Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1996, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1996, Qupperneq 18
26 FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1996 íþróttir DV San Antonio Árangur 1 fyrra: 59 sigrar, 23 töp, 1. sæti í miðvesturriðli. Tap- aði fyrir Utah i 2. umferð. Þjálfari: Bob Hili, 164 leikir með SA Spurs, 451 í NBA. Nýir leikmenn: Vernon Maxwell, Dominique Wilkins. Kostir: Traust og reynt lið með David Robinson í farar- broddi og menn á borð við Sean Elliott, Charles Smith, Avery Johnson og Vinny Del Negro. Maxwell og Wilkins auka breidd- ina og styrkja sóknarleikinn. Gallar: Vantar kraftmikinn framherja. Chuck Person er frá vegna meiðsla. Of margir „góðir strákar" í liðinu sem bíta ekki frá sér þegar harkan eykst. Lykiimaður: Charles Smith, mjög fjölhæfur og gðður leik- maður. Ef hann bætir við sig grimmd getur það gert útslagið. Möguleikar: Hæfileikaríkt lið en vantar kraftinn þegar í alvör- una kemur í úrslitunum. Ólík- legt að Spurs haldi efsta sætinu í riðlinum. Houston Árangur í fyrra: 48 sigrar, 34 töp, 3. sæti í miðvesturriðli. Tap- aði fyrir Seattle í 2. umferð. Þjálfari: Rudy Tomjanovich, 358 leikir með Houston. Nýir leikmenn: Charles Bark- ley, Brent Price, Kevin Willis. Kostir: Með Barkley innan- borðs verða stórstjörnumar þrjár, hann Hakeem Olajuwon og Clyde Drexler. Willis eykur breiddina í fráköstunum og Price í langskotunum. Gallar: Sterkt sex manna lið en tómlegt þar fyrir utan því Barkley var dýr. Ef einhver úr byrjunarliðinu meiðist er Hou- ston í vondum málum. Lykilmaður: Bakvörðurinn Brent Price fær það erfiða hlut- verk að taka við af Sam Cassell og Kenny Smith. Hann þarf að standa sig til að Houston nái langt. Möguleikar: Barkley þráir meistaratitil en þrátt fyrir mik- inn styrk er ólíklegt að Houston skáki Seattle í Vesturdeildinni. Ekki líkja Ronaldo við Pele Mario Zagallo, landsliðsþjálf- ari Brasilíu í knattspymu, segist óttast allt umtalið í kringum Ronaldo, stjörnuna hjá Barce- lona. Þessi tvítugi sóknarmaður er orðinn dýrlingur í heimalandi sínu eftir frammistöðu sína að undanförnu, ekki síst eftir að hann skoraði öll mörk Brasilíu í 3-1 sigri á Litháen á dögunum. Þar í landi er farið að tala um hinn „nýja Pele.“ Zagallo segir að þetta geri Ronaldo ekki gott. „Leggjum til hliðar allan samanburð við Pele og lítum á Ronaldo eins og hann er - besti leikmaður heims í sinni stöðu. Ronaldo er ekki for- tíðin, hann er nútíðin. -VS Stimac spáir Liverpool sigri Igor Stimac, Króatinn snjalli sem leikur með Derby, spáir Liverpool enska meistaratitlin- um í knattspymu. „Liverpool er besta liðið í dag, mun betra en Newcastle, Arsenal og Manchest- er United. Leikmenn liðsins geta haldið boltanum í 90 mínútur og látið mótherjana hlaupa allan tímann,“ segir Stimac. DV kynnir liðin í NBA - Miðvesturriðill: Houston líkleg- ast til afreka - springur Dallas loksins út í vetur? í miðvesturriðlinum em þrjú sterk lið, San Antonio, Utah og Hou- ston og telja má víst að þau komist öll áfram. Það er hins vegar erfitt að sjá meistaraefni í þessum hópi. Af þessum þremur er Houston líklegast til að ná langt, ekki síst eft- ir að Charles Barkley bættist í hóp- inn. Það er samt ólíklegt að Houston nái að endurtaka leikinn frá 1994 og 1995 þegar liðið var meistari tvisvar, til þess er breiddin ekki nægileg. San Antonio með David Robinson og Utah með Malone og Stockton geta líka gert góða hluti þegar í úr- slitakeppnina