í
fyrra.
Gallar: Rik Smits er að jafna
sig eftir uppskurð og missir af
byrjun tímabilsins. Nái hann sér
ekki fyllilega er liðið í vandræð-
um. Nýliðinn Dampier er líka
meiddur.
Lykilmaður: Reggie Miller er
einn albesti leikmaður deildar-
innar og getur unnið leiki upp á
eigin spýtur.
Möguleikar: Ráðast mjög af
ástandinu á Smits. Kemst örugg-
lega áfram ef allt er í lagi.
Fjórtán leikir
annað kvöld
Keppnin í NBA byrjar undir
miðnættið annað kvöld með 14
leikjum. Öll liðin spila nema
Charlotte sem á fyrsta leik sólar-
hring síðar.
í næstu viku verða tveir leikir
í deildinni spilaðir í Tókíó í Jap-
an en þar mætast Orlando og
New Jersey tvívegis. -VS
Detroit
Damon Stoudamire úr Toronto var
nýiiði ársins í fyrra og verður eflaust
aftur í sviðsljósinu í vetur.
Atlanta
DV kynnir liöin í NBA - Miðriðill:
Jafnasti riðill-
inn í deildinni
Árangur í fyrra: 47 sigrar, 35
töp, 3. sæti í miöriðli. Tapaði fyr-
ir New York í 1. umferð.
Þjálfari: Mike Fratello, 246
leikir með Cleveland, 823 í NBA.
Nýlr leikmenn: Mark West,
Vitaly Potapenko, Zydrtmas II-
gauskas.
Kostir: Frábær þjálfari sem
virðist endalaust ná því besta út
úr sínum leikmönnum. Miklar
væntingar eru gerðar til nýju
miðherjanna, Potapenko og II-
gauskas.
Gallar: Endalaus meiðsli
þjaka liðið og nú er nýi Lithá-
inn, Ilgauskas, fótbrotinn og spil-
ar ekki í 4-5 mánuði. Liðinu
gengur oft illa að skora og er í
sífelldu stríði við skotklukkuna.
Lykilmaður: Skotbakvörður-
inn Terrell Brandon er á
stöðugri uppleið og leiðir liðiö.
Möguleikar: Cleveland getur
ekki endalaust leikið umfram
eðlilega getu og verður í vand-
ræðum með að komast í úrslita-
keppnina.
Chariotte
Árangur í fyrra: 41 sigur, 41
tap, 6. sæti í miðriðli. Komst
ekki áfram.
Þjálfari: Dave Cowens, nýr
hjá Charlotte, 68 leikir í NBA.
Nýir leikmenn: Anthony Ma-
son, Vlade Divac, Brad Lohaus,
Tony Delk.
Kostir: Mason ætti að bæta
vamarleikinn verulega en hann
var höfuðverkur liðsins í fyrra.
Mikið veltur á frammistöðu
Glen Rice.
Gallar: Vandræði með mið-
herja, Divac er reyndar kominn
frá Lakers en hann er ekki nógu
góður varnarmaður. Bakvörður-
inn Muggsy Bogues gæti verið
mikið frá vegna meiðsla og það
yrði erfitt að leysa hann af.
Lykilmaður: Framherjinn
Glen Rice hefur hefúr verið í
banastuði á undirbúningstíma-
bilinu og er til alls vís í vetur.
Möguleikar: Charlotte sat eft-
ir í fyrra og spurning er hvort
liðið nái að bæta sig nægilega til
að komast áfram í þetta sinn.
Árangur f fyrra: 46 sigrar, 36
töp, 4.-5. sæti í miðriðli. Tapaði
fyrir Orlando í 2. umferð.
Þjálfari: Lenny Wilkens, 246
leikir með Atlanta, 1.864 í NBA.
Nýir leikmenn: Dikembe
Mutombo, Jon Barry, Willie
Burton, Tyrone Corbin, Priest
Lauderdale.
Kostir: Miðherjinn Mutombo
fyllir upp í stórt gat í liðinu og
nýliðinn Lauderdale er enn há-
vaxnari. Varnarleikurinn verð-
ur allur annar en í fyrra.
Gallar: Mutombo vill halda
boltanum of lengi og það gæti
hentað Atlanta illa. Vantar betri
bcikverði til að styðja við Blay-
lock og Steve Smith. Breiddin
ekki eins góð þar sem Augmon,
Long og Ehlo eru farnir.
Lykilmaður: Mookie Bla-
ylock er snjall skotbakvörður og
samvinna hans við Mutombo
gæti reynst mjög árangursrík.
Möguleikar: Atlanta stóð sig
vel í fyrra og gæti náð jafnlangt
ef liöið smellur saman.
