Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1996, Blaðsíða 4
4
MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 1996
Fréttir
Flokksþing Alþýöuflokksins um helgina:
Allir ganga ósár-
ir frá þinginu
- segir Sighvatur Björgvinsson, nýkjörinn formaður flokksins
„Það eru engin illindi eða ójöfn-
uður í Alþýðuflokknum og það fara
allir ósárir frá þessu flokksþingi,"
segir Sighvatur Björgvinsson, ný-
kjörinn formaður Alþýðuflokksins,
á flokksþinginu sem haldið var í
Perlunni um helgina.
Sameining flokka á vinstri
vængnum var mikið rædd á flokks-
þinginu og að sögn Sighvatar var
full samstaða um stefnuna í þeim
málum. „Alþýðuflokkurinn vill að
gengið sé eftir þeirri braut,“ segir
Sighvatur en segir að framhaldið og
árangurinn ráðist af undirtektum
þeirra sem máliö varðar. Stefna Al-
þýðuflokksins og Þjóðvaka sé hins
vegar skýr og afdráttarlaus í sam-
einingarmálum. „Ég á ekki von á
því að aðrir séu þversum en það get-
ur verið að á ýmsum vettvöngum sé
að flnna fólk sem kannski er ekki
jafnáhugasamt um sameiningu og
við erum,“ segir hann.
Nokkuð óvenjulegt orðalag er í
nokkrum ályktunum þingsins um
sameiningarmál og er talað um
sameiningu jafnaðarmanna og sam-
vinnumanna. DV spurði Sighvat
hvort verið væri að biðla til Fram-
sóknarmanna. „Það er verið að
biðla til allra jafnaðarmanna hvar í
flokki sem þeir standa,“ sagði Sig-
hvatur Björgvinsson, formaður Al-
þýöuflokksins.
-SÁ
Mokveiði
á síldar-
miðunum
DV, Seyðisfirði:
Síldveiðarnar glæddust mjög í
síðustu viku enda var veðráttan
miklu hagstæðari en verið hafði
dagana þar á undan. Síðustu sól-
arhringana hefur sfldin síðan
verið að fjarlægjast landið nokk-
uð og veiddist 40 sjómílur ANA
af Glettinganesi. Þar fengust góð
köst af vænni sild sem hentar
vel til vinnslu til manneldis.
í gær var sfld landað á öllum
höfnum austanlands. Hér eru
Svanur og Víkurberg að landa
og hjá Dvergasteini er unnið á
vöktum við frystinguna og hafa
þar verið fryst rúm 1200 tonn.
Hjá Strandasfld hefur verið salt-
að í rúmlega 16 þúsund tunnur
og fryst um 500 tonn. Mikifl hug-
ur er nú í fólki meðan góð veiði
og veörátta fara saman og síldin
er væn og matarleg. -JJ
Nýkjörinn varaformaöur og formaöur Alþýöuflokksins, Ásta B. Þorsteinsdóttir og Sighvatur Björgvinsson, á flokks-
þinginu sem haldiö var f Perlunni um helglna. Jón Baldvin Hannibalsson, fráfarandi formaöur, mælti meö Sighvati
sem arftaka sfnum. Þaö gekk eftir. Jón Baldvin mælti einnig meö þvf aö Guömundur Árni yröi áfram varaformaöur.
Paö gekk ekki eftlr. DV-mynd GVA
Nýr varaformaður Alþýðuflokksins:
Sameinaðir
jafnaðarmenn
lífsnauðsyn
„Mér líst mjög vel á að gegna
varaformennsku í Alþýðuflokkn-
um,“ segir Ásta B. Þorsteinsdóttir,
nýkjörinn varaformaður Alþýðu-
flokksins.
Um sameiningu jafnaðarmanna,
sem var mikið rædd á flokksþing-
inu, segir Ásta: „Allir helstu leiðtog-
ar Alþýðuflokksins hafa lýst vilja
sínum til þess að þetta gangi eftir.
Ég held að fólk skilji þessa nauðsyn
að tfl verði sterkt afl sem mótvægi
við Sjálfstæðisflokkinn,"
Ásta segir að félagshyggjufólki sé
að verða það betur ljóst að jafnaðar-
menn, hvar í flokkum sem þeir
kunni að vera, verði að efla sam-
stöðu með sér eftir að sú ásýnd sem
ríkisstjómin kýs að sýna hefur orð-
iö ljós. „Rannveig Guðmundsdóttir,
formaður Þingflokks jafnaðar-
manna, hefur þegar átt mjög gott
samstarf við aðra flokka í stjómar-
andstöðu, m.a. Kvennalistann, og ég
er sannfærð að það hefur faflið í
góðan jarðveg,“ segir nýkjörinn
varaformaður Alþýðuflokksins.
-SÁ
Með albestu helgum
í höfuðborginni
„Þetta var bara með albestu kvöld-
um í langan tíma. Það var fátt í mið-
borginni, aðeins um 800 manns, og
enginn voði átti sér staö,“ sagði Grét-
ar Norðfjörð, talsmaður lögreglunnar
í Reykjavík, í samtali við DV i gær.