kemur. Denver og Dallas áttu um tíma möguleika á að komast í úrslita- keppnina í fyrra en létu liðin núm- er fjögur og flmm í Kyrrahafsriðlin- um stinga sig af þegar á reyndi. Bæði Denver og Dallas eru með góð lið á góðum degi og spumingin er hvort Dallas nær að springa út í vet- ur. Minnesota og Vancouver vinna ekki marga leiki en geta þó bæði bætt við sig frá því í fyrra. Þau verða samt eflaust í tveimur neðstu sætunum. -VS Shareef Abdur-Rahim, nýliðinn hjá Vancouver, gæti slegið í gegn í vetur. Dallas Árangur í fyrra: 26 sigrar, 56 töp, 5.-6. sæti í miðvesturriðli. Komst ekki áfram. Þjálfari: Jim Cleamons, nýliði. Nýir leikmenn: Derek Hai-p- er, Oliver Miller, Eric Montross, Samaki Walker, Chris Gatling, Jimmy King, Fred Roberts. Kostir: Fjölmargir ungir og efnilegir leikmenn, Jason Kidd, Jimmy Jackson og Jamal Mas- hburn fremstir i flokki. Breiddin hefur aukist mikið og efniviður- inn svo sannarlega fyrir hendi. Gallar: Ungu stjömumar skortir þroska, innan vallar og utan, og hafa átt í erjum inn- byrðis. Fráköstin gætu orðið vandamál þar sem Popeye Jones er farinn. Lykilmaður: Kidd þarf að stíga skreflð til fulls í vetur, ætli hann aö skipa sér í hóp þeirra bestu. Möguleikar: Dallas getur náð 50 sigram og komist í úrslit í fyrsta sinn í sjö ár, ef allir eru til friðs. Minnesota Árangur í fyrra: 26 sigrar, 56 töp, 5.-6. sæti í miðvesturriðli. Komst ekki áfram. Þjálfari: Flip Saunders, 62 leikir með Minnesota. Nýir leikmenn: James Robin- son, Stephon Marbury, Cher- eokee Parks, Chris Carr, Billy Curley, Stojko Vrankovic, Shane Neal. Kostir: Eftir 7 ára basl eru loksins teikn um betri tíð. Kevin Gamett er einn sá efnilegasti, Parks á mikið inni og nýliðinn Marbury getur slegið í gegn, sömuleiðis Ástralinn Heal. Gallar: Tom Gugliotta er eini reyndi maðurinn í byijunarlið- inu og spurningarmerkin eru fjölmörg. Lykilmaður: Bakvörðurinn Marbury er einn besti nýliði sið- ari ára og verður góður í vetur ef hann ætlar sér ekki um of. Möguleikar: Úrslitasæti er fjarlægur draumur en fyrir þetta lið skiptir mestu máli að byggja upp og bæta fyrir framtíðina. Vancouver Árangur í fyrra: 15 sigrar, 67 töp, 7. sæti í miðvesturriðli á fyrsta ári i NBA. Komst ekki áfram. Þjálfari: Brian Winters, 82 leikir með Vancouver. Nýir leikmenn: Anthony Peeler, George Lynch, Lee Mayberry, Shareef Abdur-Ra- him, Roy Rogers, Pete Chilcutt, Tim Breaux. Kostir: Stóra mennirnir, Abd- ur-Rahim, Lynch og Bryant Ree- ves, era ungir og eiga framtíðina fyrir sér og nýliðinn Rogers er frábær vamarmaður. Bakverð- imir eru fljótir og frískir. Gallar: Lítil breidd og reynsla, vantar skotbakvörð og miðherjinn Reeves er of seinn. Lykilmaður: Nýliðinn Abdur- Rahim er mikill skotmaöur og verður góður ef hann bætir við sig fleiri eiginleikum. Möguleikar: Kemst varla úr botnsæti riðilsins en ætti að bæta sig eitthvað. Gott ef liðið vinnur meira en 20 leiki. Mick McCarthy, þjálfari írska landsliðsins: „Brosi öll jólin ef við vinnum ísland" - Roy Keane verður á ný með Irum þann 10. nóvember Mick McCarthy, þjálfari írska landsliðsins í knattspyrnu, sagði í samtali við fréttastofuna Press Association í gær að hans menn yrðu að gæta sín sérstaklega á að vanmeta ekki íslendinga. Þjóðimar mætast í undankeppni HM á Lans- downe Road leikvanginum í Dublin sunnudaginn 10. nóvember. „Við verðum að hafa varann á gagnvart íslenska landsliðinu þó það hafi fengið háðulega útreið á heimavelli gegn Rúmeníu. íslenska