Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1996, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1996
13
I>v Fréttir
Stilling hraðamæla:
Finnst þetta
óþörf
umræða
- segir Óli H. Þórðarson
„Mér finnst þetta satt að segja
óþörf umræða því ef fylgt er evr-
ópskum reglum um að mælarnir
megi ekki sýna minni hraða en
ekið er á er þetta af hinu góða.
Hver og einn hefði átt að eiga þetta
inni hjá sjálfum sér i akstri. Komi
það hins vegar í ljós að mælarnir
sýni minni hraða er það auðvitað
mjög alvarlegt," segir Óli H. Þórð-
arson, framkvæmdastjóri Umferð-
arráðs.
Dómsmálaráðherra hefur í kjöl-
far umræðna á Alþingi falið Um-
ferðarráði og lögreglu að gera at-
hugun á þvi hvort hraðamælar séu
rangt stilltir í bifreiðum hér á
landi.
Óli segir þau umboð sem hann
hafi rætt við hér á landi fullyrða að
framleiðendur hagræði mælunum
ekki vísvitandi til þess að bílarnir
sýni minni eyðslu á kílómetra. -sv
Vöruskiptin:
Óhagstæð um
2,3 milljarða í
september
Vöruskipti við útlönd í septem-
ber sl. voru óhagstæð um 2,3 millj-
arða króna. Fluttar voru inn vörur
fyrir 11,1 milljarð en út fyrir 8,8
milljarða. Þetta er miklu meiri
vöruskiptahalli en í september í
fyrra þegar vöruskiptin voru hag-
stæð um 1,5 milljarða.
Mestu munaði að útflutningur
sjávarafurða var fimmtungi minni
nú en í sama mánuði í fyrra. Um
leið jókst innflutningur á bilum um
53% og olíuinnflutningur tvöfald-
aðist.
Fyrstu niu mánuði ársins voru
fluttar út vörur fyrir 91,6 milljarða
en inn fyrir 89,3 milljarða. Afgang-
ur var því á vöruskiptunum við út-
lönd sem nam 2,3 milljörðum. Á
sama tíma árið áður voru þau hag-
stæð um 11,4 milljarða. Vöruskipta-
jöfnuðm-inn er þvi 9 milljörðum
króna lakari nú en á sama tíma í
fyrra. -bjb
Akureyri:
Harður
árekstur
Harður árekstur varð Tveir bílar
lentu harkalega seunan í hálkunni á
Hjalteyrargötu á Akureyri um há-
degið í fyrradag. Ökumaður úr öðr-
um bílnum slasaðist lítillega og var
fluttur á sjúkrahús en ökumaður og
farþegi úr hinum bílnum sluppu
ómeiddir. Báðir bílamir skemmd-
ust mjög mikið. -RR
Maður tekinn
með þýfi
Maður var handtekinn með þýfi í
húsi í miðborginni í fyrrinótt. Sjón-
arvottar sáu manninn á ferli með
stóran svartan plastpoka á Skóla-
vörðustíg og fór lögreglan á staðinn.
Maðurinn fannst í húsi þar ná-
lægt og við leit í pokanum fannst
þýfi úr veitingahúsi. Maðurinn gisti
fangageymslur lögreglunnar um
nóttina. -RR
íkíMt) tíiVflDlli'
Stórlœkkun á
HlayStanon
Reykjavík: Megabúðin, Laugavegi 96
Skífan, Kringlunni
Skífan, Laugavegi 26
Tölvukjör, Faxafeni 5
Akranes: Hljómsýn
ísafjörður: Póllinn
Sauðárkrókur. Stuðull / Tölvubúnaður
Akureyri: Tölvutaeki-Bókval
Naust
Egilsstaðir: Kaupfélag Héraðsbúa
Vestmannaeyjar: Tölvubær
Selfoss: KÁ
Keflavík: Rafhús
PlayStation fæst m.a. hjá eftirtöldum söluaðilum:
j Sigurför PlayStation-leikjatöivunnar
hefur veríð ósiitin
Engin ieikjatölva stendur PlayStation á
sporði þegar kemur að hraða
og hágæðagrafík
Tugir leikja fyrir PlayStation eru
komnir á markaðinn og von er á
fjölda nýrra titia á næstu vikum
Ein vandaðasta og vinsælasta ieikjatöiva
heims á aðeins ^ ^____________________
kr. stgr.
22.950
(AGV: 25.500 kr.)
staðgreiðslu- og greiðslu-
kortaaísláttur og stighœkkandi
birtingarafsláttur
aít mil/i him/,
mSc
%
Q-
Smáauglýsingar
550 5000
Urval notaðra bíla
á góðunrt lcjörum!
Ath! Skuldabréf til allt aó 60 mánaöa.
Opíö: virka daga kl. 9—18 laugardaga kl. 10—17 Jafnvei engin útborgun.
___________ Visa/Euro greiöslur