Grétar sagði jafnframt að það væri
nánast „lygilegt að segja“ að ein helgi
hefði liðið í Reykjavík án þess að eitt-
hvaö teljandi hefði gerst. „En svona
er bara lífið,“ sagði Grétar.
-Ótt
Dagfari
tapaði en Sighvatur vann
Tyson
Tvær miklar orrustur vom háð-
ar um helgina. Annars vegar var
það hnefaleikakeppnin milli
Tysons og Holyfields og hins vegar
að sjálfsögðu risaslagurinn í Al-
þýðuflokknum milli Sighvats
Björgvinssonar og Guðmundar
Árna Stefánssonar. Báðar þessar
orrustur vöktu slíka athygli og eft-
irvæntingu að kosning Clintons
sem forseta Bandaríkjanna féll al-
gjörlega í skuggann. Enda vom það
ekki nema rétt 50% kjósenda í
Bandaríkjunum sem höfðu áhuga á
þeim kosningum. Hinn helmingur
kjósendanna sat heima og beið eft-
ir að Tyson rotaði Holyfield og
Guðmundur Ámi legði Sighvat.
Þessi tvö einvígi bar upp á sama
sólarhringinn. Og það var spenna í
loftinu, rafmögnuð spenna.
Alþýðuflokksmenn eru áhuga-
samari en Bandaríkjamenn um
kosningar. Níutíu og fimm prósent
fulltrúa á flokksþingi kratanna
kusu í formannskosningunni.
Fyrst hylltu þeir Jón Baldvin og
horfðu á Bryndísi gráta á öxl
bónda síns af einskærum fögnuði
yfir því að hann væri loksins laus
úr þeim viöjum að stjóma þessum
flokki. Enda hefur Jón Baldvin
aldrei getað um frjálst höfuð strok-
ið síðan hann geröist karlinn í
brúnni og reyndi aö stýra þessu
baldna liði til einhverra áhrifa. Nú
er þeirri píslargöngu lokið og
Bryndís grét af gleði. Svo komu úr-
slitin um eftirmanninn. Sighvatur
náði rúmlega 50%. Fékk 177 at-
kvæði. Guömundur Árni fékk 158
atkvæði. Ekki mátti miklu muna.
Ef ein fjölskylda hefði tekið sig
saman og kosiö öfugt hefðu úrslit-
in orðið önnur. Enda var Sighvat-
ur ekki merkjanlega glaður með
kosningu sína. Næstum því fúll og
Guðmundur var líka pínulitið fúll
en bar sig vel og ætlar að vera í
flokknum áfram.
Það teljast nokkur tíðindi í Al-
þýðuflokknum enda em fordæmi
fyrir því að sá sem tapar formanns-
kosningu í Alþýðuflokknum stofn-
ar nýjan flokk eða leggst í útlegð til
að ná sér niðri á þeim formanni
sem nær kosningu. Það veit ekki á
gott fyrir Alþýðuflokkinn ef Guð-
mundur Árni ætlar að vera í Al-
þýðuflokknum áfram. Sighvatur
veit á hverju hann á von. Hann
hefði betur fengið fleiri atkvæði og
rotað Guðmund Árna í eitt skipti
fyrir öll.
Seinna um kvöldið hófst svo box-
ið hjá Tyson og Holyfield og allir
biðu eftir því að Tyson rotaði
Holyfield og sýndi þar með krötum
hvemig menn afgreiða andstæð-
inga sina í eitt skipti fyrir öfl. En
sá slagur fór á annan veg. Holyfield
neitaði að gefast upp og hafði raun-
ar yfirburði gegn Tyson sem varð
að játa sig sigraðan í elleftu lotu.
Sem var á elleftu stundu, þvi ann-
ars hefði Holyfield rotað Tyson. Nú
verður að hafa í huga að Tyson átti
við rammari reip að draga en Sig-
hvatur vegna þess að það er ekki
heiglum hent að rota mann sem
heitir Holyfield. Hinn heilagi akur.
Svoleiðis menn gefa sig ekki fyrr
en í fulla hnefana. Guðmundur
Árni hefði betur heitiö Holyfield.
Þá heföi honum gengið betur.
Holyfield sigraði eins og Sighvatur
og eftir atvikum geta báðir verið
nokkuð stoltir af sigrum sínum í
ljósi þess að þetta voru teknisk rot-
högg og það tekur ailtaf einhvern
tíma fyrir andstæðinginn að ná sér
aftur. Tyson mun ömgglega jafna
sig og skora Holyfield aftur á hólm
og það sama mun Guðmundur
Ámi gera, enda munaði ekki nema
einni eða einni og hálfri flölskyldu
á flokksþinginu að hann hefði Sig-
hvat undir. Þannig að þeir eru ekki
hættir, Guðmundur Ámi eða
Tyson, og það eru spennandi tímar
framundan, bæði í boxhringnum
og í Alþýðuflokknum, og sá hlær
best sem síðast hlær.
Dagfari