Milwaukee
Árangur í fyrra: 25 sigrar, 57
töp, 7. sæti í miðriðli. Komst
ekki áfram.
Þjálfari: Chris Ford, nýr hjá
Milwaukee, 410 leikir í NBA.
Nýir leikmenn: Ray Allen,
Armon Gilliam, Andrew Lang,
Joe Wolf, Elliot Perry.
Kostir: Milwaukee verður
með eitt besta ffamheijaparið í
deildinni, Vin Baker og Glenn
Robinson. Gilliam mun hafa góð
áhrif á liðið og Allen er efni í
stjömuleikmann.
Gallar: Vöm liðsins var
hræðileg i fyrra og verður ef-
laust veikasti hlekkurinn áfram.
Lykilmenn fá litla hvíld og
springa oft í fjórða leikhluta.
Lykilmaður: Vin Baker fær
nú að leika sína stöðu sem fram-
herji eftir að miðherjinn Lang
var keyptur og ætti að nýtast
betur en áður.
Möguleikar: Milwaukee gæti
komið skemmtilega á óvart i vet-
ur. Hvort það dugar til að kom-
ast áfram er annað mál.
Árangur f fyrra: 46 sigrar, 36
töp, 4.-5. sæti í miðriðli. Tapaði
fyrir Orlando i 1. umferð.
Þjálfari: Doug Collins, 82 leik-
ir með Detroit, 328 í NBA.
Nýir leikmenn: Stacey Aug-
mon, Kenny Smith, Grant Long,
Rick Mahom, Jerome Williams.
Kostir: Mjög sterkt vamarlið,
ekki síst eftir að hafa fengið
Augmon og Long. Grant Hill er
geysilega snjall og Joe Dumars
verður með á ný og reynsla hans
gæti reynst mikilvæg.
Gallar: Liðið vantar alvöru
miðherja og missti bakvörðinn
Allan Houston tiliNew York án
þess að fá fullnægjandi styrk í
staðinn. Breiddin er allt of lítil
til að teljandi árangur náist.
Lykilmaður: Grant Hill var
frábær í fyrra og er líklegur til
að bæta enn við sig á þriðja ári
sínu I deildinni.
Möguleikar: D'etroit verður í
tvísýnni baráttu um að komast í
úrslitakeppnina. 1
Toronto
Árangur í fyrra: 21 sigur, 61
tap, 8. sæti í miðriðli. Komst
ekki áfram.
Þjálfari: Darrell Walker, ný-
liði í NBA.
Nýir leikmenn: Popeye Jon-
es, Hubert Davis, Walt Williams,
Harold Miner, Marcus Camby.
Kostir: Fjórir sterkir leik-
menn hafa bæst í hópinn og fyr-
ir var nýliði ársins í fyrra, bak-
vörðurinn Damon Stoudamire.
Isiah Thomas rak þjálfarann og
réð Walker sem er í miklu uppá-
haldi hjá leikmönnum.
Gallar: Varnarléikurinn verð-
ur líklega áfram helsta vanda-
málið, sérstaklega gegn hávöxn-
um liðum.
Lykilmaður: Popeye Jones er
ótrúlegur í fráköstunum og hann
getur breytt miklu fyrir Kanada-
liðið.
Möguleikar: Toronto er að-
eins á sínu öðru ári í deildinni
og þolinmæði er lykilorðið. Liðið
er ekki tilbúið strax til að berjast
um sæti í úrslitakeppninni.
f
►'
F
w
f
f
¥
f
¥
Ér
f
r
FOSTUDAGAR
Fjörkálfurinn:
Fjörkálfurinn er mjög
skemmtileg 12 síðna útgáfa á
föstudögum í DV. Fjörkálfurinn
fjallar um það sem er heitast í
gangi hverju sinni:
ES3 llm helginn:
Fersk umfjöllun um það helsta
sem er á döfinni í menningar-
og skemmtanalífinu um helgina.
I>. Tónlist:
Fjörkálfurinn fjallar ítarlega um
íslenska og erlenda tónlist og
tónlistarheiminn ásamt því að
birta íslenska listan.
r»XvMyndbönd:
Spennandi þriggja síðna
umfjöllun um myndbönd í
víðum skilningi er að finna í
Fjörkálfinum á föstudögum. Þar
er m.a. umfjöllun um nýjustu
myndböndin, leikara,
stjörnugjafir ásamt
myndbandalista vikunnar.
m MttfsjmBaiMaapr
SiK
JKEDft
IHIII Jf
æAf
j*
.A\\W x
^ÍlijÓR
Mrðit
gjggg
SMggjg
- alltaf á
föstudögwm