knattspymusambandið, íslenskir fjölmiðlar og knattspymuáhuga- menn hafa gagnrýnt liðið harkalega og slíkt getur haft mikil áhrif í næsta leik á eftir. íslendingamir gætu skellt í lás á Lansdowne Road og skrúfað fyrir öll marktækifæri okkur til handa,“ sagði McCarthy. Hann telur þó að ef sínir menn leiki af eðlilegri getu muni þeir leggja ísland að velli. „Ég brosi öll jólin ef við náum í stigin þrjú gegn íslandi. Það hefur alltaf verið stefnan og þá erum við í ágætri stöðu fyrir útileikina gegn Makedóníu og Rúmeníu á næsta ári. Ef við spilum eins í tveimur fyrstu leikjum okkar í keppninni sé ég enga ástæðu til annars en við vinnum ísland," sagði þjálfarinn. Roy Keane, hinn baráttuglaði leikmaður Manchester United, hef- ur verið valinn í írska hópinn og spilar sinn fyrsta landsleik síðan í mars en þá var hann rekinn af velli fyrir að sparka i rússneskan mótheija. -VS Utah Árangur í fyrra: 55 sigrar, 27 töp, 2. sæti í miðvesturriðli. Tap- aði fyrir Seattle í úrslitum Vest- urdeildar. Þjálfari: Jerry Sloan, 637 leik- ir með Utah, 854 í NBA. Nýr leikmaður: Brooks Thompson. Kostir: Karl Malone og John Stockton bera uppi sóknarleik- inn og gefa ekkert eftir þó árin færist yfir. 'l kringum þá era margir reyndir leikmenn, svo sem Jeff Hornacek, Antoine Carr og Chris Morris. Gallar: Vantar betri miðherja og annan framherja við hliö Malones. Lykilmaður: Malone - og Stockton. Ef annan vantar, sem gerist nær aldrei, er Utah varla miðlungslið. Möguleikar: Utah verður á svipuðu róli og vanalega, kemst auðveldlega áfram en fellur snemma út í úrslitunum. Kemst í úrslit Vesturdeildar annað hvert ár, ekki í þetta sinn. Denver Árangur í fyrra: 35 sigrar, 47 töp, 4. sæti í miðvesturriðli. Komst ekki áfram. Þjálfari: Bernie Bickerstaff, 114 leikir með Denver, 524 í NBA. Nýir leikmenn: Sarunas Marciulionis, Mark Jackson, Ricky Pierce, Ervin Johnson, Efthimis Retzias. Kostir: Ágætis blanda og breidd með hina efnilegu fram- herja LaPhonso Ellis og Antonio McDyess i fararbroddi. Mark Jackson er reyndur bakvörður og Bryant Stith mjög fjölhæfur. Gallar: Brotthvarf Mutombos veikir varnarleikinn gífurlega og Johnson á ekki möguleika á að fylla skarðið. Vantar virki- lega toppmenn. Lykilmaður: McDyess er maður framtíðarinnar og á eftir að bæta sig mikið í vetur. Möguleikar: Lítill metnaður i vetur því eftir þetta tímabil á að skipta um fjölda leikmanna og byggja upp nýtt og betra lið. Fimleikar: Dýri og Rúnar unnu allt Rúnar Alexandersson og Dýri Kristjánsson úr Gerplu sigruðu í öllum greinum karla á haust- móti Fimleikasambands íslands í Laugardalshöllinni um síðustu helgi. Dýri vann fjórar greinar af sex. Hann fékk 7,95 á tvíslá, 8,55 á svifrá, 8,60 i gólfæfingum og 8,35 á bogahesti. Rúnar vann hinar tvær grein- amar. Hann fékk 8,60 í stökki og 9,25 í hringjum. í kvennaflokki sigraði Elín Gunnlaugsdóttir, Ármanni, í tveimur greinum. Hún fékk 8,50 á slá og 8,925 í gólfæfingum. Jóhanna Sigmundsdóttir sigr- aði í stökki með 8,80 og Elva Rut Jónsdóttir, Björk, á tvíslá með 8,75. -VS Golf: Sigurjón framar- lega á 3 mótum Sigurjón Arnarsson úr GR stóð sig vel á þremur mótum í Tommy Armour mótaröð at- vinnumanna í Flórída á dögim- um. Hann varð 12. af 45 keppend- um á eins dags móti á Heathrow- vellinum, 16. af 40 á þriggja daga móti á The Oaks-vellinum og 15. af 52 á eins dags móti á Mission Inn-vellinum. Á síðastnefnda mótinu lék hann á pari. -VS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.